Morgunblaðið - 30.06.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 19
Ný gengisskráningarvog
ífH' Byggð á viðskiptum 1997 B»y#. fi
Rífcí Gjaldm. Vog fyrri vog
Bandaríkin USD 24,09% 1,63
Þýskaland DEM 13,83% -0,33
Bretland GBP 13,39% 0,26
Danmörk DKK 9,16% -0,26
Noregur NOK 8,26% -0,28
Japan JPY 5,39% -1,42
Frakkland FRF 4,61% -0,14
Holland NLG 4,53% 0,02
Svíþjóð SEK 3,85% -0,28
Spánn ESP 3,02% 0,25
Sviss CHF 2,35% 0,69
Ítalía ITL 2,10% -0,16
Belgía BEF 1,46% -0,09
Kanada CAD 1,37% 0,06
Portúgal PTE 1,37% 0,03
Finnland FIM 1,22% 0,01
ALLS: 100,0%
Gengisskráningarvogin endurskoðuð
Vægi Bandaríkja-
dollars eykst
Kaupfélag Eyfírðinga opnar KEA Nettó í Reykjavík
Morgunblaðið/Ásdís
Júlíus Guðmuudsson er nýr verslunarstjóri í KEA nettó í Mjóddinni.
Lítilla
breytinga
að vænta í
upphafi
KAUPFÉLAG Eyfirðinga hefur
tekið við rekstri verslunarinnar
Kaupgarðs í Mjóddinni í Reykja-
vík. Verslunarstjóri er Júlíus
Guðmundsson, sem áður sá um
rekstur KEA Nettós á Akureyri.
Júlíus segir að litlar breyting-
ar muni eiga sér stað í verði og
vöruúrvali í fyrstu en einhverra
breytinga sé þó að vænta fyót-
lega: „Markmiðið er einfaldlega
að gera út matvöruverslun sem
er samkeppnishæf við lægsta
verðið á þeim markaði. Okkur
hefur vegnað ágætlega með
þennan rekstur á Akureyri og
það er von okkar að slíkt hið
sama gerist hér í Reykjavík."
Aðspurður segir Júlíus að
ástæðan fyrir opnun verslunar í
höfuðborginni liggi fyrst og
fremst í stærð markaðarins
syðra og þeirri staðreynd að
þar muni mesta þróunin eiga
sér stað á næstu árum. Hann
segist ekki eiga von á að í gang
fari verðstríð af þeim toga sem
skapaðist á Akureyri þegar
Bónus opnaði þar verslun í
stuttan tíma síðla árs 1994: „Ég
held að menn hugsi sig tvisvar
um áður en farið er í slíkar að-
gerðir. Stefna okkar er að bjóða
upp á samkeppnishæft verð við
það lægsta sem gerist á mat-
vörumarkaðinum hverju sinni
en tíminn einn mun skera úr um
hvernig þau mál þróast í fram-
tíðinni.“
VÆGI Bandaríkjadollars eykst
nokkuð á kostnað japansks jens og
mynta landa Evrópu í nýrri gengis-
skráningarvog sem mæla mun
gengisbreytingar frá og með degin-
um í dag. Endurspeglar þetta
breytingar á utanríkisviðskiptum
þjóðarinnar frá því gengisskráning-
arvogin var síðast endurskoðuð en
það var fyrir ári.
Gengisskráningarvogin er endur-
skoðuð árlega í ljósi samsetningar
utanríkisviðskipta árið áður. Mark-
miðið er að tryggja að hún endur-
spegli ætíð eins vel og kostur er
samsetningu utanríkisviðskipta
þjóðarinnar, bæði vöru- og þjón-
ustuviðskipta. I fréttatilkynningu
frá Seðlabankanum er lögð á það
áhersla að aðeins er um að ræða
tæknilega breytingu á þeirri geng-
isvog sem notuð er við daglegan út-
reikning á gengi krónunnar og felur
ekki í sér neina breytingu á gengis-
stefnunni.
Mesta breytingin er, sem fyrr
segir, hækkun hlutfalls Bandaríkja-
dollars sem er nú liðlega 24% af
gengisvoginni, eins og sést á með-
fylgjandi töflu. Hefur hlutfall doll-
ars hækkað um 1,63 prósent frá síð-
ustu endurskoðun vogarinnar. Aft-
ur á móti hefur hlutfalls japansks
jens minnkað um 1,42 prósent.
Hlutfall mynta Evrópuríkja er lið-
lega 69% og hefur minnkað um 0,27
prósent frá síðasta útreikningi.
Fyrirtæki-
stofnanir
Eigum fyrirliggjandi á
lager margar stærðir af
Balma-loftpressum.
Gæða-pressur
á hagstæðu verði.
ÞAÐ LIGGUR f LOFTINU
AVSH-4Qf^Ki n¥,
Garðsenda 21.108 Reykjavík.
Sími 568 6925. Fax 568 5311.
Nú hefux flokkum ríkisvíxla verið fækkað og þeir flokkar sem eftir eru stækkaðir í
markflokka. Þetta er gert í kjölfarið á vel heppnaðri markflokkavæðingu spariskírteina
og ríkisbréfa. Markflokkafyrirkomulagið tryggir kaupendum og seljendum ríkisvíxla
bestu markaðskjör á hverjum tíma, öflum aðilum á markaðnmn til hagsbóta.
Utboð ríkisvíxla munu fara fram eins og áðtu í upphafi hvers mánaðar og nálægt
miðjum mánuði.
í útboði 1. júlí verða eftirfarandi flokkar ríkisvíxla í markflokkum boðnir út:
Flokkur Gjalddagi
RV98-0917 17. september 1998
Lánstími
g i/a mámiðir
Núverandi
staða*
3.4.80
Aaetlað hámark
tekxnna tilhoða*
1.500
* Milljónir króna.
Uppbyggiiig markflokka ríkisvíxla
Staða ríkisvíxla 30. júní, 13- 54-6 milljónir króna.
Áætluð hámarksstærð og sala í útboði I. og 8. júlí 1998.
...
■Mfcl
, 51? k
I - ÍhSÍL jJS&I - MKm.
KV9I-OW RV9Í-OÍ1, RV,8-o,i7 RV,«-loi, RV9Í-111S RV9I-IRI, RV99-011! RV99.0917 RV99-031I RV99-0.1l RV99 051I RV99-0Í1I
Gjalddagar
| Stftd. 30. júnf 1998 i Antlud iila I. júlí 1998 i Áicdiið ifylíinglíðir ijHU Ájcduð iala 8. júlí 1998
12 min
fj
H -M.
Sölufyrirkomulag:
Ríkisvíxlamir verða seldir með tilboðsíyrirkomulagi.
Öllum er heimilt að bjóða i ríkisvíxla að því tiiskyldu að
lágmarksijárhæð tilboðsins sé ekki lægri en 20 miiljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, íjárfestinga-
lánasjóðum, verðbréfafyrirtækjum, verðbréfasjóðum,
lífeyrissjóðum og tryggingafélögum er heimill að gera
tilboð í meðalverð samþykktra tilboða, að lágmarki
500.000 krónur.
Öll tilboð i ríkisvixla þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkjsins
fyrir kl. 11:00, miðvikudaginn 1. júli. Útboðsskilmálar,
önnur tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Lánasýslu rfldsins, Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is