Morgunblaðið - 30.06.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.06.1998, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Myndaleikur Þu getur unnið þessa „svölu" myndavél frá Ljósmyndavörum, 1 Skipholti ef þú sendir inn „svala" mynd í anda Grease á Grase-1 vefinn eða merkta: Morgunblaðið, myndaleikur Grease-æðis, 1 Kringlunni 1,103 Reykjavík. 1 Kíktu á æfingu á söngleiknum á Grease-vefnum. } Nú getur þú kíkt á mynd- og hljúðskeið af æfingum á söngleiknum í Borgarleikhúsinu. Vinningar vikunnar •Miðar á söngleikinn Grease í Borgarleikhúsinu •Sólgleraugu frá Gleraugnaversluninni Mjódd Schwarzkopf ^UNNEVA sogur sem t zntugnum með einhvei glæsileg i/erðleun 1 °9 h 0*fir unnið °9 menningu. BORGARLEIKHÚSIÐ ÚR VERINU Morgunblaðið/Kristjana HÖFNIN í landi Skarðs á Skarðsströnd. Sex útgerðarbændur í Skarðsstöð Búðardal - í Skarðsstöð í landi Skarðs á Skarðsströnd, Dalasýslu, er hafnaraðstaða góð frá náttúrunn- ar hendi og til eru frásagnir af út- gerð og skipaferðum þar í fyrstu annálum. Núverandi bryggja var byggð 1956 og á árunum milli 1960 og 1970 var algengt að 120 tonna flutninga- skip lægju þar við bryggju. Sveitar- stjóm Dalabyggðar hefur gert miklar endurbætur á aðstöðunni undanfarin ár. Byggður var sjó- vamargarður 1992, smábátahöfn 1994, flotbryggja 1995 og svo var lagt rafmagn, settur upp löndunar- krani og löndunaraðstaða bætt núna á þessu ári. Grásleppuútgerð hófst 1986. Einnig hafa menn veitt tijónukrabba o.fl. tegundir í tilraunaskyni. Fyrstu árin var aðeins einn bóndi sem hafði þama aukabúgrein en bátum fjölgaði svo fljótlega og núna era gerðir út sex bátar frá Skarðsströnd. Það er því ljóst að útgerðin er komin til þess að vera og þetta er orðin mikilvæg auka- búgrein fyrir bændur í Dalasýslu. Þrátt fyrir lágt verð á afurðunum þetta árið er engan bilbug að finna á útgerðarbændum og þeir leggja ekki árar í bát við dáh'tinn mótvind. Tunu GR land- ar loðnunni hér á landi NÓTASKIPIÐ Tunu GR 1895, sem áður hét Guðmundur VE og ísfélag Vestmannaeyja seldi nýlega græn- lenska sjávarútvegsfyrirtækinu East-Greenland Codfish í Ammas- salik, mun landa hér á landi þeirri loðnu sem það veiðir úr grænlenska hluta loðnukvótans. Isfélag Vestmannaeyja á 20% hlut í grænlenska útgerðarfélaginu, en hlutinn keypti ísfélagið síðastlið- ið haust og þá keypti Faxamjöl, sem er dótturfyrirtæki Granda hf., sömuleiðis 10% hlut í félaginu. Auk þess að gera út nótasldpið Tunu gerir East-Greenland Codfish út grænlenska loðnuskipið Ammasat, sem var eina loðnuskip Grænlend- inga. Félagið er dótturfyrirtæki Niniarteq Tasiilaq, sem gerir út rækjufrystitogarann Tasiilaq og er staðsett í Ammassalik eins og dótt- urfyrirtækið. Engar loðnuverksmiðjur era á Grænlandi og að sögn Sigurðar Ein- arssonar, framkvæmdastjóra Isfé- lags Vestmannaeyja, mun Tunu GR því landa afla sínum hér á landi líkt og Ammassat hefur gert. „Þeir munu landa loðnunni hér á landi sitt á hvað eftir því sem hent- ar og hvar loðnan er stödd á hverj- um tíma, en við eram að breyta verksmiðjunni hjá okkur og skipið mun því að minnsta kosti ekki landa hjá okkur til að byrja með,“ sagði Sigurður. Loðnukvóti Grænlendinga 11% af heildarkvótanum Samkvæmt loðnusamningi sem tókst í vor milli samninganefnda Is- lands, Grænlands og Noregs fá Grænlendingar 11% af loðnustofn- inum í sinn hlut, Norðmenn fá 8% og Islendingar 81%. Bráðabirgða- kvóti á loðnuvertíðinni hefur verið ákveðinn 950.000 lestir og af því magni koma rúmlega 680.000 lestir í hlut íslands, auk þess sem íslensk skip fá 8.000 lestir af kvóta Græn- lands sem endurgjald fyrir veiði- heimildir grænlenskra skipa á síð- ustu loðnuvertíð. Miðast bráða- birgðakvótinn við að endanlegur leyfilegur heildarafli á loðnuvertíð- inni verði 1.420.000 lestir og kemur mismunurinn á bráðabirgðakvótan- um og endanlegum kvóta allin- í hlut íslands. Að sögn Sigurðar fer hluti af kvóta Grænlendinga til Evrópusam- bandsins samkvæmt samningi þar að lútandi. „Færeysku og dönsku skipin sem eru á loðnuveiðum eru því að veiða úr grænlenska kvótanum. Þau fá hins vegar ekki að vera í ís- lenskri landhelgi eins og græn- lensku skipin fá samkvæmt tvíhliða samningi við Islendinga,“ sagði Sigurður. ---------------- Meiri sfld í Norðursjó SÍLDARSTOFNARNIR í Norður- sjó eru heldur á uppleið og líklegt þykir, að veiðai’ til manneldis verði auknar í 270.000 tonn á næsta ári en kvótinn fyrir yfirstandandi ár er 254.000 tonn. Svo virðist sem kvótaniðurskurð- urinn 1996 og 1997 hafi hjálpað til við að koma síldarstofnunum yfir hið líffræðilega lágmark, 800.000 tonn, en vísindamenn leggja til, að áfram verði gætt mikillar varúðar og stefnt að því að koma hrygning- arstofninum í 1,3 milljónir tonna. Vilja þeir, að veiðar á smásíld til bræðslu verði litlar og helst engar. Þótt síldin virðist vera að rétta nokkuð úr kútnum á það ekki við um álinn en frá því snemma á síð- asta áratug hefur æ minna af hon- um gengið upp í evrópskar ár. Ekki er ljóst hvað ofveiði á mikla sök á því en lagt er til, að veiðar á ál verði skomar niður tafarlaust.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.