Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
BULGARIA
Istanbul
H Ankara
GRIKK-'
M-ANDr
Adana.W^.
SYRLAND
KÝpuR
stríðsglæpadómstólsins af þeim 28,
sem haldið var fóngnum í fangelsi í
Scheveningen, rétt utan við Haag.
Hann var handtekinn fyrir réttu ári
og var réttarhaldi yfir honum lokið,
nema dómsuppkvaðingunni sjálfri.
Til stóð að dómurinn yrði kveðinn
upp 7. júlí nk. Með dauða Dokma-
novic fellur málið niður.
„Málið er búið. Það er ekki hægt
að fella dóm yfir dánum manni,“
sagði talsmaður dómstólsins,
Christian Chartier.
Eitt illræmdasta illvirkið
Dokmanovic fannst skömmu eftir
miðnætti í klefa sínum, þar sem
hann hékk í snöru sem hann hafði
fest á hjarir klefahurðarinnar. Eng-
ar nánari upplýsingar voru gefnar
upp um aðstæður andláts Dokma-
novics, en rannsókn fer nú fram á
þeim.
Haag. Reuters.
SLAVKO Dokmanovic, Serbi sem
þurfti að svara til saka fyrir stríðs-
glæpadómstóli Sameinuðu þjóðanna
í Haag, fannst hengdur í fangaklefa
sinum í gær, en hann beið dóms fyr-
ir að bera
ábyrgð á lífláti
yfir 200 sjúkra-
hússsjúklinga,
sem flestir voru
Króatar. Odæð-
isverkið átti sér
stað í nóvember
1991, skömmu
eftir að stríð
stavko brauzt út í
Dokmanovic gömlu JÚ-
góslavíu.
Dokmanovic, sem áður hafði gegnt
stöðu borgarstjóra Vukovar í króat-
íska héraðinu Austur-Slavóníu, sem
næst er landamærunum við Serbíu,
var einn nafntogaðasti sakbomingur
UNGUR piltur safnar í brennu sem haldin verður til minningar um
sigur Vilhjálms af Óraníu á Jakobi Stúart við Boyne-ána í nágrenni
Portadown árið 1691.
Tólfta alþjóðlega alnæmisráðstefnan í Genf
Að minnsta kosti 120 manns fórust
í jarðskjálfta í Tyrklandi
Fannst á lífi eft-
ir tvo sólarhringa
í húsarústunum
Ceyhan. Reuters.
KONA fannst á lífi í gær i rústum
húss sem hrundi í jarðskálftanum í
suðurhluta Tyrklands á laugardag
og hafði þá legið í rústunum í tvo
sólarhringa. Vonir um að finna
fleiri á lífi fara dvínandi. Að
minnsta kosti 119 manns fórust í
skjálftanum, sem mældist um 6,3
stig á Richter.
Um 1.500 slösuðust og fjöl-
margra er enn saknað eftir skjálft-
ann, sem var svo harður, að nokkur
háhýsi hrundu til grunna. Ástandið
á svæðinu er sagt slæmt enda fólk
skelfingu lostið og eyðileggingin
mikil í borgunum Adana og Ceyh-
an.
Sextán lík fundust í gær í rúst-
um húsa í Ceyhan, svo og hin 46
ára gamla Hatice Eker. Sagði eig-
inmaður hennar að hún virtist vera
lítið slösuð og að hún hefði beðið
um sígarettu á meðan hún beið
þess að björgunarmennimir losuðu
hana úr húsarústunum. Á sunnu-
dag fannst ellefu ára drengur á lífi
í sömu húsarústum og Eker en lík
föður hans og bróður fundust
skömmu síðar. Þá fannst ungbam í
örmum látinnar móður sinnar að-
franótt sunnudags.
Mest eyðilegging varð í fátækra-
hverfum Adana og Ceyhan, þar
sem hús eru byggð af vanefnum.
Að minnsta kosti þrjátíu hús og
íbúðarblokkir hrundu til grunna og
mörg hús eru mjög illa farin. Á
milli húsarústanna reikar fólk enn í
leit að ástvinum sínum. Meðal
þeirra sem björgunarmenn leita nú
eru um 25 börn er voru í afmælis-
veislu er skjálftinn reið yfir. Flest
líkanna hafa fundist í Ceyhan, 62,
en 44 hafa fundist látnir í Adana.
Tæplega tuttugu lík fundust í
þorpum í nágrenninu.
Fjöldi fólks er heimilislaus eftir
skjálftann og hefst fólk við úti und-
ir berum himni. Þá gekk björgun-
arstarf illa í fyrstu þar sem stórir
hópar fólks reikuðu um götur af
ótta við að fleiri skjálftar kynnu að
ríða yfir. Tyrkjum hefur nú borist
hjálp frá mörgum Evrópulöndum,
m.a. hafa verið sendir hundar til að
leita í rústunum.
Svæðið þar sem skjálftinn varð
liggur á Anatólíu-misgenginu og
eru jarðskjálftar þar tíðir. Var
jarðskjálftinn svo harður að hann
fannst á Kýpur, í Sýrlandi og ísra-
el.
Glæpurinn sem Dokmanovic var
ákærður fyrir að hafa átt aðild að,
var eitt illræmdasta illvirkið sem
unnið var í átökunum sem fylgdu í
kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar
Króatíu 1991. Dokmanovic var sak-
aður um að hafa, ásamt þremur
serbneskum yfirmönnum úr Júgó-
slavíuher, skipulagt fjöldamorð á yf-
ir 200 manns, sem lágu á sjúkrahúsi
í Vukovar. Sjúklingamir, sem flest-
ir voru Króatar, voru fluttir til
þorpsins Ovcara utan við borgina,
þar sem þeir voru stráfelldir, tveim-
ur dögum eftir að Júgóslavíuher og
serbneskir sjálfboðaliðar höfðu náð
Vukovar á sitt vald í nóvember
1991.
Af um 260 sjúklingum sem
serbneskir hermenn fóru með úr
sjúkrahúsinu fundust 200 lík í
fjöldagröf, sem opnuð var 1996.
Hinna er enn saknað.
Reutcrs
iRAK
200 km
Meintur stríðsglæpa-
maður hengir sig
Stefnir í átök
við Drumcree
Belfast, London, Brussel. The Daily Telegraph, Reuters.
JOHN Alderdice, sem situr í
lávarðadeild breska þingsins,
sagði í gær af sér formennsku
Alliance-flokksins á N-írlandi
eftir að flokknum mistókst að
vinna næg sæti i kosningunum á
fimmtudag til að eiga rétt á full-
trúa í ríkisstjóm. Kom ákvörðun
Alderdice sem þruma úr heið-
skím lofti en Mo Mowlam, N-ír-
landsmálaráðherra, brást skjótt
við og skipaði Alderdice um-
svifalaust þingforseta. Þingið
nýja þarf hins vegar að sam-
þykkja þá skipan á fyrsta fundi
sínum á miðvikudag.
Alderdice og Alliance-flokkur-
inn, sem er hófsamur miðju-
flokkur mótmælenda og kaþ-
ólikka, vora mikilvægur þátttak-
andi í þeim viðræðum sem skil-
uðu páskasamkomulaginu sem
samþykkt var í þjóðaratkvæða-
greiðslu í maí. Alliance hlaut
6.5% stuðning og 6 þingsæti en
8-10 þingsæti hefði þurft til að
vinna ríkisstjórnarsæti. Ald-
erdice sagði í gær að árangur-
inn væri að vísu ágætur en að
hann hefði sett markið hærra og
fyrst ekki tókst betur til væri
rétt að hann drægi sig í hlé nú.
Hann sagðist þó ætla að starfa af
fuilum krafti á þinginu nýja og í
lávarðadeildinni bresku.
Meðlimir í Óraníureglunni á
N-írlandi neituðu í gær að sætta
sig við bann sem bresk stjórn-
völd tilkynntu í gær á
„Drumcree-göngu“ samtakanna,
sem fram á að fara næstkomandi
sunnudag. Er óttast að því megi
búast við vaxandi spennu nú er
„göngutíð" Óraníureglunnar
nær hámarki og ljóst er að bresk
stjómvöld búa sig undir það
versta því tilkynnt var ásunnu-
dag að eitt þúsund hermenn
yrðu sendir til N-írlands til við-
bótar við þá sem fyrir em. Hafa
þeir meðferðis fjölda brynvar-
inna bfla og ýmsan annan búnað.
Nefnd sem skipuð var af
bresku ríkisstjórninni til að úr-
skurða hvort umdeildar göngur
fái að fara fram tilkynnti
ákvörðun sína í gær en Alistair
Graham, formaður nefndarinn-
ar, lagði áherslu á að ákvörðunin
hefði ekki verið auðveld. Hann
sagði að fyrst ekld tókst að ná
samkomulagi við Óraníumenn
um að gangan færi aðra leið en
vanalega væri nauðsynlegt að
banna göngumönnum að ganga
niður Garvaghy-veginn í Porta-
down. Ekki væri hægt að hætta
á álíka óeirðir og brotist hafa út
undanfarin þrjú ár milli kaþ-
ólskra íbúa götunnar og Iögregl-
unnar er lögreglan rýmdi veginn
fyrir göngumönnum.
Vilja hindra HIV-
sýkingn nýbura
Genf. Reuters.
RANNSÓKNARSTOFA Samein-
uðu þjóðanna í alnæmi (UNAIDS)
ýtti í gær úr vör verkefni er miðar
að því að koma í veg fyrir að HIV-
sýktar konur í Afríku, Asíu og Suð-
ur-Ameríku smiti nýfædd böm sín.
Bandaríska fréttastofan AP greinir
frá því að sé bamshafandi konum,
sem bera í sér veiruna, gefið lyfið
AZT dragi það verulega úr hættunni
á að barnið smitist einnig.
Læknar á 12. alþjóðlegu alnæmis-
ráðstefnunni, sem nú stendur í Genf
í Sviss, sögðu þó að enn væri langt í
land með að koma mætti í veg fyrir
að böm sýktra kvenna sýktust.
Meðal þess sem ráða þyrfti fram úr
væri hvað gæti komið í staðinn fyrir
brjóstagjöf.
Á hveijum degi fæðast í heimin-
um 1.600 börn sýkt af HIV, veirunni
sem veldur alnæmi. Læknar hafa
vitað síðan 1994 að fái bamshafandi
konur, sem sýktar em, AZT-með-
ferð dregur það verulega úr líkunum
á að barnið smitist við fæðingu.
Vandinn hefur hins vegar verið sá,
að slík meðferð kostar yfirleitt sem
svarar tæplega 60 þúsund íslenskum
krónum fyrir hvern sjúkling, og það
er of dýrt fyrir flest þau ríki þar
sem nýfæddum bömum stafar mest
ógn af alnæmi.
UNAIDS greindi frá því í gær að
lyfjafyrirtækið Glaxo Wellcome
legði AZT til verkefnisins á mun
lægra verði, eða á um 3.600 krónur
fyrir hvem sjúkling. Auk UNAIDS
mun (WHO) og Bamahjálp SÞ
(UNICEF) vinna að verkefninu.
Reiknað er með að um 30 konur í 11
fátækustu ríkjum heims muni taka
þátt í því.
Hraðari alnæmissýking
Nýjar rannsóknir á því hvemig
HlV-veiran sýkir heilbrigðar fram-
ur í líkamanum kunna að varpa ljósi
á það, hvers vegna sumt fólk færi al-
næmi innan fárra mánaða frá því
það smitast af HIV, en aðrir geta
gengið með veiruna svo áram skiptir
án þess að veikjast af alnæmi. Vís-
indamenn greindu frá þessu á ráð-
stefnunni í gær.
Veiran sýkir líkamann með því að
fara inn í hýsflfrumu og notar virkni
hennar til þess að fjölga sér og búa
til nýjar veiraeindir. Veiran festir
sig við yfirborð hýsilframunnar á til-
teknum stað, en þarf að finna annan
stað til þess að komast inn í hana.
Bandarískir vísindamenn hafa nú
komist að raun um að sum afbrigði
HIV geta komist inn í frumur á
mörgum stöðum og getur það leitt
til hraðari alnæmissýkingar hjá
sumu fólki.
Jeltsín vísar
kreppu-
tali á bug
Moskvu. Reuters.
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, neitaði því í gær að
kreppa hefði skollið á í landinu
en gengi rússneskra hluta-
bréfa hélt þó áfram að lækka
og kolanámamenn í Síberíu
hótuðu mótmælaaðgerðum
vegna vangoldinna launa.
„Hér er engin kreppa og
þess vegna lýsi ég ekíd efna-
hagsáætlun stjómarinnar sem
aðgerðum gegn kreppu, held-
ur sem áætlun um að koma á
jafnvægi,“ sagði Jeltsín við
Sergej Kíríjenko forsætisráð-
herra á fundi þeirra í Kreml.
Fundurinn var haldinn
tveim dögum áður en Dúman,
neðri deild þingsins, hefur um-
ræður um 20 lagaframvörp
sem fylgja efnahagsáætluninni
sem stjómin kynnti í vikunni
sem leið.
*
i
[
I
I
s
i
I
i
i
i
f
i
i
i
i
i
I
i
i