Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 23
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 23
ERLENT
Nýtt vitni segir Monicu Lewinsky hafa sagt sér frá nánu sambandi hennar við Clinton
Washington. The Daily Telegraph.
NÝTT vitni, Dale Young, kom
fram á sunnudag og gat með sann-
færandi hætti andmælt þeirri full-
yrðingu Bills Clintons, að hann
hefði aldrei átt í kynferðislegu
sambandi við Monicu Lewinsky.
Young er 47 ára kaupsýslukona frá
Scarsdale í New York-ríki.
I viðtali við fréttatímaritið
Newsweek á sunnudaginn gi-einir
Young frá því að Lewinsky hafi
sagt sér í smáatriðum frá „nánum
snertingum“ forsetans í lítilli skrif-
stofu inn af vinnuherbergi hans í
Hvíta húsinu. Þá hafi forsetinn
sett „grundvallan-eglur um kyn-
ferðislegt samband" þeirra.
Fréttamenn Newsweek, Mich-
ael Isikoff og Evan Thomas, segja
frá því í grein sinni að Kenneth St-
arr, sérstakur saksóknari er rann-
sakar meint misferli forsetans,
hafi stefnt Young fyrir rannsókn-
arkviðdóm í síðustu viku og þar
hafi hún borið vitni um samtöl sín
við Lewinsky. Þótt saksóknarar
megi ekki ræða vitnisburð fyrir
rannsóknarkviðdómi er vitnum
frjálst að gera slíkt, og sagði
Young Newsweek sömu sögu og
dómnum.
Samkvæmt því sem Young segir
vildi forsetinn setja ákveðnar
hömlur á sambandið við Lewinsky
vegna þess að hann óttaðist að
verða einhvern tíma spurður um
það. Framburður Young getur
skipt máli ef hann tekur af vafa um
hvort Lewinsky og Clinton hafi
framið meinsæri er þau neituðu að
hafa staðið í kynferðislegu sam-
bandi. Fréttamenn Newsweek
segja þó, að ekkert af því sem hún
hafi sagt þeim skeri úr um hvort
einhver hafi gerst sekur um mein-
særi.
Young þykir trúverðug
Fréttamenn Newsweek taka
fram að þeim hafi ekki tekist að
finna neitt sem kastaði alvarlegri
rýrð á trúverðugleika Youngs. Að
vísu hafi vinir hennar og nágrann-
ar lýst henni sem „spjallgefinni,
skapbráðri og klúryrtri". Hún hafi
verið virk í Repúblikanaflokknum
síðan í lok síðasta áratugar og sé
andvíg Clinton.
Þá er sagt að hún sé gjörn á að
setja sig upp á móti ýfirvaldi. Starf
hennar sé fólgið í því að andmæla
áætluðum álögum skattayfirvalda
á einstaklinga og fyrirtæki. Keppi-
nautar hennar á viðskiptasviðinu
tjáðu Newsweek að hún væri heið-
arleg.
Young kveðst vera vinkona
Lewinsky og móður hennar,
Marciu Lewis. Young sagði við
gert á forsendum fyrirliggjandi
skilgreiningar, sem forsetinn sá, á
„kynferðislegum tengslum". Þau
fólu m.a. í sér „snertingu við kyn-
færi“ og aðra líkamshluta „í því
augnamiði að æsa eða láta eftir
kynferðislegum löngunum ein-
hvers“.
Young staðfesti frásögn
Newsweek í samtali við Washing-
ton Post á sunnudag. Fulltrúi
Lewinskys sagði hins vegar að
Lewinsky vildi ekkert segja um
frásögnina.
Forsetinn setti
„grundvallarreg’lur“
cintamani
Hágæða íslenskur útivistarfatnaður.
Newsweek að Lewinsky hefði rætt
við sig þegar þær voru í útivistar-
ferð í grennd við Catskills í New
York-ríki eina helgi í maí 1996.
„Ég þoli þetta ekki,“ sagði Young
að Lewinsky hefði sagt við sig.
„Ég verð að tala við þig. Ég verð
að segja þér hvað er á seyði en
ekki segja neinum frá því.“
Síðan hafi Lewinsky sagt sér frá
því að hún væri „í tygjum við for-
setann", og lýsti síðan hvernig því
væri háttað. Young sagði að um
hefði verið að ræða „nána snert-
ingu“ og „símtöl sem snerust um
kynlíf' seint á kvöldin. Young
sagði ennfremur frá því að Lewin-
sky hefði sagt að hún hefði séð til
þess að hún gæti hitt Clinton og
beðið hans óþreyjufull. Hún hefði
keypt gjafir handa honum.
En samkvæmt því sem Young
segir fullyrti Lewinsky að Clinton
hefði sett ákveðnar grundvallar-
reglur um kynferðisleg samskipti
þeirra strax í upphafi. „Það var
aldrei lokið við neitt,“ sagði Young
við Newsweek. Samskipti Clintons
og Lewinskys hefðu verið „eigin-
lega eins og forleikur“.
Ciinton kvaðst
engum treysta
Lewinsky mun hafa sagt að for-
setinn hafi haft á reiðum höndum
nákvæmar útskýringar á því hvers
vegna hann vildi setja ákveðin
mörk. Forsetinn hafi sagt að hann
treysti engum, fólk sem hann hafi
átt í sambandi við hafi gefið sig
fram við fjölmiðla eða ráðfært sig
við lögfræðinga. Honum hafi ekki
fundist sem um munnmök væri að
ræða ef ekki væri lokið við þau.
I Newsweek segir, að saman-
burður við frásögn Lindu Tripp,
sem einnig hefur greint frá því að
Lewinsky hafi sagt sér frá sam-
bandi við Clinton, leiði fátt í ljós. Á
segulbandsupptökunum sem Tripp
hafi gert af samtölum sínum við
Lewinsky sé hvergi að heyra ná-
kvæmar lýsingar á sambandinu.
Þær hafi þar rætt saman eins og
sambandið væri staðreynd.
Fréttamenn Newsweek benda á,
að smáatriði í lýsingum geti haft
lagalegt gildi. Lewinsky hefur gef-
ið eiðsvarna yfirlýsingu um að hún
hafi ekki staðið í kynferðislegu
sambandi við forsetann. Henni var
ekki gert að skilgreina hvað hún
ætti við með því.
Þetta gæti orðið flóknara fyrir
Clinton. Þegar hann sór eið að því
að hafa ekki átt í kynferðislegu
sambandi við Lewinsky var það
ICEGUARD öndunarfilma
tryggir qóða öndun og mikla
vatnsheldni (20.000 ml/cm2).
Efnið er níðsterkt en jafnframt
ótrúlega lótt og fyrirferðarlítið.
Útsölustaðir:
Skátabúðin
Útilff Glæsibæ
Everest búðin
Veiðibúð Lalla Hafnaf.
Sportver Akureyri
KEA Lónsbakka Ak.
Sport og Útivist
Stakkur
Verð 14.900-
(Pyngd 460 gr.)
Buxur
Verð 9.900-
(Þyngd 440 gr.)
.aAeftS*°ia
Lðbeiri^Su