Morgunblaðið - 30.06.1998, Síða 24

Morgunblaðið - 30.06.1998, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Gagnrýnum ummælum Clintons í Kína vel tekið í Bandaríkjunum Deilt um hvort orða- skiptin marki tímamót Washington, Peking. Reuters. FRAMGANGA Bills Clintons Bandaríkjaforseta í Kína hefur mælst vel fyrir meðal andstæðinga hans á bandaríska þinginu sem höfðu gagnrýnt forsetann fyrir að fórna kröfum um mannréttindi fyrir viðskiptahagsmuni. Þeir segja þó að forsetinn verði að fylgja orðum sín- um eftir í verki. Repúblikaninn Fred Thompson, öldungadeildarþingmaður frá Tenn- essee, kvaðst ánægður með hrein- skilin orðaskipti Clintons og Jiangs Zemins, forseta Kína, þegar þeir ræddu við fréttamenn á laugardag. Fundurinn var sýndur í beinni sjón- varpsútsendingu í Kína og Clinton notaði tækifærið til að fordæma árás kínverska hersins á námsmenn á Torgi hins himneska friðar í Pek- ing árið 1989. „Ég gladdist þegar ég sá þetta,“ sagði Thompson. „Hann varð að gera þetta. En ég tel að þetta hafí verið það minnsta sem hann gat gert við þessar aðstæður.“ Christopher Cox, repúblikani frá Kalifomíu og formaður þingnefndar sem fjallar um málefni Kína, sagði að hreinskilin gagnrýni Clintons hefði verið nauðsynleg til að bæta upp þann álitshnekk sem forsetinn hefði beðið með því að fallast á mót- tökuathöfn á Torgi hins himneska friðar fyrir leiðtogafundinn á laug- ardag. Þingmaðurinn bætti þó við að orðin ein dygðu ekki, forsetinn yrði að taka harðar á mannréttinda- brotum Kínverja. Orðunum verði fylgt eftir í verki Öldungadeildarþingmaðurinn Max Baucus, demókrati frá Mont- ana sem er í föruneyti Clintons, sagði að blaðamannafundur Clint- ons og Jiangs á laugardag markaði „tímamót" í samskiptum ríkjanna. Sú ákvörðun Jiangs forseta að láta sjónvarpa blaðamannafundinum Pinot Noir Hágæða rauðvínsþrúgur 30 flöskur 5.565 kr rrm Nóatún 17 ■ Faxafeni 12 Kringlan ■ Fláholt 24, Mosfellsbæ Reuters BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans, Hillary, veifa til námsmanna í Peking-háskóla í kveðjuskyni eftir að forsetinn flutti ávarp í skólanum í gær. benti til þess að hann teldi að óhjá- kvæmilegt yrði að koma á pólitísku frelsi í Kína þegar fram líða stundir. Repúblikaninn Christopher Smith, fulltrúadeildarþingmaður frá New Jersey, var á öndverðum meiði við Baucus og sagði of snemmt að fullyrða að fundurinn markaði tíma- mót. „Það er mjög mikilvægt að orðunum verði fylgt eftir í verki.“ Martin Lee, leiðtogi Lýðræðis- flokksins í Hong Kong, kvaðst hissa á því að blaðamannafundurinn skyldi hafa verið sýndur í beinni sjónvarpsútsendingu. „En ég yrði mjög glaður ef almenningur í Kína fengi frelsi til að ræða þessi við- kvæmu mál af hreinskilni." „Þetta er mjög óvenjulegur at- burður," sagði Mike McCurry, tals- maður Clintons. „Atburður sem ég er ekki viss um að ég geti útskýrt." Stanley Roth, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, tók í sama streng og sagði að blaðamannafund- urinn myndi hafa mjög mikil áhrif á kínverska þjóðfélagið á næstu ár- um. Jeffrey Bader, einn af helstu ráð- gjöfum Clintons í málefnum Kína, sagði að með því að fallast á að ræða Tíbet-málið á blaðamanna- fundinum á laugardag hefði Jiang gefið til kynna að kínversk stjórn- völd gætu léð máls á viðræðum við Dalai Lama, andlegan leiðtoga Tí- beta. Endurgjald fyrir athöfnina á torginu? Fregnir herma að blaðamanna- fundurinn hafí verið eitt af helstu umræðuefnum Kínverja um helgina og margir hafí fagnað því að kín- verskur almenningur hafi fengið tækifæri til að hlýða á opinská orða- skipti leiðtoganna. Sumir tóku mál- stað Clintons en aðrir studdu Jiang. „Við faðir minn lentum í rimmu um atburðinn á Torgi hins himneska friðar eftir útsendinguna," sagði kínverski ljósmyndarinn John Li. „Hann hélt áfram að styðja kín- versku stjómina." Kínversk dagblöð leiddu þó gagn- rýni Clintons hjá sér að mestu og sögðu aðeins að leiðtogarnir hefðu „skipst á skoðunum um mannrétt- indi, Tíbet og fleiri mál“. Clinton flutti einnig ræðu í Pek- ing-háskóla í gær og fjallaði þar um nauðsyn þess að auka frelsi almenn- ings í Kína. „Frelsið eflir stöðug- leikann,“ sagði hann. Kínversk stjómvöld ákváðu á síð- ustu stundu að sjónvarpa ávarpi Clintons í skólanum. Nokkrir fréttaskýrendur hafa túlkað þá ákvörðun stjórnvalda í Peking að gera Clinton kleift að ávarpa kínversku þjóðina í sjón- varpi um viðkvæm mál eins og blóðsúthellingarnar í Peking, póli- tíska fanga og deiluna um Tíbet sem endurgjald fyrir þá ákvörðun forsetans að fallast á móttökuat- höfnina á Torgi hins himneska frið- ar. Með því að styrkja stöðu Clint- ons gagnvart repúblikönum á bandaríska þinginu vilji Kínverjar auka líkumar á því að Bandaríkja- menn fallist á tilslakanir í viðskipta- málum og fleiri málum sem ríkin hafa deilt um. Hvatt til trúfrelsis Clinton flutti ávarp í mótmæl- endakirkju í Peking á sunnudag og notaði tækifærið til að hvetja til trú- frelsis í Kína. Síðar um daginn skoðuðu forsetahjónin og dóttir þeirra, Chelsea, Forboðnu borgina og Kínamúrinn. Viðskipti eru einnig mikilvægur þáttur í ferð Clintons og bandarísk fyrirtæki undirrituðu í gær samn- inga, sem metnir eru á tvo milljarða dala, 142 milljarða króna, í Alþýðu- höllinni í Peking. Stærsti samning- urinn kveður á um sölu á 27 Boeing- þotum fyrir 1,2 milljarða dala, 85 milljarða króna. Seðlabankastjóri Svíþjóðar um EMU EMU-aðild eða útganga úr ESB FYRR eða síðar kemur að því, að Svíþjóð verður að velja milli þess að taka þátt í Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu (EMU) eða að öðmm kosti að hætta þátttöku í Evrópusambandinu, ESB. Svíþjóð hefur enga formlega undanþágu frá þátttöku í EMU og einhliða yfírlýs- ing sænsku stjómarinnar um að landið kjósi að standa utan við myntbandalagið getur ekki haldið gildi sínu um ótakmarkaðan tíma. Þetta er álit Urbans Báckströms, seðlabankastjóra Svíþjóðar, sem hann lét í ljósi í viðtali við sunnu- dagsblað Svenska Dagbladet. Undir þessi sjónarmið seðla- bankastjórans tekur í mánudags- blaði SD Carl B. Hamilton, talsmað- ur Þjóðarflokksins í efnahagsmál- um. „Backström hefur rétt fyrir sér. Það er virðingarleysi af hæstu gráðu af hendi ríkisstjórnarinnar gagnvart þeim samningum sem við höfum undirritað, og þetta gengur einungis í takmarkaðan millibils- tíma,“ sagði Hamilton. Hamilton gizkar á að Svíar hafi um það bil einn áratug þangað til þeir verða að gera endanlega upp við sig hvom valkostinn þeir vilja. „Það er bara ein leið fær,“ segir Ha- milton. „Hún er sú, að ríkisstjórn- inni takizt að sannfæra sænskan al- menning um að myntbandalagið sé af hinu góða.“ Samkvæmt frásögn blaðsins vildu hvorki Göran Persson forsætisráð- herra, Erik Ásbrink fjármálaráð- herra né Thomas Östros, skatta- málaráðherra, tjá sig um ummæli seðlabankastjórans. Samninga- maður SÞ fórst VONIR um að takast megi að koma í veg fyrir nýtt borgara- stríð í Afríkuríkinu Angóla minnkuðu nokkuð um helgina þegar fréttist að Alioune Blondin Beye, aðalsamninga- maður Sameinuðu þjóðanna í Angóla, hefði látist í flugslysi nærri Abidjan á Fílabeins- ströndinni. Alls fómst átta með flugvélinni sem var að koma frá Lome í Togo. Bretar hrifnir af pundinu MEIRIHLUTI Breta er andsnúinn evrópska gjald- miðlinum, Evrunni, ef marka má nýja skoðanakönnun sem birt var í gær. 58% aðspurðra voru andsnúnir því að evran tæki við af pundinu sem gjald- miðill Breta og 66% fannst ekki að fella ætti pundið úr gildi. Olsen hættir stjórnmála- afskiptum JAN Henry T. Olsen, fyrrver- andi sjávai-útvegsráðherra Noregs, tilkynnti í gær að hann hygðist hætta afskiptum af stjórnmálum. Olsen, sem var sjávarútvegsráðherra 1992-1996, sagðist ekki vita á þessari stundu hvort hann hæfí aftur stjómmálaþátttöku síðar en að í öllu falli yrði um fjögurra ára hlé að ræða. Liðhlaupar skotnir TVEIR rússneskir hermenn, sem gerst höfðu liðhlaupar, voru í gær skotnir til bana nærri norsku landamærunum. Herlögregla hóf eftirfór þegar ljóst var að mennirnir hefðu strokið úr æfíngabúðum land- hersins á Kóla-skaga og kom til skotbardaga þar sem tveir féllu, einn var handtekinn en annar komst undan. Aðstæður í búðunum eru taldar afar erf- iðar og eru liðhlaup og sjálfs- morð algeng meðal hermanna. Randið í erfíðleikum GJALDMIÐILL S-Afríku, randið, á nú í vök að verjast og hefur fallið um 26% gagnvart bandaríska dollaranum síðan um áramót, en helmingur þessa hruns hefur átt sér stað síðan á fimmtudag. Hækkun vaxta kom í gær í veg fyrir enn verra hrun en óttast er að kreppa eigi enn eftir að aukast í S-Afríku. Bjargað af sjó KÝPURMENN björguðu í gær meira en 100 innflytjend- um eftir ellefu daga bátsferða- lag um Miðjarðarhafið. Bátur- inn, sem var fullur af fólki frá ýmsum Afríkulöndum, hafði verið á reki síðan vél hans bil- aði fyrir níu dögum. Höfðu tveir menn látist á ferðalag- inu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.