Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 26

Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Myndir í Hall- grímskirkju MYIVPLIST Listasafn llallgríniKkirkju MÁLVERK Eiríkur Smith. Til 1. júlí. í HALLGRÍMSKIRKJU hafa hangið til sýnis verk eftir Eirík Smith og lýkur sýningunni í byrj- un julí. Það er afar vel til fundið hjá Listasafni Hallgrímskirkju að efna til listsýninga. Nú í vetur mátti einnig sjá myndir eftir Daða Guðbjörnsson og Svein Björnsson. Tónlistarmenn hafa fengið aðgang að kirkjum landsins til tónleika- halds og því ættu myndlistarmenn ekki einnig að geta átt gott sam- starf við kirkjuna? Myndlistinni er ekki hleypt inn í hið allra heilagasta í kirkjunni held- ur hanga myndirnar uppi í forsal. Þar hefur verið komið fyrir tveimur málverkum og þremur vatnslita- myndum. Myndirnar eru ekki alveg nýjar af nálinni, frá árabilinu 1991 til 96. Málverkið „Jarteikn“, írá 1995, nálgast mjög abstrakt mynd- irnar frá sjöunda áratugnum með breiðum og sterkum strokum og miklum andstæðum í lit og tóni. Myndir Eiríks hafa ýmist hneigst til fígúratívrar myndlýs- ingar eða til algerlega óhlutbund- ins expressjónísks stíls, þar sem látbragð athafnarinnar, pensil- strokan og skafan, mynda hreyf- ingu yfir flötinn. Hitt málverkið, „Víðsýni", er meira í ætt við þær landslagsmyndir sem hann hefur mikið málað á undanförnum árum, þar sem landslagið er brotið upp með lóðréttum fleti fyrir miðju. Vatnslitamyndirnar sem hér eru til sýnis eru algerlega óhutbundn- ar og afar fölar og fljótandi. Litur- inn er látinn dreifa úr sér á vel bleyttum pappírnum með fáeinum strokum. Mér finnst þessi sýning ekki þess eðlis að það sé ástæða til að fara i nána greiningu og leggja dóm á myndlist Eiríks. Hér er um að ræða kynningu á list Eiríks Smiths með nokkrum vel völdum sýnishornum af list hans, sem er jafnframt ætlað að prýða sali Hallgrímskirkju. Von- andi verður framhald á og vel er hægt að ímynda sér- að sumir myndlistarmenn tækju vel í að vinna sérstaklega fyrir það rými sem er ætlað fyrir sýningar. Gunnar J. Árnason Vefmyndasýning í Perlunni ÞÝSKA veflistakonan Maria Uhlig heldur sýningu á verkum sínum í Perlunni og verður hún opnuð laugardaginn 4. júlí kl. 19. Frú Barbara Nagano, sendi- ráðunautur þýska sendiráðsins, flytur ávarp og opnar sýning- una, sem Maria nefnir Norræn áhrif, en verkin hefur hún unnið eftir mótífum frá íslandi og Norðurlöndunum. Meðal við- fangsefna Mariu eru hreyfingar í náttúrunni, straumrennsli, hamrabelti og hafóldur. Maria hefur einnig unnið með og á rekavið, en vefstíl sinn kallar hún „áhrifamikinn ölduvef". Maria Uhlig er meðlimur í lista- mannahópnum Seltene Erden, sem hélt náttúrulistaþing að Þingeyrum í Austur-Húnavatns- sýslu um miðjan júni siðastlið- inn. Sýningin í Perlunni stendur til 2. ágúst. Vilhjálmur Einarsson sýnir í Eden VILHJÁLMUR Einarsson sýnir málverk og myndir gerðar með ýmissi tækni í Eden í Hvera- gerði frá 1.-12. júh'. Þetta er 16. einkasýning Vilíijálms hér á landi en henn hefur einnig sýnt í Svijjóð. I kynningu segir: „Árið 1956 tók Vilhjálmur BA-próf í „Art and Architecture" í Bandaríkj- unum en vegna anna við skóla- sljórn fram til ársins 1994 gat hann ekki einbeitt sér að list . sinni þótt penslamir væru aldrei alveg lagðir á hilluna. Nú hin síðari ár hefur hann þróaað tækni með svart-hvítar myndir unnar í bleki og bætt því við flóru sína um efnisnot. Myndir Vilhjálms eru fyrst og fremst náttúrulegar landslagas- myndir úr ýmsum landshlutum unnar í olíu, akvarell, akrýl, pastel eða með teiknibleki. (Indi- an ink): Mikið er af smámyndum á sýningunni, en þar er líka gall- erí með fjölda mynda sem kaup- endur mega taka með sér.“ Sýningin er opin á afgreiðslu- tima Edens en sjálfur verður hann við síðdegis sýningardag- ana. VILHJÁLMUR Einarsson sýnir málverk í Eden í Hveragerði, dagana 1.-12. júlí. ►r X „Tröllið sem prjónaði“ KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ bauð bömum á Barnaspítala Hringsins upp á ókeypis skemmtun á föstu- daginn; sýninguna TröIIið sem pijónaði. Þetta er gamansamt ævintýri um lítinn dreng og leit hans að deginum og er blanda af Bergens Tidende, eitt stærsta dag- blað Noregs, hefur útnefnt Bergljótu Jónsdóttur framkvæmda- stjóra Listahátíðarinnar í Björgvin, nafn ársins í norsku menningarlífí. Þetta er í fjórða sinn sem Bergens Tidende stendur að slíkri útnefn- ingu en í fyrsta sinn sem dómnefnd blaðsins velur einhvem úr stjómun- arstöðu í menningarlífinu, áður hafa verið útnefndir listamenn. Bergljót Jónsdóttir sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þetta væri mikil og ánægjuleg viðurkenning íyrir sig. „Það er alltaf gott að fá viðurkenningu fyrir það sem maður gerir, við þurfum öll á því að halda. Sérstaklega fínnst mér ánægjulegt að við sem vinnum á bak við tjöldin í menningarlífínu skulum fá viður- kenningu fyrir okkar störf.“ í umsögn dómnefndarinnar kem- ur fram að viðurkenningin sé sér- staklega veitt Bergljótu fyrir að stækka menningarlegan sjóndeildar- leiklist, tónlist og tilheyrandi trúðalátum". Tröllið sem prjóna- ði var frumsýnt 17. júní s.l. á Arnarhóli í Reykjavík, en Kó- medíuleikhúsið skipa Elfari Logi Hannesson, Hallgrímur Oddsson og Róbert Snorrason. hring almennings. í starfí sínu hafi hún breytt áherslum hátíðarinnar í þá veru að auka fjölbreytni og leita meira eftir þátttöku yngri lista- manna og þannig gert Björgvinjar- hátíðina hvort tveggja í senn, meira spennandi og alþjóðlegri. Björg- vinjarhátíðin hafí undir hennar stjóm undanfarin þijú ár orðið al- þjóðlega þekkt og eftirsótt af lista- mönnum um víða veröld. I leiðara blaðsins er Bergljót hvött til að halda áfram starfí sínu og leiða Listahátíðina í Björgin inn í nýja öld. Bergljót sagði að þessi viðurkenn- ing hefði ekki áhrif á væntanlega ákvörðun hennar um hvort hún héldi áfram sem framkvæmdastjóri Björg- vinjarhátíðarinnar, þegar samningur hennar rennur út næsta vor. „Þetta hefur ekki áhrif á það nema þetta undirstrikar enn frekar þann velvilja sem ég hef fúndið fyrir hér í Noregi", segir Bergljót Jónsdóttir, nafn ársins í norsku menningarlífi. Ljósmynda- sýning í Norræna húsinu SÝNING á ljósmyndum eftir norska ljósmyndarann Petter Hegre verður opnuð í anddyri Norræna hússins miðvikudaginn 1. júlí. Sýningin ber yfirskriftina „0ya og kvinnan" eða Eyja og konan. Á sýngunni eru 7 svart- hvítar ljósmyndir sem allar era teknar hér á landi og sýna konu í íslensku landslagi. í kynningu segir: „Petter Hegre hefur starfað sem ljós- myndari í Stavanger frá 1992 þegar hann opnaði Ijósmynda- stofu sína. Hann hefur fengist við auglýsinga- og tískuljós- myndun og hefur einnig haldið sýningar og unnið ýmis verkefni á eigin forsendum. Petter Hegre nam ljósmynd- um við Brooks Institute of Pho- tography í Santa Barbara í Bandaríkjunum um eins árs skeið. Hann var valinn úr fjölda ungra Ijósmyndara sem aðstoð- armaður hjá Richard Avedon sem er meðal fremstu Ijósmynd- ara Bandaríkjanna. Petter Hegre tekur eingöngu svarLhvítar myndir og eru myndir hans útfærðar með meistaratökum. Mannslíkaminn er honum hugleikinn og hann er mjög meðvitaður um viðfangs- efni sín. Petter Hegi-e hefur ferðast víða og tekið margar myndraðir m.a. Gay Day í New York (1991) og myndröð frá Rúmeníu, sem sýnir m.a. böm smituð af alnæmi." Sýningin í Norræna húsinu stendur til 19. júlí og er opin á sama tíma og húsið, kl. 9-18 alla daga nema sunnudaga frá 12-18. Bergljót Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar í Björgvin Nafn ársins í norsku menningarlífí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.