Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 29
MENNTUN
Metaðsókn að
rekstrardeild Tí
Biðla til
fyrrverandi
kennara
VEGNA stefnu hollenskra stjórn-
valda um að fækka börnum í fyrstu
bekkjum grunnskóla og vegna
hækkandi meðalaldurs núverandi
kennara, er fyrirséð að skortur
verði á hæfum kennurum á kom-
andi árum í hollenskum grunnskól-
um.
Að því er hollenska menntamála-
ráðuneytið hefur skýrt frá var
gripið til þess ráðs að senda bréf til
150 þúsund kennara, sem látið
höfðu af störfum. Svör bárust frá
60% kennaranna, aðallega konum á
aldrinum 35-50 ára. Af þeim voi-u
23 þúsund reiðubúnar að snúa aft-
ur til kennslu. Hinar óskuðu eftir
því að fá að fylgjast með þróun
grunnskólans og þá ekki síst
starfsmannamálum í framtíðinni.
Þetta var annar áfangi í þeirri
herferð sem hófst í fyrra til að
hvetja ungt fólk til kennaranáms,
einkum til að sinna yngstu nem-
endum grunnskólans.
METAÐSÓKN er að námi við rekstr-
ardeild Tækniskóla Islands næsta
vetur en það hefst um áramót.
Rekstrardeild Tækniskóla Islands er
nú langstærsta deiid skólans en þar
leggja um 300 nemar stund á námið. I
rekstrardeild er í boði fjögurra anna
nám í iðnrekstrarfræði auk tveggja
anna framhaldsnám til B.Sc.-gráðu
fyrir iðnrekstrarfræðinga á útflutn-
ingsmarkaðs- eða vörustjómunar-
sviði.
Umsækjendum hefur fjölgað jafnt
og þétt og er nú svo komið að á þriðja
hundrað umsækjendur eru um þau 90
pláss sem laus eru á fyrstu önn deild-
arinnar.
Námið er á háskólastigi og er lögð
mikil áhersla á tengsl við atvinnulífið
og er m.a. gert að skilyrði fyrir inn-
göngu a.m.k. tveggja ára starfs-
reynsla úr atvinnulífinu auk þess sem
nemar vinna fjölda raunhæfra verk-
efna hjá fyrirtækjum.
Deildarstjóri rekstrardeildar er
Sverrir Amgrímsson.
Tímarit
• SKÍMA, málgagn móður-
málskennara,1. tbl. 1998, er
nýkomið út. I tímaritinu
kennir
margra
grasa. Er
þar t.d.
frumbirtnr
nýr ís-
lenskur af-
mælissöng-
ur eftir
Atla Heimi
Sveinsson
og Þórarin Eldjárn. Eiríkur
Brynjólfsson ræðir við Hall-
dór Halldórsson prófessor
um ævi hans og starf,
Höskuldur Þráinsson gerir
grein fyrir störfum vinnu-
hóps, sem vann að nýju
námskránni og Heimir Páls-
son rekur sögu móðurmáls-
kennslu á Islandi. Enfremur
eru greinar um málfræði,
fréttir af netinu í málfar-
spistli, gert er grein fyrir
starfi Lestrarmiðstöðvar auk
annarra fastra þátta.
Halldór
Halldórsson
frá 2.179.000 kr.
Ertu sammála fagblöðunum?
Suzuki Grand Vitara hefur þó sjaldgœfu eiginleika, að geta raun-
verulega sameinað i einum bíl hinn hefðbundna lipra fjölskyldubíl
í bæjarumferðinni ogjeppann dn þess að sprengja kaupgetuna.
Ökuþór
.. .fœr„Óskarsverðlaun":
Fyrir þœgindi og dnægjulegan akstur ósamt góðum utanvega-
eiginleikum og lúgum rekstrarkostnaði fær Suzuki Grand Vitara
titilinn „Bestu 4X4 kaupin undir 200.000 SEK"
Motor (Svíþjóð)
Með Grand Vitara hefur Suzuki komið fram með nýja kynslóð
jeppa sem er greinilega „fullorðnari" en sú ó undan.
Auto Zeitung (Þýskaland)
2.5 V6 vélin ... er dreynslulaus og öflug lógum snúning og hún
feykir Grand dfram ó hraða sem kemur d óvart.
Car (Bretland)
Okkur finnst hann vera réttur kostur fyrir kaupendur sem hugsa
um verð, útlit, og vilja njóta lífsins.
Truckworld online (Bandaríkin)
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„
Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavík: BG
bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.