Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 37

Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 37
*\ o MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 37 AÐSENDAR GREINAR Ég árétta NÚ SÍÐUSTU vik- urnar hefur risið á aft- urfætur hér í landi vargur sem ætlar öllu illu að eyða. Sá vargur, sem svona hegðar sér, er sú samviska þjóðar- innar sem enn er sauð- meinlaus og óspjölluð. Ef einum manni skal þakka það að hafa íklæðst sauðargæru, þá er Sverrir Her- mannsson sá maður. En Sverri virðist, eftir að hann klæddist gærunni, hafa tekist að jarma að sér flesta villuráfandi sauði þjóð- arinnar. Um leið og forystusauðurinn reynir að forðast slátrun, hefur hann í huga, að þegar maður eign- ast nýja vini þá fylgir jafnan sá böggull skammrifi, að óvinimir verða sýnilegri. Og fyrst hér er minnst á óvini, þá skal þess getið að mannsnafnið Sverrir merkir svo mikið sem: óvinur eða fjandmaður. Og þegar maður með því nafni er Hermannsson í þokkabót, þá er ekki gott að átta sig á því hvort gervið er betra, úlfurinn eða sauð- argæran. Sá maður, sem sagður er líta á Sverri sem óvin nr. 1, er kollegi minn, Davíð Oddsson, leikskáld, söngtextahöfundur og forsætisráð- hema. En grafarþögn Davíðs gef- ur leikmanni tilefni til að ætla að hatrið í garð Sverris sé hrein- ræktað. Davíð virðist nefnilega hafa áttað sig á því í textagerð- inni, að bilið á milli orðanna getur haft svipað vægi og orðin sjálf. En honum hefur þó yflrsést sú stað- reynd, að þeir sem textanna eiga að njóta, kjósa að hafa þagnir og orð í sam- ræmi við þá tónlist sem undir er leikin. Þóttahragð Davíðs þarf svosem ekki að koma á óvart, því hrokinn hefur hjálpað þeim ágæta manni til að skella skollaeyrum við mörgu því sem að hans mati hefur talist óþægilegt. Davíð hefur átt fádæma vinsæld- um að fagna, þær hefur hann eink- um öðlast fyrir þá uppgerðar hóg- værð sem hann viðhefur á vett- vangi stjómmálanna. Sú leikræna hlédrægni, er hér um ræðir, lýsir sér í því að maðurinn reynir að komast hjá því að tala. Honum er það nefnilega ljóst, að sá talar ekki af sér sem alltaf heldur kjafti. Lýð- hyllinni hefur hann svo haldið stöðugri með því að senda undir- mönnum sínum persónuleg bréf. I þeim bréfum hefur Davíð hótað mönnum því, að fletta ofanaf spill- ingu þeirra ef þeir ekki hlýða hon- um í einu og öllu. Sú leikflétta þagnarinnar sem Davíð Oddsson sá í stöðunni, þegar Sverrir Hermansson byrjaði að fletta ofanaf spillingunni í valda- klíkunni, virtist um stund ætla að eyða orðkynngi Sverris. En Sverr- ir hóf þá upp raust og talaði fyrir þá báða. Og nú hefur Sverrir farið mikinn í fjölmiðlum, spurt margra spum- inga og haldið á lofti ýmsum full- yrðingum. Á milli línanna í skrifum Davíð er ljóst, segir Kristján Hreinsson, að sá talar ekki af sér sem alltaf heldur kjafti. hans hefur mátt lesa t.d. það, að bankaráðsmenn, ýmsir stjómmála- menn, ríkisendurskoðandi, svo og margir af fyrrverandi veiðifélögum hans séu hin mestu dusilmenni og að þeirra bíði ekkert nema uppgjör við eigin samvisku. Ekki hefur Davíð Oddsson séð ástæðu til að bera í bætifláka fyrir þá tryggu vini sína, sem þama hafa fengið það óþvegið. Þegar Sveirir gerir því skóna, að spiliingarbræðralag framsóknar- og sjálfstæðismanna sé sú voldug- asta og siðlausasta klíka sem með völd hefur farið á Islandi, þá er fátt um þrætur frá kollega mínum Da- víð Oddssyni. Og ekká svarar Davíð því hvort fjölskmðugar og margítrekaðar ásakanir á hendur Finni Ingólfs- syni eigi við rök að styðjast. Ekki svarar hann því heldur hvort ásak- anir í garð Lindar-manna geti talist réttmætar. Hann svarar yflr- höfuð engri af þeim spurningum sem gætu varpað skugga á hann og hans innstu koppa í búri hvít- flibbanna. Að svara slíku er ein- faldlega ekki hans stíll. En títtnefndur Davíð Oddsson fékk málið nú um daginn, þegar lið hans laut í lægra haldi íýrir heiðar- legum andstæðingi, því þá vaknaði þessi öðlingur til vitundar um stöðu sína og tróð sér fremst í ræsiskákina til að kvarta og kveina. Kappsmálið var að rægja fréttamenn og segja þá vilhalla hans helsta andstæðingi. Að vísu var umkvörtunin bæði ómakleg og órökstudd, enda kannski ekki annars að vænta frá manni sem fer allajafna sparlega með orð. En rökleysuna kórónaði Davíð með því að geta ekki nefnt neitt einasta dæmi um rangfærslur fréttamanna. Og aðspurður gat hann ekki heldur nefnt dæmi þess að hlutdrægni hafi verið viðhöfð af þeim íréttamönnum sem hann þó taldi hafa brotið af sér í starfi. En þarna gaf Davíð Oddsson sjálfum sér langt nef um leið og hann hljóp á sig, því hann hefði getað nefnt nærtæk dæmi. Hann hefði getað nefnt mýmörg dæmi þess, að fréttamenn hafa þurft að segja: „Ekki náðist í Davíð Odds- son útaf þessu máli...“ Hann hefði getað útskýrt hvers vegna ekki er hægt að ná í hann ef óþægilegum spumingum þarf að svara. Hann hefði getað sagt þjóðinni hvemig unnt er að leyna sannleikanum með þögninni. Þama gafst Davíð gullið tækifæri til að benda á dæmi um óheilindi, því það er ekkert annað en óheiðarleiki sem knýr ráðamenn til að fara í felur þegar fréttamenn, fyrir hönd þjóðarinn- < ar, vilja fá svör við áleitnum spum- ingum. Kannski er það svo að Davíð Oddsson er að reyna að sniðganga sannleikann með því að svara ekki spurningum og vera ekki til taks, nema akkúrat á þeim augnablikum sem honum þóknast að brúka til þess arna. Eða e.t.v. álítur hann að þjóðin sé svo vitlaus og gleymin, að það sé nóg fyrir hann að láta svörin bíða í einn til tvo daga, og þá verði búið að eyða mesta óbragðinu af þeirri afsakandi skreytni sem *■ hann, einsog aðrir stjómmála- menn, virðist líta á sem sjálfsagt stjómtæki. En nú virðist þetta stórkostlega stjómtæki ráðamanna ætla að snú- ast í höndum þeirra, því ef sauða- hjörð sú sem eyrnamerkt hefur verið Sverri Hermannssyni lætur horn vaxa útúr gæra, þá má ætla að lífdagar lyga og þagnar verði taldir áðuren langt um líður. Höfundur er skáld. Kristján Hreinsson verð aðeins: 1.410.UUU Kr. Öflug 1400 vél og sjálfskipting 'IÍÍÉMÍÍÍ&M iSv»Sjí Peugeot 106 5 dyra - kattliðugur Það koma engin meðalljón frá Peugeot. Snerpa og lipurð gera Peugeot 106 að verðugum fulltrúa Peugeot. Þessi smábíll fœst nú með öflugri 1400cc vél og sjálfskiptingu sem skilar sér í frábœrum aksturseiginleikum, miklu afli og einstakri lipurð. Það er enginn meðaljón á Peugeot. NÝBÝLAVEGI 2 S(MI: 554 2600 0PIÐ LAUGARDAG KL. 13-17 ■ * *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.