Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 39
SVAVA
ÓLAFSDÓTTIR
+ Svava Ólafsdótt-
ir fæddist í
Reykjavík 14. febr.
1912. Hún lést á
Droplaugarstöðum
20. júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þóra Bjarna-
dóttir, og Ölafur
Kárason frá ísa-
firði. Svava átti sex
hálfsystkini, börn
Ólafs Kárasonar, og
hálfsystur, Elsu
Þorbergsdóttur.
Eiginmaður
Svövu var Jökull
Pétursson málarameistari, f.
13.11. 1908, d. 27.5. 1973. Þau
áttu þijá syni. Þeir eru: 1)
Ingólfur, f. 4.7. 1931, maki Mar-
grét S. Kristinsdóttir, þau eiga
þijú börn: Helga Örn, Svövu og
Guðjón, og tvö bamabörn. 2)
Garðar, f. 26.3. 1935, maki
Helga Nielsen, eiga þau fjögur
börn: Guðrúnu, Jökul Karl,
Svava tengdamóðir mín er látin,
amma Svava eða „langa okkar“, eins
og litlu stelpurnar í Garðabæ köll-
uðu hana.
Amma Svava var búin að vera
heilsutæp sl. fjögur ár. Það byrjaði
með legu á Borgarspítalanum. Það-
an fór hún inn á Dalbraut í þjón-
ustuíbúðir aldraðra, þar naut hún
aðhlynningar eins lengi og mögulegt
var. Viljum við flytja starfsfólkinu
þar bestu þakkir fyrir hjálpina.
Fyrir tveimur mánuðum fór
Svava á Droplaugarstaði. Þar fór
mikið vel um hana og allt gert til
þess að henni liði sem allra best.
Sérstakar þakkir viljum við færa
Dýrleifu á 2. hæð á Droplaugarstöð-
um og öllu hennar starfsfólki fyrir
frábæra hjúkrun og umhyggju. Ég
hef aldrei hitt eins yndislegt og sam-
valið starfsfólk. Guð blessi þeirra
störf.
Amma Svava hafði óskaplega
gaman af litlu langömmustelpunum
sínum í Garðabæ. Reyndum við að
segja henni spaugilegar sögur af
þeim, ef eitthvað skemmtilegt hafði
gerst. Þegar þær litlu komu í heim-
sókn til „löngu“ fengu þær glæra
boxið með marglituðu hálsfestunum
sem hún átti og skreyttu þær sig á
staðnum. Þá voru þær orðnar
ofsafínar.
Svava var svo hreykin þegar hún
sagði frá hvað hann Garðar ætti
margar stelpur, þær væru sko níu.
Þegar farið var að telja þá reyndist
þetta jú rétt. Þetta voru hún sjálf,
ég, dætur okkar Garðars þrjár og
langömmu stelpumar í Garðabæ
fjórar. Mikið rétt, níu stykki. Næstu
jól verða tómleg. Engin „langa“ en
amma Svava hefur alltaf verið hjá
okkur á aðfangadags- og gamlárs-
kvöld síðan afí Jökull dó, að einum
jólum undanskildum. Síðasta að-
fangadagskvöld áttum við saman á
heimili Egils og Guðrúnar dóttur
okkar Garðars ásamt öðrum böm-
um okkar, tengdabömum og bama-
bömum. Naut hún þess afskaplega
vel að geta séð okkur þar öll saman,
og mikið fannst henni maturinn góð-
ur. Hún spurði mig fyrir stuttu
hvenær við fengjum aftur svona fín-
an forrétt eins og hjá henni Guðrúnu
um jólin.
f febrúar sl. varð hún 86 ára. Sótt-
m
|
i
ur
örficfryÁÁj
VEISLUSALURINN SÓLTÚNI 3
AKOGESHÚSIÐ
síml S62-4822
Brynjar Eymundsson
malrelðslumeistarl
Guðbjörg Eisa Guðmundsdóttir
smurbrauðsiómfrú
1 VEISIAN
A
VEITINGAELDHtíS
Frábærar veitingar Síml: 5612031
Fyrirmyndar þjónusta
Svövu og Soffíu
Dögg, og Qögur
baraaböm. 3) Stef-
án Gunnar, f. 28.12
1949, ókvæntur, á
tvö böm: Ingibjörgu
og Stefán Jökul.
Svava var heima-
vinnandi meðan
synir hennar uxu úr
grasi, en vann eftir
það í áraraðir hjá
Iðnaðarbankanum
við þrif og ræsting-
ar og hafði umsjón
Iengstum með þeim
störfum.
Svava tók þátt í félagsstörfum
í kvenfél. Árbæjarsóknar og
klúbbi eiginkvenna málara-
meistara og var heiðursfélagi í
þeim báðum. Hún söng með
Verkalýðskómum, Alþýðukórn-
umog Fílharmómukórnum.
títför Svövu verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
um við hana inn á Dalbraut og fór-
um með hana heim til okkar í af-
mæliskaffi. Mikið varð hún glöð því
að þar beið allur hópurinn. í apríl
kom hún svo í fermingu Elínar
Helgu, en hún er elsta langömmu-
barnið. Það var hennar síðasta
heimsókn til okkar.
Elsku Svava mín, nú skilja leiðir
eftir 38 ára kynni, „en hittumst fyrir
hinum rnegin". Hafðu hjartans þökk
fyrir allt.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð drottins í,
þar áttu, hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna M,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
(Hallgr. Pét)
Guð blessi þig og varðveiti að ei-
hfu.
Þín tengdadóttir.
Helga.
Elsku amma, þegar ég læt hug-
ann reika og minningamar um sam-
verustundir okkar koma fram, þá
eru þær allar minningar um hlátur
og gleði.
Sterkastar eru minningarnar um
jólin á Móaflöt hjá mömmu og
pabba. Það voru sko ekki komin jól
fyrr en þú komst. Þá settumst við
systkinin inn í stofuna með þér og
þú fórst að segja okkur brandara og
skondnar sögur, þá sérstaklega af
uppátækjum pabba á hans uppvaxt-
arárum. Síðan upphófst mikil brand-
arakeppni þar sem þú og Jökull
bróðir voruð helstu keppinautamir.
Þegar ég skrifa þetta þá heyri ég
hláturinn þinn og glamrið í pottun-
um hjá pabba þar sem hann er að
leggja lokahönd á sósuna með steik-
inni, að ógleymdri jólamessunni, en
hún glumdi alltaf í bakgrunni.
Eins kemur það sterkt upp í huga
mér þegar þú bauðst mér með þér í
ferðalag til Hallormsstaðar, þar sem
Ella og Stebbi bjuggu. Ég var að-
eins sjö ára og þessi ferð var mér
mikið ævintýri. Við fómm saman í
flugvél og ég sá landið okkar úr lofti
í fyrsta sinn. Þarna eyddum við
saman mörgum dögum í sól og hinni
mestu blíðu, sem Hallormsstaður er
vel þekktur fyrir. Það var rétt eins
og við værum komnar til útlanda.
A þessari stundu, þegar ég hugsa
um þig og hversu glettin þú varst,
get ég ekki annað en brosað í gegn-
um tárin. Farðu nú og hlauptu um
með afa, en það er svo langur tími
sem þið eigið eftir að vinna upp sam-
an.
Þú lifir áfram innra með okkur og
ég skal leggja mitt af mörkum, með
því að segja litlu „kleinunum" mín-
um, sem þú hafðir svo gaman af, frá
þér.
Elsku amma, takk fyrir allt.
Þín
Svava Garðarsdóttir.
Mitt höfuð, Guð, ég hneigi,
að hjartað stíga megi
í bljúgri bæn til þín.
Lát heims ei glys mér granda,
en gef mér bænaranda
og hjartans andvörp heyr þú mín.
Eg bið þig, faðir blíði,
um bót í lífsins striði
í Jesú nafni nú.
í hæðir hjartað mænir,
þú heyrir allar bænir
í Jesú nafni’, í Jesú trú.
Sá andans andardráttur
sé ósh'tandi þáttur
á milli mín og þín.
Þá bamslegt þjarta biður,
þín blessun streymir niður.
Ég fer til þín, kom þú til mín.
(V. Briem.)
Elsku amma. Guð varðveiti þig.
Hjartans kveðjur.
Guðrún, Jökull Karl,
Svava, og fjölskyldur.
Nú, legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðar kraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt
(Þýð. S. Egilsson.)
Elsku „langa“ okkar, við munum
sakna þín. Guð blessi þig.
Langömmustelpumar þínar,
Elín Helga, Svava, Guðrún
Hrefna og Helga Þöil.
Elsku besta amma mín.
Héma em bara örfá kveðjuorð frá
mér. Þú hefur alltaf skipað mikil-
vægan sess í mínu lífi. Þú varst
alltaf órjúfanlegur hluti af jólahald-
inu heima á Móaflöt og maður gat
alltaf treyst á að gjöfin frá þér yrði
eitthvað alveg „hæstmóðins í dag“.
Einnig var alltaf gaman að koma
heim til þín á jóladag, fá heitt kakó
og kökur. Þú hafðir svo góðan
smekk, og þú vaktir áhuga minn á
gömlum fallegum húsgögnum. Það
var mér því mikils virði þegar þú
gafst mér gamla spegilinn þinn þeg-
ar ég varð tvítug. Hann mun alltaf
skipa sérstakan sess hjá mér.
Ég veit að þér líður vel núna og
það er okkur öllum mikil huggun.
Loksins ertu aftur hjá honum afa
Jökli og ég veit að þið munuð hafa
það gott saman. Guð og englamir
gæti þín, elsku amma mín. Ég mun
sakna þín.
Þín
Soffía Dögg.
í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
og erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
ÍB S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR JÓHANN ALEXANDERSSON,
Drápuhlíð 24,
Reykjavík,
sem lést 25. júní sl., verður jarðsunginn frá Frikirkjunni í Reykjavík,
fimmtudaginn 2. júlí kl. 13.30.
Bentey Hallgrímsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
Okkar ástkæri,
ÓLAFUR (ÓLI) ARNARS,
rafvirki,
lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 27. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Elín Stella Gunnarsdóttir
og fjölskylda.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRÐUR ÞÓRÐARSON,
Brekastíg 33,
Vestmannaeyjum,
varð bráðkvaddur laugardaginn 27. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 3. júlí kl. 13.30.
Heiða Þórðardóttir, Ari Jóhannesson,
G. Hans Þórðarson, Inga Ósk Ólafsdóttir,
Hanna Þrúður Þórðardóttir,
Ari Brynjar Arason, Ólafur Ingvi Hansson
og aðrir ástvinir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON,
Hlíðarvegi 3,
ísafirði,
lést á heimili sínu aðfaranótt 27. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðbjörg Sigrún Valgeirsdóttir,
Kristján Guðmundsson, Guðfinna Skúladóttir,
Valgeir Guðmundsson,
Ólafur Guðmundsson,
Einar K. Guðmundsson,
Sigurður R. Guðmundsson,
Hildur G. Bæringsdóttir,
Steinunn M. Arnórsdóttir,
Aðalbjörg Pálsdóttir,
Jóna Guðmundsdóttir,
Ólöf Minný Guðmundsdóttir,
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, Guðmundur S. Ásgeirsson,
Birgir Már Guðmundsson, Nína E. Sandberg.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RÓSA INGÓLFSDÓTTIR,
Miðleiti 7,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum að morgni 27. júní sl.
Útförin auglýst síðar.
Guðmundur I. Guðmundsson, Rósa S. Jónsdóttir,
Grétar Guðmundsson, Kathleen A. Guðmundsson,
Örn Guðmundsson, Kristfn Guðfinnsdóttir,
Ævar Guðmundsson, Guðrún Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnaböm.
+
SIGURBJÖRN ÞORBJÖRNSSON
fyrrverandi ríkisskattstjóri,
Skúlagötu 40A,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 28. júní.
Betty H. Þorbjörnsson,
Björn Þór Sigurbjörnsson, Ragnheiður Gestsdóttir,
Markús Sigurbjörnsson, Björg Thorarensen.