Morgunblaðið - 30.06.1998, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 30.06.1998, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Eiginmaöur minn og faðir okkar, HALLGRÍMUR ELÍAS MÁRUSSON, Kópavogsbraut 1b, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð miðviku- daginn 24. júní sl. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 3. júlí nk. kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans, vinsamlega láti hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð njóta þess. Hermína Sigurbjörnsdóttir, Steinar Haligrímsson, Þráinn Hallgrímsson, Dúa St. Hallgrímsdóttir, Pálmar Hallgrímsson, Jónas Hallgrímsson. t Systir okkar, ÁSDÍS SIGURJÓNSDÓTTIR SÖRENSEN frá Neskaupstað, andaðist á heimili sínu í Fredericia í Danmörku sunnudaginn 21. júní. Útförin hefur farið fram. Fyrir hönd annarra vandamanna, Helga Sigurjónsdóttir, Guðmundur H. Sigurjónsson, Ásmundur Sigurjónsson, Ágústa Sigurjónsdóttir. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLÍN GUNNARSDÓTTIR, Árskógum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum að morgni laugardagsins 27. júní. Gunnar Baldursson, Margrét Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR A. ÞORSTEINSSON fyrrum kennari á Eskifirði, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugar- daginn 27. júní. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, ALDA JENNÝ JÓNSDÓTTIR, Hringbraut 50, (áður Réttarholtsvegi 37), lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 28. júní. Fyrir mína hönd, systkina minna og annarra vandamanna, Þorsteinn Ragnarsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓRUNN S. GRÖNDAL, síðast til heimilis í Hæðargarði 35, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 1. júlí kl. 13.30. Sigurlaug Gröndal, Hörður Arason, Steingrímur Þ. Gröndal, Sigríður Ásgeirsdóttir, Benedikt Þ. Gröndal, Drífa Björgvinsdóttir, Ólafur Þ. Gröndal, Margrét Guðbjörnsdóttir og barnabörn. ÞÓRDÍS JÓHANNESDÓTTIR + Þórdís Jóhann- esdóttir fæddist í Reykjavík 1. októ- ber 1904. Hún lést 23. júní síðastliðinn á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. For- eldrar hennar voru Helga Vigfúsdóttir frá Sólheimum í Mýrdal, f. 16. nóv. 1875, d. 15. nóv. 1918, og Jóhannes Jónsson, trésmiður frá Narfastöðum í Melasveit, f. 21. maí 1872, d. 17. des. 1944. Systkini Þórdísar voru: Kristín, f. 28. apr. 1906, d. 22. okt. 1996, Jónína, f. 27. ágúst 1907, d. 4. ágúst 1996, Vigfús, f. 5. des. 1908, d. 14. aprfl 1996, Karl, f. 30. sept. 1910, Þorbjörn, f. 10. mars 1912, d. 4. júlí 1989, Theodór, f. 18. sept. 1913, Elín, f. 4. aprfl 1914, d. 24. júlí 1916. Hálfbræður Þórdísar samfeðra: Siguijón Guðmundur, f. 31. mars 1930, Sólmundur, f. 31. Hinsta kveðja Sölvhólsgata 12, sem ekki sér lengur stað, var tveggja hæða reisulegt steinhús á háum kjallara og með risi. Samkvæmt gögnum í Arbæjarsafni var það skilgreint sem snoturt fjölbýlishús sem fallið hafí vel að skipulagshugmyndum síns tíma. Það var 1924 að Guð- björn Pálsson úr Pálshúsi, Sölv- hólsgötu 14, fékk leyfi til að byggja hús þetta á lóð þeirri er hann hafði þá keypt úr Nýjabæjarbletti. Nýi- bær, sem einnig var nefndur Niku- lásarkot, var samkvæmt fyrr- greindum heimildum eitt tómthúss- býlanna í Skuggahverfi, en svo nefndist svæðið frá Vegamótastíg niður að sjó. Hverfið dró nafn sitt af einu tómthúsanna, Skugga, sem stóð niðri við sjóinn. í húsinu voru upphaflega fimm íbúðir og bjuggu fjórir bræður þar ásamt fjölskyld- um sínum og fleira fólki. Einn þeirra, Bergþór Pálsson, löngu lát- inn sómamaður, eignaðist síðar allt húsið og bjó þar áfram um langan aldur með eiginkonu sinni, Þórdísi Jóhannesdóttur, móðursystur minni, og fjölskyldu. Menn voru nýtnir á þriðja tug aldarinnar, enda voru aflagðir splæstir trollvírar frá rausnarfélagi Thors Jensens, Kveldúlfi, óspart notaðir í járnabindingu hússins og voru þeir vírar víst lítið fagnaðar- efni þeim sem löngu síðar fengu það verkefni að brjóta niður þessa rammgeru byggingu. Af hverju mér hafi orðið svo tíðrætt um þetta hús sem nú er búið að jafna við jörðu? Það er kannski einmitt vegna þess og að hinu leytinu af því að undirritaður á þó nokkrar rætur að rekja til þessa húss, í veraldleg- um og andlegum skilningi. Foreldrar mínir bjuggu þar með mig einhvern tímann á tveim fyrstu hjúskaparárum sínum uns þau fluttu vestur í bæ og við börnin þá orðin þrjú, undirritaður og tvær systur. Og menn voru ekki bara nýtnir í þá daga, þeir voru einnig sleipir og fylgnir sér, ekki síst vest- firskir menn. Bamafjölskyldur voru ekki vel séðar í húsum eigna- manna í Reykjavík forðum daga. Þegar faðir minn, sem var sjómað- jjótíl JIUTflUíflll! • Cflft Upplýsingar í s: 551 1247 mars 1930, d. 12. júlí 1989. Þórdís giftist Bergþóri Pálssyni bifreiðastjóra, f. 10. ágúst 1901, d. 7. jan. 1968. Foreldrar hans voru Guðlaug Agústa Lúðvíks- dóttir, f. 15. ágúst 1876, d. 10. maí 1962, og Páll Haf- liðason, f. 20. sept. 1857, d. 12. maí 1937. Börn Þórdísar og Bergþórs eru: 1) Helga, f. 19. júlí 1925, maki Guðjón Guðjónsson. 2) Harald- ur, f. 31. júlí 1926, maki Guðrún I. Magnúsdóttir. 3) Guðlaug, f. 16. nóv. 1927, maki Magnús Jónsson. 4) Hjördís, f. 21. des. 1925, maki Ásgeir Ásgeirsson. 5) Helgi Jóhannes, f. 17. mars 1937, maki Sjöfn Þórsdóttir. Utför Þórdísar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. ur, hafði spumir af íbúð til leigu á Sólvallagötu skildi hann dæturnar eftir í kirkjugarðinum ásamt móður minni, en leiddi mig við hönd sér til leigusalans með leigusamning tO- búinn uppá vasann. Og þér eigið að- eins þennan eina dreng, spurði leigusalinn hýr á brá. Já, svaraði faðir minn, og tvær dætur í kirkju- garðinum. Leigusalinn komst við að vonum og af því að faðir minn átti að sögn að sigla daginn eftir var eðlilegt að gengið væri frá leigusamningi án tafar. II En það var efni máls, hún Þórdís, alltaf kölluð Dísa. Hún fóstraði mig þegar ég var einbirni og móðir mín í siglingu með fóður mínum. Og þegar ég á stríðsárunum starfaði í Landsmiðjunni átti ég mörg sporin upp bratta stigana í kaffi til Dísu á Sölvhólsgötu 12, það var ekki nema yfir götuna að fara. Samvistirnar við Dísu og Bergþór héldu áfram lengi eftir það. Þegar ég stundaði nám í framhaldsskóla las ég lexí- urnar mínar á Landsbókasafninu, steinsnar ofar í Skuggahverfinu, og síðar þegar ég grúskaði þar öllum stundum í bókmenntaskruddum lá leiðin næstum dag hvern til Dísu frænku. Og það var ekki bara kaffið sem freistaði. Andrúmsloftið í þessu horfna húsi var svo þrungið góðvild að ég þekki aðeins örfá sambærileg dæmi. Bergþór var gæddur þeim fágæta eiginleika sem kallaður er bjarnylur, en Dísa með afbrigðum létt í lund og hláturmild. Hjartanlegur hlátur hennar feykti á svipstundu burt drunga í veðri og geði manna. í húsakynnum hennar var alltaf sumar og sól. Löngu eftir að Landsmiðjan og Landsbókasafn- ið heyrðu til liðinni tíð og manni var þungt í skapi, þá var þrautalend- ingin að heimsækja Dísu og Berg- þór. Og ekki spillti að í húsinu voru auk þess frændur og frænkur á svipuðu reki. Andlát þeirra sem manni eru kærir vekja ætíð upp myndir í hug- skoti. Þegar foreldrar mínir og við systkinin vorum flutt á Bárugötu 23 þar sem við bjuggum í sjö ár, á neðri hæðinni í húsi þeirrar mætu konu, Þuru Benonýsdóttur, og móðir mín lá á sæng, brást aldrei að Dísa kæmi færandi hendi með eitthvað fallegt á nýburann og þær ferðir urðu býsna margar í húsi Þuru. Það fyrsta sem frænka gerði þegar hún kom í heimsókn var ein- kennandi fyrir umhyggju hennar. Úr eldhúsinu lá brattur stigi niður í kjallarann. Dísa vatt sér jafnan strax að hurðinni og kannaði hvort hún væri ekki örugglega læst, enda fjörmikið ungviði í íbúðinni. Dísa fékk hinsvegar aldrei að vita að í þessum ágæta kjallara bræddi ég blý og steypti tindáta íyrir utan framleiðslu á prússnesku herpúðri í sprengjur fyrir stórhátíðir. Frænku hefði tæpast orðið svefn- samt með þá vitneskju. III Fleiri myndir ber fyrir augu, fleiri en hér verða dregnar upp. Eitt sinn þegar undirritaður var kominn til sjós á togara skömmu eftir stríð og skipið í febrúarstór- hríð undir miðnætti um það bil að kasta landfestum hlaðið afla á Þýskalandsmarkað, þá eru mér gerð boð um að á bryggjunni standi kona sem eigi brýnt erindi við mig. Þar stendur þá Dísa frænka kapp- klædd í hríðinni og ekki bara til að kasta á mig kveðju. Hún er með gjöf handa mér, forláta seðlaveski, og kyssir mig með þessum orðum: „Erlendur gjaldeyrir er svo dýr- mætur.“ Og í töluðum þeim orðum var hún horfin mér í hríðina. Islenska krónan var ekki í mikl- um metum í þá daga og ekki urðu heimatilbúnu krónuseðlarnir á stríðsárunum til að efla virðinguna fyrir gjaldmiðlinum. Krónuseðlarn- ir urðu að mylsnu í vösum manns og maður var að sveia þessu méli og kasta því út í veður og vind og þá var Dísa alveg dolfallin, enda mikil ráðdeildarkona. Oðru máli gilti um gjaldeyri, einkum sterl- ingspundin. Og Dísa vissi sem var að mér var fé laust í hendi. Því skenkti hún mér trúlega þessu dýra veski. Svo skildust leiðir í áranna rás svo sem er lífsins gangur, en ég og frænka mín vissum alltaf hvort af öðru og skiptumst á kveðjum. IV Þórdís var hávaxin kona, fóngu- leg á velli, létt á fæti og fríð sýnum. Fegursti drátturinn í fari hennar var þó hve kærleiksrík móðir hún var, að ógleymdri einstakri frænd- rækni. Hún var aldrei rík kona í veraldlegum skilningi, þvert á móti, en auðug í þeim skilningi sem öllu máli skiptir. Þegar í sauminn er skoðað er kærleikurinn og sívak- andi umhyggja fyrir sínum nánustu einu yfirburðirnir sem verðskulda afdráttarlausa virðingu hér í heimi. Þórdís var gædd slíkum eiginleik- um í óvenju ríkum mæli. Þau voru líka samheldin þessi systkini, ekki bara í jarðvistinni, heldur einnig við brottfór úr henni. Á tveim árum hafa fjögur þein-a kvatt: Vigfús, móðir mín, Kristín og í dag stend ég yfir moldum Dísu og kveð hana hinstu kveðju. Enginn maður er eyland. Ætt- leggurinn allur er samofinn í órofa heild. Með Dísu er nú horfinn enn einn þátturinn úr hinum mikla margslungna vefi. En ef spakvitrir menn hafa lög að mæla sé ég í anda í dag fóngulega konu stika léttstíga og háreista um hin háu hlið til fund- ar við skapara sinn og genginn ætt- boga handan við sól og mána. Blessuð sé minning Þórdísar Jó- hannesdóttur. Jóhannes Helgi. Aðfaranótt þriðjudags sofnaði amma okkar í hinsta sinn og gekk á fund skaparans. Sorg okkar systk- inanna var mikil en tilhugsunin um hversu háum aldri amma náði og hversu góðu lífi hún lifði er huggun harmi gegn. Amma var orðin þreytt og hennar tími kominn, okkur er tjáð að hún hafi sofnað fallega í þetta hinsta sinn. Við systkinin eigum margar ljúf- ar minningar um hana ömmu okk- ar. Hún var einstaklega lífsglöð kona, hló mikið og brosti. Við mun- um ávallt minnast ömmu sem glað- legrar konu og heyra hlátur hennar í huga okkar og það vermir hjörtu okkar. Amma var ekki einungis lífs- glöð kona heldur var hún einnig einstaklega falleg fram á síðasta dag, silfraða hárið hennar var eins og silki svo um var talað og húðin slétt og mjúk. Þegar Inga Dís hitti ömmu í síðasta sinn sagði hún að ástæðan fyrir fallegri húð sinni væri sú að hún hefði aldrei púðrað sig um ævina og síðan hló hún sín- um glaðlega hlátri svo það birti í stofunni. Þegar við vorum börn áttum við margar góðar stundir við borð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.