Morgunblaðið - 30.06.1998, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 30.06.1998, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 43 Skeiðveisla á afmælismóti HESTAR Murneyri AFMÆLISMÓT SLEIPNIS OG SMÁRA Sleipnir og Smári í Árnessýslu héldu um helgina sitt þrítugasta mót á Mumeyri. Þátttaka var góð og veður hið besta meðan á móti stóð. Sérlega góður árangur náðist í skeiðgreinum kappreiða og skilaði eitt hrossanna besta tími ársins í 50 metra skeiði. FYRIR tveimur árum voru há- værar raddir um að hætta bæri sameiginlegu mótahaldi félaganna á Murneyri en eftir velheppnað af- mælismót sem haldið var um helg- ina er óhætt að segja að öll áform í þá áttina séu á bak og burt. Frábært veður, góð hross og vellir og snurðu- laus framkvæmd skópu besta mót sem haldið hefur verið á Murneyri. Þá eru Murneyrarmótin sérstök að því leyti að þangað koma menn ríð- andi í stórum flokkum, fjöldi manna gistir á staðnum í tjöldum og hin gamalgróna stemmning hestamót- anna ríkir. En það er án efa árangur Áka frá Laugarvatni og Þórðar Þorgeirsson- ar í 150 metra skeiði sem hæst ber að þessu sinni. Tíminn var 13,9 sek. sem er líklegai besti tími ársins í greininni. Átta fljótustu hestarnir skeiðuðu vegalengdina undir 15 sek- úndum og sá níundi var á 15 slétt- um. Tímar 250 í metra skeiðinu voru einnig góðir þar sem Bendill frá Sauðafelli og Ragnar Hinriksson skiluðu 22,1 sek. og má mikið vera ef það er ekki besti tími ársins. Einnig mætti geta tíma Glaðs frá Sigríðar- stöðum og Sigurðar V. Matthíasson- ar, 22,27 sek. Gæðingaval mótsins var fjöl- skrúðugt og góð hross í efstu sæt- um. Hestakostur Smáramanna í úr: slitum virtist betri nú en oft áður. I A-flokki stóð efst Blúnda frá Kíl- hrauni sem Magnús Benediktsson sat í forkeppni en félagi hans Þórður Þorgeirsson sat hryssuna í úrslitum. Magnús sat sjáþfur hest í öðru sæti, Ás frá Háholti. í B-flokki hjá Smára stóð efstur Nasi frá Hrepphólum sem Olil Amble sat með 8,23 í ein- kunn. Sigfús 6. Sigfússon var með hest í öðru sæti, Garp frá Vestra- Geldingaholti. Sigfús fékk Sveins- merki Smára sem eru reiðmennsku verðlaun enda stóð pilturinn sig vel, var með þrjú hross í úrslitum í B- flokki og eitt í A-flokki. Hjá Sleipni var keppni í A-flokki spennandi þar sem Roði frá Egils- staðakoti og Halldór Vilhjálmsson höfðu sigur eftir spennandi keppni við Storku frá Dalbæ og Brynjar J. Stefánsson sem stóðu efst að lokinni forkeppni. í B-flokki hjá Sleipni sigruðu þær stöllur Glóð frá Grjót- eyi-i og þríburamóðirin Svanhvít Kristjánsdóttir. Brynjar var einnig með hest í öðru sæti en ástæða er til að geta frammistöðu hans á mótinu þar sem hann kom fímm hestum í úrslit hjá Sleipni, þremur hrossum í A-flokki og tveimur í B-flokki í yngri flokkum stóðu efstir í ung- lingaflokki Smára Hamar frá Há- holti og Bjarni Másson og systir hans, Ragnheiður, í barnaflokki á Þyt frá Háholti. Hjá Sleipni var efst í unglingaflokki Ólöf Haraldsdóttir á Bangsa frá Grímshúsum en Kristinn Loftsson varð hlutskarpastur í barnaflokki á Inga Hrafni frá Egils- staðabæ. Það skyggii- nokkuð á hversu lítil þátttaka var í yngri flokkunum hjá félögunum. Töltkeppni Murneyrarmótanna hefur öðlast miklar vinsældir síð- ustu árin enda til mikils að vinna þar sem veittar eru 50 þúsund krónur í 1. verðlaun en gefandi er Sláturfélag Suðurlands. Hugrún Jóhannsdóttir hafði sigur á Blæ frá Sigluvík eftir spennandi keppni við Sigurbjörn Bárðarson og Odd frá Blönduósi sem höfðu forystu eftir forkeppni. Þáttur kvenna var góður á þessu móti. Konur voru í efsta sæti í B- flokkskeppni beggja félaga og í tölti SIGFÚS B. Sigfússon gerði góða ferð á Murneyri, hlaut Sveinsmerki Smára sem eru knapaverðlaun og kom fjórum hrossum í úrslit. Sigfús situr hér hryssuna Hlýju og hjá hon- um stendur Sigurður Steinþórs- son formaður Smára. KARLINN í brúnni, Snorri Ólafsson, kirfllega merktur til aðgreiningar frá óbreyttum starfsmönnum mótsins, broshýr eftir vel heppnað mót. og sagði sá kunni knapi Einar Öder Magnússon, sem aldrei þessu vant kom ekki hesti í úrslit, að nú væri tímabært að skipta keppendum í karla- og kvennaflokk. Snorri Ólafsson mótsstjóri var að vonum ánægður með velheppnað mót og sagði hann knapa í skeið- keppni hafa lofað mjög vellina og hvatt til að haldnar yrðu síðsumar- kappreiðar á Murneyri og þá yrðu metin í stórhættu. Snorri gat þess að Fákur hefði lánað rásbása félags- ins og hefðu þeir auðveldað mjög framkvæmd kappreiða. En úrslit mótsins urðu annars sem hér segir: Sleipnir - A-flokkur 1. Roði frá Egilsstaðabæ, eigendur Einar Hermannsson og Halldór Vilhjálmsson, knapi Halldór Vil- hjálmsson, 8,35. 2. Storka frá Dalbæ, eigandi Már Ólafsson, knapi Brynjar J. Stef- ánsson, 8,37. 3. Gammur frá Hreiðurborg, eigend- ur Vignir og Lovísa, knapi Þor- valdur Á. Þorvaldsson, knapi í úr- slitum Vignir Siggeirsson, 8,25. 4. Míla frá Syðri-Völlum, eigandi Hilmar Pálsson, knapi Brynjar J. Stefánsson, knapi í úrslitum Leif- ur Helgason, 8,25. 5. Munnur frá Eyrarbakka, eigend- ur Guðmundur Sigurjónsson og Brynjar J. Stefánsson, knapi Brynjar J. Stefánsson, knapi í úr- slitum Þórður Stefánsson, 8,33. B-flokkur 1. Glóð frá Grjóteyri, eigendur Svanhvít Kristjánsdóttir og Kri- stján Finnsson, knapi Svanhvít Kristjánsdóttir, 8,41. 2. Heljar frá Skíðbakka, eigendur Bi-ynjar og Rútur Pálsson, knapi Brynjar J. Stefánsson, 8,35. 3. Oliver frá Garðsauka, eigandi ÞÓRÐUR Þorgeirsson reið Blúndu fyrir félaga sinn, Magnús Benediktsson, í úrslitum A-flokks hjá Smára og hirti af honum gullið. Sýnir þetta vel að enginn er annars bróðir í leik. ÞÓTT ekki næði Brynjar Stefánsson, sem hér situr hryssuna Storku, að krækja í gull að þessu sinn getur hann vel við unað, kom fimm hrossum í úrslit hjá Sleipni. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson HALLDÓR Vihjálmsson hreppti skjöldinn eftirsótta í A-flokki Sleipnis á Roða frá Egilsstaðakoti, aðrir eru frá vinstri talið: Þórður og Mugg- ur, Leifur og Míla, Vignir og Gammur og Brynjar og Storka. Þorsteinn Þorsteinsson, knapi Ólafur B. Ásgeirsson, 8,38. 4. Tinni frá Hjálmholti, eigandi Sævar Larsen, knapi Sigurður Ó. Kristinsson, 8,25. 5. Skjanni frá Hallgeirseyjahjáleigu, eigandi og knapi Sigurður R. Guðjónsson, 8,22. 6. Nótt frá S-Völlum, eigandi Hilm- ar Pálsson, knapi Brynjar J. Stef- ánsson, knapi í úrslitum Þórður Stefánsson, 8,22. Unglingaflokkur 1. Bangsi frá Grímshúsum, eigandi Haraldur Þórarinsson, knapi Ólöf Haraldsdóttir, 8,36. 2. Elva frá Dalbæ, eigandi Sigríður Harðardóttir, knapi Þóranna Másdóttir, 7,88. Barnaflokkur 1. Ingi Hrafn frá Egilsstaðabæ, eig- andi og knapi Kristinn Loftsson, 8,38. 2. Blesi frá Votmúla, eigandi Freyja Hilmarsdóttir, knapi Freyja Á. Gísladóttir, 8,45. 3. Jarpur frá Lágafelli, eigandi Erl- ing Pétursson, knapi Daníel I. Larsen, 8,07. 4. Bætir frá Eyrarbakka, eigandi og knapi Skúli Steinsson, 8,27. 5. Gjöf frá Steinum, eigendur Sigrún Ái'na og Valgerður Hafliðadóttir, knapi Sigrún A. Brynjarsdóttir, 8,27. Smári - A-flokkur 1. Blúnda frá Kflhrauni, eigandi Guðmundur Þórðarson, knapi Magnús Benediktsson, knapi í úr- slitum Þórður Þorgeirsson, 8,26. 2. Ás frá Háholti, eigandi Már Har- aldsson, knapi Magnús Bene- diktsson, 8,34. 3. Hlýja frá V-Geldingaholti, eigandi Sigfús Guðmundsson, knapi Sig- fús B. Sigfússon, 8,02. 4. Skuggi frá V-Geldingaholti, eig- andi og knapi Sigfús Guðmunds- son, 8,04. 5. Yrpa frá Enni, eigandi Ari Ein- arsson, knapi Gunnar Ö. Mai'- teinsson, 7,98. B-flokkur 1. Nasi frá Hrepphólum, eigandi Stefán Jónsson, knapi Olil Amble, 8,23. 2. Garpur frá V-Geldingaholti, eig- andi Sigfús Guðmundsson, knapi Sigfús B. Sigíusson, 8,21. 3. Kvika frá Egilsstaðakoti, eigandi og knapi Birna Káradóttur, 8,18. 4. Vorsól frá V-Geldingaholti, eig- andi Sigfús Guðmundsson, knapi Sigfús B. Sigfússon, knapi í úr- slitum Sigfús Guðmundsson, 8,19. 5. Kolfinna frá V-Geldingaholti, eig- andi Sigfús Guðmundsson, knapi Sigfús B. Sigfússon, knapi í úr- slitum Anna Þ. Rafnsdóttir, 8,13. Unglingaflokkur 1. Hamar frá Háholti, eigandi og knapi Bjarni Másson, 7,72. 2 Goði frá Húsatóftum, eigandi Þor- steinn Vigfússon, knapi Helena Steinþórsdóttir, 7,37. Bamaflokkur 1. Þytur frá Háholti, eigandi og knapi Ragnheiður Másdóttir, 8,30. 2. Yrpa frá Háholti, eigandi Belette og Sigurður Holti, knapi Helga H. Sigurðardóttir, 7,49. 3. Bylur frá Hæli, eigandi Sigurður Steinþórsson, knapi Dóróthea H. Sigurðardóttir, 7,93. Tölt 1. Hugrún Jóhannsdóttir á Blæ frá Sigluvík, 7,27. 2. Sigurbjörn Bárðarson á Oddi frá Blönduósi, 7,35. 3. Gunnar Arnarson á Sveiflu frá Ásmundarstöðum, 7,12. 4. Vignir Siggeirsson á Ofsa frá Við- borðsseli, 7,07. 5. Ragnai' E. Ágústsson á Hrólfi frá Hrólfsstöðum, 7,10. 6. Kristbjörg Eyvindsdóttir á Gyll- ingu frá Hafnarfirði, 6,82. Skeið - 150 metrar 1. Áki frá Laugarvatni, knapi Þórð- ur Þorgeirsson, 13,90. 2. Lúta frá Ytra-Dalsgerði, knapi Þórður Þorgeirsson, 14,00. 3. Hraði frá Sauðárkróki, knapi Logi Laxdal, 14,02. Skeið - 250 metrar 1. Bendill frá Sandfelli, knapi Ragn- ar Hinriksson, 22,10. 2. Glaður frá Sigríðarstöðum, knapi Sigurður V. Matthíasson, 22,27. 3. Áslaug frá Laugarvatni, knapi Auðunn Kristjánsson, 23,20. Stökk - 350 metrar 1. Lýsingur frá Brekkum, knapi Sveinn Þ. Gunnarsson, 25,86. 2. Gullrass, knapi Sigurjón Björns- son, 26,40. 3. Jökull, knapi Ágúst Þoi-valdsson, 26,60. Valdimar Kristinsson SMÁAUGLÝSINGAR ÝMISLEGT Einkatímar í stjörnuspeki hjá Gunnlaugi Guðmundssyni. Persónulýsing, framtíðarkort, samskiptakort. Uppl. I síma 553 7075. Sendum í póstkröfu. FÉLAGSLÍF FERDAFÉIAG # ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Helgarferðir 3.-5. júlí. a) Landmannalaugar og nágr., gist í sæluhúsinu. b) Öræfajökull (Hnappaleið) með Oræfaferðum. Pantið tímanlega. Laugardagur 4. júlí, kl. 8.00, Hekla. Sunnudagur 5. júlí. Kl. 8.00 Landmannalaugar, dagsferð (nýtt) Kl. 8.00 Þórsmörk, dagsferð og til lengri dvalar. Kl. 10.30 Þingvellir, jarð- fræðiferð. Kl. 10.30 Leggjabrjótur, ný ferð um gamla þjóðleið. Brottför frá BSÍ, austanmeg- in og Mörkinni 6. Helgarferð í Þórsmörk 10.— 12. júlí. Fimmvörðuháls —Þórsmörk 11.-12. júlí. FERÐAFELAG ® ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Mú fer hver að verða síðastur að fá miða í spennandi sum- arleyfisferðir innanlands! Hér eru nokkrar af ferðunum: 1) , 3.-9. júlí Eyðibyggðir á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. Nokkur sæti laus í þessa sívinsælu ferð með Valgarði Egilssyni. 2) 3.—5. júlí Hnappadalur— Hítardalur—Hreðavatn. Ný bakpokaferð um „Vatnaleið- ina". 3) 11.-15. júlí Víkurnar sunnan Borgarfjarðar eystri. Ný gönguleið á Austfjörðum. Fararstjóri Ina Gísladóttir. 4) 17.—21. júlí. Gekk ég upp á gnípu (Árneshreppur). Ný ferð með fjallgöngum. Farar- stjóri: Guðmundur Hjartarson. 5) 25.—30. júlí Norðurlands- ferð. Farið á ýmsa skemmtilega staði m.a. í Drangey. Fararstjóri: Ólaf- ur Sigurgeirsson. 6) 4.-9. ágúst Borgarfjörður eystri—Seyðisfjörður. Aukaferð. Gönguferðir um „Laugaveg- inn" hefjast 3. júlí. Nánari upplýsingar og far- miðar á skrifst., Mörkinni 6. KENNSLA Námskeið fyrir áhugafólk i listsköpun í App- lication — að sauma myndverk. Upplýsingar í sima 553 2296 — Kjuregej eftir kl. 18 frá 1. júlí. Námskeiðið byrjar 6. júlí og stendur til júlíloka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.