Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
GEORGE Harrison hafði betur í baráttunni við krabbamein í hálsi.
Með krabbamein
í hálsi
BÍTILLINN George Harrison
greindi frá því um helgina að hann
hefði háð baráttu við krabbamein í
hálsi í um eitt ár og hefði betur í
því stríði samkvæmt nýjum niður-
stöðum. „Eg ætla ekki að deyja frá
ykkur strax. Eg er mjög heppinn,"
sagði hinn 54 ára gamli tónlistar-
maður í viðtali við dagblaðið News
of the World.
Harrison sagðist hafa fundið
hnúð á hálsinum í júlí á síðasta ári
þegar hann var við garðyrkju á
heimili sínu í Henley þar sem hann
býr ásamt eiginkonu sinni Oliviu og
19 ára syni þeirra. Æxlið var svo
fjarlægt með skurðaðgerð í ágúst
og í kjölfarið fylgdu tvær lotur af
geislameðferð.
„Eg fékk krabbameinið ein-
göngu vegna reykinga. Ég hætti að
reykja fyrir mörgum árum og hafði
byxjað aftur en hætti svo alveg í
fyrra,“ sagði Harrison. „Til allrar
hamingju var hnúðurinn fyrst og
fremst varnarmerki. Það eru til
mjög margar gerðir krabbameins-
frumna og þessi var mjög venju-
leg.“
Harrison hefur tvisvar farið í
eftiriit á árinu og í hvorugt skiptið
hafði krabbameinið tekið sig upp.
Hann segir krabbameinið hafa
fengið sig til að hugsa um hverful-
leika lífsins og minnt á að allt getur
gerst.
Eftirlifandi Bítlar, þar á meðal
George Harrison, voru viðstaddir
minningarathöfn um Lindu McC-
artney, eiginkonu Pauls McCartn-
ey, en hún lést eins og kunnugt er
úr brjóstakrabbameini.
fimmtudag 2. júl( föstudag 3. júlí föstudag 10. júl(
örfá sæti laus kl. 20.00 kl. 20.00
kl. 20.00 laugardag 4. júlí laugardag 11. júlí
kl. 20.00 kl. 20.00
Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Miðasala sími 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Simapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
Sumartónleikar
„Konu sína enginn kyssti betur né
kvað um hana líkt og ég“
Ragnheiður Olafsdóttir og Þórarinn
Hjartarson með dagskrá og tónleika
helgaða Páli Ólafssyni
fim_._2/7 kl. 21.00 laus sæti
„Örtónleikar“
með Möggu Stínu
lau. 4/7 kl. 22—2 laus sæti
Matseðill sumartónleika
Indverskur grænmetisréttur að hætti
Lindu, borinn fram með fersku salati og
ristuðum furuhnetum.
Eftirréttur: „Óvænt endalok"
Miðasalan opin alla virka daga
kl. 15-18. Miðap. allan sólarhringinn
í s. 551 9055.
Netfang: kaffileik@isholf.is
Tónleikaröð
30/6 kl. 20.30. Þorsteinn
Gauti og Steinunn Bima
Þjónn í súpunni
mið. 15/7 forsýn., fimmt.
16/7 frumsýn., lau. 18/7 2.
sýn., sun. 19/7 3. sýn.
kl. 20.00.
Miðasalan opin 12—18.
Sími í miðasölu 530 30 30
LEIKSKÓLINN sýnir ÞÆTTIÚR
SUMARGESTUM
e. Maxím Gorkí
FYRIRHUGAÐAR
SÝNINGAR:
30 júní 7. sýning uppselt
2. júlí 8. sýning uppselt
Sýnlngar hefjast kl. 20:00
Sýnt er í LEIKHUSINU Ægisgötu 7.
Miðaverðkr. 500,-
Miðapantanirfsfma: 561-6677 & 898-0207
milll kl. 16-19.
LEIKSKÓLINN
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaldur Indriðason
Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Sex dagar, sjö nætur irkVz
Ford og Heche mynda prýðilegt par
í gamanhasarmynd a la Romancing
the Stone. Full tuggið en ekki leið-
inlegt.
U beygja ★★14
Oliver Stone er í stuði í ofbeldisfullri
nútíma kúrekamynd. Skemmtileg
og léttgeggjuð en svolítið langdreg-
in.
Brjáluð borg ★★
Fréttamaðurinn Dustin Hoffman
hyggst notfæra sér lykilstöðu í
gíslatökumáli til að komast aftur í
fremstu röð en fær skömm á öiiu
saman. Travolta er góður í illa skiif-
uðu og langdregnu hlutverki meðal-
jóns sem grípur til örþrifaráða. Vel
gerð að mörgu leyti en skortir sann-
færingarkraft eftir því sem á líður.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Sex dagar, sjö nætur ★★14
Ford og Heche mynda prýðilegt par
í gamanhasarmynd a la Romancing
the Stone. Full tuggið en ekki leið-
inlegt.
‘til there was you -k-k'A
Fínasta konumynd; rómantísk og
gamansöm um ólíkar manneskjur
sem rata saman.
Áreksturinn kkk
Gamia stórslysamyndaformúlan
virkar vel í höndum Mimi Leder í
mynd um yfírvofandi endalok Jarð-
ar. Téa Leoni, Morgan Freeman og
Robert Duvall fara stönduglega fyr-
ir ágætum leikhóp þó textinn sé
ekki alltaf háreistur. Brellurnar
góðar en kunnuglegar.
US Marshalls kkk
Tommy Lee Jones er í toppformi á
eftir flóttamanni sem leikinn er af
Wesley Snipes. Fínasta afþreying.
Anastasia ★★★
Disney er ekki lengur eitt um hit-
una í gerð úrvalsteiknimynda.
Anastasia jafnast á við það besta
sem gert hefur verið. Frábærar
teikningar, persónur og saga, sem
fer frjálslega með sögnina af keis-
aradótturinni (?) og byltingu öreig-
anna.
Mr. Magoo k
Ófyndin mynd, 20 árum of seint á
ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni
ekki upp, er leiðinlegur Mr. Magoo.
Litla hafmeyjan kkk'Æ
Falleg og fyndin kvikmynd þar sem
töfrar ævintýrsins blómstra að fullu.
The Assignment k'A
Fm'ðulegur samsetningur um plön
til að handsama hryðjuverkamann-
inn Carlos. Langdregin í meira lagi.
The Man Who Knew Too Littlek
Bill Murray er sá eini með viti í
meðvitaðri klisjusúpu sem gengur
ekki upp.
HÁSKÓLABÍÓ
Grease ★★★
Það er engin spurning, myndin er
algjört „ring a ding a ding“.
Áreksturinn ★★★
Gamla stórslysamyndaformúlan
virkar vel í höndum Mimi Leder í
mynd um yfirvofandi endalok Jarð-
ai'. Téa Leoni, Morgan Freeman og
Robert Duvall fara stönduglega fyr-
ir ágætum leikhóp þó textinn sé
ekki alitaf háreistur. Brellurnar
góðar en kunnuglegar.
The Big Lebowski kkk
Coenbræður eru engum líkii'. Nýja
myndin er á köflum meinfyndin og
kolgeggjuð en nær ekki að fylgja
eftir meistaraverkinu Fargo. Leik-
ararnir hver öðrum betri í sundur-
lausri frásögn af lúðum í Los Angel-
es.
Búálfarnir kkk
Virkilega skemmtileg barna- og fjöl-
skyldumynd, sem hægt er að mæla
með fyrir alla aldursflokka.
Bíóstjarnan Húgó kk'A
Sagan mætti vera skemmtilegri, en
Húgó er sætur og börnum finnst
hann fyndinn.
Titanic kkk'A
Mynd sem á eftir að verða sígild
sökum mikilfengleika, vandaðra
vinnubragða í stóru sem smáu, virð-
ingar fyrir umfjöllunarefninu. Fal-
leg ástarsaga og ótrúlega vel unnin
endurgerð eins hrikalegasta sjó-
slyss veraldarsögunnar.
The Gingerbread Mankkk
Dökk og fráhrindandi mynd sem
vinnur á. Frumleg útgáfa á bók eftir
John Grisham. Branagh er frábær í
aðalhlutverkinu.
Thousand Acres k'A
Alls ekki nógu vel gerð mynd eftir
góðri bók. Skrikkjótt og lélegur
leikur hjá annras góðum leikurum.
KRINGLUBÍÓ
Sex dagar, sjö nætur kk'A
Ford og Heche mynda prýðilegt par
í gamanhasarmynd a la Romancing
the Stone. Full tuggið en ekki ieið-
inlegt.
The Stupids k
Dæmalaus þvæla um heimska fjöl-
skyldu og vopnasala.
Úr öskunni í eldinn k'A
Slöpp gamanmynd um ríkisbubba
sem taka að búa með Amish fólki.
LAUGARÁSBÍÓ
Brúðkaupssöngvarinn kk'A
Þægileg, rómantísk gamanmynd
með Adam Sandler í hlutverki
söngvara sem er óheppinn í ástum.
Það gerist ekki betra kkk'A
Jack Nicholson í saliafínu formi sem
mannhatari, rithöfundur og geð-
sjúklingiu' sem tekur ekki inn töfl-
urnar sínar - fyrr en gengilbeinan
Helen Hunt, homminn Greg Kinne-
ar og tíkin vekja upp í honum ær-
legai' tilfinningai'. Rómantískar
gamanmyndir gerast ekki betri.
Vítamínsprauta fyrir geðheilsuna.
REGNBOGINN
Þá sjaldan það rignir kk'A
Agætlega gerður, rennblautur smá-
bæjartryllir með fínum leikurum en
formúlukenndu plotti.
Titanic kkk'A
Mynd sem á eftir að verða sígild
sökum mikilfengleika, vandaðra
vinnubragða í stóru sem smáu, virð-
ingar fyrir umfjöllunarefninu. Fal-
leg ástarsaga og ótrúlega vel unnin
endurgerð eins hrikalegasta sjó-
slyss veraldarsögunnar.
Anastasia kkk
Disney er ekki lengur eitt um hituna
í gerð úrvalsteiknimynda. Anastasia
jafnast á við það besta sem gert hef-
ur verið. Frábærar teikningar, per-
sónur og saga, sem fer frjálslega
með sögnina af keisaradótturinni (?)
og byltingu öreiganna.
Óskar og Lúsinda kk'A
Metnaðarfullt, ljóðrænt, allt að því
yfirnáttúrulegt tilbrigði við raun-
veruleikann. Hitasóttarkennd mynd
en afburða vel leikin og tónlistin er
góð.
STJÖRNUBÍÓ
Wild Things kk
Leyndardómsfull sakamálamynd
sem týnir sér í alltof flókinni at-
burðarás.
Listrænt gildi mótorhjóla
SÝNING á mótorhjólum var opnuð í Guggenheim safn-
inu í New York á dögunum en þar má líta rámlega 100
eintök af þessum glæsilegu tryllitækjum. Sýningin ber
titilinn „The Art of the Motorcycle“ og stendur fram í
september. Hjólið á myndinni er ítalskt af gerðinni MV
Augusta F4 og er hluti safns sem er í eigu Juan Carlos
Spánarkonungs. Sýningunni er ætlað að „kanna mót-
hjólið sem menningartákn, hönnun og tækniundur".