Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
PERLAN við dýpkunarfram-
kvæmdir í Klettsvíkinni í Eyjum.
Dýpkað
fyrir
Keiko
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
DÝPKUN í Klettsvík í Vest-
mannaeyjum, þar sem framtíð-
arheimili háhyrningsins Keiko
verður, hófst á sunnudaginn.
Dýpkunarskipið Perlan sér um
verkið en Björgun hf. tók fram-
kvæmdirnar að sér. Að sögn
Guðjóns Hjörleifssonar bæjar-
stjóra er reiknað með að dýpk-
unin taki fímm til sex daga en
fjarlægja á um 12.000 rúmmetra
af efni úr Klettsvíkinni. Meðal-
dýpkun á svæðinu verður um
tveir metrar en þá verður dýpið
orðið um 10 metrar. Guðjón
sagði að um 300 metrar af af-
eangsvatnsleiðslu, frá fyrstu
v' '*ögn vatnsleiðslunnar til Eyja,
hefðu verið á botni Klettsvíkur
þar sem dýpkunin fer fram og
því hefði þurft að byija á að
fjarlægja það en Ieiðslubútnum
var sökkt þarna til geymslu á
sinum tíma þar sem hann var
talinn geymast betur í sjó en á
landi.
Guðjón sagði að talið væri að
einungis þyrfti að Qarlægja sand
og möl þar sem dýpkunin fer
fram og sagði hann að heildar-
kostnaður við verkið yrði 4,2
milljónir króna og bæri Hafnar-
sjóður Vestmannaeyja kostnað-
inn af því. Hann sagði að Vest-
•-‘Anannaeyjabær hefði gefið vil-
yrði fyrir að dýpkuninni yrði
lokið fyrir 10. júlí og sagðist
hann ekki eiga von á öðru en að
sú tímasetning myndi standast.
Ekiðá
dreng á
reiðhjóli
EKIÐ var á dreng á reiðhjóli í
Hafnarfírði í gær. Atvikið átti
sér stað á Fjarðargötu, rétt við
verslunarmiðstöðina Miðbæ.
Drengurinn var fluttur á
heilsugæslustöðina í Hafnar-
fírði með minniháttar áverka.
ESB afgreiddi ekki
samningsumboð vegna
Schengen
Viðræður
dragast
til hausts
UMBOÐ til samninga við fsland og
Noreg um aðild að breyttu
Schengen-vegabréfasamstarfí var
ekki afgreitt á fundi utanríkisráð-
herra aðildairíkja Evrópusam-
bandsins í Lúxemborg í gær. Hæpið
er því að viðræður ESB við ríkin tvö
hefjist fyrr en í haust.
Ráðherrarnir telja að íyrirliggj-
andi drög að samningsumboði, sem
ísland og Noregur hafa talið viðun-
andi, geti orðið grundvöllur samn-
ingaviðræðna. Þeir vísa því hins
vegar til fastafulltrúa sinna í Bruss-
el að fjalla nánar um nokkur atriði
draganna. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er ágreiningur um
skilgreiningu á því hvaða lög og
reglur skuli teljast Schengen-gerð-
ir. Jafnframt hafa sum aðildarríki
ESB efasemdir um jafnvíðtækan
aðgang íslands og Noregs að
ákvarðanatöku um vegabréfasam-
starfíð og ráð mun vera fyrir gert í
drögunum.
Trú á pólitískri
lausn
Ráðherrafundurinn í gær var sá
síðasti, sem Robin Cook, utanríkis-
ráðherra Bretlands, stýrir en hann
hafði heitið Halldóri Ásgrímssyni
starfsbróður sínum því að reyna að
fá samningsumboðið endanlega
samþykkt. Halldór sagði í samtali
við Morgunblaðið að aðalatriðið í
sínum huga væri að samningsum-
boðið yrði nógu víðtækt til þess að
engum dyrum yrði lokað. „Við sjá-
um ekki betur en að vilji sé til að
leysa málin með þeim hæþti, sem við
getum sætt okkur við. Eg trúi því
að pólítísk lausn fínnist að lokum,“
sagði Halldór. Hann sagði hins veg-
ar ólíklegt að viðræður hæfust úr
þessu fyn- en liði á haustið.
Endurskoðuð þjóðhagsspá bendir til aukins viðskiptahalla
Segja þörf á aðhaldi og
sparnaðaraðgerðum
GRÍPA þarf til spai'naðaraðgerða í
rekstri hins opinbera og í einkaneyslu
ef koma á í veg fyrir að verðbólga
aukist og hagvöxtui- minnki hér á
landi. Þetta er álit Friðriks Más Bald-
urssonar, forstjóra Þjóðhagsstofnun-
ar, í kjölfar nýs endurmats á þjóð-
hagsspá, sem stofnunin kynnti í gær.
I skýrslunni kemur m.a. fram að
viðskiptahalli nemi 24,2 milljörðum
króna á þessu ári, eða 4,2% af lands-
framleiðslu en í marsspánni var gert
ráð fyrir að hallinn yrði 16,8 millj-
arðar króna. Þá er talið að þjóðarút-
gjöld aukist um 9,6% sem er tvöfalt á
við landsframleiðsluna sem eykst um
4,7%. Horfur eru á að atvinnuleysi
verði um 3% en í mars var gert ráð
fyrir að 3,6% mannaafla væru skráð
atvinnulaus.
Erum að auka skuldir
Samkvæmt tölum um utanríkis-
viðskipti fyrstu fjóra mánuði ársins,
kemur í ljós að vöruinnflutningur
var réttum þriðjungi meiri á föstu
gengi en _á sama tíma í fyrra. Að
teknu tilliti til erlendra verðbreyt-
inga er magnaukningin 32%. Þótt
aukningu innflutnings megi að veru-
legum hluta rekja til fjárfestingar, er
vöxtur annarra liða innflutnings
einnig mjög mikill og er þar að fínna
stærstu frávikin frá fyrri spá, að því
er fram kemur í skýrslunni.
Friðrik segir að verði ekkert að
gert, megi gera ráð fyrir að hag-
vöxtur fari minnkandi til lengri tíma
litið, því í staðinn fyrir að greiða
niður erlendar skuldir, þá séum við
að auka þær: „Ef eftirspurnin held-
ur áfram að aukast með sama hætti
og verið hefur undanfarna mánuði
eru verulegar líkur á að við sjáum
meiri þenslumerki og aukna verð-
bólgu“.
■ Nauðsynlegt að auka/18
Morgunblaðið/Golli
A sólarströnd við Akranes
EINMUNA veðurblíðu hefur gætt á suðvesturhornniu sig í sjónum. Þessar stelpur notuðu góða veðrið til að
undanfama daga. í góðviðri sem þessu er um að gera svamla í sjónum við Langasand á Akranesi nú um
að grípa tækifæri sem sjaldan gefast, eins og að baða helgina og virtust hinar ánægðustu með uppátækið.
Forsætisráðherra ræðir við hjúkrunarframkvæmdastjóra sjúkrahúsanna
Gagrirýnir
aðferðir o g
uppsagnir
YFIRLÝSING hjúkrunarfræðinga á
skurð- og svæfingadeildum um að
sinna ekki skipulagðri neyðarþjón-
ustu eftir að uppsagnir þeirra taka
gildi á morgun stenst ekki lög.segir
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra.
Hjúkrunarfræðingarnir segjast
með yfirlýsingunni vera að vísa til
þess að stjórnendur sjúkrahúsanna
hafí, að hjúkrunarfræðingum for-
spurðum, skipulagt vaktir fram í
tímann, að sögn Astu Möller, for-
manns Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga.
Stefnir í öngþveiti
Forsætisráðherra átti fund með
hj úkrunarframkvæmdastj órum
sjúkrahúsanna í stjórnarráðinu í gær
og einnig með fulltrúum heilbrigðis-
og fjármálaráðuneyta. Hann segir að
í öngþveiti stefni með þeim aðferðum
sem ákveðið hefur verið að nota. „I
verkföllum gilda ákveðnar leikreglur
sem menn geta farið að en þarna er
um að ræða aðgerðir sem menn vilja
ekki viðurkenna að séu aðgerðir
hóps til að knýja fram launahækkan-
ir. Ef um það er að ræða eru það
mjög alvarlegar, ólöglegar aðgerðir
sem bitna á saklausu, þjáðu fólki,“
segir Davíð Oddsson.
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga á ekki lengur beina aðild að við-
ræðum til lausnar deilu hjúkrunar-
fræðinga eftir að upp úr viðræðum
þeirra við fulltrúa stjórnvalda slitn-
aði á sunnudag, segir Asta Möller.
Hún segh- að 8 milljónum ki-óna á
mánuði í greiðslur til 1.100 hjúki'un-
arfræðinga hafi munað milli sjónar-
miða aðilanna þegar upp úr slitnaði.
Davíð segir yfirlýsingu formanns-
ins setta fram í léttúð. Hann segir að
hjúkrunarfræðingai- séu ekki einung-
is með réttindi heldur einnig skyldur.
„Þetta er ekki neyðarástand sem er
til komið vegna náttúruhamfara.
Þetta er ákvörðun einstaklinga um að
þetta neyðarástand skuli skella á.“
Umræður um gerð nýrra ráðning-
arsamninga með endurskoðuðum
ráðningarkjörum, í samræmi við það
umboð sem forsvarsmenn sjúkra-
stofnana hafa samkvæmt núgildandi
kjarasamningi, eru hafnar milli for-
svarsmanna sjúkrastofnana og
hjúkrunarfræðinga. Verið er að
ræða við einstaklinga að sögn Önnu
Birnu Jensdóttur, hjúkrunarfor-
stjóra hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur,
Landakoti, um að draga uppsagnir
sínar til baka á grundvelli einstak-
lingsbundinna ráðningarkjara. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
meta hjúkrunarfræðingar boð
ríkisins til rúmlega 14%
launahækkunai-, en í því felst meðal
annars að tekið verður upp ákveðið
framgangskerfi milli launaþrepa á
næstu árum. Hjúkrunarfræðingar
munu ekki vera ánægðir með það,
sem í boði er.
Læknaráð Landspítalans sendi frá
sér yfirlýsingu í gær, þar sem segir
að neyðarástand muni skapast frá
fyrsta degi á spítalanum ef uppsagn-
irnar taka gildi á miðnætti í kvöld og
segjast læknar þvingaðir til að út-
skrifa sjúklinga sem ekki eru í út-
skriftarhæfu ástandi.
Astandið kemur verst niður á lyf-
lækninga: og geðdeild, að mati lækn-
ananna. Öllum skipulögðum hjarta-
aðgerðum á Landspítalanum hefur
verið frestað og sjúklingar með ill-
kynja sjúkdóma, eins og krabba-
mein, þurfa að bíða meðferðar.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga samþykkti ályktun á
stjórnarfundi í gær þar sem hún
beinir þeim tilmælum til félags-
manna sinna að þeir sinni neyðar-
þjónustu, verði deila hjúkrunar-
fræðinga og sjúkrahúsanna í
Reykjavik ekki leyst fyrir miðnætti
í kvöld.
■ Neyðarástand frá/4
■ Boðin endurskoðun/31