Morgunblaðið - 08.07.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1998 27
MIKE Williams leitar leiða til að leysa vandamál í sambandi við úr-
gang frá svínabúum og hann er bjartsýnn á að lausn finnist.
_____AÐSENPAR GREINAR_
Annað tækifæri!
fjölmargir háskólar víða um Banda-
ríkin, segir að einn meginvandinn
við þessa umfangsmiklu svínarækt í
fylldnu sé að koma köfnunarefni og
öðrum áburðarefnum í svínaskít
fyrir. Vandinn sé sá að verulegur
hluti af fæðu svínanna sé korn sem
er ræktað í öðrum fylkjum Banda-
ríkjanna. Úrgangurinn frá svínun-
um innihaldi mikið af köfnunarefni
sem síðan er borið á akrana. Á
ökrunum sé aðallega ræktað hey
fyrir nautgripi og hesta. Offramboð
sé á heyi og sú ræktun sem fram
fari á ökrunum nái ekki að taka upp
allt það köfnunarefni sem berst í
jarðveginn. I stuttu máli sé verið að
flytja til fylkisins mikið magn af
köfnunarefni í formi korns, en það
sé í takmörkuðum mæli flutt burt.
Köfnunarefnið safnist því upp og
berist m.a. í grunnvatn.
Williams segir að mælingar á
jarðvegi hafi sýnt að víða í fylkinu
geti landið ekki tekið við meira
köfnunarefni. Nýtingin sé þegar
100%. Staðan sé víða enn verri hvað
varðar dreifingu á fosfór. Ekki hafi
enn verið sett í reglugerð ákvæði
um hámarksdreifingu á fosfór, en
mælingar sýni að ef ætti að nota
sömu viðmiðanir um fosfór og not-
aðar eru varðandi köfnunarefni
þyrftu svínabændur á tvöfalt stærra
landi að halda en þeir hafa í dag til
að koma úrgangsefnunum fyrir.
Botts segir að þessi gífurlega
framleiðsla á áburðarefnum stefni í
að verða meiriháttar umhverfisslys
fyrir N-Karólínu. Menn hafi enn
ekki séð þá mengun sem fylgi þess-
ari framleiðslu og margir neiti að
horfast í augu við vandann. Grunn-
vatn sé mengað af köfnunarefni og
þungmálmum og a.m.k. 10 ár taki
að koma jafnvægi þar á jafnvel þó
að sú mengun sem nú á sér stað
verði stöðvuð. Hann bendir á að
dýrara og erfiðara verði að takast á
við vandann eftir því sem tímar líða.
Nú þegar sé til staðar tækni sem
geti ráðið við þennan vanda að ein-
hverju leyti. Hún sé hins vegar dýr
og framleiðendur hafi fram að þessu
komist upp með þau rök að þeir geti
ekki staðið undir henni.
Leita tæknilegra
lausnaá vandanum
Stofnuninni sem dr. Williams
veitir forstöðu hefur verið falið að
finna lausn á mengunai'vandanum
frá svínabúum. Árið 1996 voru ell-
efu fyrirtæki valin til að koma fram
með tæknilega lausn á vandanum.
Eitt þeirra er Ekokan, sem er í eigu
Alexöndru Kantardjieff. Þetta er
lítið fjölskyldufyrirtæki sem stofnað
var í Kanada þar sem Kantardjieff
bjó. Hún segir að sér hafi gengið af-
ar illa að koma framleiðslu sinni á
framfæri í Kanada þrátt fyrir að
óháðar rannsóknir hafi sýnt fram á
að sú tækni sem hún bauð skilaði
verulegum árangri, sérstaklega
hvað varðaði það að losna við köfn-
unarefnið úr mykjunni.
Kantardjieff segist hafa tekið
ákvörðun um að flytja til N-Kar-
ólínu eftir að Ekokan var valið til að
taka þátt í tilraunaverkefni við
Animal and Poultry Waste Mana-
gement Center.
„Bandai'íkjamenn hugsa allt
öðruvísi en Kanadamenn. Þegar
Bandaríkjamenn uppgötva eitthvert
vandamál bregðast þeh' yfirleitt
hratt við og leita tæknilegra lausna
á vandanum. Þeir bjóða ekki styrki
eða niðurgreiðslur heldur láta
markaðinn um að finna bestu lausn-
ina. Það má segja að það hafi sína
kosti því með því móti er tryggt að
ávallt sé leitað hagkvæmustu leiða
við að leysa vandamálið," segir
Kantardjieff.
Williams segir að sú lausn sem
Ekokan bjóði lofi góðu. Margt bendi
einnig til að bændur geti náð veru-
legum árangri með því að horfa á
fleiri þætti en úrganginn sjálfan.
Rannsóknir hafi sýnt að með því að
skoða fóðrun dýranna betur og
hreinlega ala þau á orkuminna fóðri
sé hægt að minnka verulega köfn-
unarefnismagnið í úrganginum.
í FRUMGREINADEILD Tækni-
skóla íslands fær fólk á öllum aldri
annað tækifæri til að ljúka því und-
irbúningsnámi sem er nauðsynlegt
til að geta hafið Háskólanám.
Upphaflega var frum-
greinadeildin stofnuð til
þess að þjóna iðnmennt-
uðum mönnum sem
hugðu á nám í tækni-
fræði. Reyndin varð
seinna sú að þetta nám
hentaði einnig þeim sem
af einhverjum orsökum
höfðu ekki lokið hefð-
bundnum framhalds-
skóla. Þó þurfa þeir sem
hyggja á nám í frum-
greinadeildinni að vera
búnir með fyrsta hluta
framhaldsskólanámsin,
því inngönguskilyrðin
eru bæði bókleg og
verkleg.
Fyrir tveimur árum
fann ég sjálfa mig í þeirri slæmu
stöðu að vera nýfráskilin með barn á
framfæri og eina menntun mín
byggðist á nokkrum áföngum úr
menntaskóla. Vissulega stóð alltaf
til að Ijúka stúdentsprófinu og áhug-
inn á frekara námi var ávallt fyrir
hendi en á unglingsárunum var ég
óákveðin og eirðarlaus. Þar af leið-
andi sótti að mér leiði tiltölulega
snemma í framhaldsskólanáminu,
líkt og hendir marga aðra. Áfanga-
kei'fið í Menntaskólanum við
Hamrahlið hentaði mér illa, sérstak-
lega vegna alls frjálsræðisins og
óreglunnar sem var í stundatöflun-
um. Síðar gerði ég tilraun til að
ljúka þessu námi í kvöldskólanum
en líkt og í dagskólanum reyndist
mér erfitt að fóta mig þar. Ég er
sannfærð um að vera ekki sú eina
sem hef haft allt til að bera í frekara
nám en ekki náð að feta hinn hefð-
bundna veg í átt að stúdentsprófi.
Síðan var það eins og áður sagði,
fyrir tveimur árum að ég stóð
frammi fyrir því að taka ákvörðun.
Ég vissi af fenginni reynslu að nám í
öldungadeild hentaði mér illa, auk
þess sem ég var ein og hafði fyrir
barni að sjá. Nám í öldungadeild
hefði tekið mig nokkur ár með fullri
Vöggusængur,
vöggusett.
SmwJrtmtliia Sáml 55U050 Rgykfrvlk.
vinnu og að loknum fullum vinnu-
degi, heimavinnu og tímasókn yrði
ekki mikil tími eftir til að sinna
minni litlu fjölskyldu. Þess vegna
varð frumgreinadeild Tækniskólans
fyrir valinu. Þar er boð-
ið upp á fullt, lánshæft
nám til að ljúka þeim
undirbúningi sem nauð-
synlegur er til að hefja
nám á háskólastigi.
Námið er hnitmiðað og
yfirferð hröð en þrátt
fyrir að námið sé þungt
getur fjölskyldufólk
stundað það sem hverja
aðra vinnu og átt tíma
með fjölskyldunni án
þess að hafa miklar
áhyggjur af framfærslu
hennar. Og er það líka
reyndin að fjölskyldu-
fólk á öllum aldri með
mismunandi bakgrann
stundar þarna nám, allir
með aukna þekkingu og betri fram-
tíðarmöguleika að markmiði. Frum-
greinadeildin hentar mörgum líka
mjög vel að því leyti að reglan er
meiri en í áfangakerfinu. Þar era
fastir bekkir, allir eiga fastan sessu-
naut, allar kennslustundir eru
kenndar í sömu stofu, kennararnir
eru nánast þeir sömu þessa tvo vet-
ur sem námið tekur og innan bekkj-
arins myndast ákveðin heild og
kunningsskapur sem aftur verður að
ómetanlegum stuðningi á ei-fiðum
tímum í náminu.
Frumgreinadeild veitti mér, og
hefur í gegnum tíðina veitt mörgum
sem hafa staðið í sömu sporum og
ég, annað tækifæri á betra lífi og ég
tel að það væri stórskref aftur á bak
að skerða hlut hennar í menntakerf-
inu með þau rök að vopni að þessi
menntun fáist í öldungadeildunum,
því eins og áður sagði þá hentar það
sem þar er í boði alls ekki öllum.
Mikið af hæfu fólki, bæði iðnaðar-
menn og þeir sem af einhverjum
ásæðum hafa ekki gengið hinn hefð-
bunda menntaveg eða einfaldlega
blómstra seint, þurfa á frumgreina-
deildinni að halda th að geta átt
möguleika á að Ijúka námi.
Reynslan sýnir að flestir þeirra
sem ljúka frumgreinadeildinni ljúka
einnig háskóla- eða tæknifræðiprófi
aðeins nokkrum árum eftir útskrift.
Reynslan sýnir að
flestir þeirra sem ljúka
frumgreinadeildinni,
segir Sigurlaug
Þorsteinsdóttir, ljúka
einnig háskóla- eða
tæknifræðiprófi
nokkrum árum síðar.
Sú reynsla og sá undirbúningur sem
fæst í frumgreinadeildinni er nauð-
synlegur þáttur í menntakerfinu og
gerir fólk hæfara til að takast á við
framtíðina hvort heldur sem er í
námi eða starfi. Þetta tækifæri er
ómetanlegt fyrir marga og ég skora
á menntamálayfirvöld að gera þessu
námi hærra undir höfði og veita
Tækniskóla íslands þá athygli er
hann á skilið.
Höfundur er nýútskrifaður úr frum-
greinadeild Tækniskóla Islands
WJÉsala
KJtsaMa
Ca 40-50%
CL f S 1 (í t t u r
Uœmi um verð:
Áður kr. Nú kr.
Dömujakki ðjm 2.490
Bómullarpeysa 2.490
Hlýrabolur 790 490
Hifílaður bolur LF90 690
Bolur m/v hálsin. 990 390
Reniid jakkapeysa íjm 2.390
Svartur gallajakki -um 1.390
Sítt pils 1.790
Döinubuxur itWO 1.990
KjóU 2.390
Tunika toppur a^90 1.690
Opið frá kl. 10.00- 18.00
íeioöfes
Síðiiiiiú 1 íi 13, sími 568 2870
Sigurlaug
Þorsteinsdóttir
Lokað í dag
Útsalan hefst
á morgun kl. 8.00
Oáuntu
v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680