Morgunblaðið - 23.08.1998, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998
MORGU NBLAÐIÐ
VTKAN 16/8 - 22/8
►RANNSÓKN hefur staðið
yfir í nokkra mánuði hjá
Listasafni Islands á olíumál-
verki eftir Svavar Guðnason,
vegna gruns um fölsun. Nið-
urstöður liggja enn ekki fyr-
ir, en langan tíma tekur að
efnagreina oliu og liti og
bera saman við litanotkun
listamannsins.
►UM 4.500 sex ára börn setj-
ast ífyrsta sinn á skólabekk
1. september. Gert er ráð
fyrir því að u.þ.b. 3.900 nem-
endur hefji nám í framhalds-
skólum landsins. Tæplega
tvö þúsund nýnemar eru
skráðir til náms i Háskóla ís-
lands, en alis eru skráðir
tæplega 5.900 i skólann.
► RANNSÓKNIR sem gerð-
ar hafa verið á fiski úr Fýl-
ingjavötnum á Ströndum
benda til þess að ný fiskiteg-
und sé komin fram. Fiskur-
inn likist bleikju i fjarska en
DNA rannsóknir hafa Ieitt í
ljós skyldleika við urriða.
►ÖRNEFNANEFND hefur
sent út umsagnir um nöfn tii
sex sveitarfólaga. Nefndin
mælti eingöngu með tveimur
nöfnum af ellefu sem send
voru til umsagnar. Tillaga
sameinaðs sveitarfélags Nes-
kaupstaðar, EskiQarðar og
Reyðarfjarðar um nafnið
Fjarðabyggð var saraþykkt.
►NÁTTÚRUFRÆÐISTOFN-
UN hefur verið falið af lög-
reglunni að farga eitraðri
kónguló af tegundinni
Latrodectus mactans, sem
nefnd hefur verið Svarta
ekkjan, sem borist hefur
hingað til lands frá Banda-
i-ikjunum. Bit kóngulóa af
þcssari tegund veldur mikl-
um sársauka og ógleði en
sjaldgæft er að það sé ban-
vænt.
Flugleiðir tapa 1.578
milljónum á hálfu ári
STJÓRN Flugleiða hefur ákveðið að
hætta flugi til og frá Lúxemborg í byrjun
næsta árs en þar hefur félagið og áður
Loftleiðir haft viðkomu í áætlunarflugi í
43 ár. Akvörðunin er liður í spamáðará-
ætlun sem tekin er í kjölfar upplýsinga
um 1.578 milljóna króna tap af rekstri fé-
lagsins á fyrstu sex mánuðum ársins.
Reisa rækju-
verksmiðju í Kanada
FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur og
Básafell á ísaflrði hafa í samvinnu við
kanadíska fyrirtækið Clearwater Fine
Foods Inc. ákveðið að reisa rækjuverk-
smiðju í St. Anthony nyrst á Nýfundna-
landi. FH og Básafell munu eiga 25%
hlutafjár í St. Anthony. Reiknað er með
að afkastageta verksmiðjunnar verði
um 10 þúsund tonn þegar hún verður
komin í fullan gang.
Neysluvörur lækka
INNFLUTTAR mat- og drykkjarvörur
hafa lækkað um 4% það sem af er þessu
ári og aðrar innfluttar vörur um 5% á
sama tímabili. Vísitalan hefur mælt verð-
hjöðnun síðustu tvo mánuði og verðbólga
á Islandi er nú ein sú lægsta sem mæhst
á Evrópska efnahagssvæðinu.
Óheimilt að framselja
samningsg-erð
ÚRSKURÐARNEFD sjávarútvegsins
hefur komist að þeirri niðurstöðu að
áhöfnum og útgerðum fískiskipa sé ekki
heimilt að feia hagsmunasamtökum sín-
um eða öðrum utanaðkomandi samn-
inga um fiskverð.
Óvíst að nýr ráðherra
taki við
EKKI er jjóst hvort nýr maður og þá
hver tekur við stöðu umhverfis- og
landbúnaðarráðherra ef Guðmundur
Bjamason verður ráðinn framkvæmda-
stjóri íbúðalánasjóðs, sem nú virðist
allt útlit fyrir.
Clinton játar samband
við Lewinsky
BILL Clinton Bandaríkjaforseti játaði
fyrir rannsóknarkviðdómi á mánudag og
í sjónvarpsávarpi sama kvöld að hafa átt
í „óviðeigandi" sambandi við Monicu
Lewinsky, fyrrverandi starfsstúlku í
Hvíta húsinu. Forsetinn hafði áður neit-
að að hafa átt í kynferðislegu sambandi
við Lewinsky og útlit er fyrir að hann
telji sambandið ekki hafa verið kynferð-
islegt. í ávarpi sínu sagðist forsetinn iðr-
ast gjörða sinna, það hefði verið rangt af
sér að eiga í umræddu sambandi við
Lewinsky og til marks um alvai-legan
dómgreindarbrest. „Ég blekkti fólk,
jafnvel eiginkonu mína,“ sagði forsetinn.
Hann tók ennfremur fram að hann hefði
ekki beðið neinn að ljúga eða hylma yfir
vísbendingar. Skoðanakannanir, sem
gerðar voru í Bandaríkjunum á þriðju-
dag benda til þess að flestir Bandaríkja-
menn séu ánægðir með að forsetinn
skyldi viðurkenna opinberlega að hafa
átt í sambandi við Lewinsky og vilja
flestir að málið verði látdð niður falla.
Lewinsky kom öðru sinni íyrir rann-
sóknarkviðdóm á fimmtudag og leitar
sérstakur saksóknari, Kenneth Starr, nú
að misræmi í framburði Clintons og
Lewinskys.
Klofningshópur úr
IRA kveðst ábyrgur
„HINN sanni írski lýðveldisher“, klofti-
ingshópur úr írska lýðveldishernum,
IRA, lýsti á hendur sér sprengutilræð-
inu í Omah á N-írlandi sl. laugardag
þar sem tuttugu manns fórust. Sagði
hópurinn það ekki hafa verið markmiðið
að valda dauða óbreyttra borgara.
Bertie Ahern, forsætisráðherra írlands,
gaf á þriðjudag þrem klofningshópum
úr IRA sólarhring tii að lýsa yfir vopna-
hléi. Hópurinn sem kvaðst ábyrgur fyr-
ir tilræðinu í Omah varð við áskorun
Aherns, en Mo Mowlam, N-írlands-
málaráðherra bresku stjómarinnar
kvaðst telja vopnahlésyfirlýsingu hóps-
ins móðgun.
►BANDARÍSKI herinn
skaut á fimmtudag
stýrifiaugum á skotmörk í
Súdan og Afganistan og
sagði Bill Clinton forseti
árásirnar beinast að hryðu-
verkasamtökum Saudi-Ara-
bans Osama bin Ladens, sem
búsettur er í Afganistan.
Þau samtök bæru ábyrgð á
sprengjutilræðunum við
sendiráð Bandaríkjanna í
Kenýa og Tansanfu fyrr í
mánuðinum. Bandaríkja-
stjórn hefði áreiðanlegar
heimildir fyrir því að „bráð
ógn“ stafaði af samtökun-
um.
►DESMOND Tutu, erkibisk-
up og formaður suður-
afrfsku Sannlciks- og sátta-
nefndarinnar, birti á mið-
vikudag skjöl sem hann
sagði benda til þess að leyni-
þjónustur á Vesturlöndum
hefðu staðið að flugslysinu
sem varð Ðag Hammar-
skjöld, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, að
bana 1961. Bandaríska Ieyni-
þjónustan og Sir Brian
Urquhart, fyrrverandi að-
stoðarframkvæmdastjóri SÞ,
hafa visað fullyrðingum Tut-
us á bug.
►BANDARÍSKI auðkýfing-
urinn Steve Fossett fannst
heill á húfi á mánudag í
björgunarbáti á Kóralhafi
norðaustur af Ástralíu. Loft-
belgur hans hafði hrapað
þar um miðnætt ið á sunnu-
dag úr níu þúsund metra
hæð. Fossett hafði verið að
gera tilraun til að verða
fyrstur manna til að fijúga
umhverfis hnöttinn í loft-
belg.
Sér nú fyrir endann á uppsveiflu í verklegum framkvæmdum?
Lítið framundan hjá
j arð vinnuverktökum
SVEINN Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnað-
aiins, segir að þótt talið hafi
verið að spenna væri í verktakaiðn-
aði í sumar hafi komið í ljós þegar
farið var að skoða stöðuna og kalla
eftir upplýsingum að hjá jarðvinnu-
verktökum að lítið virðist framund-
an eftir sumarið.
„Það má segja að það komi á
óvart miðað við hvemig hljóðið hef-
ur verið undanfarið," segir Sveinn.
Rætt hefur verið um aðgerðir til að
slá á þenslu og ríkisstjómin hefur
m.a. fyrirætlanir um að fresta fram-
kvæmdum við stækkun Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar í því skyni. „Það
er ekki hægt að leysa þensluein-
kennin í neyslunni með því að fresta
fjárfestingu. Við sjáum ekki að það
sé slík þensla á því sviði að það sé
þörf á því,“ segir Sveinn.
12 fyrirtæki um
20 milljóna króna verk
Fyrir nokkrum misserum börðust
verktakar um verk og buðu allt nið-
ur í helming af kostnaðaráætlunum.
Sveinn segir þær fullyrðingar rang-
ar að þetta sé gjörbreytt og nú séu
lægstu boð jafnvel yfir kostnaðará-
ætlun. „Við sjáum ekki að þetta
ástand hafi mikið breyst. Það er enn
verið að bjóða út smáverk upp á 20
milljónir, sem 12 fyrirtæki em að
keppa um hér á svæðinu. I hafnar-
framkvæmdir á Suðumesjum var
nýlega verið að bjóða um 50% af
kostnaðaráætlun. Menn era oft
svartsýnir á haustin en ég man ekki
eftir að menn hafi verið famir að
hafa svona miklar áhyggjur í ágúst.
Við höfum hitt jarðvinnuverktakana
og rætt við þá og það er nánast
sama hljóðið í þeim öllum þannig að
mér fínnst full ástæða til að taka
þetta alvarlega," segir Sveinn.
Hann segir Samtök iðnaðarins telja
vandann sem virðist blasa við hjá
jarðvinnuverktökum að miklu leyti
heimabilbúinn á markaðnum hér.
„Vandinn liggur í því að allt of
mikið af verkefnum er boðið út á
vorin og unnin yfir sumarið og síðan
era þvinguð fram verklok í október.
Það má segja að það sé reglan frek-
ar en undantekningin í til dæmis
vegaframkvæmdum. Þetta þýðir að
menn þurfa að setja í þessi verk
rpikið af mönnum og tækjum og
vinna þau í blóðspreng yfir sumarið
en sigla svo inn í hálfgert aðgerðar-
leysi á haustin. Við teljum að það
væri hægt að komast hjá þessu að
miklu leyti með því að dreifa útboð-
um betur og lengja verktímann. Það
mundi koma bæði verktökunum og
verkkaupunum til góða.“
Sveinn segir að Samtök iðnaðar-
ins bendi á að eins og mál standi nú
sé kjörið fyrir þá, sem era með
verklegar framkvæmdir á döfinni og
Jarðvinnuverktakar sjá
fram á verkefnaleysi
með haustinu, að því er
fram kemur í samtölum
Péturs Gunnarssonar
við framkvæmdastjóra
Samtaka iðnaðarins og
forsvarsmenn tveggja
verktakafyrirtækja.
Talsmennirnir eru
ósáttir við hugmyndir
um frestun flugstöðvar-
framkvæmda.
hafa e.t.v. haldið að sér höndum
vegna þess hve mikið hefur verið að
gera hjá iðnaðarmönnum, að fara að
huga að því að bjóða út jarðvegs-
framkvæmdir í haust.
Bjóða út jarðvegshluta flug-
stöðvarframkvæmda strax
„Okkur fyndist til dæmis mjög
skynsamlegt að bjóða út jarðvegs-
hlutann í flugstöðvarframkvæmdun-
um þótt byggingunni sjálfri væri
frestað. Það þyrfti að hafa verktím-
ann rúman þannig að menn gætu
unnið þetta eins og eðlilega vinnu.
Það mundi væntanlega þýða hag-
stæðara verð á þeim framkvæmdum
og minnka líkumar á að það þyrfti
að vinna við stækkun flugstöðvar-
innar sjálfrar í óðagoti þegar þar að
kemur.“
„Þegar framkvæmdatíminn er
ekki nema fjórir mánuðir er ástand-
ið ekki eðlilegt. Menn vinna nótt og
dag og um helgar og era að leggja í
verkin miklu fleiri tæki og meiri
mannskap en þyrfti í raun og vera,
jafnvel að kaupa tæki sem þeir hafa
ekki þörf fyrir. Þegar menn fara að
skoða þetta sjá þeir að það væri
hagkvæmara fyrir báða aðila að
nýta árið betur og hafa verktímann
lengri. Við vonum að fleiri verkefni
eigi eftir að koma inn því við teljum
að það sé einfaldlega hagkvæmt að
bjóða út núna.“
Sveinn sagði að annað og betra
ástand væri í byggingariðnaði en
jarðvegsiðnaði enn sem komið er og
verkefnaframboðið jafnara. Launa-
skrið hefur verið nokkuð í bygginga-
iðnaði og Sveinn segir að launaskriðs
hafi einnig orðið vart hjá jarðvinnu-
verktökum enda þurfi þeir að halda í
sitt fólk þótt verkefnastaðan sé ekk-
ert til að hrópa húrra fyrir.
Sveiflur í jarðvegs- og byggingar-
iðnaði era þannig að verkefnastaðan
Sérsamin bók handa skólafólki
ENSK
r __ ^ ^ j: -
r v
B0K30S
3.115,-
Verð frá 1. október 4.450,-
• 36.000 uppflettiorð og
50.000 orðaskýringar.
• Margs konar málfræðilegar
upplýsingar um merkingar,
beygingar, stigbreytingu,
fleirtölu, framburð og fleira.
Itt
Mál og menning
2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
í jarðvegsiðnaði er að sögn Sveins
Hannessonar um það bil einu ári á
undan byggingariðnaði. Því gæti
deyfðin í jarðvegsvinnu í haust verið
ávísun á svipað ástand í byggingar-
iðnaði næsta haust þótt þar sé enn
gott ástand og sögur fari af miklum
skorti á ákveðnum hópum bygging-
armanna, t.d. múraram, smiðum og
dúklagningarmönnum.
Kannast ekki við
spennu á markaði
Sævar Jónsson, framkvæmda-
stjóri Loft-Orku, sagði í samtali við
Morgunblaðið að árið í ár hefði verið
svipað og í fyrra, kannski heldur
meira um að vera yfir háannatím-
ann. „En það er bara stigsmunur en
ekki eðlismunur."
„Þetta hefur verið nokkuð líflegt
hjá flestum en verkefnastaða í þess-
um geira er almennt þannig að
menn era frekar lítið búnir að setja
á fyrir veturinn. Þess vegna könn-
umst við ekki við tal forsvarsmanna
sveitarfélaga og jafnvel ríkisstjóm-
arinnar um að það sé spenna á
markaði nema í einstökum geiram
eins og í viðgerðarvinnu og slíku.
Þetta hefur verið ósköp hefðbundið
ár en það er ekki mikið framundan í
vetur.“
Sævar sagði að verktakar væra
hins vegar vanir því að vita h'tið
hvað veturinn ber í skauti sér. „En
ég er í sambandi við aðra verktaka
og það er staðreynd að það er al-
mennt htið búið að ákveða fyrir vet-
urinn og verktakar hér á svæðinu
era til í meiri verkefni. Hágöngu-
miðlun er að klárast í næsta mánuði
og í vetur verður áframhaldandi
jarðvinna og byggingaframkvæmdir
á Sultartanga þannig að það er frek-
ar að það verði skortur á verkefnum
á þessum markaði heldur en hitt.“
Óðagot að klára
fyrir 1. október
Ólafur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri hjá verktakafyrirtæk-
inu Veli, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að það væri töluverð spenna á
markaðinum. „Það byggist á því
sem ég kalla óðagot að klára allt fyr-
ir 1. október en það er ekki mikið á
markaðnum annað fyrir veturinn.
Að vísu er á áætlun hjá vegagerð-
inni að bjóða t.d. út byrjun á mis-
lægum gatnamótum við Skeiðarvog,
breikkun Reykjanesbrautar frá
Breiðholtsbraut að Fífuhvamms-
vegi, Búlandshöfða, Laugarvatnsveg
frá Úthlíðarmúla og eitthvað fleira
en það er ekki búið að bjóða út neitt
af þessu.“
„Við eram ekki allt of hressir með
það sem er í gangi. Sultartangi er í
gangi og er heilmikið verkefni en að
öðra leyti virðist allt búið í haust og
þá virðist eiga að vera heimsendir.
Mér finnst það merkilegt ragl sú
umræða að fresta Flugstöðinni, sér-
staklega í jarðvinnunni. Tilboðin sem
eru í gangi núna era ekki há, það er
ein og ein undantekning frá því.“
Hágöngumiðlun að ljúka
Völur er aðili að samstarfsfyrir-
tækinu ísafli, sem er að ljúka vinnu
við Hágöngur. Fyrirtækið vinnur
við breytingu þjóðvegar nr. 1 í Mos-
fellsbæ og vegagerð við Korpúlfs-
staði. Þessum verkefnum er að
ljúka. „Það eina sem við eram með
sem stendur eitthvað lengur er smá-
vegis verkefni fyrir Reykjavíkur-
höfn,“ segir Ólafur og tekur undir að
það sjái fyrir endann á uppsveiflunni
sem fylgdi stóriðjuframkvæmdum
og Hvalfjarðargöngum í haust.
Ólafur tekur undir að eitthvert
launaskrið hafi verið í greininni en
kvaðst telja það bundið að mestu við
hálendisvinnuna þar sem launin eru
hærri. ,Annars era það ekki nein
ósköp hjá okkur. Sjálfsagt verða
aðrir, t.d. byggingarmenn, meira
varir við launaskrið en við.“ Sævar
Jónsson tekur í sama streng hvað
launaþróun í greininni varðar.