Morgunblaðið - 23.08.1998, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 17
ÍÞRÓTTIR
leyti er tímabilið á enda nema ef
vera kynni einhver æfíngamót
heima,“ sagði Þórey Edda Elís-
dóttir, sem hefur slegið rækilega í
gegn í sumar og bætt sig um tugi
sentimetra í stangarstökki. Sum-
arið hefur að mestu farið í að viða
að sér reynslu til að vera betur
búin undir keppni á stórmótum á
næstu árum. Reynsla var það
fyrst og fremst sem Þóreyju vant-
aði til að ná lengra á EM að þessu
sinni. „Síðustu vikur hafa verið
lærdómsríkur tími fyrir mig sem
ég bý að í framtíðinni," sagði
Þórey, en hún tók þátt í sínum
fystu alþjóðlegu mótum utanhúss
í þessum mánuði auk EM fyrr í
vikunni. Hvað við tekur sagði
Þórey óvíst, hún ætlaði að æfa af
krafti áfram, hvort það yrði í
Bandaríkjunum, í Svíþjóð eða
heima á Islandi væri óvíst, en hún
stefnir á háskólanám í haust. „Það
fer eftir hvað hentar mér á
íþróttasviðinu hvar ég verð.“
Eitt stórmót enn
hjá Jóni
Eins og Vala og Þórey verður
Jón Arnar Magnússon tugþraut-
arkappi meðal þátttakenda í Bik-
arkeppninni þó tugþraut verði þar
ekki á dagskrá. Jón hefur síðustu
ár tekið þátt í nokkrum fjölda
greina til að vinna sér inn stig fyr-
ir sérsamband sitt, UMSS. Hefur
hann farið langt með að fara í
gegnum tug greina á þessum
móta. Eftir það líða tvær vikur
þangað til kemur að síðasta
áfanga hans á þessu ár - aðlþjóð-
lega boðsmótinu í Tallence í
Frakklandi þar sem saman koma
sterkustu tugþrautarmenn heims
og reyna með sér. Á síðustu árum
hefur oft komið besti árangur árs-
ins og jafnvel heimsmet verið sett
á þessu móti. Að þessu sinni er
mótið í fyrsta sinn hluti af stiga-
keppni Álþjóða frjálsíþróttasam-
bandsins i tugþraut en þeirri
keppni var hleypt af stokkunum í
vor og allgóð peningaverðlaun eru
í boð fyrir þá sem ná bestum sam-
tals árangri í a.m.k. þremur mót-
anna í röðinni. í þeirri keppni
stendur Jón vel að vígi, er nú eftir
EM í þriðja sæti og leggur hið
minnsta þunga áherslu á að halda
sinum sess.
Eftir það tekur við langrþráð
leyfi hjá Jóni með fjölskyldu sinni
áður en hann og Gísli Sigurðsson
þjálfari taka til við undirbúning
næsta árs.
Guðrún að komast inn
á lokasprettinn
„Tímabilið er búið hjá mér með
Bikarkeppninni, þar tek ég þátt í
mínum sjö greinum að vanda,“
sagði Guðrún Arnardóttir aðspurð
um hvað tæki við eftir Evrópu-
meistaramótið. „Mér finnst Bik-
arkeppnin góður endir á keppnis-
tímabilinu og legg mikla áherslu á
að taka þátt í henni því ég tel mik-
ilvægt að bestu frjálsíþróttamenn
landsins taki þátt í henni svo
fremi sem þeir hafa minnstu
möguleika á því. Mótin heima eru
máski ekki þau mikilvægustu fyr-
ir okkur sem erum í fremstu röð,
en þau skipta íþróttina heima
miklu máli og ekki síst það unga
fólk sem keppir á mótinu og hefur
ekki náð eins langt og við enn sem
komið er. Þegar ég var yngri
fannst mér gaman að fá þá sem
voru í fremstu röð til að vera með,
þó það hafi verið upp og ofan
hvort þeir komu, að minnsta kosti
hjá mínu félagi. Við verðum að
vera tilbúin til þess að miðla af
reynslu okkar til þeirra sem yngri
eru og jafnframt sýna að við erum
ekkert öðruvísi en þau þó við sé-
um atvinnumenn og höfum náð
langt á alþjóðlegum vettvangi.
Auk þess er svo gaman að keppa á
bikarnum og spreyta sig á ýmsum
greinum sem maður er alla jafna
ekki að fást við, svo sem
þrístökk," sagði Guðrún og hló
við, en hún varð fyrst íslenskra
kvenna til að setja Islandsmet í
þrístökki eftir að hún varð viður-
kennd keppnisgrein snemma á
þessum áratug. „Síðan taka við
æfingar fyrir næsta ár eftir stutt
frí.“
Innritun
nýrra
nemenda
Nemendur teknir
FRÁ 7 ÁRA ALDRI.
Skírteinaafhending
LAUGARDAGINN ý. SEPT.
Framhald frá
KL. i4.OO-l6.OO
Byrjendur frá
KL. l6.OO-l8.OO
KENNSLA HEFST:
Úhvalsh.okkar: 25. Agúst
Framhai.dsh.okkar: 3. sept
B V RJIÍ NDAFLOK KAR: IJ.. SEPT.
ííc
Lagmula 9, simar 581 3730 & 581 3760
FÍLD - Félag íslcnskra listdansara DÍ - Dansráð Íslaridí
Jazzballet er skapandi listgreiii
fyrir bæði stráka og stelpur
\ ■
. ■ V- m '1
ÆT
Ahugavert og
spennandi
skipulagt
starfsnám
Markmið námsins er að útskrifa nemendur með
hagnýta þekkingu á tölvunotkun og veita
nemendum innsýn í notkunarmöguleika á
útbreiddustu ritvinnslu- og töflureikniforritum
sem eru á markaðinum í dag.
uv':;
Námið er 120 kennslustundir og hentar þeim
sem vilja styrkja stöðu sína
á vinnumarkaðinum.
Boðið er upp á morgun og kvöldtíma tvisvar
sinnum í viku.
Skráning og upplýsingar
í síma 5685010
V
Rafiðnaðarskólinn
Skeifunni 11B • Sími 568 5010
J