Morgunblaðið - 23.08.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 23
„Náttúran hér er stórkostleg. Ég
hef hvergi séð annað eins í Evrópu.
Eldfjöll, hraun og hverir. Mér fannst
stórkostlegt að koma í Kverkfjölí og
skoða íshellinn sem hverirnir hafa
myndað. Lónsöræfi eru hrikalega
fallegt land og einnig svæðið í kring-
um Landmannalaugar.“
Norðanmenn nefndu dalinn Jök-
uldal en sunnanmenn Nýjadal. Enn
lifa bæði nöfnin, dalurinn dregur
nafn sitt af jöklinum og Nýidalur er
nafnið á skálum Ferðafélags Islands
sem standa við mynni dalsins. Þar
er berangur en vinsæll áningastaður
ferðamanna á leið um Sprengisand.
„Hér er margt að skoða, en það
eru aðallega útlendingar sem spyrj-
ast fyrir um gönguleiðir, íslending-
ar gera það mun sjaldnar, því mið-
ur,“ segir Hilma Gunnarsdóttir, sem
er skálavörður ásamt Marinó
Tryggvasyni.
„Það má nefna gönguleiðina á
Tungnafellsjökul, sem er ágætlega
merkt og það kemur fyrir að fólk
leggi leið sína þangað upp, þó
sjaldnast Islendingar," segir Mar-
inó.
„Útlendingar ganga mikið um ná-
grennið, bæði þeir sem eru í skipu-
lögðum ferðum og eins þeir sem
koma á eigin vegum. Sumir ganga
upp á hæðirnar héi'na, aðrir inn í
Vonarskarð."
Sandblásin andlit
Einn er sá vegur sem útlendingar
lofa en oft er hann þeim um leið kvöl
og pína. Þetta er Gæsavatnaleið,
vegurinn frá Öskju í Nýjadal. Sjald-
gæft er að íslendingar fari þar um
nema akandi, en fjöldi útlendinga
leggur það á sig að ganga eða hjóla
þennan fjallveg sem er mjög erfiður
og eiginlega prófraun á þrek manna.
Landið liggur mjög hátt, frá 700 og
upp í um 1.100 m hæð, farið er um
eyðisanda, sandorpin hraun og
hrjóstur og á þessum slóðum geta
veður orðið mjög válynd.
Fjögurra manna hópur franskra
ferðalanga kom nær örmagna að
skálanum undir Kistufelli. Hópurinn
bar þess greinilega merki að hafa
HJÓLREIÐAMENNIRNIR Cris
Cooknell og Siobhan Mullan á
leið yfir Sprengisand.
FERÐAFÉLAGAR í Öskju; Ari Skinnberg Árnason, Fríður Leósdóttir,
Lísa Sigurðardóttir, Júlíus Fossberg og Guðný Skjóldal.
SUÐUR-Afríkumaðurinn David Chimberlain og bræðurnir og Eng-
lendingarnir Ivan og Roy Van Clee á ijaldsvæðinu við Drekagil.
lent í sandroki á aurum Jökulsár á
Fjöllum norðan Dyngjujökuls. Þrátt
fyrir þreytu og sand í öllum skiln-
ingarvitum geisluðu þau af gleði og
skemmtu sér konunglega yfir sand-
blásnu útliti hvers annars.
„ísland er fallegt land, þrátt fyrir
gróðurleysið. Fjöllin eru há og fóg-
ur, jöklamir eru stórkostlegir og svo
er loftið svo tært að það er hægt að
sjá langar leiðir, - að minnsta kosti
þegar sandrokið byrgir ekki sýn,“
ÞJÓÐVERJINN Kurt Gradolph,
fyrrv. hermaður á eftirlaunum.
segir Jean Luc Panazol og glottir
við. Hópurinn er vel útbúinn og
hafði hugsun á að flytja með sér
vatn, en skortur er af því víða á
Gæsavatnaleið. Fararskjótarnir eru
sterkleg fjallahjól, þannig útbúin að
við afturöxla þeirra er fest lítil ein-
hjóla kerra undir farangur. Eflaust
verða hjólin fyrir vikið mjög
þungstíg og vissulega kvarta Frakk-
arnir undan gljúpum sandinum á
vegarslóðunum sem dregur bæði úr
ferð og jafnvægi.
„Við höfum hjólað hingað frá Mý-
vatni á fimm dögum. Við hjólum í
um tíu tíma á dag allt eftir því hvar
við erum og hvað okkur langar til að
gera. Héðan förum við í Gæsavötn
og þaðan í Nýjadal og þá suður
Sprengisand."
Frá Seyðisfirði
til Reykjavíkur
„Þefr hringdu í mig þrem dögum
fyrir brottfór og spurðu mig hvort
ég vildi koma með þeim í gönguferð
um ísland. Ég vissi nú sáralítið um
landið en sagði bara já því ég hef
gaman af gönguferðum og nú er ég
hér í þessu stórskrýtna landi,“ segir
David Chamberlain frá Suður-Af-
ríku. Hann var í Öskju í Drekagili,
ásamt tveimur enskum félögum sín-
um, þeim Ivan Van Cleef og Roy
Van Cleef, þar sem þeir hvíldu sig
eftir sex daga göngu frá Seyðisfirði.
Eflaust er það frekar algengt að
útlendir ferðamenn gangi frá Seyð-
isfirði, þangað sem þeir koma með
ferjunni Norrænu, en varla myndi
nokkur Islendingur ganga frá Seyð-
isfirði í Öskju. Við nánari umhugsun
er það varla vitlausari hugmyndi en
hver önnur, en göngu þeirra félaga
er fjarri því lokið, því þeir ætla að
ganga Gæsavatnaleið og suður
Sprengisand og að sjálfsögðu sjá
Gullfoss og Geysi áður en þeir koma
til Reykjavíkur, þar sem þeir ætla
að vera eftir sextán daga, gangandi
eða akandi.
I Drekagili áði fimm manna hópur
Islendinga á ferð sinni um hálendið:
„Við erum bara á skemmtiferð. Gist-
um í nótt í Herðubreiðarlindum og
ætlum í dag að aka Gæsavatnaleið,
þaðan í Laugafell og aftur til Akur-
eyrar þar sem við búum. Við gistum
svo bara þar sem okkur dettur í
hug,“ segir Júlíus Fossberg.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Viðskiptagreinar Tölvugreinar
Annað
Valgreinar
'mmtiictjt &
Tölvuskóli Reykjavíkur býður ítarlegt nám í skrifstofutækni fyrir alla þá sem hafa hug á
að ná góðum tökum á fjölbreyttri starfsemi á nútíma skrifstofu. Ásamt markvissu
tölvunámi er einnig lögð rík áhersla á alhliða kennslu í skrifstofugreinum eins og
bókhaldi og verslunarreikningi. Að námi loknu eru nemendur færir um flest
skrifstofustörf.
Námið er 345 stundir að lengd og eru þar með taldar 45 stundir í þremur valgreinum. Auk J
þess fylgir tveggja vikna starfsþjálfun í fyrirtæki. Námið og starfsþjálfunin tekur um
16 vikur. Mikil áhersla er lögð á að hafa vönduð íslensk námsgögn í öllum greinum.
Bókfærsla
Verslunarreikningur
Almenn
bókhaldsverkefni,
víxlar og skuldabréf
Launabókhald
Ritvinnsla
Word
Lög og reglugerðir
Virðisaukaskattur
Raunhæf verkefni,
fylgiskjöl og
afstemmingar
Tölvubókhald
Bókhald sem
stjórntæki
Tölvufjarskipti
Internetið
Glærugerð
PowerPoint
Borgartúni 28, sími 561 6699
www.tolvuskoii.is
tolvuskoii @ tolvuskoli.is
165 stundir
Almenn tölvufræði
Tjáning, hópvinna, framsögn,
útlit, þjónusta viðskiptavina,
vinnustellingar, útlit, framkoma,
símsvörun, atvinnuumsóknir.
Tölvubókhald 15stundir
Vélritun 15 stundir
Viðskiptaenska isstundír
Tollskýrslugerð iSstundir
Internet vefsíðugerð 15 stundir
Gagnagrunnur isstundir
100 stundir
35 stundir
íslenska og verslunarbréf
-.1® Tölvuskóli
mssám Reykjavíkur