Morgunblaðið - 23.08.1998, Síða 30

Morgunblaðið - 23.08.1998, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ LAGÐIALLT UNDIR VIÐSKÍPn AIVINNULÍF Á SUNNUDEGI ►Steindór I. Ólafsson fæddist í Reykjavík 22. ágúst 1936 og ólst þar upp. Hann tók verslunarpróf frá Verslunarskóla íslands árið 1955 og stundaði síðan nám á Englandi í rúmt ár. Hann vann ýmis störf hjá Flugfélagi íslands og Loftleiðum og var síðan hjá flugfélag- inu Pan American á Keflavíkurflugvelli í rúm tíu ár. Hann var starfsmaður og síðar hótelsljóri á Hótel Esju á árunum 1974-1981 og forstjóri Cargolux félagsins í Englandi frá 1981 til 1987. Hann er nú framkvæmdastjóri og eigandi fyrirtækisins Pönnu Pizzur ehf., sem hefur umboð fyrir Pizza Hut á íslandi. Eiginkona Steindórs er Hulda G. Johansen og eiga þau son og þijár dætur. 10 ár eru í þessum mánuði frá því Steindór og fjölskylda opnuðu Pizza Hut veitingasalinn á Hótel Esju í Reykjavík. Morgunblaðið/Jón Svavarsson SUMIR hafa unnið hjá okkur í mörg ár og hér starfa margir menntaskólanemar til að drýgja tekjur sínar. Brynja Sif Kaaber tekur pizzu úr ofninum. eftir Maríu Hrönn Gunnarsdóttur EG HEF alltaf sagt að það hafí verið gott að ég var orðinn gráhærðui- þegar ég byrjaði því annars hefði ég orðið það á þessu,“ segir Steindór meira í grini en alvöru. Af orðum hans má þó skilja að hann hefur haft nóg fyrir stafni síðan hann og fjölskyida hans opnuðu veitingasal Pizza Hut á Hótei Esju fyrir tíu árum. Hann seg- ir þau hafa rennt blint í sjóinn og þótt hann hafi haft drjúga og góða reynslu af ýmsum þjónustustörfum hafí hann ekki haft hugmynd um hvort íslendingar hefðu yfirleitt nokkurn áhuga á matnum sem Pizza Hut er svo frægt fyrir um heim all- an. „Vinir og kunningjar skildu ekk- ert í mér að hætta í góðri vinnu og leggja allt mitt undir svo áhættu- saman rekstur," segh’ hann. Gamall maður lagði pund á bakkann „Við höfðum kynnst veitingastöð- um Pizza Hut á ferðum okkar um Bandaríkin. Þegar við fluttum til Englands borðuðum við oft á Pizza Hut-stöðum og töluðum þá um að það hlyti að koma að því að einhver framtakssamur opnaði svona stað á Islandi. Þegar það gerðist ekki feng- um við loks þessa hugmynd að gera það sjálf. Ég hef ekki starfað við neitt annað en að þjóna fólki, selt því flugsæti, rúm að gista í eða mat að borða. Þetta er í eðli sínu það sama - að veita góða þjónustu," segir hann ánægður með hlutskipti sitt og starfsvettvang. Það tók fjölskylduna um þrjú ár að fá leyfið hjá eigendum Pizza Hut- keðjunnar, Jafnvel þótt það hafi hjálpað til að ég hafði unnið hjá PanAm,“ segir Steindór. Þegar leyfíð var í höfn fóru hjónin og dæturnar í Pizza Hut-skóla í Englandi og störf- uðu upp úr því á veitingastöðum keðjunnar til að öðlast reynslu. „Við Hulda fengum alltaf meiri drykkju- peninga en unga fólkið sem við unn- um með. Ég held að viðskiptavinirnú' hafi vorkennt þessum „gömlu“ sem voru að vinna við afgreiðsluna. Einu sinni hljóp á eftir mér gamall maður og lagði pund á bakkann hjá mér. Ég vildi síður þiggja það af honum en kunni ekki við annað. Við létum síðan veitingastjórann hafa drykkjupen- ingana okkai’ í lok dagsins og hann skipti þeim á milli unga fólksins.“ Fjölskyldan, nema sonurinn sem var byrjaður í arkitektúrnámi, flutti heim aftur eftir sjö ára útivist og hófst handa við að finna rétta stað- inn fyrir veitingasalinn og undú’búa opnun hans. „Þegar til kom vai’ það eiginlega erfiðara að flytja heim aft- ur frá Englandi en að taka ákvörðun um að flytja þangað. Okkur leið mjög vel þar,“ segir Steindór. Tvö af börnum hans búa í Englandi svo enn eru tengsl fjölskyldunnar við landið mikil. Gáfu matinn fyrstu vikuna Við tók mikil vinna enda var Pizza Hut betur tekið en þau gátu ímynd- að sér. Eitt hundrað manns geta borðað þar samtímis og segir Stein- dór að yfirleitt sé tvísetið í hádeginu en mest er þó að gera á kvöldin og um helgar. Svo hefur að hans sögn verið allt frá því staðurinn var opn- aður. „Eigendur Pizza Hut spurðu okk- ur hvað við ætluðum að gera ef stað- urinn fylltist strax á fyrsta degi. Við hjónin og dætur okkar vorum þau einu sem höfðum reynslu svo við ákváðum að bjóða vinum, ættingjum og fyrrverandi samstarfsfólki mínu til dæmis hér af hótelinu að koma og æfðum okkur í heila viku áður en við opnuðum. Fólk sem gekk eða ók framhjá sá að það var búið að opna og fljótlega fylltist staðurinn af gest- um,“ segir hann og bætir við að þau hafí gefið allan mat þessa fyrstu viku. „Eiginkona bandaríska sendi- herrans ók framhjá og sá að við vor- um búin að opna. Hún ók beinustu leið heim og sagði við sendiherrann: „They are open,“ og þau drifu sig til okkar. Fyrstu vikurnar vann í eld- húsinu vanur starfsmaður frá Englandi og hann sagðist aldrei hafa lent í annarri eins vinnu. Hann fékk martröð fyrstu nóttina og dreymdi ekkert nema pizzur. Ég ætlaði að kaupa heilsíðuaug- lýsingu í Morgunblaðinu en ég þurfti þess aldrei. Hér er um þrefalt meiri sala en á sambærilegum veitinga- stöðum í Bandaríkjunum. Við fáum hingað sama fólkið aftur og aftur og það segir okkui- að það komi vegna þess að það veit að hverju það gengur, maturinn sé alltaf eins.“ Það var sárt Steindór segir vinnudag sinn hafa verið langan allar götur frá því hann opnaði Pizza Hut. Hann hafí oft orð- ið að standa upp frá borði heima hjá sér, jafnvel frá gestum, og þá til að ganga í hvaða störf sem er á veit- ingastaðnum. „Ég verð að kunna allt sem viðkemur rekstrinum og geta gengið í öll störf, bæði til að geta sett út á og til að geta kennt nýjum starfsmönnum. Ég er í afgreiðslunni nánast í hverju einasta hádegi enda get ég vel unnið eins og hinar stelp- urnar, eins og ég segi stundum að gamni mínu. Þetta er spennandi stai’f og það er alltaf gaman að vera innan um fólk.“ Árið eftir að Pizza Hut var opnað á Hótel Esju opnaði Steindór annan stað, nú skyndibitastað í Kringlunni. „Það gekk mjög vel hjá okkur í átta ár. Við urðum að loka honum á síð- asta ári þegar húsaleiga fékkst ekki endurnýjuð vegna þess að eigendur Kringlunnar ætluðu sjálfir að opna pizzastað. Það var sárt að þurfa að hætta þar. Árið 1992 opnuðum við líka veitingastað í Mjódd. Sá staður gekk ágætlega, þar til vínveitinga- leyfið var tekið af okkur þremur ár- um seinna vegna þess að við notuð- um sömu snyrtiaðstöðu og SVR. Við reyndum að halda rekstrinum gang- andi áfram en gáfumst upp eftir eitt ár. Við seldum bjór og létt borðvín og þegar fólk komst að því að það var ekki gert lengur hvarf það frá. Við bentum á að fjölmargir veitinga- staðir aðrir væru í sömu stöðu og við Fyrstu vikurnar vann í eldhúsinu vanur starfsmaður frá Englandi og hann sagðist aldrei hafa lent í annarri eins vinnu. Hann fékk martröð fyrstu nóttina og dreymdi ekkert nema pizzur. þai’ sem snyrting væri sameiginleg öðrum en víneftirlitsnefndin gat ekki fallist á þetta. Umboðsmaður Al- þingis fjallaði um málið og úrskurður hans var okkur í hag en allt kom fyr- ir ekki.“ Nú kveðm- Steindór tíma til kom- inn að opna nýjan Pizza Hut stað þar sem svo mikið sé að gera á Hótel Esju. Hann hefur augastað á mið- bænum og áætlar að opna stað í verslunarmiðstöðinni Smáralind árið 2000. Getur ekki boðið svona lágt verð „Veitingasalurinn er okkar flagg- skip,“ segir Steindór. Eigi að síður býður hann upp á heimsendingar en segist ekki geta tekið þátt í þeirri hörðu samkeppni sem þar er. „Ég furða mig oft á hversu lágt er boðið í heimsendum pizzum. Ég get ekki boðið svona lágt verð.“ Hann segir að Pizza Hut lendi mjög neðarlega á lista þegar gerðar eru kannanir á pizzasölu enda sé alltaf spurt um heimsendingarnar. „Við treystum fyrst og fremst á salinn og þar vilj- um við veita góða þjónustu.“ Steindór segir kröfur eigenda Pizza Hut keðjunnar mjög miklar. Eftirlitsmaður frá þeim kemur reglulega og leggur mat meðal ann- ars á reksturinn, þjónustuna, gæði hráefnis og matarins. „Við fengum einu sinni bágt fyrfr að einn starfs- maðurinn í eldhúsinu var ekki með hárnet. Hann var krúnurakaður." Síðast þegar eftirlitsmaðurinn kom segist Steindór hafa fengið aðra ákúru og þá fyrir að ekki var kveikt á öllum ljósum í veitingasalnum. Ekki var tekið með í reikninginn hversu bjart getur orðið á íslandi yf- ir hásumarið. „Eftirlitsmaðurinn er mjög smámunasamur og eftir því sem hann hefur færri athugasemdir því betur leitar hann.“ Fyrir utan eftirlitskerfí keðjunnar sjálfrar segist Steindór leggja þunga áherslu á innra gæðaeftfrlit. „Við fá- um leynigest frá íslensku ráðgjafar- fyrirtæki til að meta þjónustuna reglulega. Að auki kaupum við þjón- ustu frá rannsóknafyrirtækinu Sýni hf. til að fylgjast með hreinlæti." Þá hefur verið sett upp á Pizza Hut eft- frlitskerfið GÁMÉS en það er kérfi, sem samkvæmt matvælareglugerð er ætlað að fylgjast með framleiðslu- ferli veitingastaða og matvælafram- leiðenda og tryggja þar með öryggi neytenda. Pizza Hut veitfr umboðsleyfi til eins áratugar í senn og er Steindór nýbúinn að skrifa undir samning til næstu tíu ára. „Reglan er að skipt er um innréttingar á tíu ára fresti en eftirlitsmaðurinn sem kom héma í tilefni af samningnum sagði að ef ég léti breyta staðnum væri ég einungis að gera það breytinganna vegna. Það eina sem ég hef gert hér eftir að við opnuðum er að skipta um teppi. Ég hef alltaf látið gera við það sem gef- ur sig strax, það er dýrt en það borg- ar sig. Við þrífum oft og vel og ár- angurinn er sá að það sér ekki á inn- réttingunni.“ Tæplega sextíu manns starfa hjá Steindóri, þar af sumir í hlutastarfi. „Við höfum verið einstaklega heppin með starfsfólk. Sumir hafa unnið hjá okkur í mörg ár og hér starfa margir menntaskólanemar til að drýgja tekjur sínar.“ Auk þess hafa dætur Steindórs og Huldu alltaf tekið drjúgan þátt í starfseminni. „Við hefðum aldrei getað þetta án þeirra,“ segir Stein- dór og bætir við að ein þeirra sé einmitt veitingastjóri staðai’ins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.