Morgunblaðið - 23.08.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.08.1998, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær amma, tengdamóðir, langamma og langalangamma, MAGNEA V. EINARSDÓTTIR, Sólvangi, áður Grænukinn 17, Hafnarfirði, lést á Sólvangi föstudaginn 21. ágúst 1998. Jarðarförin auglýst síðar. Haraldur R. Gunnarsson, G. María Gunnarsdóttir, Ársæil Már Gunnarsson, Magnea Þ. Gunnarsdóttir, Olga Gunnarsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, tengdabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Eiginmaður minn, fósturfaðir og faðir, GUÐJÓN GUÐMUNDSSON framreiðslumaður og umsjónarmaður hjá Krabbameinsfélagi íslands, Álfheimum 6, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 25. ágúst kl. 13.30. Gunnþórunn Sigurjónsdóttir, Gunnar G. Kristjánsson, Magnús Guðjónsson, Indíana Guðjónsdóttir, Þórarinn Guðjónsson, Aðalheiður Guðjónsdóttir, Svava Kristjana Guðjónsdóttir, Margrét Ásta Guðjónsdóttir. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRAGIHALLDÓRSSON, Vallargötu 18, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 24. ágúst kl. 14.00. Fjóla Bragadóttir, Baldur Bragason, Valgerður Óladóttir, Pétur Georgesson, Valgerður Fjóla Baldursdóttir, Árni Baldursson, Bragi Baldursson og langafabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ ÞORBJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR, frá Aðalvík, Bergþórugötu 51, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju þriðju- daginn 25. ágúst kl 15.00. Böm, tengdabörn og barnaböm. + Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug með blómum, kveðjum og heimsóknum vegna andláts og útfarar ÞRÚÐAR S. BJÖRGVINSDÓTTUR. Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki handlækningadeildar FSA og starfsfólki Sundabúðar fyrir einstaka umönnun. Ólafur Pétursson, Elísabet S. Ólafsdóttir, Jón Arnar Guðmundsson, Eva Hrönn Jónsdóttir og Stefán Óli Jónsson. + Hinn 6. ágúst síðastliðinn var haldin minningarathöfn í Dómkirkjunni í Liibeck um tengdamóður okkar, ömmu og langömmu, LISELOTT SIEMSEN, fædd Rosenberg, sem lést sunnudaginn 2. ágúst síðastliðinn. Þökkum auðsýnda samúð. Sigríður Siemsen, Lore Siemsen, og fjölskylda. og fjölskylda. JENS ÓLAFSSON + Jens Ólafsson fæddist 11. mars 1936 í Stærra-Ár- skógi. Hann lést á heimili sínu Hlíðar- túni 1, Hornafirði, 15. ágúst síðastlið- inn. Poreldrar hans voru Ólafur Eiríks- son bifreiðastjóri, f. 10.10. 1910, d. 26.4. 1993, og Sigrún Jensdóttir, f. 7.2. 1915, húsfrú. Þau slitu samvistir. Jens var elstur úr stórum systkinahópi. Alsyst- ir Kristjana Ólafsdóttir, f. 8.7. 1937, d. 28.3 1975. Systkini sam- feðra: Kristján, f. 1939, Hafliði, f. 1942 og Rögnvaldur, f. 1949. Systkini sammæðra: Rósa, f. 1941, Reynir, f. 1942, Fjóla, f. 1944, Signý, f. 1945, Benna, f. 1947, Helga, f. 1948, Anna, f. 1951 og Árni, f. 1953, Rósantsbörn. Jens kvæntist árið 1957 Helgu Steinunni Ólafsdóttur frá Naust- um, verslunarmanni. Foreldrar hennar voru Ólafur Guðmunds- son, f. 15.5. 1918 og Sveinbjörg Baldvinsdóttir, f. 6.12.1916. Börn þeirra eru: 1) Ólafur Jensson, f. 8.2. 1959, maki: Hanna Maídís Sigurðardóttir, f. 11.5.1960, börn þeirra: Jens, f. 25.4. 1978, Erna Hrönn, f. 15.6. 1981 og Brynjar, f. 17.8. 1985. 2) Guðný Björg Jens- dóttir, f. 26.1. 1961, maki: Gunn- ar Þór Þórarnarson, f. 18.2. 1959, börn þeirra: Lovísa Þóra, f. 6.5. 1981 og Eyþór Jens, f. 10.11 1988. 3) Sig- rún Jensdóttir, f. 26.12. 1962, maki Torfi Geir Torfason, f. 11.3. 1963. Barn hennar: Salome Gunnur Sævarsdótt- ir, f. 19.10 1980. Börn þeirra: Helga Rut, f. 9.7. 1984, Andri Geir, f. 30.7. 1992 og Eva Lind f. 29.1. 1995, 4) Hall- dór Jensson, f. 19.1. 1964, maki Margrét Ármann, f. 10.10. 1965. Barn hans: Helgi Steinar, f. 21.9. 1984. Börn þeirra: Arndís Ármann, f. 30.1. 1997 og Björn Ármann, f. 22.4. 1998. Áður átti Jens eina dóttur, Ásthildi Eygló, f. 1.10. 1957, maki Björn Aust- fjörð, f. 15.4. 1955. Börn þeirra: Heiðar, f. 17.4. 1977 og Elsa f. 14.6. 1979. Jens hóf ungur störf við verslun og starfaði m.a. sem verslunarsljóri hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, Pöntunarfélagi Esk- firðinga, kaupfélagsstjóri í Kaup- félagi ísfirðinga, vöruhússtjóri hjá KÁ Selfossi, kaupmaður í Grundarkjöri, verslunarstjóri Hornabæ, Hornafirði og KASK, Hornafirði þar sem hann starfaði til dauðadags. Jens verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju á morgun, mánudag, klukkan 13.30. Jarð- sett verður í Stærra-Árskógs- kirkjugarði. Hjartkær eiginmaður. Hér kemur mín hinsta kveðja. Astarfaðir hirainhæða heyr þú bama þinna kvak EnnídagogaÚadaga í þinn náúarfaúm mig tak. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín elskandi eiginkona. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaúarviðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Ósérhlífni, gott hjartalag og trygglyndi voru einir af ríkustu eig- inleikum þess mæta manns sem nú er kvaddur. Mennirnir skilja eftir sig misdjúp spor á lífsleiðinni. Sá sem hér kveður, tengdafaðir minn elskulegur, skilur eftir sig ógleym- anleg spor í hjörtum þeirra sem best þekktu hann. Kynni okkar Jens hófust fyrir rúmum 10 árum þegar ég kynntist yngsta syni hans, Halldóri. Eg man hve ég kveið fyrir þvi að hitta for- eldra Halldórs í fyrsta skipti - hvernig ég ætti að haga mér og hvað ég ætti að segja. Sá kvíði gleymdist fljótt þegar ég hitti þau því mér var strax tekið opnum örmum og hefur allar götur síðan verið yndislegt að koma á heimili tengdaforeldra minna. Mesta lán og blessun Jens í lífmu var að eignast eftirlifandi eiginkonu sína, Helgu. Hún var lífsfórunautur- inn sem gladdist með honum á góð- um stundum og stóð eins og klettur við hlið hans á erfiðum stundum, styrkti hann og studdi. Þeim varð fjögurra barna auðið og barnabörnin eru orðin tólf. Jens átti eina dóttur fyrh- og á hún tvö börn. Jens hafði mjög gaman af barna- börnunum sínum. Það var ekki að ástæðulausu sem þau sóttu stíft að komast í fangið á afa. Hann hafði af- skaplega gaman af að hossast með þau og ótrúlega þolinmóður við að halda áfram í ærslaganginum því börn vilja jú aldrei hætta. Jens starfaði lengst af við verslun og viðskipti. Hann var kaupfélags- stjóri, verslunarstjóri, rak á tíma sína eigin verslun og síðastliðin ár starfaði hann sem verslunarstjóri við Kaupfélag Austur-Skaftfellinga. Það er alveg ljóst að íslensk versl- un hefur misst einn af sínum góðu framherjum á sviði matvöru. Hann var sá sem var frumkvöðull að lækk- uðu vöruverði á matvörumarkaðn- um. Hann vildi veita viðskiptavinin- um góða þjónustu og lægra vöru- verð. Jens var mikill vinnuþjarkur og átti erfítt með að taka sér frí. Það var ósjaldan sem hann vann frameft- ir og um helgar og eitt er víst að hann hlúði vel að þeim búðum þar sem hann sat við stjórnvölinn. Jens var ákaflega glæsilegur mað- ur, dökkur á brún og brá og hvers manns hugljúfi. Hann var glaður á góðri stund, glettinn og spaugsamur. I vöggugjöf hafði hann hlotið góðar gáfur og metnað. Líf hans var dæmi- gert fyrir það hvernig vinna má sig upp af eigin rammleik. Hann hafði fastmótaðar og ákveðnar skoðanir um menn og málefni. Aldrei heyrði ég hann kvarta um andsnúin örlög heldur sótti hann styrk í trú sína. Ég þakka Jens fyrir samfylgdina er ég kveð hann nú í hinsta sinn og er ég þess fullviss að honum verður tekið opnum örmum á himnum. Góð- ur og vammlaus drengur er genginn. Ég þakka fyrir allt og allt. Guð blessi sál elsku tengdafóður míns. Margrét Ármann. Mánudaginn 24. ágúst verður til moldar borinn mágur minn, Jens Ólafsson. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu á Höfn í Hornafirði að morgni dags laugardaginn 15. ágúst síðastliðinn. Jenni, eins og hann var oftast kall- aður, og Helga systir mín hófu sam- búð á heimili foreldra okkar. Jenni varð strax einn af fjölskyldunni. Sá er þessar línur ritar á einstaklega góðar minningar frá þessum tíma um góðvild og hvatningu hans sem urðu að veganesti til framtíðar. Það var aldrei að fullu þakkað og verður aldrei. Samband Jenna og tengda- foreldra hans einkenndist alla tíð af einlægri vináttu og reyndist hann þeim strax mikil hjálparhella. Þau voru ýmis verkefnin sem leysa þurfti af hendi við búskap og önnur störf sem til falla í sveitum. Kom þá vel í ljós hve ráðagóður Jenni var. Einnig nutum við systkinin öll aðstoðar hans og hjálpsemi, hvenær sem hann gat því við komið. Skipti þá ekki máli tími eða iyrirhöfn. Á kveðjustund færum við einlægar þakkir fyrir hjálpsemi og vináttu lið- inna ára. Atorka og fi'amkvæmdavilji voru mági mínum í blóð borin. Að lausn- um vandamála gekk hann eins og að hverju öðru verki. Sagt er að til séu tvenns konar vandamál. Annars veg- ar þau sem til lausnar eru og hins vegar þau sem einungis eru til að horfast í augu við. Auðvelt er að sjá fyrir sér hvorn flokkinn Jenni vildi frekar glíma við. Ævistarf sitt við verslunarstörf hóf hann á unga aldri á Akureyri. Hann kom víða við á þessu sviði og kunni afburða vel til verka. Hann var ósérhlífinn í dag- legu starfi og markmiðið var ávallt það sama; að skila góðu dagsverki og eiga ánægða viðskiptavini. Eftir því sem árin liðu fækkaði samveru- stundum vegna búsetu. Síðasta sam- verustund sem við áttum með Jenna var á áttræðisafmæli tengdafóður hans síðastliðið vor. Afram lifir minningin um margar góðar sam- verustundir á liðnum árum. Alltof fljótt er komið að leiðarlokum. Hafðu heila þökk fyrir samfylgdina. Fyrir hönd foreldra minna, systra og fjölskyldna okkar votta ég elsku- legri systur minni, aldraðri móður Jenna, börnum og fjölskyldum þeirra innilegustu samúð og bið góð- an guð að styrkja þau í sorginni. Magnús Ólafsson. Nú ertu dáinn, elsku afi minn. Ég sakna þín svo mikið. Ég vil þakka þér fyrir allan þann tíma sem þú gafst mér um ferminguna mína, þið amma voruð svo yndisleg. Og öll sumarfríin okkar saman sem gáfu mér svo mikið. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mömmu, þú varst okkur alltaf svo góður. Ég kveð þig, kæri afi minn. Þinn, Helgi Steinar. Elsku Jenni afi. Mér finnst eins og merkasti mað- ur veraldar sé farinn. Því fyrir okk- ur varstu það, stórmerkilegur maður sem gat allt og gerði allt. Ég man eftir því þegar ég var lítil og sat á skrifstofunni þinni í Grundarkjöri í Furugrundinni, og horfði á þig tala í símann og rífast við einhvern sölu- mann, hvað ég dáði þig og mér fannst þú svo mikill og máttugur. Að þú gætir stjórnað svo miklu vanda- laust. Ég á eftir að sakna þess að horfa upp á svo mikinn athafna- mann. Eg leit alltaf á þig sem höfuð fjölskyldunnar og verndara ömmu. Mér fannst svo sætt að sjá þig taka utan um hana og passa hana eins og þinn dýrmætasta hlut. Þegar mamma hringdi í mig og sagði mér að þú værir dáinn þá gat ég ekki trú- að að þetta væri að gerast. Mér fannst ekki sanngjarnt að Guð ætl- aði að láta mig ganga í gegnum svo mikla sorg alveg strax. En þinn tími var greinilega kominn og Guð hefur mikil not fyrir þig uppi hjá sér fyrst hann tók þig svona langt fyrir aldur fram. En mér líður eins og einhver hafi komið fyrir sprengju inni í mér og núna springur hún smám saman. En ég get huggað mig við það að hvar sem þú ert nú niður kominn að þér líður vel og nú á ég mér minn eigin vemdarengil. Núna ertu engill- inn okkar allra og verndari eins og alltaf áður og lýsir veg okkar á lífs- leiðinni. Elsku Helga amma, mamma, Óli, Guðný, Dón, Sigrún amma, Bogga amma og Óli afi, megi góður Guð styrkja ykkur og okkur öll í þessari miklu sorg. Salome Gunnur Sævarsdéttir. Elsku Jenni afi. Mikið rosalega á ég eftir að sakna þín. Ég man þegar við krakkarnir vorum að rífast um það hver ætti að sitja hjá þér. Ég man líka eftir því þegar ég kom á sumrin til þín og ömmu og fjögurra ára gömul var ég byrjuð að raða í hillurnar. Mig lang- ar svo að líkjast þér, því þú varst svo athafnarsamur. Ég lít svo mikið upp til þín. Elsku afi, ég veit að þér líður vel þar sem þú ert núna og hefur nóg að gera. Vertu sæll að sinni, þín dótturdóttir Helga Rut Torfadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.