Morgunblaðið - 23.08.1998, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 41
I
1
i
I
!
I
!
I
i
í
i
Í
Í
i
i
i
í
i
i
i
!
i
g
i
I
LISELOTT
SIEMSEN
Þegar þau erfiðu tíðindi bárust að
Jens Olafsson verslunarstjóri hefði
orðið bráðkvaddur á heimili sínu að
morgni laugardagsins 15. ágúst síð-
astliðinn kom upp í huga mér, að
það er skammt stórra högga á milli.
Á skömmum tíma hefur starfsfólkið
hjá kaupfélaginu þurft að sjá á eftir
tveimur vinnufélögum sem hafa fall-
ið frá svo skyndilega og ótímabært.
Fyrst Gísli Sigurðsson flutningabíl-
stjóri sem lést í umferðarslysi í júní
sl. og nú Jens Olafsson verslunar-
stjóri sem varð bráðkvaddur á
heimili sínu. Það er sárt að horfa á
eftir góðum félögum og erfítt að
skilja hvers vegna þeir fengu ekki
að vera lengur á meðal okkar.
Fyrstu kynni mín af Jens Olafs-
syni voru þegar hann tók við af mér
sem vöruhússtjóri hjá KA á Selfossi,
síðan lágu leiðir okkar saman á ný
hér á Höfn þegar ég flutti hingað
um mitt ár 1992. Fljótlega eftir að
ég kom var ég svo lánsamur að fá
Jens til starfa sem verslunarstjóra í
matvörudeild kaupfélagsins þannig
að við unnum náið saman í tæp sex
ár. Jens starfaði hjá Kaupfélagi
Austur-Skaftfellinga í samtals 11 ár
sem verslunarstjóri í matvörudeöd
félagsins. Fyrst á árunum 1976-1981
og aftur frá árinu 1992 til dauða-
dags.
Jens hóf feril sinn sem verslunar-
stjóri hjá KEA aðeins 23 ára gamall
og hefur lengst af unnið ýmiss kon-
ar stjórnunarstörf í verslun. Á
mörgum sviðum var hann frum-
kvöðull og naut virðingar fyrir
dugnað og þjónustulipurð. Hann var
verslunarmaður af lífi og sál og gaf
sig allan í þau verkefni sem hann
fékkst við hverju sinni. Þegar ég
hugsa til baka og reyni að lýsa
helstu eiginleikum Jens í fáum orð-
um kemur fyrst upp í hugann
„vinnusemi, trúmennska og þjón-
ustulund „. Sem dæmi um þetta má
nefna að Jens kom ávallt fyi-stur til
vinnu að morgni og fór síðastur
heim að kvöldi. Þannig sýndi hann
starfsmönnum sínum gott fordæmi.
Einn nágj'anni hans sagði mér að
það hefði verið hægt að stilla klukk-
una eftir ferðum Jens þvi hann fór
alltaf á sama tíma til vinnu og það
féll aldrei dagur úr hjá honum
vegna veikinda. Jens gekk í öll verk
í versluninni og var alltaf í góðu
sambandi við viðskiptavini sína og
lagði sig fram um að þjóna þeim og
óskum þeirra. Hann var staðfastur
og ákveðinn stjórnandi sem gerði
miklar kröfur til starfsmanna sinna,
en gerði þó . alltaf mestar kröfur tö
sjálfs sín.
Með þessum fáu orðum kveð ég
hinstu kveðju Jens Olafsson versl-
unarstjóra og þakka honum fyrir
samfylgdina. Eg og fjölskylda mín
sendum eftirlifandi eiginkonu hans,
Helgu Steinunni Ólafsdóttur, börn-
um þeirra, barnabörnum og öðrum
ættingjum og vinum hugheöar sam-
úðarkveðjur. Fyrir hönd Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga og samstarfs-
fólks flyt ég hugheilar hluttekingn-
arkveðjur.
Pálmi Guðmundsson.
Létt skóhljóð og hringlið í
lyklunum er þagnað. Jens Ólafsson,
verslunarstjóri í vöruhúsi KASK, er
allur. Enn á ný á þessu sumri hefur
verið höggvið skarð í raðir okkar
starfsmanna KASK. Straumar
lífsins bera okkur hin áfram í
daglegum störfum þótt söknuður og
tómleiki sé ríkjandi nú. Vöruhús
KASK hefur misst mikinn leiðtoga
og við höfum misst ljúfan vin þótt
yfirbragðið væri stundum hrjúft.
Jens var vinnusamur, ósérhlífinn og
hafði þjónustulund sem margir nutu.
Með þessum fátæklegu orðum
langar okkur til að kveðja Jens og
þakka samstarfið.
Við sendum Helgu, börnum,
fjölskyldum þeirra og öðrum
aðstandendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
+ Liselott Siemsen fæddist í
Liibeck í Þýskalandi 11.
febrúar 1906. Hún lést í Liibeck
2. ágúst síðastliðinn. Foreldrar
hennar voru Heinrich Rosen-
berg kaupmaður í Liibeck og
kona hans, Henriette Gláser
Rosenberg. Hinn 16. júlí 1935
giftist Liselott Árna Siemsen
stórkaupmanni og ræðismanni
íslands í Lubeck. Hann var
fæddur 22. febrúar 1908 í Hafn-
arfirði. Foreldrar hans voru
Franz Eduard Siemsen sýslu-
maður og Þórunn Siemsen,
dóttir Árna Thorsteinssonar
landfógeta. Systkini Árna
Siemsens voru Sigríður, kona
Páls Einarssonar hæstaréttar-
dómara, Soffía, kona Magnúsar
Kjarans stórkaupmanns, og
Látin er í Lubeck í Þýskalandi
Liselott Siemsen, ekkja Árna Siem-
sens stórkaupmanns og fyrrum
ræðismanns Islands í Hamborg og
Lubeek. Hún var fædd 11. febrúar
1906 í Lúbeck. Foreldrar hennar
voru Heinrich Rosenberg kaup-
maður í Ltibeck og kona hans, Hen-
riette f. Gláser. Liselott andaðist 2.
ágúst síðastliðinn, 92 ára gömul.
Hún hafði borið aldurinn vel fram á
síðasta ár. Hún átti þrjú systkin,
sem öll eru látin.
Lúbeck er sérstæð borg vegna
legu, ásýndar og viðburðaríkrar
sögu allar götur frá 12. öld. Hún
var um aldir sjálfstætt borgríki og
langa hríð öflugust borga í „Hansa-
sambandinu". Það var hagsmuna-
bandalag margra hafnar- eða versl-
unarborga á norðanverðu Þýska-
landi og átti verslunarítök og rétt-
indi víðs vegar um norðanverða
Evrópu, allt frá Lundúnum til
Norður-Noregs og austur til
Novgorod í Rússlandi. Kaupmenn
voru þar hin ráðandi stétt, ekki að-
alsmenn. Þótt langt sé síðan, bera
helstu „Hansaborgirnar" og íbúar
þein-a enn ýmis merki þessa, og er
sagt, að þar sé víðara sjónarhorn til
umheimsins en sunnar í landi.
Þannig kom þetta einnig mér
fyrir sjónir, þegar ég á námsárum
mínum í Þýskalandi 1930-36 heim-
sótti Árna Siemsen móðurbróður
minn í Lúbeck og svo 1936, þegar
ég kynntist Liselott og var gestur
hennar, skömmu eftir að hún giftist
Árna. Liselott var greind og fógur
kona, sem bar tögerðarlausan hefð-
arbrag með sér, þar sem hún fór.
Hún var þá orðin íslenskur ríkis-
borgari og íslensk konsúlsfrú, og
það var ýmislegt nýstárlegt, sem
fyrir hana bar og öðruvísi en grón-
ar venjur í Lúbeck.
Ami Siemsen var ekkjumaður,
þegar hann kvæntist Liselott, -
Lilo kölluðum við hana. Hann hafði
farið aðeins 16 ára gamall tö versl-
unarnáms í Þýskalandi, sem var fá-
heyrt í þá daga. Hann öentist í
Ltibeck og varð vel metinn kaup-
sýslumaður þar. Hann átti verslun-
arsambönd víða um lönd en hjarta
hans var íslenskt alla tíð.
Ami giftist fyrri konu sinni
Theódór Siemsen kaupmaður,
kvæntur Weru Scheteiig frá
Liibeck. Áður hafði Árni Siem-
sen verið kvæntur Elisabeth
Hartwig, f. 4.4. 1893 í Lubeck,
d. 9.7. 1927. Synir þeirra voru:
1) Ludwig Hartwig Siemsen, f.
4.6. 1920, d. 8.11. 1996, kvæntur
Sigríði Ólafsdóttur Theódórs,
og 2) Franz Eduard Siemsen, f.
14.11. 1922, d. 30.10. 1992,
kvæntur Lore Hiibsch. Eftir
heimsstyijöldina síðari fluttu
þeir bræður til íslands, en Árni
og Liselott, kona hans, bjuggu
og störfuðu í Liibeck til ævi-
loka. Árni andaðist 13. apríl
1964.
Utför Liselott Siemsens fór
fram frá Dómkirkjunni í Liibeck
6. ágúst síðastliðinn.
Elisabeth 1919. Hún var dóttir þá-
verandi húsbónda hans Ludwigs
Hartwigs. Þau eignuðust tvo syni
Ludwig Hartwig og Franz Eduard.
Árið 1927 varð hann fyrir þeim
harmi að missa konu sína. Synir
þeirra vom þá enn í bernsku.
Umhverfis Ltibeck er mikið
vatnasvæði, og þar er róðraríþrótt
mikið stunduð. Árni og Theódór
bróðir hans, sem bjó í Lúbeek um
hríð, vora í róðrarfélaginu
„Lúbecker Rudergesellschaft". í
einni af heimsóknum mínum til
Árna fékk ég að fara með honum og
sjö félögum hans í róðrarferð á
löngum báti á ánni Trave, sem
rennur um Ltibeck. Eg var munstr-
aður sem stýrimaður en stóð tæp-
ast undir nafni. En þann dag sá ég,
að í róðrarfélagi þar væri margan
góðan kvenkost að finna, líkt og ég
sá síðar í skíðafélögunum á íslandi.
Víst er, að Árni höndlaði hamingj-
una á ný 1935, er hann eignaðist
Lilo Rosenberg úr Róðrarfélaginu í
Lúbeck.
Hún gekk sonum hans í móður-
stað og var kært með þeim öllum,
svo að synirnir litu brátt á hana
sem móður. Heimili þeirra í Körn-
erstrasse var með fögrum menn-
ingarbrag og hafa margir Islend-
ingar átt góðar minningar um gest-
risni á þeim stað.
Eftir heimsstyrjöldina síðari
fluttust báðir synimir til Islands,
kvæntust og eignuðust fjölskyldur
hér. Áríð 1947 stofnaði Ludwig um-
boðsverslunina Árni Siemsen í
Reykjavík til þess að vinna með
samnefndu fyrirtæki föður síns í
Lúbeck. Franz bróðir hans varð
síðar meðeigandi fyrirtækisins í
Reykjavík.
Árni andaðist árið 1964. Þau
Liselott höfðu þá búið í ástríku
hjónabandi í 29 ár en ekki eignast
börn. Franz fluttist til Lúbeck eftir
lát föður síns. Þeir bræður, Ludwig
og Franz era nú báðir látnir.
Og nú er Liselott öll. Minningar-
athöfn um hana fór fram í Dóm-
kirkjunni í Lubeck þann 6. ágúst
síðastliðinn. Ég minnist hennar
með virðingu og þökk fyrir langa
vináttu.
Einar B. Pálsson
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig a<5 þér taka,
méryfirláttuvaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson).
Samstarfsfólk í Vöruhúsi KASK.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hellissandi,
verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn
24. ágúst kl. 13.30.
Erna Lárentsíusdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Brynjólfur Lárentsíusson, Jóhanna Gunnþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku litli sonur minn, bróðir og barnabarn,
STEFÁN DARRI FJELDSTED,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 25. ágúst kl. 15.00.
Ingibjörg Alma Fj. Júlíusdóttir,
Júlíus Örn Fjeldsted,
Júlíus Ólafsson,
Sæmunda Fjeldsted Númadóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, sonur, tengdasonur,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JENS ÓLAFSSON
verslunarstjóri,
Hlíðartúni 1,
Hornafirði,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 24. ágúst kl. 13.30.
Jarðsett verður í Stærri-Árskógskirkjugarði.
Helga Steinunn Ólafsdóttir
Sigrún Jensdóttir,
Sveinbjörg Baldvinsdóttir,
Ólafur Jensson,
Guðný Björg Jensdóttir,
Sigrún Jensdóttir,
Halldór Jensson,
Eygló Jensdóttir,
Ólafur Guðmundsson,
Hanna M. Sigurðardóttir,
Gunnar Þór Þórarnarson,
Torfi Geir Torfason,
Margrét Ármann,
Björn Austfjörð
og barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR H. ODDGEIRSSON
rafvirkjameistari
frá Vestmannaeyjum,
Borgarheiði 13v,
Hveragerði,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
miðvikudaginn 12. ágúst, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 26. ágúst kl. 13.30.
Ragna Lísa Eyvindsdóttir,
Eyvindur Ólafsson, Sigríður Ragnheiður Jónsdóttir,
Hjörtur Ólafsson, Gunnur Inga Einarsdóttir,
Hlynur Ólafsson, Þórdís Magnúsdóttir,
Ásta Katrín Ólafsdóttir, Jóhannes Guðmundsson,
Lilja Björk Ólafsdóttir, Óskar Óskarsson,
Elva Ósk Ólafsdóttir, Andri Örn Clausen,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
GARÐARS B. ÓLAFSSONAR,
Eyrarlandsvegi 27,
Akureyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
25. ágúst kl. 13.30.
Jóhannes Óli Garðarsson, Hulda Jóhannsdóttir,
Anna Garðarsdóttir,
Magnús Örn Garðarsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir,
Kristján Björn Garðarsson, Helga Alfreðsdóttir,
Bergur Garðarsson, Margrét Frfmannsdóttir,
Ingvar Garðarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.