Morgunblaðið - 23.08.1998, Qupperneq 44
60TT FÓIIC • SU
44 SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
W lnnritun
* er hafin!
Ný námskeið byrja 31. ágúst
FRÁ TOPPI TIL TÁARI
Námskeið sem hefur veitt ótalmörgum
konum frábæran árangur.
Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum,
sem beijast við aukakílóin.
Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar
í viku, níu vikur í senn. Góður matarkúr
sem fylgt er eftir daglega með andlegum
stuðningi, einkaviðtölum og
fýrirlestrum um mataræði og
hoUar lífsvenjur. Heilsufúndir þar sem
farið er yfir förðun, klæðnað, hvernig
á að bera líkamann og efla sjálfstraustið.
FRA TOPPI TIL TAARII
- framhald
Námskeið fyrir þær sem vilja
halda áfram i aðhaldi.
Frjálsir tímar, 13 vikur.
Fundir lx í viku í 9 vikur.
þarf paiitaii"'
jj. rti>iís(- '
Staðfesta
fynr
Námskeið á Akureyri um fíkniefnaneyslu, sjálfsvíg og ofbeldi
Fjallað um áhættu-
hegðun ungs fólks
Morgunblaðið/Björn Gíslason
FRÁ námskeiði um áhættuhegðun ungs fólks, sem fram fór í
Menntaskólanum á Akureyri í vikunni.
Akureyri. Morgunbladið.
ÁHÆTTUHEGÐUN ungs fólks
- fíkniefnaneysla, sjálfsvíg og of-
beldi - áhættuþættir og forvarn-
ir, var yfirskrift ráðstefnu sem
lauk á Ákureyri á föstudag. Ráð-
stefnan var samstarfsverkefni
Fræðslumiðstöðvar í fíknivöm-
um, menntamálaráðuneytis,
Endurmenntunarstofnunar Há-
skóla Islands og EndmTnenntun-
ardeildar Kennaraháskóla Is-
lands.
Sjálfsvígum ungs fólks hefur
fjölgað víðast á Vesturlöndum
undanfarna áratugi. Sjálfsvíg eru
nú önnur algengasta dánarorsök
karlmanna á aldrinum 15-24 ára
hér á landi og í heild voru sjálfs-
víg fjórðungi fleiri en dauðsföll af
völdum umferðarslysa 1950-1994.
Þá er ótalinn sjá fjöldi sem gerir
tilraun til þess að svipta sig lífí.
Þriðjungur nemenda í 9. og 10.
bekk hugleitt sjálfsvíg
I rannsókn á vegum Rann-
sóknarstofnunar uppeldis- og
menntamála kemur m.a. fram að
um þriðjungur nemenda í 9. og
10. bekk grunnskóla segist hafa
hugleitt sjálfsvíg og rúmlega 6%
hafa gert tilraun til sjálfsvígs.
Mikill hluti fólks sem fremur
sjálfsvíg misnotar áfengi eða
önnur vímuefni.
Námskeiðið á Akureyri stóð
yfir í þrjá daga en það var eink-
um ætlað skólastjómendum, um-
sjónarkennurum, námsráðgjöf-
um, forvamafulltrúum, skólasál-
fræðingum og skólahjúkrunar-
fræðingum í gmnn- og fram-
haldsskólum. Fjölmargir inn-
lendir sérfræðingar fluttu erindi,
m.a. afbrotafræðingur, námsráð-
gjafí, geðlæknar, sálfræðingar og
fleiri. Þá tók einn erlendur fyrir-
lesari þátt, dr. Gil Noam, kennari
við Harvard háskóla í Boston.
Hann stýrir m.a. verkefni þar um
forvarnir í skólum í tengslum við
áhættuhegðun barna og ung-
linga.
Ami Einarsson, framkvæmda-
stjóri Fræðslumiðstöðvar í fíkni-
vömum, hafði umsjón með nám-
skeiðinu og hann sagði námskeið-
ið hafa tekist mjög vel. Fyrirles-
ararnir hafí boðið upp á framúr-
skarandi efni og efnistök, sem
muni nýtast skólamönnum við
skipulagningu og undirbúning á
þessu sviði.
Margþætt viðfangsefni
,Á þessu námskeiði var verið
að reyna að draga fram hversu
margþætt viðfangsefni það era
sem valda ungu fólki hér á landi
vanda nú um stundir. Einnig
hversu mikið sá vandi skarast og
það kom mjög vel fram hvernig
svokallaðir áhættuþættir tengj-
ast innbyrðis. Þetta á að auð-
velda okkur að bregðast við þeg-
ar fram koma vísbendingar um
að eitthvað bjáti á en jafnframt
að minna okkur á að varast ber
óvönduð vinnubrögð.“
Árni sagði að skólinn kæmi
mjög sterkur inn í þessi mál -
bæði vegna þess að hann er fyrir
hendi og hann er svo mikilvægur
snertiflötur allra ungmenna. Öll
böm fari í grannskóla og stór
hluti þeirra fer einnig í fram-
haldsskóla. „Það er því auðveld-
ast að ná til ungmenna fyrir til-
stilli skólans. Skólinn getur þetta
ekki einn og hjálparlaust og því
má ekki ætla honum að taka
þetta allt á sínar herðar. Við er-
um því að reyna að vinna að því
með hvaða hætti aðrir aðilar geta
komið þar að með faglegum
hætti, m.a. heilsugæsla, lög-
gæsla, félagsþjónusta og tóm-
stundastarf barna og unglinga,“
sagði Árni.
Á Fótboltavef Morgunblaðsins
finnur þú
alla réttu
takkana
Titlar og afrek
Leikmenn og
frammistaða þeirra
Saga félaganna
Liðsstjórinn,
gagnvirkur Netleikur
Dagbók, yfirlit yfir leiki
www.mbl.is/boltinn
Fótboltavefur mbl
Þar sem þú getur fylgst með boltanum í sumar.