Morgunblaðið - 23.08.1998, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 51
í DAG
! BRIDS
Umsjón (iiiðiniinilur
l’áll Arnarsnn
LESANDINN ætti að fá
sér sæti í suður og reyna
að þefa uppi spaðadrottn-
inguna:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
A K10753
¥ G852
♦ D54
* 7
Suður
* ÁG2
¥ D109643
♦ 3
I *ÁG8
Vestur Norður Auslur Suður
— — 1 grand 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Allir pass
Grandopnun austurs sýnir
15-17 punkta. Vestur kem-
ur út með smáan tígul og
( austur tekur fyrsta slaginn
■; á gosa og spilar næst tígul-
. kóng, sem suður trompar.
I Sagnhafí tekur laufás,
trompar lauf, trompar
tígul (ásinn frá austri) og
aftur lauf. Ekkert merki-
legt gerist í laufínu. Nú
spilar hann trompi, þar
sem austur á ÁK blankt.
Austur spilar tigli og nú
stundin runnin upp.
i Hvernig á að spila spaðan-
um?
( Austur ^ hefur sýnt 15
punkta: ÁK í hjarta og
ÁKG í tígli. Með spaða-
drottningunni til viðbótar
ætti hann 17 punkta, sem
er í grandrammanum. En
í því tilfelli ætti vestur
hjónin í laufí og hefði frek-
ar komið þar út, ekki satt?
Norður
A K10753
¥ G852
♦ D54
♦ 7
Austur
* 986
¥ ÁK
* ÁKG9
* D1064
Suður
*ÁG2
¥ D109643
♦ 3
*ÁG8
Vestur
*D4
¥7
♦ 108762
*K9532
Þú spilar því spaðaás og
gosa og finnur drottning-
una.
Austur var of hjálplegur
þegar hann spilaði tígul-
kóng í öðrum slag. Hann
hefði átt að taka ÁK í
trompi, spila svo tígulás og
leggja síðan ekki kónginn á
tíguldi’ottninguna síðar! Þá
hefði sagnhafí a.m.k. verið
í vafa um hvor varnarspil-
arinn ætti tígulkóng.
ÁRA afniæli. Á
morgun, mánudaginn
24. ágúst, verður sjötug
Lilja Bjarnadóttir, Lang-
holtsvegi 183, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Stef-
án Ágústsson. Þau eru að
heiman á afmælisdaginn.
ÁRA afmæli. í dag,
sunnudaginn 23.
ágúst, verður sextugm’
Magnús Lille Friðriksson,
flugstjóri, Hörgslundi 3,
Garðabæ. Hann og eigin-
kona hans, Margrét Þor-
kelsdóttir, verða að heiman
á afinælisdaginn.
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu stúlkur söfnuðu með tombólu kr. 891 til
styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Lilja Sigfúsdóttir
og Dagný Daníelsdóttir.
ÞESSIR duglegu krakkar söfnuðu með tombólu kr. 2.346
til styrktar Rauða krossi íslands. Þau heita Björn Gunnars-
son, Ólína Jónsdóttir og Jón Vilberg Jónsson.
ÞESSIR duglegu krakkar söfnuðu með tombólu kr. 1.453
til styrktar Rauða krossi íslands. Þau heita Svavar Elliði
Svavarsson, Viktor Páll Svavarsson, Atli Karl Pálmason og
íris Svava Pálmadóttir.
I
I
I
ORÐABÓKIN
Ekki alls fyrir löngu leit
ég í blað á fömum vegi,
þar sem verið var að ræða
um málefni fatlaðra. Þar
rakst ég á eftirfarandi
setningarbrot, sem ég
hnaut um og vil þess
vegna víkja að nokkrum
orðum: „í þeirri miklu réttr
indabaráttu sem fatlaðir
hafa þurft að há.“ (Letur-
breyting hér.) Það er notk-
un eða beyging so. að
heyja, sem virðist orðin
eitthvað á reiki meðal
margra. Nafnháttur þessa
so. er að heyja, en ekki há,
Að heyja
svo sem einhveijir halda.
Orðmyndin að há hefur
smeygt sér hér inn í tal-
málið og síðan eðlilega
einnig inn í ritmálið á eftir,
svo sem fyrrgi'eint dæmi
sýnir. Enginn efí leikur á
því, að þetta hefur gerzt
fyrir áhiif frá þátið so. og
lýsingarhætti, sem er háði
- háð. Slíkt er ekki óþekkt
í öðrum sagnorðum, eins
og ekki er ólíklegt, að síð-
ar verði bent á. Þetta so.
er svonefnd veik beyging:
heyja - háði - háð, og eftir
henni fer beyging annan-a
orðmynda hennar. Ég
heyi, þú heyrð, hann heyr
baráttu; við heyjum, þið
heyið og þeir heyja bar-
áttu. Allar eru þessar
myndir leiddar af nh. að
heyja. Því skal ekki segja
eða skiifa að há baráttu;
og þá ekki heldur ég hái,
þú háir, hann háir baráttu.
Sama gildir um ft.: við
heyjum baráttu, ekki há-
um baráttu; þið heyið bar-
áttu, ekki háið baráttu,
þeir heyja bai’áttu, ekki há
baráttu.
- J.A.J.
STJÖRIVUSPA
eftir Frances llrake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert opinn gagnvart öðr-
um en þér hættir til að gera
of mikið úr hlutunum. Þú
ert góður vinur og gætinn í
hvívetn a.
Hrútur (21. mars -19. apríl) Það eru ýmsar nýjungar að banka upp á hjá þér og þér finnst erfitt að sinna þeim öll- um í einu. Gefðu þér samt nægan tíma til að skoða málið.
Naut (20. aprfl - 20. maí) Gættu þess að hafa ekki of mörg járn í eldinum. Það er betra að sinna færri verkefn- um og ljúka þá þannig við þau að þér sé til sóma.
Tvíburar _ (21. maí - 20. júní) Viðkvæm vandamál koma upp og krefiast allrar þinnar at- hygli. Sýndu væntumþykju og þá mun allt fara vel.
Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú færð hveija hugmyndina á fætur annarri en gengur illa að gera þær allar að raunveru- leika. Láttu það ekki fara í taugamar á þér.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Gættu þess að hrapa ekki að neinu þvi annars getur illa farið og þú setið uppi með rangar hugmyndir um menn og málefni.
Meyja ** (23. ágúst - 22. september) ŒbL Hristu af þér alla hræðslu og helltu þér í það sem þér lang- ar mest að gera. Byrjunin verður kannski erfið en áframhaldið auðvelt.
Vog rn- (23. sept. - 22. október) &1 4i Haltu því hjá þér þegar þú færð slæma tilfinningu fyrir öðrum því það er ekki þitt að segja til um annarra innræti heldur þeirra að opinbera.
Sporðdreki ^ (23. okt. - 21. nóvember) Það getur verið erfitt að gefa öðrum góð ráð nema því að- eins að þú gætir þess að láta ekki eigin vandamál byrgja þér sýn.
Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) SiX Þú þarft ekkert að óttast að leggja starf þitt undir dóm annarra. Vertu sjálfum þér samkvæmur og j)á muntu uppskera laun erfiðis þíns.
Steingeit (22. des. -19. janúar) Vertu vandlátur þegar þú vel- ur þér vini og mundu að betra er að þeir séu fáir og góðir heldur en margir og misjafnir.
Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Qjfib Það er gaman þegar vel geng- ur og sjálfsagt íyrir þig að njóta meðbyrsins því enginn hefur fært þér hann nema þú sjálfur.
Fiskar m (19. febrúar - 20. mars) >%■» Nú verður ekki lengur undan því vikist að taka ákvörðun varðandi starfsvettvang. Treystu á hæfileika þína og vertu óhræddur að breyta til.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.
INlVtt! INIýtt! INIýtt!
HEIMILISÞVOTTUR - ÞJÓNUSTA
Þið setjið „bland í poka" af þvotti — við sækjum,
þvoum, straujum og skilum heim 2 dögum síðar.
Verð 20 stk. kr. 1.800
30 stk. kr. 2.550
-”- 40 stk. kr. 3.200
Upplýsingar í síma 588 1413 eda 897 2943 hmmm I E.
BRIDSSKOLINN
Starfsemi vetrarins hefst með
ókeypis bridskynningu fyrir unglinga
á aldrinum 12-16 ára.
Kennt verður þrjá daga í næstu viku, frá
þriðjudegi til fimmtudags milli kl. 16 og 19 í
Bridshöllinni, húsnæði BSÍ,
Þönglabakka 1 í Mjódd.
Allir velkomnir, en þátttöku þarf að tilkynna í
síma 564 4247 mánudaginn 24. ágúst.
4 Y ♦ *
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna hefjast svo um
miðjan september.
Byrjendanámskeiðið verður á þriðjudagskvöldum, 10
skipti frá kl. 20-23, og hefst 15. september, en
framhaldsnámskeiðið verður á fimmtudagskvöldum,
einnig 10 skipti frá kl. 20-23, og hefst 17. september.
é V ♦ *
Nánari upplýsingar og innritun í síma
564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga.
í október er ráðgert að bjóða framhaldsskólanemum 5 kvölda
kynningarnámskeið í Bridshöllinni.
BRIDSFÉLAG REYKJAVÍKUR OG BSÍ
PRJONABLAÐIÐ FRA
ROfAN
ER KOMIÐ
Askrifendur vinsamlega vitjið blaðsins í versluninni.
Full búð af fallegu garni
Laugavegi 59, sími 5518258
Handíð, Skipagötu 16, sími 462 4088, AKUREYRI
Handraðinn, Kirkjubraut 3, sími 431 5500, AKRANESI
Skrínan, Eyrarvegur 27, sími 4823238, SELFOSSI