Morgunblaðið - 23.10.1998, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Jón Steinar Gunnlaugsson ritar ráðherra fyrir hönd Magnúsar Leopoldssonar
Rannsókn verði gerð á
tilurð „Leirfínnsstyttu“
JÓN STEINAR Gunnlaugsson hæstaréttarlög-
maður hefur fyrir hönd Magnúsar Leopoldsson-
ar skrifað dómsmálaráðherra bréf með ósk um
að ráðherra hafí frumkvæði að því að afla laga-
heimildar til þess að opinber rannsókn geti farið
fram á gerð leirstyttunnar í Geirfinnsmálinu,
sem kölluð var Leirfinnur.
Einnig er óskað rannsóknar á tildrögum þess
að Magnús og þrír aðrir menn, Einar Bollason,
Sigurbjörn Eiríksson og Valdimar Olsen, voru
settir í varðhald seint á árinu 1975, þar sem þeir
sátu í meira en þrjá mánuði vegna rannsóknar á
hvarfi Geirfinns Einarssonar. Jón Steinar og
Magnús Leopoldsson eiga fund með ráðherra
vegna þessa í dag.
„Magnús hefur átt í bréfaskiptum við dóms-
málaráðherra í tilefni af því að það hafa komið
fram, eins og alþjóð veit, upplýsingar um að leir-
myndin fræga hafi hugsanlega verið gerð eftir
ljósmynd af Magnúsi, sem verða að teljast hroll-
vekjandi upplýsingar ef réttar eru,“ sagði Jón
Steinar.
Ekki losnað undan málinu í öll þessi ár
„Magnús hefur ekki losnað undan þessu máli
öll þessi ár. Honum hefur þótt það vera mjög
íþyngjandi fyrir sig og meiðandi að vera tengdur
við það alltaf. Hann hefur núna ástæðu til að
ætla að það sé fyrir tilstuðlan lögreglunnar í
byrjun, sem hann lenti í þeim hörmungum og
hremmingum. Hann hefur viljað rétta hlut sinn
gagnvart þessu og hefur átt mjög vinsamleg
samskipti við dómsmálaráðherrann upp á
síðkastið. Honum hefur verið tekið mjög vin-
samlega þótt það hafi engu skilað því ráðherr-
ann hefur svarað því til að hugsanlegar sakar-
LEIRMYNDIN, sem kölluð var Leirfinnur.
Nýjar upplýsingar þykja benda til þess að
lögreglan kunni að hafa látið gera styttuna
eftir ljósmynd af Magnúsi Leopoldssyni.
giftir í þessu væru fyrndar og ekki til að dreifa
miklum lagaheimildum fyrir hann til þess að
fara að setja af stað einhverja rannsókn á þessu,
sem ég held að sé út af fyrir sig rétt,“ sagði Jón
Steinar.
Jón Steinar sagði að Magnús hefði leitað til
sín og hann hefði fyrir hans hönd skrifað ráð-
herra bréf þar sem málið er rakið og óskað eftir
því að ráðherra hafi frumkvæði að því að afla
lagaheimildar til þess að þessi rannsókn fari
fram. „Pað yrði þá rannsókn á gerð leirstyttunn-
ar og tildrögum þess að Magnús, og eftir atvik-
um hinir mennimir þrír, voru settir í þetta
gæsluvarðhald á sínum tíma. Meginrökin fyrir
þessari beiðni eru þau að hagsmunir, ekki bara
Magnúsar, heldur þjóðarinnar, lúti að því að
upplýst sé um þessi vinnubrögð. Það eru líka
hagsmunir þeirra manna sem stóðu fyrir rann-
sókninni á sínum tíma. Ef þessi orðrómur er
rangur eiga þeir skýlausan rétt á því að það
komi fram. Allt þetta mælir mjög eindregið með
því að lagaheimild sé veitt til þess að þetta sé
kannað. Það er ekki hægt að rannsaka þetta
nema sá sem rannsakar hafi heimildir rannsókn-
armanna samkvæmt lögum,“ sagði lögmaðurinn.
Málið verði upplýst
Jón Steinar sagði að með þessu væri ekki ósk-
að eftir því að hugsanleg sakarfyming yrði upp-
hafin með lagaheimildinni. „Það er ekki verið að
óska eftir refsingum yfir einum eða neinum. Það
er bara verið að óska eftir því að þetta mál verði
upplýst. Það fylgir að vísu með að það verði aflað
heimilda til að greiða Magnúsi frekari miska-
bætur ef það sannast að handhafar rannsóknar-
valdsins hafi átt sök á þeim hörmungum, sem
hann mátti þola á sínum tíma. Þau atvik lágu
ekki fyrir þegar bótamál hans var dæmt í
Hæstarétti 1983, þvert á móti kemur fram í for-
sendum dómsins að grunsemdir hafi fallið á
Magnús vegna leirmyndarinnar."
Jón Steinar sagði að bréf sitt fyrir hönd
Magnúsar hefði verið sent ráðuneytinu 19. októ-
ber og hefði ráðuneytið bmgðist skjótt við og
væri ákveðið að þeir Magnús hittu ráðherra á
fundi síðdegis í dag.
Krafist björgunarlauna vegna
japanska túnfiskveiðiskipsins
Utanríkisráðherra
um Smuguviðræður
Ekki
sérstök
ástæða til
bjartsýni
HALLDÓR Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra segir að ekki sé
sérstök ástæða til bjartsýni
um lausn Smugudeilunnar
þótt tekizt hafi á ný að koma á
fundum íslenzkra, norskra og
rússneskra embættismanna
um málið. Embættismanna-
fundi ríkjanna þriggja lauk í
Moskvu í gær.
Að sögn Halldórs komust
embættismannafundimir, sem
haldnir vom í síðasta mánuði
og aftur nú í vikunni, á eftir
samræður hans og Prímakovs,
fyrrverandi utanríkisráðherra
og núverandi forsætisráðherra
Rússlands, annars vegar og
Knuts Vollebæks, utanríkis-
ráðherra Noregs, hins vegar.
Halldór segir að ekki sé um
eiginlega samningafundi að
ræða. „Það er ekki verið að
tala um tölur í þessum viðræð-
um. Það er frekar verið að
reyna að átta sig á stöðu máls-
ins og þeim ramma, sem hugs-
anlegir samningar gætu fallið
inn í. Því miður er hann mjög
flókinn," segir Halldór. Hann
segir að í þessum ramma verði
að felast viðurkenning á rétti
íslendinga í Barentshafinu.
Aðspurður hvort eitthvað
hafi miðað í samkomulagsátt á
fundunum í Moskvu segir
Halldór: „Ég get ekki sagt að
sérstök ástæða sé til bjartsýni
eftir þessa fundi. Það hefur
hins vegar ýmislegt skýrzt,
sem við munum fara betur yfir
þegar samningamenn verða
komnir til síns heima.“
KRAFIST verður björgunar-
launa fyrir björgun japanska
túnfiskveiðiskipsins sem strand-
aði í Skeijafirði í síðustu viku og
að sögn Stefáns Melsted, lög-
fræðings Landhelgisgæslunnar,
munu bæði Landhelgisgæslan og
Slysavamafélagið krefjast
björgunarlauna þar sem um
samvinnuverkefni þeirra var að
ræða við björgun skipsins.
Búið er að halda sjópróf
vegna strandsins en að sögn
Stefáns em þau nauðsynlegur
liður í því að fá upplýst hvemig
aðstæður vora á strandstað og
hvað þar gerðist.
„Við teljum okkur geta stað-
hæft það alveg hundrað prósent
að þama var um fullkomna
björgun að ræða og að skipið
var í verulegri hættu. Það var
strandað og síðan losnaði það af
strandstað og hefði væntanlega
rekið upp í fjöru og orðið til,
þannig að þetta er fullkomin
björgun,“ sagði Stefán.
Fjárhæðin ekki
verið ákveðin
Hann sagði að björgunin hefði
verið samvinnuverkefni Land-
helgisgæslunnar og Slysavama-
félagsins og hann vissi ekki bet-
ur en að Slysavamafélagið
myndi krefjast björgunarlauna
eins og Landhelgisgæslan ætlaði
að gera.
„Hins vegar höfum við ekki
komist svo langt að koma okkur
niður á íjárhæð í þessu sam-
bandi vegna þess að við höfum
verið að bíða eftir ákveðnum
grundvallarupplýsingum sem
við þurfum að hafa, m.a. um það
hvaða verðmæti vom í þessu
skipi og hvaða verðmæti voru í
farminum. Síðan er það sem
skiptir veralega miklu máli, en
það er hver verður viðgerðar-
kostnaður á skipinu en hann
dregst frá. Skipið er komið upp í
slipp og ég veit að það er verið
að meta viðgerðarkostnaðinn,
þannig að það er unnið í málinu
á öllum vígstöðvum,“ sagði Stef-
án.
.. * n , ,
Morgunblaðið/Golli
JAPANSKA túnfiskveiðiskipið var tekið upp í slipp í Reykjavík.
Sýna
áhuga á
að fá ál-
bátinn
RÚSSNESKI kapalbáturinn
sem varðskipið Ægir tók í tog
um 50 sjómflur norðaustur af
Glettingi 8. október sl. liggur
enn í fjörunni í Seyðisfirði.
Helgi Hallvarðsson, yfirmaður
gæsluframkvæmda, segir að
tveir aðilai- hafi sýnt því áhuga
að eignast bátinn. Hann er
smíðaður úr áli.
Þeir sem vilja taka við bátn-
um eru m.a. útgerð í Grindavík
og rekstraraðili Viðeyjarferj-
unnar. Helgi telur líklegt að
unnt sé að nota bátinn til af-
markaðra verkefna og nefndi
hann sem dæmi að hann geti
sómt sér vel sem skemmtibátur
á Lagarfljóti, en þar hafa verið
uppi hugmyndir um rekstur
slíks báts.
Helgi segir að ekkert sé því
til fyrirsjöðu að láta bátinn af
hendi. „Ég get ekki séð að það
ætti að kosta neitt,“ segir Helgi.
Ekki er til ryð í bátnum þar
sem hann er smíðaður úr áli.
Hann er vélarlaus. Björgunar-
sveitin á Seyðisfirði hefur fest
bátinn við jarðýtu þar sem hann
liggur í fjörunni. Spáð er hvass-
viðri fyrir austan.
Fundað með
Færeyingum
og Grænlend-
ingum
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra, Amfinn Kallsberg, lög-
maður Færeyja, og Jonatan
Motzfeldt, formaður lands-
stjórnar Grænlands, hittast á
fundi í Ráðherrabústaðnum kl.
9.30 í fyrramálið.
Ólafur Davíðsson, ráðuneyt-
isstjóri í forsætisráðuneytinu,
segir að á fundinum skiptist
menn á upplýsingum um það
sem efst er á baugi í hverju
landi. Einnig verði rædd nokk-
ur tiltekin, sameiginleg verk-
efni og skipst á skoðunum um
Evrópumál og samband þess-
ara þriggja landa við Evrópu-
sambandið.
Fundir af þessu tagi voru
haldnir milli landanna 1987 og
1988 en síðan lögðust þeir nið-
ur. Ólafur segir að verið sé að
endurvekja þessa fundi og rætt
verður um að halda þá með
reglubundnum hætti, t.d. einu
sinni á ári.
Ólafur segir að ekki verði
gengið frá neinum samningum
milli landanna á fundinum.
„Fundurinn er fyrst og fremst
til þess að skiptast á skoðunum
og upplýsingum,“ segir Ólafur.
Ók á bifreið
o g stakk af
BIFREIÐ var ekið í veg fyrir
aðra bifreið í umferðinni í
Reykjavík síðdegis í gær með
þeim afleiðingum að þær rák-
ust saman.
Sá sem tjóninu olli stöðvaði
ekki bifreiðina þrátt fyiár
áreksturinn og ók á brott en
ökumaður hinnar bifreiðarinn-
ar fylgdi honum eftir. Kom
hann að bifreiðinni mannlausri
við Árbæjarsafn.
Ekki var búið að hafa upp á
tjónvaldinum í gærkvöldi en
málið er í rannsókn lögregl-
unnar.