Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 10

Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Fimm ára fang- elsi fyrir tilraun til manndráps Morgunblaðið/Kristinn INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri veitir móttöku viðurkenn- ingu Jafnréttisráðs 1998 úr hendi Páls Péturssonar félagsmálaráð- herra. Reykj avíkurborg hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs TÆPLEGA tvítugur karlmaður var í gær í Hæstarétti dæmdur í fímm ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til manndráps, líkams- árás og þjófnað. Manninum, Kristjáni Braga Valssyni, var gefið að sök að hafa hinn 26. desember 1997 veist að afa sínum á heimili hans við Kiappar- stíg, stungið hann með hnífum og skærum, svo að hann hlaut fjölda- mörg sár. Náði sár á hálsi inn að barka, sár á brjósti inn í hægra brjósthol, inn á lunga og komst loft inn í brjóstholið og sár á kviði náði inn í kviðarhol og blæddi þar inn. Kristján gat enga skýringu gefið á háttalagi sínu en bar við minnis- leysi sökum ofneyslu áfengis og lyfja. Hafði hann búið um skeið hjá afa sínum og sagði sá að árásin hefði komið eins og þruma úr heið- skíru lofti. Um líshættulega árás var að ræða í dómnum segir að um lífs- hættulega árás hafi verið að ræða með hættulegum vopnum og að tilviljun ein hafi ráðið því að ekki fór verr. Enda þótt ekki yrði litið svo á að fyrir Kristjáni hafi vakað að svipta afa sinn lífi, hafi honum ekki getað dulist að langlíklegast væri að bani hlytist af atlögu hans. Þótti brotið varða við 211. gr., sbr. 20. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá voru einnig stað- fest ákvæði héraðsdóms um skaðabætur til fórnarlambsins, kr. 300.000, en hafnað var bótum vegna örorku þar sem krafa þar að lútandi var ekki studd neinum gögnum. Fundinn sekur um fleiri afbrot Þá taldist Kristján hafa brotið gegn 217. gr. almennra hegningar- laga með því að hafa veist að manni með spörkum og höggum aðfara- nótt 15. nóvember 1997 í sam- komusal KFUM og K í Austur- stræti 20, með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði. Einnig var hann fundinn sekur um árás á leigubíl- stjóra aðfaranótt 14. desember 1997. Leigubílstjórinn hafði ekið honum heim en þá vildi ákærði ekki greiða fargjaldið. Kom til stympinga og laust ákærði bílstjór- ann með steini í ennið. Vitni kom þar að og sneri ákærða niður. Tald- ist atlagan varða við 217. gr. al- mennra hegningaiiaga. Þá var Kristján fundinn sekur um þjófnað með því að hafa við þriðja mann brotist inn á veitinga- staðinn Mekong, Sóltúni 3, Reykja- vík, aðfaranótt 24. desember 1997 og stolið þaðan peningakassa. í héraðsdómi kom fram að ákærði teldist fyllilega sakhæfur en hann hefði frá árinu 1995 hlotið sjö refsidóma fyrir umferðarlaga- brot, skemmdarverk, nytjastuld, auðgunarbrot og líkamsárásir. Málið flutti Ragnheiður Harðar- dóttir saksóknari af hálfu ákæru- valdsins en skipaður verjandi ákærða var Kristján Stefánsson hæstaréttarlögmaður. REYKJAVÍKURBORG hlaut í gær viðurkenningu Jafnréttis- ráðs fyrir árið 1998. Athöfnin fór fram í Borgartúni 6. I greinargerð Jafnréttisráðs vegna viðurkenningarinnar seg- ir m.a. að á vegum borgarinnar fari fram víðtækt og markvisst starf sem miði að jafnrétti kynja. Starfið taki til margra og ólíkra málafiokka sem snúa að innra starfi borgarinnar og þeirri þjónustu sem borgin veitir borg- arbúum. í greinargerðinni er þess getið að konum hafi fjölgað í trúnað- ar- og stjórnunarstöðum. I 22 helstu nefndum borgarinnar sé hlutur kvenna 45%. I jafnréttis- áætlun sem borgarsfjórn sam- þykkti 1996 vinna allar borgar- stofnanir sérstaka starfsáætlun í jafnréttismálum til eins árs í senn. Borgarráð hafí brugðist við niðurstöðum könnunar, sem sýndi að launamunur milli kvenna og karla sem vinna sam- bærileg störf hjá borginni var 14% árið 1996, með samþykkt sérstakrar áætlunar. Aðgerða- áætlunin feli m.a. í sér að í kjarasamningum verði miðað við þá meginreglu að laun fyrir hefðbundin kvennastörf hækki mest og tekið verði á launamun í tengslum við starfsáætlanir í jafnréttismálum. í maí 1996 hafi verið komið á fót embætti jafnréttisráðgjafa og jafnréttisnefndar. Á sl. ári hafi karlar sem vinna hjá Reykjavík- urborg átt í fyrsta sinn rétt á fæðingarorlofi í tvær vikur á fullum launum á fyrstu átta vik- um eftir fæðingu barns. Undir lok siðasta árs hafi jafnréttis- nefnd styrkt konur innan íþróttahreyfíngarinnar með sér- stöku átaksverkefni á því sviði. Dómsmálaráðherra um viðræður við fangaverði 30% launa- hækkun rúmast ekki innan fjárlaga GUÐNI Ágústsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði í utan- dagskrárumræðu á Alþingi í gær að laun fangavarða hlytu að verða hækkuð með fjárlög- um næsta árs í samræmi við menntun þeirra og reynslu. Um 80% fangavarða hafa sagt upp störfum frá og með næstu mán- aðamótum vegna þess að ekki hefur verið gengið frá aðlögun- arsamningi og kvaðst Guðni trúa því að mál þeirra væru auðleysanleg. Fangaverðir hafa gert kröfur um 25-30% launahækkun og sagði Þorsteinn Pálsson dóms- málaráðherra að slíkar hækk- anir rúmuðust ekki innan ramma fjárlaganna. „En það verður auðvitað lagt á það kapp að finna lausn á þessu máli eins og öðrum,“ sagði hann meðal annars. „Eg vona að sá tími sem menn hafa til stefnu nýtist til þess að komast að skynsam- legri niðurstöðu fyrir alla aðila í málinu," sagði hann ennfremur. Fangelsismálasljóri gagn- rýndur Ögmundur Jónasson, þing- flokki óháðra, og Margrét Frímannsdóttir, þingflokki Al- þýðubandalagsins, gagnrýndu í umræðunum ummæli Þorsteins A. Jónssonar fangelsismála- stjóra sem hann viðhafði í frétt Morgunblaðsins um miðjan þennan mánuð. Gagnrýndi Ög- mundur m.a. þau orð fangelsis- málastjóra að það gæti að sjálf- sögðu komið sér illa ef margir fangaverðir segðu upp en „það væri alltaf hægt að bjarga slík- um hlutum“. Ógmundur sagði að fangelsismálastjóri hefði sýnt slíka óbilgirni með þessum orðum að ástæða væri til þess að hafa af því verulegar áhyggj- ur. Margrét Frímannsdóttir tók í sama streng og Ögmundur og sagði að það ætti í raun að veita fangelsismálastjóra áminningu fyrir þá lítilsvirðingu sem hann hefði sýnt undirmönnum sínum í umræddri frétt. Margrét sagði auk þess að það væri rétt hjá ráðherra að óheimilt væri að fara út fyrir fjárlagaheimildir en bætti því við að ef vilji væri fyrir því að hækka laun fanga- varða væri það hægt, þar sem þingmenn ættu eftir að afgiæiða fjárlög næsta árs. Árni Steinar Jóhannsson í utandagskrárumræðum á Alþingi Andvaraleysi ríkir í málefnum landsbyggðar ÁRNI Steinar Jóhannsson, þingflokki óháðra, sagði í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær að honum, sem nýlega hefði tekið sæti á Alþingi, blöskraði það andvaraleysi sem ríkti í málefnum er vörðuðu íbúaþróun á landsbyggðinni. Hann sagði að stöðugt bærust fréttir utan af lands- byggðinni um fækkun íbúa og bætti við að nú væri svo komið að ekki væri rétt að tala um „fækkun íbúa á landsbyggðinni", heldur væri nær að tala „fólksflótta af landsbyggðinni“. „Þetta eru sennilega stærstu mál sem við stöndum frammi fyrir í dag og hér er dag eftir dag, viku eftir viku rætt um hluti sem að mínu mati mættu nú bíða miðað við þá stöðu sem hér er uppi.“ Síðar benti hann á að í raun væri ekki um landsbyggðarmál að ræða heldur landsmál. „Við verðum að leggjast í þá vinnu hér í þinginu að ákveða hvemig við ætlum að lifa í þessu landi.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði m.a. aðspurður að íbúum landsbyggðarinnar hefði fækkað um 2,1% frá árinu 1990 til 1997 eða úr 109.700 í 107.700. Hann kvaðst halda að allir þingmenn hefðu áhyggjur af þessari þróun en taldi fullmikið að segja að um fólksflótta væri að ræða eins og Ami Steinar vildi meina. Ráðherra sagði ennfremur að það stæði til af hálfu ríkisstjómarinnar að endurflytja á Alþingi þingsályktunartillögu um stefnu í byggðamálum. Hann taldi að sú áætlun sem fram kæmi í tillög- unni væri mjög vel unnin en tók þó fram að hún leysti ekki endilega allan vanda. „En hún getur gefið góða viðspymu og vonandi ef vel tekst til snúið vöm í sókn.“ Ráðherra tók einnig fram að ríkisstjórnin hefði reynt að stuðla að lausn byggðamála með stefnu sinni í öðram og sambærilegum málum og tók stóriðjustefnuna sem eitt dæmi um það. Síðar í umræðunni tók hann hins vegar fram að með hugmyndum um að taka upp veiðileyfagjald væri beinlínis verið að ráðast á byggðir landsins. Stóriðja engin lausn Fjölmargir aðrir þingmenn tóku þátt í um- ræðunum og kom m.a. fram í máli þeirra að þeir væra ekki ánægðir með umrædda þróun í byggðamálum. Jón Kristjánsson, Framsóknar- flokki, sagði m.a. að þetta mál varðaði þjóðina alla og Hjörleifur Guttormsson lagði áherslu á að stóriðjuuppbygging væri ekki lausn byggða- mála. A. rrribciriclsúr ú íslcincli stcmclcist Ur eru tollfri Hjit tZvsmi&num * Helgi Guðmundsson, Laugavegi 82 • Guðmundur Hermannsson, Laugavegi 74 • Gilbert, Laugavegi 62 • Jón & Óskar, Laugavegi 61 • Franch Michelsen, Laugavegi 15 • Garðar, Lækjatö Paul E. Heide, Glæsibæ • Gullúrið, Mjódd • Jón Bjarnason, Akureyri • Halldór Ólafsson, Akureyri • George V. Hannah, Keflavik • Guðmundur B. Hannah, Akranesi • Gilbert, Grindavik • Karl R. Guðl --- Helgi Sigurðsson, Skólavörðustig 3 • Gunni Magg, Hafnarfirði • Tryggvi Ólafsson, Hafnarfirði • Birta, Egi/sstöðum • MEBA, Kringlunni • Axel Eiriksson, isafirði • Carl A. Bergmann, Lac

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.