Morgunblaðið - 23.10.1998, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Húsmóðir
þrífur
ANNA Richards dansari hefur
síðustu föstudaga verið á ferð-
inni í miðbæ Akureyrar,
göngugötunni milli Bókvals og
Bláu könnunnar og boðið þar
upp á dansgjörning. Hún
bregður sér í gervi húsmóður
og tekur til óspilltra málanna
við þrifín, en spunadans þenn-
an, sem kalla má hreingjörn-
ing nefnir hún Húsmóðir þríf-
ur. Anna verður á ferðinni í
dag kl. 16.30 og hyggst halda
áfram á sama stað og tíma í
allan vetur.
Kvenna-
kaffíboð
JAFNRÉTTISNEFND
Akureyrar efnir til menning-
arlegs og afslappaðs kvenna-
kaffiboðs í Menntasmiðju
kvenna við Glerárgötu á
morgun, laugardaginn 24.
október. Þá verða 23 ár liðin
frá því að konur efndu til svo-
nefnds kvennafrídags og fóru í
allsherjarverkfall á íslandi til
að minna á stöðu sína á vinnu-
markaði. Nú verður rætt um
hvað konur vilja gera í lok 20.
aldar, enda ekki seinna vænna
en fara að huga að 25 ára af-
mælinu.
Tíu mínútna
mót
TIU mínútna mót verður hald-
ið í skákheimilinu við Þing-
vallastræti 18 á Akureyri
föstudagskvöldið 23. október
og hefst það kl. 20.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta verður í Sval-
barðskirkju kl. 14 á sunnudag,
25. október.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli verður í
Möðruvallakirkju á sunnudag,
25. október kl. 11. Skólinn er í
umsjá Söru Helgadóttur og
Hannesar Blandon.
AKSJÓN
23. október, föstudagur
12.00^Skjáfréttir
18.1 ö^Kortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag. Endm-sýndur
kl. 18.45,19.15,19.45, 20.15 og
20.45.
21.00ÞMarmónikkuball í
Iþróttahöllinni með sænska tríó-
inu „Nya bröderna Farm“
Morgunblaðið/Kristján
Snjómokstur og mal-
bikunarframkvæmdir
FÆRÐ á götum Akureyrar var
nokkuð erfið í gærmorgun, enda
mikið krap og því var í nógu að
snúast hjá stjórnendum snjóruðn-
ingstækja bæjarins. Að sögn Jó-
hanns Aðalsteinssonar, verk-
stjóra hjá Akureyrarbæ, gekk
nokkuð vel að hreinsa helstu um-
ferðargötur og var staðan því
orðin nokkuð góð seinni partinn í
gær. „Menn ættu því að geta ver-
ið í góðum gír.“
Á sama tíma og snjóðruðnings-
tækin snérust um götur bæjarins
í norðanhríðinni, var annar
flokkur á vegum bæjarins í mal-
bikunarframkvæmdum á Hjalt-
eyrargötu en þar var verið að
gera við götuna eftir að grafinn
hafði verið skurður í gegnum
hana. „Við látum okkur snjó-
moksturinn engu skipta," sagði
Gunnþór Hákonarson, verkstjóri
hjá bænum og einn þeirra sem
var að malbika.
Gangandi vegfarendur lenda
oft í erfiðleikum með að komast
leiðar sinnar, eftir að snjóruðn-
ingstækin hafa rutt snjónum upp
á gangstéttirnar. Vinkonurnar
Anna Sigríður og Hildur Ósk létu
það þó ekkert á sig fá og voru
glaðhlakkalegar í snjóskafli á
gangbrautinni í Þverholti.
Bág staða Leikfélags Akureyrar rædd í bæjarráði
Grípa verður til víð-
tækra ráðstafana
GREINARGERÐ endurskoðanda
bæjarsjóðs Akureyrar um fjárhag
Leikfélags Akureyrar var rædd á
fundi bæjarráðs í gær, en sýnt þyk-
ir miðað við það sem þar kemur
fram að grípa verður til víðtækari
ráðstafana í fjármálum Leikfélags
Akureyrar en tillögur menningar-
málanefndar bæjarins gerðu ráð
fyrir.
Sigurður J. Sigurðsson forseti
bæjarstjórnar sagði ljóst að rekstur
og fjárfestingar leikfélagsins hefðu
farið þannig úr böndunum að við
verulegar skuldir væri nú að glíma,
en þær næmu tæpum tveimur millj-
ónum króna. Þar vega fjárfestingar
í Renniverkstæðinu m.a. þungt auk
fleiri atriða.
Sigurður sagði það mat bæjar-
ráðs að tillögur þær sem menning-
armálanefnd lagði fram í síðasta
mánuði til að leysa vanda leikfélags-
ins myndu ekki gera það miðað við
þá stöðu sem félagið væri komið í.
Tillögur nefndarinnar gengu í þá átt
að reynt var að lágmarka útgjöld
bæjarsjóðs vegna málsins í þeim
von að það myndi duga, „en það er
okkar mat að það sé engan veginn
fullnægjandi lausn,“ sagði Sigurður
en gert var ráð fyrir viðbótarfjár-
veitingu á þessu ári og hærri styrk
til rekstrarins á því næsta.
Frekari stuðnings óskað
Atvinnuleikhús verður ekki rekið
á Akureyri á sama gi-unni og Leik-
félag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið
að mati bæjarráðs með óbreyttu
sniði, þ.e. að bærinn einn beri
ábyrgð. Samþykkti bæjarráð að
óska eftir viðræðum við ríkisvaldið
um frekari stuðning við rekstur at-
vinnuleikhúss á Akureyri.
í lok næsta árs, 1999, rennur út
samstarfssamningur ríkis og bæjar
um framlög til rekstrar leikfélags-
ins. Framlögin nema samtals um 50
milljónum króna á ári. Sigurður
sagði það ekki ganga upp til lengdar
að þegar eitthvað færi úrskeiðis í
rekstrinum lenti það á Akureyrar-
bæ einum að greiða úr málum.
Stefnt er að því að ganga frá mál-
um leikfélagsins á fundi bæjarráðs í
næstu viku.
Fjárhagsáætlun
Rekstur
kostar 1,7
milljarða
REKSTRARGJÖLD Akureyrar-
bæjar á næsta ári verða 1.753 millj-
ónir króna samkvæmt ramma sem
samþykktur hefur verið á fundi bæj-
arstjórnar. Skatttekjur bæjarsjóðs
eru áætlaðar 2.240 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að 112 milljónir
króna fari í yfn-stjórn bæjarins á
næsta ári, 370 milljónir til félags-
mála, 775 milljónir til fræðslumála,
107 milljónir í menningarmál og 122
milljónir í íþrótta- og tómstundamál.
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
sagði að rekstur málaflokka næmi
um 80% af skatttekjum. Skatttekjur
breytast um 3-4% á milli ára og
rekstrargjöld hækka um 2%. Gert er
ráð fyrir að fyrri umræða um fjár-
hagsáætlun verði 1. desembér næst-
komandi og sú síðari 14. desember.
Blaðbera
vantar í Háagerði/Stóragerði.
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600
Morgunblaöið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýs-
ingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á Islandi sem er ( upplagseftirliti og eru seld að meðaltali
rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuöstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík
þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaösins.
►
Feðgar
sýna
FEÐGARNIR Gunnar og Krist-
inn G. Jóhannsson opna sýn-
ingu í Listhúsinu Þingi, Hóla-
braut 13 á Akureyri, á morgun,
laugardaginn 24. október kl.
16.
Gunnar sýnir ljósmyndir,
m.a. myndröðina „1-2 Polizei"
sem var á sýningu hans á
Mokka, Reykjavík fyrr á þessu
ári en hefur einnig verið á sýn-
ingum í Þýskalandi. Gunnar er
búsettur í Berlín og stundaði
nám í Ijómsyndun í Leipzig.
Kristinn nefnir sinn hluta
sýningarinnar „Málverk um
litbrigði jarðarinnar". Það eru
olíumálverk með tilvísun til
náttúrunnar svo sem hefur
verið með verk hans undan-
farin ár. Hefur hann gefið
sýningum nöfn í samræmi við
þetta og má þar nefna „Mál-
verk um gamburmosa og
stein“ í Reykjavík 1990, „Mál-
verk um mannabyggð“ í
Reykjavík 1991, „Málverk um
langholt og lyngmó“ 1993 og
„Málverk um feimna holtsins
fegurð“ á Akureyri 1994.
Sýningin verður opnuð kl. 16
á laugardag sein fyrr segir en
verður síðan opin daglega frá
kl. 16 til 19 en frá 14 til 19 um
helgar. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 8. nóvember
næstkomandi.