Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 15
Morgunblaðið/Ingimundur
SVEITIRNAR er tóku þátt í 13. Sparisjóðshlaupi UMSB. Efst er sveit Umf.
íslendings sem kom fyrst í mark en sveitir Skallagríms þar fyrir neðan.
Umf. Islendingur vann
Sparisjóðshlaup UMSB
Borgarnesi - Sveit Umf. íslend-
ings vann Sparisjóðshlaups
UMSB í fyrsta sinn en hlaupið
fór fram í þrettánda sinn sl.
Iaugardag. Hlaupið er 30 km
boðhlaup. I hverri sveit eru tíu
einstaklingar, þar af a.m.k.
íjórar konur. Hver einstakling-
ur hleypur þrisvar sinnum einn
kílómetra í senn.
Hlaupið hófst rétt fyrir ofan
golfvöllinn að Hamri. Hlaupið
var upp Borgarhreppinn yfír
síkisbrýmar og Hvítárbrú.
Hlaupið var fram hjá Hvann-
eyri og í Borgarnes. Endamark-
ið var fyrir framan Sparisjóð
Mýrasýslu.
Þetta var í þrettánda sinn
sem Sparisjóðshlaupið fór fram.
Sveit Skallagríms hefur hingað
til unnið hlaupið. Að þessu sinni
kom sveit Umf. Islendings fyrst
í mark á tímanum 1 klst. 59,08
mín. I öðru sæti var Góðsveit
Skallagríms á 1 klst. 11,18 mín.
og yngri sveit Skallagríms var í
þriðja sæti á 2 klst. 15,18 min.
Að hlaupi loknu bauð Spari-
sjóður Mýrasýslu upp á veitingar
í Hótel Borgamesi og þar vom
afhent verðlaun fyrir hlaupið.
Hólmarar eignast ráðhús
Stykkishólmi - Skrifstofur Stykkis-
hólmsbæjar fluttu í ný húsakynni
um síðustu helgi og hófst starfsemi
þar þriðjudaginn 20. október.
Um er að ræða gamla verslunar-
hús Kaupfélags Stykkishólms. Hús-
ið var byggt árið 1930 og rak kaup-
félagið þar verslun til ársins 1988.
Stykkishólmsbær kaupir síðan hús-
ið 16. mars árið 1990 af Sambandi
ísl. samvinnumanna, en það hafði
yfirtekið eignir kaupfélagsins
nokkru áður. Strax í upphafi var
ákveðið að bæjarskrifstofurnar
yrðu þar til húsa.
Miídar endurbætur hafa verið
gerðar á húsinu og hafa fram-
kvæmdir staðið frá árinu 1991 með
hléum. Húsið er tvær hæðir með
risi og kjallara. Ms er gólfflötur um
500 fermetrar. Á neðri hæð er al-
menn afgreiðsla, á efri hæð eru
skrifstofur. Fundaraðstaða er í ris-
inu og önnur aðstaða sem nýtist fyr-
ir margskonar starfsemi. I kjallara
verða geymslur.
Styrkir kjarnann í miðbænum
I viðtali við fréttaritara segist
Ólafur Hilmar Sverrisson bæjar-
stjóri vera mjög ánægður með
hversu vel hefur tekist til með end-
urbyggingu hússins. Starfsemi í
þessu húsi muni styrkja mjög gamla
kjarnann í miðbænum og færa
þangað meira líf. Öll aðstaða sveit-
arfélagsins gjörbreytist og styrkist.
Síðastliðin ár hafa bæjarskrifstof-
urnar verið í litlu bráðabirgðahús-
næði og segir Ólafur ótrúlegt þegar
litið er til baka hvað mikið hefur
rámast á þeim stað.
Náttúrustofa Vesturlands og
minjavörður Vesturlands og Vest-
fjarða fá aðstöðu í nýja húsinu. Áætl-
aður kostnaður við endurbygginguna
er 65 milljónir króna og er þai- inni-
falið kaupverð hússins. Ólafur Hilm-
ar segir að húsið verði að sjálfsögðu
nefnt ráðhús. „Þetta er virðulegt hús
sem ber að hafa virðulegt nafn.“
NÝTT ráðhús Stykkishólmsbæjar var tekið í notkun 20. október. Það
var byggt árið 1930 og er því 68 ára gömul bygging.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
STARFSMENN skrifstofu Stykkishólmsbæjar fyrsta vinnudaginn:
Bjarni S. Einarsson, Guðmundur Andrésson, Þórhildur Pálsdóttir, fris
Sigurbjörnsdóttir, Ólafur Hilmar Sverrisson og Sigurður Kristinsson.
Akranes
Gáma
ársgömul
GÁMA, sorpmóttökustöð Akra-
ness, er eins árs um þessar mund-
ir. Stofnun sorpmóttökustöðvar var
liður í víðtækri endurskipulagn-
ingu sorpmála á Akranesi en þau
hafa verið í endurskoðun undanfar-
in ár.
í fréttatilkynningu frá Gámu seg-
ir m.a.: „Margar nýjungar eru í at-
hugun hjá Gámu og segja má að
ýmsar þeirra gætu valdið enn meiri
byltingu í sorphirðu í bænum og
jafnvel orðið fyrirmynd annarra
sveitarfélaga. Þar má nefna að vigta
sorp í sorpbíl strax við móttöku hjá
íbúum. Með því er hægt að jafna
kostnaði á milli íbúa og það skapaði
betri skilyrði til flokkunar."
--------------
■ AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Alþýðuflokksins á Norðurlandi
vestra haldinn á Sauðárkróki 18.
október sl. fagnar þeim áföngum
sem nú þegar hafa náðst um sam-
fylkingu jafnréttis- og félags-
hyggjufólks í landinu. I ályktun
fundarins segir: „Fundurinn lýsir
fullum stuðningi við sameiginlegt
framboð Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Kvennalista í öllum
kjördæmum við næstu alþingis-
kosningar. Fundurinn telur að með
því megi vænta þeirra nauðsynlegu
'taflaskila í stjórnmálalífi þjóðarinn-
ar sem fært geti okkur með reisn
inn í 21. öldina. Fundurinn sam-
þykkir að gengið skuli til viðræðna
á Norðurlandi vestra um sameigin-
legan framboðslista Alþýðuflokks,
Alþýðubandalags og Kvennalista
við kosningarnar sem fram eiga að
fara vorið 1999. Felur fundurinn
stjóm kjördæmisráðs að annast
þessar viðræður fyrir hönd Alþýðu-
flokksins."
Húsgagnavika 23.okt til l.nóv.
Glœsilegur aldamótastíll
Tilboðsdagar í sýningarsal Blómavals,Sigtúni
á vönduðum sígildum húsgögnum. 30%-50% afsláttur.
Aðeins ein vika - sendum heim.
á vegum
COLONY ehf.
Sími 893 8100
(M)