Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 16

Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Þaö er alltaf gaman þegar nýr einstaklingur kemur íheiminn Skeifunni 17 • Sími 550 4000 • 0piövirkadaga09:00-18:00»laugardaga10:00-16:00 AKRANES - Tölvuþjónustan - 431 4311 • AKUREYRI - Tölvutœki - 462 6100 • EGILSSTAÐIR - Tölvuþjónusta Austurlands - 470 1111 • HORNAFJÖRÐUR - Tölvuþjónusta Austurlands - 478 1111 • HÚSAVÍK - E.G. Jónasson - 464 1990 • ÍSAFJÖRÐUR - Tölvuþj. Snerpa - 456 3072 REYKJANESBÆR -Tölvuvæöing - 421 4040 SAUÐÁR KRÓKUR - Skagfirðingabúö - 455 4537 • SELFOSS - Tölvu- og rafeindaþj. - 482 3184 VESTMANNAEYJAR - Tölvun - 481 1122 Tæknival - í fararbroddi GOÐ HUGMYND FfEÐIR fl F SÉR . . . . . . flÐRfi ENN BETRI NYJfl ÖFLUGfl HEIMILISTÖLVflN FRÁ COMPflQ fl VERÐI FRfl KR. 121.900 6 manaSa cf'* Internetaskrift fylgir Intemet s/cer öllum viö Nýja heimilistölvan frá Compaq, Presario, er ein öflugasta og fullkomnasta heimilistölva sem fáanleg er í dag. PRESARIO Presario býður upp á ótoI möguleiko til vinnu og leiks ó heimilinu, m.a. að: • fara inn á Internetið • sjó bíómyndir (DVD) • færa heimilis- bókhaldið • læra heima • sendo og fó tölvupóst • stunda bankaviðskipti ... og svo mætti enda- laust telja Gerðu þér ferð í Tæknival og kynntu þér eina fullkomnustu heimilistölvu sem markaðurinn hefur upp á aö bjóða - á einstöku verði. Tæknival TAKMARKAÐ MAGN Auk alls búnaðar sem finna má í öðrum góðum heimilis- tölvum, svo sem öflugs mótalds fyrir Internetið og allt að 6,0Gb harðs disks, er hægt að fá Presario tölvuna með innbyggðu DVD drifi sem gerir notendum kleift að horfa á bíómyndir á skjánum í bestu hugsaniegu myndgæðum. Compaq Presario er tilbúin til notkunar beint úr kassanum. Kögun kaupir 20 prósent í INTIS KÖGUN hf. hefur keypt 20% hlut í netfyrirtækinu INTIS af Sjálfseign- arstofnun Verslunarráðs íslands um viðskiptamenntun. Kaupverð bréfanna nam 27 milljónum króna samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins og hefur verðmæti þeirra meira en fjórfaldast á tæpum tveim- ur árum. Sjálfseignarstofnun Verslunar- ráðs íslands um viðskiptamenntun sér um rekstur Verslunarskóla ís- lands og Viðskiptaháskólans í Reykjavík. Hún keypti 20% hluta- bréfa í INTIS í lok ársins 1996 í því skyni að fylgjast með þróun á Net- inu og tengjast fyrirtækjum með þekkingu á því sviði. Árni Árnason, formaður stjórnar Sjálfseignar- stofnunar Verslunarráðs Islands um viðskiptamenntun, segir að þessi faglegu markmið hafí nú náðst og því hafí verið ákveðið að selja hlutabréfin að nýju. „Við höfum náð tilganginum með fjárfestingunni og munum áfram viðhalda þekkingu okkar og ánægjulegum samskiptum Verðmæti bréf- anna rúmlega fjórfaldast á tveimur árum við aðila á þessum markaði.“ Nafnvirði bréfanna er þrjár millj- ónir og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru þau keypt á genginu 2 í árslok 1996 eða á sex milljónir króna. Bréfín voru boðin tuttugu aðilum til kaups og átti Kögun hf. hæsta tilboðið. Hljóðaði það upp á gengið 9 eða 27 milljónir króna. Á tæpum tveimur árum hef- ur verðmæti bréfanna rúmlega fjór- faldast og það aukist um 21 milljón króna. INTIS er heildsala á sviði netað- gangs sem þjónar flestum íslensk- um netnotendum, úthlutar lénum og sinnir margvíslegri netþjónustu. Það veitir grunnaðgang að Netinu, ekki beint til einstaklinga, heldur til stofnana og fyrirtækja, en almennir notendur fá síðan aðgang að netinu með búnaði þeirra. Fyrirtækið er í eigu um fjörutíu aðila og Kögun verður nú annar stærsti hluthafinn á eftir Háskóla íslands, sem á 27%. Ríkissjóður á 13% en hyggst selja eignarhluta sinn á næsta ári. INTÍS mikilvægt fyrir íslenskan hugbúnaðariðnað Gunnlaugur Sigmundsson, fram- kvæmdastjóri Kögunar, segir að ákveðið hafi verið að fjárfesta í Intis hf. þar sem það hafi þýðingarmiklu hlutverki að gegna fyrir hugbúnað- ariðnaðinn. „Við viljum leggja okk- ar af mörkum til að tryggja að þessi þjónusta verði sem best og band- vídd verði aukin í samræmi við þarf- ir fyrirtækjanna. Þessir hlutir þurfa að vera ef íslenskur hugbúnaðariðn- aður á að vaxa og dafna og búa við sambærileg starfsskilyrði og erlend samkeppnisfyrirtæki," segir Gunn- laugur. Tillögur að magninnkaupum á tækjabúnaði fyrir slökkvilið Endumýja með nýj- um búum og tækjum Morgunblaðið/Kristinn HRÓLFUR Jónsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Hilmar Pálsson og Sig- mundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, kynntu efni skýrslunnar. AF 173 slökkvibifreiðum á landinu eru 125 orðnar 20 ára eða eldri og sumar þeirra eru jafnvel frá því á stríðsárunum. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem boðað var til í gær í tilefni af útgáfu skýrslu sem nefnd á vegum stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Eignar- haldsfélagið Brunabótafélag Islands, EBI, vann með það að markmiði að gera tillögur um fyrirkomulag magninnkaupa á tækjabúnaði fyrir slökkvilið á landinu. Fram kom að ástandið í bíla- og tækjamálum slökkviliða í sveitarfélögum úti á landi er óviðunandi og hái slökkvilið- um staðanna í starfi. Vilhjálmur Vilhjálmsson formaður Sambands Islenskra sveitarfélaga sagði að sveitarfélög á landinu þyrftu að gera átak í úrbótum í brunavörnum. I skýrslunni er lögð áhersla á að ekki eigi að endurnýja búnað með notuðum tækjum, eins og hingað til hefur verið gert í sveitarfélögum úti á landi, heldur skuli efla brunavarnir með nýjum og fullkomun tækjabún- aði sem tryggir öryggi til lengri tíma. Nefndin kannaði ýmsa möguleika til fjármögnunar á kaupum búnaðar og mun EBI bjóða upp á fjánnögnun kaupa á bílum og búnaði hvort sem er með lánum eða sem milliliðir við aðrar fjármálastofnanir. Gamall búnaður letjandi Á blaðamannafundinum voru m.a. fulltrúar frá slökkviliðum úti á landi, sem sæti áttu í nefndinni, og í máli þeirra kom fram að ekki einungis væri óviðunandi öryggisins vegna að vera með gamla slökkvibíla og búnað heldur væri erfiðara að fá menn til starfa við slökkviliðið, væri búnaður lakur. I Reykjavík og á Akureyri hefur ástand slökkviliðsbílaflotans verið ívið betri þar sem endumýjað hefur verið með nýjum bflum, þó nýjasti bfllinn í flota Reykvikinga sé þegar orðinn átta ára gamall, eins og kom fram í máli Hrólfs Jónssonar slökkviliðsstjóra í Reykjavík. Vilhjálmur Vilhjálmsson formaður Sambands íslenskra sveitai-félaga sagðist ánægður með skýrsluna og sagði að sveitarfélögin þyrftu að gera átak til að koma brunavörnum í sem best form og sagði þessa sam- vinnu Sambandsins og EBI við gerð skýrslunnar lið í að koma hreyfingu á málin. „Eg vil að sveitarfélögin setji markið hátt í þessum mikilvæga málaflokki og noti besta fáanlega búnað í brunavörnum. Það skýtur því skökku við að sveitarfélögin hafa verið að kaupa notaða bfla sem upp- fylla ekki fyllstu gæðakröfur," sagði Vilhjálmur. Hilmar Pálsson forstjóri EBI sagði að næsti áfangi yrði að hafa samband við sveitastjórnir og kanna áhuga þeirra á að taka þátt í magninnkaupum fjármögnuðum af EBI. Hrólfur Jónsson sagði að hingað til hefði því verið haldið á lofti að hagstæðara væri að kaupa notaða slökkvibíla en í skýrslunni sé sýnt fram á hið gagnstæða. Slökkvibúnaði víða ábótavant Á fundinum kom einnig fram að úti á landi er búnaði til slökkvistarfs víða ábótavant eða að hann er hrein- lega ekki til staðar, eins og til dæmis væri raunin víða með reykköfunar- búnað. Ur því væri brýnt að bæta. Hagnaður hjá Boeing Seattle. Reuters. BOEING, mesti flugvélafram- leiðandi heims, hefur skýrt frá 347 milljóna dollara hagnaði á þriðja ársfjórðungi af 12% söluaukningu miðað við tap upp á 696 milljónir dollara á sama tíma í fyrra. Að sögn íýrirtækisins nem- ur hagnaður á hlutabréf 36 sentum miðað við 72 senta tap á sama tíma í fyrra. Danir lækka vexti Kaupmannaliöfn. Reuter. DANSKI seðlabankinn hefur lækkað vexti á skuldabréfum í endursölu og bankabréfum í 4,65% úr 4,75%. Forvextir verða óbreyttir, eða 4,25%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.