Morgunblaðið - 23.10.1998, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Tyrkir
krefjast
framsals
Ocalans
MESUT Yilmaz, forsætisráð-
herra Tyrklands, fór í gær
fram á það við rússnesk stjóm-
völd að þau framseldu Abdullah
Ocalan, leiðtoga skæruliða-
sveita Kúrda, en Tyrkir halda
því fram að Ocalan hafi nýverið
flúið til Moskvu eftir að hafa
dvalist í Sýrlandi. Tyrkir hót-
uðu nýverið hernaðarárásum á
Sýrland framseldu þarlend
stjómvöld ekki Ocalan en átök-
um milli landanna virðist hafa
verið afstýrt.
Adams þekkist
boð Arafats
FULLTRÚAR , Sinn Féin,
stjómmálaarms írska lýðveld-
ishersins, sögðu í gær að Gerry
Adams, leið-
togi flokksins,
hefði ákveðið
að þeklgast
boð Yassers
Arafats, leið-
toga Palest-
ínumanna, um
að heimsækja
sjálfstjómar-
hérað Palestínu í Miðaustur-
löndum. Ræddust þeir við sím-
leiðis á miðvikudag.
Annan
óánægður
KOFI Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagðist í gær ósáttur við að
Bandaríkja-
menn skyldu
ekki hafa
greitt þann
eina milljarð
Bandaríkja-
dala, tæplega
70 milljarða
ísl. kr., sem
þeir skulda
SÞ og sagði að stjórnvöld í
Washington gætu ekki ætlast
til þess að þau fengju að halda
áhrifum í samfélagi þjóðanna ef
þau greiddu ekki gjöld sín.
De Gaulle til
liðs við Le Pen?
FRÖNSK dagblöð leiddu í gær
að því líkur að Charles de
Gaulle, elsta bamabarn de
Gaulles fyrrverandi leiðtoga
Frakklands, yrði í framboði
fyrir Þjóðfylkinguna, flokk
öfgamannsins Jean Marie Le
Pen, í kosningum til Evrópu-
þingsins næstkomandi vor.
Þjóðfylkingarmenn hafa jafnan
fyrirlitið arfleifð de Gaulles
hershöfðingja en líklegt er að
Le Pen geti aflað sér mikillar
athygli takist honum að fá de
Gaulle hinn yngri á sitt band.
Gerry Adams
POLLINI
ESB spáir minni hagvexti í Bretlandi en í öðrum ESB-ríkjum
Hart veist að Blair
vegna samdráttar
London, Brussel. Reuters, The Daily Telegraph.
Reuters
Minnisvarði
Alberts
endurreistur
ELÍSABET Bretadrottning af-
hjúpaði í fyrrakvöld endurreist-
an minnisvarða um langalangafa
sinn, Albert prins, eiginmann
Viktoríu drottningar. Viðgerð-
irnarkostuðu 11 milljónir
punda, andvirði tæpra 1,3 millj-
arða króna, og þetta er í fyrsta
sinn f 80 ár sem minnisvarðinn
er endurreistur og færður í sína
upprunalegu mynd með þremur
lögum af blaðgulli.
„Eg gleðst yfír því að minnis-
varða Alberts hefur verið
bjargað með svo ástríkum og
rausnarlegum hætti,“ sagði
drottningin.
Flugeldum var skotið á loft í
tilefni af afhjúpuninni í London.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hefur sætt harðri gagn-
rýni íhaldsmanna vegna minnkandi
hagvaxtar í landinu og frétta um að
bílafyrirtækið Rover hyggist segja
upp 2.400 starfsmönnum stærstu
bílaverksmiðju landsins vegna sam-
dráttarins. Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hefur spáð því
að hagvöxturinn í Bretlandi verði
mun minni en í öllum öðrum aðild-
arríkjum sambandsins á næsta ári
og Blair viðurkenndi á breska þing-
inu í fyrradag að framundan væru
„erfiðir tfmar“ fyrir Breta.
William Hague, leiðtogi íhalds-
flokksins, gagnrýndi frammistöðu
stjómarinnar í efnahagsmálum á
þinginu, sakaði Blair um að hafa
sýnt „stórfurðulegt andvaraleysi“ í
atvinnumálum og gloprað niður
„blómlegri efnahagsarfleifð“ íhalds-
manna.
Blair lýsti viðvörunum Hagues
um aukið atvinnuleysi og samdrátt
sem „heimskulegri móðursýki" og
sagði að stjórnin myndi ekki falla
frá áformun sínum um að auka út-
gjöldin til heilbrigðis- og mennta-
mála um 40 milljarða punda, and-
virði 4.600 milljarða króna.
Forsætisráðherrann hæddist
einnig að yfirlýsingum íhaldsmanna
um að efnahagssamdrátturinn
myndi valda 36 milljarða punda
Áform um fjölda-
uppsagnir hjá
Rover auka vanda
sljórnarinnar
„svartholi" í rikissjóðnum. „Svai’t-
holið er þar sem heili íhaldsflokks-
ins hefur verið,“ sagði hann.
BMW vill draga
saman seglin
Þessi hvössu orðaskipti benda til
þess að breski efnahagurinn verði
helsta deilumál flokkanna á breska
þinginu í vetur. Peter Mandelson,
viðskipta- og iðnaðarráðherra, stað-
festi á þinginu að Rover hygðist
fækka starfsmönnum sínum í
stærstu bílaverksmiðju Bretlands,
sem er í Birmingham, í sparnaðar-
skyni vegna tapreksturs. Verka-
lýðsforingjar sögðu að ástandið
væri „miklu verra“ en þeir hefðu
talið en Mandelson lagði áherslu á
að fyrirtækið yrði sjálft að leysa
vandann og stjórnin kæmi því ekki
til hjálpar.
Mandelson ræddi málið í gær við
Bernd Pischetsrieder, stjómarfor-
mann þýska bílafyrirtækisins
BMW, sem keypti Rover árið 1994,
en engar ákvarðanir voru teknar
um framtíð bílaverksmiðjunnar.
Ákveðið var í júlí að starfsmönnum
hennar yrði fækkað um 1.500 og
BMW vill að 2.400 til viðbótar verði
sagt upp.
ESB spáir 1,3%
hagvexti
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins (ESB) spáði því í fyrradag
að hagvöxturinn í Bretlandi yrði að-
eins 1,3% á næsta ári, með hliðsjón
af áhrifum efnahagskreppunnar í
Asíu og Rússlandi. Búist er við að í
ár verði hagvöxtur meiri í Bretlandi
en í tveimur aðildarríkjum ESB,
Danmörku og ftalíu, en fram-
kvæmdastjórnin spáði því að á
næsta ári yrði hagvöxturinn lang-
minnstur í Bretlandi af öllum ríkj-
unum 15.
Embættismenn ESB sögðu að
hátt gengi pundsins og tiltölulega
háir vextir í Bretlandi væru megin-
ástæðan, auk stöðu landsins í efna-
hagshringrás heimsins.
Virtur breskur hagfræðingur,
Gavyn Davies, varaði Vesturlönd
við því að telja sig ónæm fyrir áhrif-
um kreppunnar í Asíu. Astandið í
efnahagsmálum heimsins væri
„býsna alvarlegt“ að ýmsu leyti og
Vesturlönd þyrftu að lækka vexti
frekar til að stuðla að auknum hag-
vexti og knýja fram róttækar breyt-
ingar á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Schröder sagður hafa hafnað þátttöku
í minningarathöfn um lok fyrra stríðs
„ViII sýna nýtt
andlit Þýzkalands“
London. The Daily Telegraph.
GERHARD Sehröder, verðandi
kanzlari Þýzkalands, hefur hafnað
því að vera viðstaddur táknræna
minningarathöfn, sem Jacques
Chirac Frakklandsforseti hafði
stungið upp á að efnt yrði til þegar
80 ár eru liðin frá því vopnin hljóðn-
uðu í heimsstyrjöldinni fyrri, sam-
kvæmt upplýsingum brezka blaðins
The Daily Telegraph.
„Okkur var sagt að Schröder
hefði svarað því til að hann vildi
nýtt Þýzkaland sem sýndi heimin-
um nýtt andlit en ekki ásjónu sekt-
arkenndar," hafði blaðið eftir hátt-
settum frönskum embættismanni.
Chirac hafði lagt til, að til þess að
minnast þess að 80 ár væru liðin frá
því vopnahlé var samið í styrjöld-
inni í Evrópu 8. nóvember næst-
komandi, myndu fara fram tvær
sameiginlegar fransk-þýzkar minn-
ingarathafnir, önnur á frönskum
vígvelli og hin við Aachen, Þýzka-
landsmegin við landamærin.
Að sögn franska embættismanns-
ins hafnaði Schröder ekki aðeins
eigin þátttöku í athöfnunum, heldui-
hafnaði hann allri opinberri þátt-
töku af hálfu þýzkra stjórnvalda í
þeim.
Helmut Kohl, sem gegnir kanzl-
araembættinu formlega fram í
næstu viku, mun þegar hafa þekkzt
boðið um þátttöku „í grundvallarat-
riðum“, en það hefði orðið hlutverk
Schröders að mæta til athafnarinn-
ar í Vrigne-Meuse í Ardennafjöll-
um, síðasta vígvellinum þar sem
franskir og þýzkir hermenn létu líf-
ið í orrustu í stríðinu.
Talsmaður Schröders sagði
ástæðu þess að hann gæti ekki tekið
þátt í athöfninni einfalda; annirnar
væru of miklar á þessum tíma. En
Frakkar, sem nú þegar eru
áhyggjufullir yfir því yfirlýsta
markmiði Schröders að breyta
fransk-þýzka öxlinum í fransk-
brezk-þýzkan „þríhyrning", þykjast
mega túlka miklu meira út úr
ákvörðun hans.
Alnæmismaður
veldur ótta
Stokkhólmi. Reuters.
SÆNSKA lögreglan leitar nú al-
næmissmitaðs manns, sem hafði
mök við að minnsta kosti 70 til 80
konur og óttast er að hann hafi
smitað margar þeirra.
Sænskir fjölmiðlar skýrðu fyrst
frá leitinni fyrr í vikunni þegar
lögreglan fann minnisbók með
nöfnum 200 ungra kvenna við leit
í íbúð hans vegna gruns um að
hann hefði nauðgað konu.
„Við vitum að hann hafði mök við
70-80 konur og þær eru líklega
fleiri sem við vitum ekki um,“ sagði
talsmaður lögreglunnar. Konumai’
bíða nú eftir alnæmisprófum til að
ganga úr skugga um hvort þær
hafi smitast af sjúkdómnum.
Margar sænskar konur eru
skelfingu lostnar vegna málsins
og hafa hringt í lögregluna til að
afla upplýsinga um manninn.
Lögreglan telur að maðurinn sé
Irani en hafi gengið undir fölsku
nafni, James Kimball, í mörg ár
tO að villa á sér heimildir.
Reuters
Barist í
Bangla-
desh
EINN maður lést og um 130
manns slösuðust þegar hundruð
stjórnarandstæðinga í Bangla-
desh lentu í átökum við lögregl-
una í höfuðborginni Dhaka í
gær á meðan á átta stunda
verkfalli stóð. Þetta var þriðja
verkfall sinnar tegundar á einni
viku en Begum Khaleda Zia,
talsmaður sljórnarandstöðunn-
ar og fyrrverandi forsætisráð-
herra, sagði verkföllin þátt í
herferð sem ætlað er að þvinga
Sheikh Hasina forsætisráðherra
til afsagnar en Zia segir „ólýð-
ræðislega" ríkisstjórn hans
kúga almenning í Bangladesh.
D’Alema kynnir stefnu nýrrar stjórnar
Afram haldið á
braut umbóta
Róm. Reuters.
MASSIMO D’Alema sagði í fyrstu
þingræðu sinni sem nýr forsætis-
ráðherra Ítalíu í gær að ríkisstjórn
hans myndi sama dag samþykkja
ný drög að fjárlögum næsta árs,
sem yrðu að uppistöðu þau sömu og
hin fallna stjóm Romanos Prodis
hafði lagt fram.
D’Alema, sem tók í fyrradag við
sem leiðtogi 56. ríkisstjórnar Italíu
eftir lok síðari heimsstyrjaldar,
sagði miðju-vinstristjórn sína ætla
að helga krafta sína því að halda
áfram umbótum í ríkisfjármálum,
halda áfram einkavæðingu ríkis-
fyrirtækja og að láta hana ná
einnig til opinberrar þjónustu og
ekki sízt baráttunnar gegn at-
vinnuleysi.
Hann sagði stjómina einnig ætla
sér að hrinda í framkvæmd aðgerð-
um til að efla þróun hins fátækari
suðurhluta landsins og hefja víð-
tækar umbætur á stjórnkerfinu,
einkum kosningakerfinu.
D’Alema, sem er fyrrverandi
kommúnisti og fer nú fyrir Lýð-
ræðislega vinstriflokknum, stærsta
flokknum á Ítalíuþingi, tók skýrt
fram að Ítalía myndi virða allar al-
þjóðlegar skuldbindingar sínar, svo
sem gagnvart Atlantshafsbandalag-
inu. Þar með vildi hann vísa á bug
áhyggjum af að sú staðreynd, að
marxistar skyldu setjast í ráð-
herrastóla í hinni nýju stjórn,
myndi hafa neikvæð áhrif á virkni
Ítalíu innan NATO.