Morgunblaðið - 23.10.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
BILL Clinton Bandaríkjaforseti ræðir við Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, og Benjamfn Netanyahu, forsætisráðherra ísraels,
ásamt samningamönnum, í Wye Mills í gær.
Leikræn tilþrif í friðarviðræðum
Hvað vakti
fyrir Benjamín
Netanyahu?
Jerúsalem. Reuters.
FJÖLMIÐLAR víða um heim
veltu í gær vöngum yfír því hvað
hefði vakað fyrir Benjamín Net-
anyahu, forsætisráðherra Israels,
er hann gaf ísraelsku samninga-
nefndinni skipun um að pakka nið-
ur föggum sínum og binda enda á
friðarviðræðurnar við Palestínu-
menn í Wye Mills í Bandaríkjunum
á miðvikudag.
Netanyahu gaf sjálfur þá skýr-
ingu að Yasser Arafat, leiðtogi Pa-
lestínumanna, hefði reynst ófáan-
legur til að fallast á kröfur um að
Palestínumenn skuldbyndu sig til
að framselja aibrotamenn sem eft-
irlýstir eru í Israel, og að palest-
ínska sjálfsstjórnarþingið feOdi
niður ákall um upprætingu ísraels-
ríkis úr stjórnarsáttmálanum.
Stjórnmálaskýrendur hafa leitt
getum að því að hin raunverulega
ástæða hafi þó verið sú að Net-
anyahu hafi viljað sýna gagn-
rýnendum sínum heima fyrir að
hann léti ekki svo auðveldlega
undan þrýstingi Bandaríkja-
manna. Haft var eftir embættis-
manni, sem tengst hefur viðræð-
unum, að það væri vissulega freist-
andi fyrir hann að gefa Palestínu-
mönnum til kynna að hann væri
reiðubúinn að semja, en ekki á
bandarískri grund. Bent hefur ver-
ið á að þótt Netanyahu og Arafat
virðist fyrirlíta hvor annan geri
þeir sér báðir grein fyrir því að
það sé í beggja hag að samningar
náist. Þeir geti í sjálfu sér undir-
ritað samkomulag hvar og hvenær
sem er, en Bandaríkjastjórn hafi
hinsvegar mesta hagsmuni af því
að málið verði leitt til lykta í Wye
Mills.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
átti frumkvæði að viðræðunum og
hefur varið hátt í 60 klukkustund-
um með deiluaðilum. Netanyahu
veit fullvel hvað er í húfi fyrir
Clinton að samningar takist áður
en gengið verður til þingkosninga
3. nóvember næstkomandi. Vera
kann að hann sé tregur til að veita
Clinton þann sigur, minnugur þess
að hann lýsti nánast opinberlega
yfir stuðningi við Shimon Peres,
helsta andstæðing Netanyahus, í
kosningunum árið 1996. Sjálfur
hefur Netanyahu haft á orði að
Likud-flokkur sinn sé „ísraelsk út-
gáfa Repúblikanaflokksins“.
Steminningin eins og á
arabískum útimarkaði
Hvað svo sem vakti fyrir Net-
anyahu er þetta ekki í fyrsta sinn
sem gripið er til leikrænna tilþrifa
er Arabar og Israelar sitja við
samningaborðið. Jafnvel þegar
annar aðilinn missir stjórn á skapi
sínu og hinn ypptir öxlum með
uppgerðarundrun, má allt eins bú-
ast við að tímamótasamkomulag sé
í burðarliðnum.
James Baker, iyrrverandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, þótti
lipur samningamaður, og átti stór-
an þátt í að koma á fyrstu friðar-
ráðstefnunni milli Israela og Pal-
estínumanna í Madríd fyrir sjö ár-
um. Hann líkti friðarumleitunum í
Mið-Austurlöndum við stemmning-
una á arabískum útimarkaði, eftir
að Palestínumenn kröfðust veru-
legra tilslakana aðeins tveimur vik-
um áður en viðræður áttu að hefj-
ast. __
„Ég hef fengið mig fullsaddan af
þessu. Hjá ykkur er eins og mark-
aðnum sé aldrei lokað“, sagði Bak-
er og strunsaði út úr fundarher-
berginu þegar Palestínumenn
byrjuðu að prútta. Samningamenn-
irnir þrábáðu hann að koma aftur,
en hann sagðist ekki myndu taka
upp þráðinn nema þeir féllu frá
kröfum sínum. Palestínumenn
samþykktu það samstundis, en
Baker tók þá á taugum og lét þá
bíða eftir svari í stundarfjórðung,
að því er sagan segir.
Frægt er orðið þegar Baker
missti þolinmæðina gagnvart Isra-
elsmönnum, las upp símanúmerið í
Hvíta húsinu á samningafundi og
sagði „Hringið í okkur þegar ykkur
er alvara um að vilja frið.“
Uppnám í beinni
útsendingu
Minnstu munaði að allt færi í bál
og brand í beinni sjónvarpsútsend-
ingu í Kaíró árið 1994. Yasser Ara-
fat var í þann mund að skrifa undir
samkomulag, sem veitti Palestínu-
mönnum sjálfsstjórn á Gaza-svæð-
inu og í borginni Hebron á Vestur-
bakkanum, er hann fékk skyndi-
lega áhyggjur af því að ef til vill
væri hann að gefa of mikið eftir, og
ýtti blaðinu frá sér án þess að
kvitta.
Yitzhak Rabin, þáverandi for-
sætisráðherra Israels, skellti hnef-
anum í borðið og gekk í burtu.
Upphófst þá mikil rekistefna, og
þurfti milligöngu átta embættis-
manna frá Egyptalandi, Israel,
Palestínu, Rússlandi og Bandaríkj-
unum, áður en Rabin og Arafat
fengust loks til að undirrita samn-
inginn. „Heimurinn hefur séð glitta
í topp ísjakans af þeim vandamál-
um sem við munum þurfa að takast
á við“, sagði Rabin að fundinum
loknum.
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 21
I þjónustuíbúð hjá
Unni Arngríms
s BA9nA9i“i<?nnn
Félagsbústaðir hf.
Skráning skuldabréfa á Veröbréfaþingi ísiands
Útgefandi:
Lýsing á flokknum:
Nafnverö útgáfu:
Gjalddagar:
Félagsbústaðir hf. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík,
kt. 510497-2799.
Heiti flokksins er 1. flokkur A 1997. Bréfin eru verðtryggð til 30
ára og bera 5% árlega vexti. Greiddar eru 30 árlegar jafnar
afborganir af bréfunum, í fyrsta skipti 16. júní 1998.
Nafnverð er kr. 850.000.000.
Fyrsti gjalddagi er 16. júní 1998, síðan árlega, 16. júní ár hvert,
með lokagjalddaga 16. júní 2027
Skráningardagur á VÞÍ: Bréfin verða skráð á VÞÍ þann 27. október 1998.
Viöskiptavakt á VÞÍ:
Búnaðarbankinn Verðbréf verður með viðskiptavakt á flokknum
á VÞÍ.
Umsjón með skráningu: Búnaðarbankinn Verðbréf, kt. 491296-2249. Hafnarstræti 5,
155 Reykjavík.
Upplýsingar varðandi ofangreind skuldabréf liggja
frammi hjá Búnaðarbankanum Verðbréf
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Sími: 525-6070 Fax: 525-6099
Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
NR.118 7. TBL.1998
KR. 789 M/VSK
HUS DOMARANS
TEKKIÐ SNYR AFTUR
FRONSK AHRIF I HEIMAEY
UMVAFIN HLÝJU Á FRAKKASTÍG
FYRSTA ÍJBÚÐIN
um ofna o