Morgunblaðið - 23.10.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 23.10.1998, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Einu KVIKMYMIIR IVorræna barnainyndahátfðin Rognboginn BÖRN GLERBLÁSARANS „GLASBLÁSARANS BARN“ ick'k Leikstjórn og handrit: Anders Grönros. Byggð á samnefndri skáldsögu Maria Gripe. Fram- leiðandi: Anders Birkeland. Aðaihlutverk: Stellan Skarsgárd, Pernilla August. Sænsk. 1998. BÖRNIN Klas og Klara búa hjá foreldrum sínum í stórum skógi. Faðirinn er glerblásari og annálað- ur í héraðinu fyrir Mstfengi en móðirin vildi óska þess að hann skipti sér meira af henni og er stundum pirruð út í börnin; sleppir því einu sinni út úr sér að hún vildi fá frið fyrir þeim. Sú ósk á illu heilli eftir að rætast því herrag- arðseigandi einn lætur ræna böm- unum handa konunni sinni sem hann elskar mikið og vill allt gera fyrir. Hún hafði nefnt það að hún óskaði þess að eignast böm og — sinni var Ungur prins svona fer maður hennar að því að uppfylla ósk hennar. En þau vita ekkert hvað þau eiga að gera við börn og óska sér bamfóstm er birtist þeim í líki voðakvendis sem gerir Frenjuna í Matthildi að lítilli kisulóru. Bama- og fjölskyldumyndin Börn glerblásarans eftir Anders Grönros, sem er ein af fjölmörgum myndum á Norrænni bama- myndahátíð í Regnboganum, er byggð upp í anda klassísku ævin- týranna og fær ýmislegt lánað úr þeim um leið og höfundurinn, And- ers Grönros, reynir að segja frá á frumlegan og ferskan hátt. Lík- lega er innihaldið full flókið og snúið fyrir börn en hin myndræna úrvinnsla ætti að geta haldið þeim við efnið. Myndin lýsir undraheimi þar sem nornir em partur af mannlífinu og forspáir hrafnar þeirra kranka eineygðir (búnir að missa augað í viskubranninn), töfrahringur gegnir miklu hlut- verki, barnfóstrasadisti kemur mjög við sögu og uppfylltar óskir og aðrar glataðar era þungamiðjan í frásögninni. Myndin fjallar um margt sem við kemur samskiptum foreldra og bama í sögu um fátæka fólkið í skóginum annars vegar og yfir- stéttina í kastalanum hins vegar og kannski ólík viðhorf til bama og barnauppeldis. Hún er öðram þræði um ótta foreldra við að missa börnin sín sakir vanrækslu og hún er um uppfylltar óskir sem kalla á lífsleiða svo ekkert rúm er lengur fyrir drauma. Hvort nokkur krakki geti ráðið í rúnir myndarinnar er svo annað mál. Myndin er ágætlega leikin, krakkarnir gera fína hluti og full- orðnu leikararnir, Stellan Skars- gárd og Pemilla August, sem kannski era þekktust á sínu sviði nú um stundir á Norðurlöndunum, gera margt gott úr foreldrahlut- verkunum. Það vill teygjast óþ- arflega mikið á söguþræðinum en annars er hér um athygUsverða og forvitnilega mynd að ræða. Arnaldur Indriðason og örg fól KVIKMYIVDIR Norræna bui'iiamv nilahátfði n Rcgnboginn ARNARAUGA (ÖRNENS ÖJE) Leikstjóri Peter Flinth. Handrits- höfundur Nikolaj Scherfig. Tónsmið- ur Sören Hyldgaard. Kvikmynda- tökustjóri Eric Kress. Aðalleikendur Nfjas Örnbak-Fjeldmose, Lasse Baunkilde, Lars Lohmann, Björn Granath, Maj Bockhahn Bjerregaard, Björn Floberg. 91 mín. Dönsk. Metronome 1997 DANAVELDI á þrettándu öld. Ófriðarblikur á lofti, konungur- inn (Lars Lohmann) send- ir son sinn, rfkis- arfann Valdemar (Nijas Ömbak- Fjeldemose), á öruggan stað, í latínunám til Eskills biskups (Björn Granath) á meðan hann lemur á óvininum. Bisk- up hugsar sér gott til glóðarinnar, varpar prinsi í dýflissuna og undir- býr valdarán með fulltingi riddarans eineygða (Björn Floberg). Valdemar sér við uppreisnarseggjum, strýkur úr haldi með aðstoð vinar síns Aske (Lasse Baunkilde) og kemur fóður sínum til hjálpar. Amarauga er ein fjölda langra barna- og unglingamynda, flokkast því sem fjölskyldumynd, ætluð börn- um fyrst og fremst. Efnið er hins vegar heldur einhæft og efnistökin um of einfólduð fyrir fullorðna. Myndin ætti að nýtast smáfólkinu betur, spuming þó hvort hún sé ekki fuU löng og gróf fyrir þeirra smekk. Arnarauga er þó ekki langdregin, þokkalega gerð að mörgu leyti, snaggaralegt myndmálið minnir á teiknimyndafrásögn. Það hefur einnig sína vankanta því ekki er nein umtalsverð tengsl að finna á milli áhorfandans og aðalpersónanna, þær eru aðsópslitlar. Leikararnir ungu, Ömbak-Fjeldemose og Lasse Baunkilde, fara bærilega með sín hlutvetrk og hinir eldri skila sömu- leiðis einfólduðum manngerðunum með ágætum. Ómennin fá sem endranær bestu línurnar og túlkar Bjöm Granath biskupsafmánina á skemmtilega gustmikinn hátt, sömu- leiðis Björn Floberg sem eineygði riddarinn. Hér svífur snoturt ævin- týri yfir vötnunum. Sæbjörn Valdimarsson Setníng Ungtistar '98 verður T Ráðhúsi Reykjavíkur, föstudaginn 23. október kl. 20. Ljósmynda-, myndlistar og stuttmyndamaraþoní verður ýtt út vör. Einnig verður hönnunarsýning Iðnskólans opnuð. Meðal þeírra sem koma fram eru Jóel Pálsson, saxófónleikari, sem kynnir geislaplötuna Prím, Valgerður Guðrún Guðnadóttír og Garðar Thór Cortes sem syngja dúetta við undirleik Krystynar Cortes og dansarar frá listsmiöju Baha’ía. Vest-norræn kvikmyndahátíð HÁSKÓLABÍÓ stendur dagana 23. október til 2. nóvember fyrir fyrstu vest-norrænu kvikmyndahátíðinni sem haldin hefur verið. Sýndar verða þrjár myndir, Hjarta ljóssins (Qaamamgup uummataa /Lysets hjerte) eftir Jacob Gronlykke, Bar- bara eftir Nils Malmros og Dansinn eftir Ágúst Guðmundsson. Jacob Gronlykke, leikstjóri Hjarta ljóssins, er danskur en meðhandrits- höfundur hans, Hans A. Lynge, er grænlenskur og myndin er sú fyrsta sem gerð er á Grænlandi, tekin ein- göngu þar og að mestu töluð græn- lenska í henni þótt danskan slæðist með. Hún rekur harmsögu fjöl- skyldu sem er klofin í afstöðu til nútímans og stjórnar Dana. Barbara eftir danska leikstjórann Nils Malmros er gerð eftir sögu færeysk/danska rithöfundarins Jorgen-Frantz Jaeobsen sem byggð er á gamalli færeyskri goðsögn. Myndin var tekin að öllu leyti í Færeyjum. Barbara er ekkja tveggja presta í Færeyjum og þegar sá þriðji hittir hana fellur hann flat- ur, og það þrátt fyrir allar viðvaranir. Súrefiniwriir Karin Herzog • vinna gcgn öldriuiareinkennuin • endurupphyggja iiúðiiia • vinna á appelsúudiúð og sliti • vinna á unglingabóluin • viðhalda ferskleika liúðarinuar Ferskir vindar í umhirðu húðar Ráðgjöf og kynning í Hringbrautarapóteki í dag kl. 14-18 Kynningarafsláttur Dansinn eftir Ágúst Guðmundsson er byggð á smásögu færeyska rit- höfundarins Williams Heinesens sem skrifaði öll rit sín á dönsku. Myndin, sem tekin er í Færeyjum og á Islandi, segir frá brúðkaupi á örsmárri eyju í ógnþrungnu Atlants- hafinu þar sem dansa á í þrjá daga. Dularfullir atburðir gerast hins veg- ar og setja strik í reikninginn og ým- is öfl vilja koma í veg fyrir dansinn. -------«>4------- Sýningum lýkur Gerðarsafn SÝNINGU Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur, Drottningar um stund, og sýningu Ólafar Einarsdótt- ur á þrívíðum textílverkum lýkur nú á sunnudag. Gerðarsafn er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-18. Listasafn ASÍ Sýningu Ólafar Erlu Bjarnadóttur og Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur lýk- ur nú á sunnudag. Kjarvalsstaðir Sýningunni -30/+60, sýning á verkum tveggja kynslóða íslenskra listamanna, lýkur nú á sunnudag. Kjarvalstaðir eru opnir alla daga kl. 10-18. intra Stálvaskar Intra stálvaskamir fást í möigum stærðum og gerðum. Þessi vaskur ber nafnið Eurora og hefur hlotið maigvíslegar viðurkenningar fyrir frábæra hönnun. Fæst í byggingavöruverslunum um landallt. Heildsöludreifing: Stniðjuvegi 11. Kópavogi Tenciehf Sími 564 1088.fax 564 1089

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.