Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 27

Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 27 Sagan endur- tekur sig SÁ SEM hér heldur á penna hefir nýlokið við að lesa yfirgrips- mikla ævisögu Jóseps Goebbels hins þýzka. Allt fyrnist og einnig fádæmin. Þessvegna er hætt við að yngri kynslóðin geri sér ekki grein fyrir hver sá maður var og mála- fylgja hans. Hann hef- ir verið nefndur áróð- ursmeistari allra tíma. Og víst er um það að hann beitti áður óþekktri tækni í áróðri með afleiðingum skelfilegri en orð fá lýst. Hann sagði svart hvítt og lygi sannleika og hélzt það uppi, einnegin vegna þess að enginn hafði leyfi til þess að andmæla honum, eins og tíðkað er í einræðislöndum. Þótt ólíku sé vissulega saman að jafna fer ekki hjá því að hin ótrú- Enginn læs maður er svo skyni skroppinn og utangátta, segir Sverrir Hermannsson, að hann sjái ekki til botns í málinu þótt gruggugt sé. lega ævisaga Þjóðverjans sæki á hugann, þegar fyrir augu og eyru koma hin nýju áróðursbrögð léns- herranna í íslenzkum sjávarútvegi, þar sem öllu _ er öfugt snúið. Leigupenni Utvegsmannafélags Norðurlands ritar enn eina grein- ina í gamal-þýzkum stíl í Morgun- blaðið miðvikudaginn 21. þ.m. Fyr- irsögn greinarinnar er eftir því. „Vaxandi sátt um sjávarútveginn“, stendur þar og innihaldið í sam- ræmi við hana. Hvorum megin á Sjöstjörnunni skyldi sá maður eiga heima sem lætur sér slíka fullyrð- ingu um munn líða? Það er fomt máltæki, að betra sé að veifa röngu tré en öngu. Til þess ráðs greip forsætisráðherra þegar hann í hásætisræðu varpaði fram þeirri sérkennilegu hugmynd að leysa mætti lénsveldið af hólmi með því að selja hinum raunveru- legu eigendum sjávarauðlindarinn- ar, almenningi, hlutabréf í sjávar- útvegsfyrirtækjum til „rimelige priser“. Framkvæmdin yrði þá væntanlega með þeim hætti að sett yrðu lög á Alþingi, sem neyddu eigendur fyrirtækjanna til að selja ríkinu svo og svo stóran hlut í fyr- irtækjum sínum. Síðan myndi ríkið selja hlutabréfin almenningi - fyrst þeim sem engin eiga auðvitað - með ríflegum afslætti, sem greidd- ur yrði með nýjum skattaálögum á hina sömu. Væri þá hringavitleys- an fullkomnuð. Snælduhali Útvegsmannafélags Norðurlands telur að þessi hug- mynd sé þess virði að vera athug- uð, enda eru sægreifarnir tilbúnir í hvað sem er ef þeir aðeins fá frið til að arðnýta lungann úr þjóðarauð- lindinni fyrir sig og sína. T.d. er Ágúst Einarsson, alþingismaður, tillögumaður um auðlindaskatt í þeirri von að á það myndu menn sættast og hann fá frið með kvót- ann sinn og þeir bræður báðir. Auðlindaskattur er engin lausn, enda myndu eigendur Skinneyjar á Hornafirði og H.B. á Akranesi verða fljótir til, með aðstoð stúku- bræðra í Sjálfstæðisflokknum, að festa í lög að auðlindaskattur kæmi til frádráttar öðrum sköttum fyrir- tækjanna. Út yfir tekur þó þegar í fyrr- greindri þulu er tekinn upp ómeng- aður áróður LÍÚ úr opnuauglýsingu í Morgunblaðinu, en það er líka þýzk kenn- ing að margendurtekin lygi festi rætur sem sannleikur óðar en varir. Fimleikamaðurinn norðlenzki segir svo orðrétt: „Það er ánægjulegt að geta bent á það, í þessu samhengi, að eigna- dreifing í sjávarútvegi er mjög mikil nú þeg- ar. Lítum á tíu stærstu sj ávarútvegsfyrirtæki landsins. I eigendahópi þeirra eru a.m.k. 13.790 einstaklingar, 7.269 stór og smá fjárfestingafyrirtæki í ýmsum greinum, lífeyrissjóðir með 154.289 félaga, hlutabréfasjóðir og fjárfestingafélög með a.m.k. 56.343 eigendur og bæjar- og sveitarfélög með 27.197 íbúa.“ Þessi vinnubrögð þarfnast ekki skýringa. Enginn læs maður er svo skyni skroppinn og utangátta að hann sjái ekki til botns í málinu þótt gruggugt sé. I stað þess að elta ólar við slíka endileysu verður hér varpað fram nokkrum spurn- ingum til þess að lesendur geti glöggvað sig betur á „eignadreif- ingunni". 1. Er það rétt, að 3 - þrír - menn eigi um 75% í Samherja á Akureyri? 2. Er það rétt að hlutur hvers og eins teljist um 4 - fjórir - milljarð- ar - fjögur þúsund milljónir króna? 3. Hvað eiga „dreifðu“ eignarað- ilarnir í Samherja hver um sig? 4. Er það rétt, að af nýrri úthlut- un „gjafakvóta" á liðnu sumri hafi hlutur Samherja numið nær 1 - einum - milljarði króna og hlutur hvers aðaleiganda þar af leiðandi um 250 milljónum króna? 5. Hvað er svokallaður „skip- stjórakvóti"? 6. Er það rétt, að einum af þrem- ur aðaleigendum Samherja hafi verið úthlutaður „skipstjórakvóti" sem nam 4.318 þorskígildistonnum, þegar hann gekk úr skiprúmi hjá ÚA og tók við Akureynni? 7. Hvers virði er sá kvóti í dag? Væri kannski hægt að selja hann á 3.756 milijónir króna? 8. Tók Samherji til sín skattfrítt á árinu 1994-5 leigu af karfakvóta og rækju í eign alþjóðar fyrir kr. 314.586.000 - þrjúhundruðogfjórt- ánmilljónir fimmhundruðátta- tíuogsexþúsund ? 9. Er það dæmi um „eignadreif- ingu“ í sjávarátvegi, að 25 stærstu fyrirtækin „eigi“ yfir helming af öllum aflaheimildum? 10. Er það rétt, að „viðbótar- gjafakvótinn" til þessara fyrir- tækja á liðnu sumri hafi að and- virði numið rúmlega 13 þúsund milljónum króna? Skutulsveini þeirra nyrðra ætti ekki að verða skotaskuld úr að svara þessum spurningum. Hann hefir aðgang að öllum upplýsingum. En sagan endurtekur sig. Nú ætla lénsherrar sjávarins að heila- þvo íslenzka þjóð með gegndar- lausum áróðri í arískum stíl frá fyrrihluta aldarinnar og greiða fyr- ir umsýsluna það sem upp verður sett. Og úr ytri vasa kvótaúlpunnar munu þessir gjafþegar ríkisstjórn- arflokkanna taka hundruð milljóna og afhenda þeim til „gottgjörelsis" sér í kosningabaráttunni á vori komanda. Vald peninganna mun ekki láta að sér hæða, ef að líkum lætur. Af því tilefni mun Hannes Hólm- steinn ljúka sérstökum lofsyrðum á þróun lýðræðisins á íslandi og „Nýmyndun eignarréttinda". Höfundur er fv. bankastjóri. Sverrir Hermannsson Hver gagnrýnir hvern? ÞÆTTIR Þrastar Helgasonar í Útvarpinu þrjá laugardaga í sept- ember og október eru með því gagnmerkasta sem heyrst hefur á öld- um ljósvakans um ís; lenska listgagnrýni. I fáeinum afmörkuðum samtölum við listamenn á ýmsum sviðum hefur Þröstur brugðið ljósi á vanda og viðfang inn- lendrar gagnrýni, í bók- menntum, leiklist, tón- list og myndlist. Það er athyglisvert hve Þresti veitist auð- velt að blása til um- ræðu án þess að þurfa að draga allt út úr viðmælendum sínum með töngum. Miklu fremur þurfti hann að hafa á þeim taum- hald svo afmarkaður útsendingar- tíminn fuðraði ekki upp í einni ákafri allsherjarkrufningu. Með því að kalla til möguleg fórnarlömb í áð- urnefndum greinum lista losaði Þröstur um málbeinið á þeim sem töldu sér með einhverjum hætti ógnað af almennri gagnrýni. Sjálfan sig lagði hann hins vegar undir sem eins konar blóraböggul og varði sig og sína með skjaldborg útdrátta af málþingi því sem hann stýrði á dög- unumj Odda, hugvísindasetri Há- skóla Islands. Það er ekki auðvelt að brydda upp á umræðu um jafnviðkvæm mál og listgagnrýni, né finna kjarnann í slíku samtali. Svo fjálglega sem listamenn tjá sig um vankanta og vonsku gagnrýnenda gleyma þeir oftast þeirri grundvall- arstaðreynd að engin gagnrýni er jafnbitur og óvægin og þeirra eigin orðræða um kollega sem þeir telja að standi sig ekki sem skyldi. Til dæmis hefur undirritaður á tuttugu ára ferli sínum aldrei vogað sér að nota orð- bragð í líkingu við það sem hann hefur oft heyrt listamenn við- hafa um aðra lista- menn. Hugtökin heið- arleiki og einlægni, sem oft skýtur upp í orðaforða undirritaðs, Staða gagnrýnenda í samfélagi lista, segír Halidór Björn Runólfs- son, er álíka eftirsókn- arverð og staða gyð- inga í samfélagi bænda. eiga því aldrei við um afstöðu eins listamanns til annars heldur ein- göngu um afstöðu listamanns til sjálfs sín og eigin viðfangsefnis. Nú er það svo að íslensk gagnrýni verður að teljast miklum takmörk- unum háð. Einungis bókmenntum er boðið upp á þann munað að um þær sé fjallað í sérstökum tímaritum og þar með í lengra máli en sem nemur dálki eða tveim. Og þó segi ég meira en ég get staðið við því að fæstum ís- lenskum bókmenntatímaritum virð- ist ætlað að fjalla um leikhús sem bókmenntir. Umfjöllun um leikrit og uppfærslu þeirra er með öðrum orð- um ekki talin eiga heima á sama vettvangi og umfjöllun um skáldsög- ur, smásögur og ljóð. Ekki veit ég hvað ræður þessari sundurgreiningu nema ef vera kynni heimska. Þá minntist enginn viðmælenda Þrastar á þá augljósu staðreynd að afkoma hamlar þróun gagnrýni á öll- um sviðum. Gagnrýnendur fá sama og ekkert í sinn vasa þótt þeir reyni að sinna starfi sínu af natni. Þar sem Islendingar neita að flokka gagnrýni undú bókmenntir - rúmum 130 ár- um eftir andlát Charles Baudelaire og 80 árum eftir enn sviplegra fráfall Guillaume Apollinaire - er staða þeirra í samfélagi lista álíka eftir- sóknarverð og staða gyðinga í sam- félagi bænda. Vonandi berum við gæfu til að heyra Þröst taka sem fyrst aðra og dýpri syrpu um málið á öldum ljós- vakans, ekki er vanþörf á. Á meðan íslenskir listamenn eiga jafnerfitt með að slíta sig frá spegilmynd sinni og Narkissus forðum daga eru þeir ófærir um að gá kringum sig og sjá hvernig menningarlegt og list- rænt bakland þeirra lítur út. Að meta slíkt kalt og yfirvegað þykh- svo óendanlega krefjandi og leiðin- legt. Því er líklegt að sá eitraði bik- ar falli okkur gagnrýnendum í skaut, svona eins og svo mörg önnur skítverk sem vinna þarf í þágu ís- lenskrar menningar. Höfundur er myndlistar- gag’nrýnandi. Halldór Björn Runólfsson EiOEnn] o GfiiDlMni? o fígáMD Œ0(íMeqBSM1md QmiM] Q^GgMliO^SIE^oaiEMi^ ORMSSONHF Sími 533 2800 |^ÓWiRMS?utvarpsmagnari með 2? stöðva minni • Geislaspilari Aðskilin bassi og diskant Stafræn tenging Tviskiptur hátalari (2-way) 80W Mini-disk spilari kostar kr. 49.900. (ekki innifalið i verði). NS-5 Heimabió 4x30W RMS-útvarpsmagnafrmeð 24 stöðva minni • 5 hátaíarar Geislaspilari • Aðsldinfibassi* '^ og diskant • StafrænJengingj Tvískiptur hátalári (2-wav,ll50wll ÍRríggjávara ábyrgðfáráílum Pioneewhljðmfliltningsfækjunv MJJómtæki skipta miálH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.