Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 34

Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ 3 t. Bruðl og for- gangsröðun Þessi hugmyndafrœði krefst því augsýnilega pólitísks hugrekkis; yfir- lýsinga í þá veru að tiltekin verkefni í samfélaginu hljóti að teljast mikilvægari en önnur. _ Forgangsröðun er eitt þeirra hugtaka sem nútímaleg stjórnmál ættu að grundvallast á. Pessi hugmynd felur í sér að verkefnin séu í raun óendanleg í samfélaginu og að þeim beri að raða í forgangs- röð þar eð aldregi verði til reiðu nægilegir peningar til að sinna þeim öllum í einu. Það sé síðan á verksviði ráðamanna í þjóðfélag- inu hverju sinni að ákvarða þessa forgangsröðun í sem nán- ustu samráði við fólkið sem í landinu býr. Þessi hugmynda- fræði krefst því VIÐHORF augsýnilega ------ pólitísks hug- Eftir Ásgeir rekkis;yfirlýs- Sverrisson inga í þá veru að tiltekin verkefni í samfélaginu hljóti að teljast mikilvægari en önnur. Þessi hugmynd hefur aldrei náð raunverulegri fótfestu á ís- landi. Fyrir því eru margar ástæður. Nefna má að engar hefðir eru fyrir því hér á landi að efnt sé til skipulegra umræðna um hvernig peningum skatt- borgaranna er varið. Þá hefur pólitískt hugrekki löngum þótt lítt til vinsælda fallið á Islandi líkt og í ljós kom á sínum tíma er svonefndur „flatur niðurskurð- ur“ var ákveðinn í ríkiskerfinu þegar harðnaði á dalnum. Þar með komust þáverandi valdhafar hjá því að taka óvinsælar ákvarðanir í nafni forgangs- röðunar. Forgangsröðun segir ýmislegt um samfélagið og þjóðfélags- gerðina. Hún leiðir einnig í Ijós á hvaða þroskastigi stjórnmál eru í tilteknu landi. Við skoðun verður ekki sagt að slík gi'eining verði til þess að auka reisn íslensku þjóðarinnar. Raunar er það svo að sjaldan sem aldrei er þess freistað að fá fram raunveruleg- an vilja meirihluta þjóðarinnar í þessum efnum. Hvaða hugmynd- ir skyldu íslendingar almennt gera sér um eðlilega og rétt- mæta forgangsröðun í samfélag- inu? Ætli lýðurinn í landinu sé al- mennt sáttur við þá forgangs- röðun sem birtist í hamslausri og með öllu ástæðulausri útþenslu utanríkisþjónustunnar? Skyldu íslendingar upp til hópa vera sammála þeirri forgangsröðun sem birtist í því er ákveðið var að byggja sendiráð í Berlín fyrir 335 milljónir króna? Ætli það sama gildi um þau áform sem uppi eru um að auka framlög til utanríkisþjónustunnar um 300 milljónir króna á ári? Skyldi ríkja almenn ánægja meðal þjóð- arinnar sökum þess að ákveðið hefur verið að verja 335 milljón- um króna til að minnast landa- fundaafmælisins í Vesturheimi árið 2000? Er þá ekki við hæfi að upplýsa skattborgarana um hvað kristnitökuhátíð ríkiskirkjunnar sama ár kemur til með að kosta að frátöldum þeim 50 milljónum króna sem varið verður til vega- bóta í þjóðgarðinum á Þingvöll- um? Og loks er að nefna þá for- gangsröðun sem birtist í ákvörðun Reykjavíkurborgar og ríkisvaldsins að verja samtals 510 milljónum króna af al- mannafé árið 2000 þegar Reykjavík mun eiga að bætast í hóp evrópskra menningarborga. A sama tíma og forgangs- röðun íslenskra ráðamanna kem- ur fram með svo afdráttarlaus- um hætti bíða hundruð gamal- menna eftir vistun á hjúkrunar- heimilum. Hundruð manna bíða eftir bæklunaraðgerðum. Hjartasjúklingar eru sömuleiðis ofurseldir biðlistakerfinu. Sjúkradeildum er lokað í sparnaðarskyni. Sjúklingum er gert að liggja á göngum sjúkra- húsa. Stéttir, sem sinna geðveik- um, öldruðum og öryrkjum fá þau skilaboð frá samfélaginu að störf þeirra séu lítils metin. Sú afstaða er áréttuð í launaumslög- unum um hver mánaðamót. I grunnskólum landsins eru gerð- ar sífellt meiri kröfur til kenn- ara, sem sinna einnig störfum sálfræðinga og hjúkrunarstétta í sívaxandi mæli. Forgangsröðun- in, sem blasir við þessu fólki op- inberast því einnig um hver mánaðamót. Itrekað hefur komið fram að stór hluti barna og ung- linga, sem eiga við geðræn vandamál að stríða fær ekki nauðsynlega umönnun. Biðtími eftir meðferð fyi'ir unga vímu- efnaneytendur er nú átta mán- uðir. Þetta er hin íslenska for- gangsröðun. Mikilvægara er talið að byggja steinkastala í útlöndum en sinna þörfum þeirra verst settu. Mikilvægara er talið að fjölga sendifulltrúum erlendis en bæta kjör þeirra láglaunastétta sem sinna erfið- ustu þjónustustörfunum í vel- ferðarkerfinu. Mikilvægara er talið að efna til innihaldslausra hátíðarhalda í nafni menningar- innar en að bæta kjör þeirra sem hafa með höndum upp- fræðslu ungra íslendinga. Minnimáttarkenndin þjóðlega lýsir sér í grátbroslegri viðleitni til að ganga í augun á útlending- um með því að halda á lofti ímyndaðri sérstöðu og hámenn- ingu íslensku þjóðarinnar. Forgangsröðunin gefur því miður vísbendingu um á hvaða menningarstigi íslenskt samfélag stendur. Taka ber fram að það verðmætamat sem birtist í þess- um ákvörðunum er engan veginn bundið við forustumenn þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr. Vinstrimenn í Reykjavík mótuðu þá forgangsröðun, sem felst í 275 milljóna króna framlaginu vegna „menningarársins" og fulltrúar allra flokka töldu brýna nauðsyn bera til að útgjöld utanríkisráðu- neytisins yrðu aukin um 300 milljónir króna á ári. Forgangsröðun verkefna er ekki eðlileg í þessu landi. Það er með öllu ótækt að almenningi sé gert að standa undir kostnaði vegna ákvarðana, sem ein- vörðungu verða taldar fráleitar ekki síst með tilliti til þeirra risavöxnu verkefna, er blasa við á vettvangi mennta- og heil- brigðismála. Þessi tvö svið sam- félagsins greina sig klárlega frá öðrum hvað mikilvægi snertir og eiga að ganga fyrir. Forgangsröðun krefst vitund- ar um siðferðislegt inntak starfa stjórnmálamannsins og pólitísks hugrekkis. + Arinbjörn Þórar- insson, Krumma- hólum 2, Reykjavík, var fæddur á Djúpalæk í Skeggja- staðahreppi 9. janú- ar 1929. Hann lést á Landspítalanum 12. október síðastliðinn, 69 ára að aldri. For- eldrar hans voru hjónin Þórarinn Ein- arsson og Jóhanna Jónasdóttir sem bjuggu allan sinn bú- skap á Djúpalæk. Ari, eins og hann var yfirleitt kallaður, var þriðji í röð sjö systkina. Þijú af þeim létust á undan Ara: Einar, f. 26. 11. 1925, Ari ólst upp á Djúpalæk hjá for- eldrum sínum. A heimilinu voru einnig afi hans og Gunna frænka og áttu þau drjúgan þátt í heimilishaldi og uppeldi systkinanna. Þegar aldur leyfði fóru þau systkin oft til vinnu utan heimilis. Var Ari þá í vega- vinnu, hafnargerð og fleiru sem til féll. Eftir að Þórarinn bóndi féll frá 1955 hélt Jóhanna áfram búskap með bömum sínum, sem á næstu árum fóru alfarin að heiman, en lengst var Ari með búskap, eða til ársins 1963. Þá fór Djúpilækur í eyði og hefur verið svo síðan. Jóhanna fylgdi dætrum sínum eftir að hún fór frá Djúpalæk. Hún lést í Reykjavík árið 1972. Eftir að Ari fór frá Djúpalæk lá leiðin austur til Egilsstaða en þar starfaði hann hjá Rarik um fimm ára skeið. Þaðan fluttist hann til Akureyrar þar sem hann var í heimili hjá Aðalsteini bróður sínum og þáverandi konu hans, Guðlaugu Jónsdóttur, sem bjuggu þá á Akureyri. Ari hóf störf hjá verksmiðjum SÍS og seinna hjá Vatnsveitu Akureyrar þar til hann fluttist til Reykjavíkur. Meðan Ari var á Akureyri og öll árin síðan var hann öðru hvoru hjá Dísu frænku sinni og Flosa í Höfða í Höfðahverfi við ýmis störf: Sauðburð, fjárrekstur í sumarhaga, d. 1927; Kristín, f. 4. 4. 1927, d. 13.3. 1992 og stúlka fædd and- vana 23.12. 1938. Eftirlifandi eru Að- alsteinn, Svanhildur og Þórdís, öll búsett í Reykjavík. Iljá Svanhildi og Arna manni hennar átti Ari heiniili frá því hann fluttist til Reykjavíkur til dauðadags eða í 18 ár. Ari vai' ókvæntur og barnlaus. Utför Arinbjarnar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. göngur og fleira. Síðast var hann þar fyrir rúmum tveim mánuðum við dúntekju í æðarvarpi. Á Akur- eyri átti hann hesta og hafði af því mikla ánægju. Hann var mikið gef- inn fyrir skepnur og skipuðu þar hross og sauðfé öndvegi. Hann var glöggur fjármaður og þekkti fleiri fjármörk og mundi en margur ann- ar. Ekki þurfti hann langan tíma til að átta sig á hvort hestur var þess virði að gefa honum frekari gaum. Eftir að Ari flutti til Reykjavíkur starfaði hann hjá Olís við Álfta- bakka þar til hann lét af störfum um síðustu áramót. Eg veit ekki til þess að neinn sem Ari starfaði hjá eða samstarfsmenn hafi kvartað undan störfum hans, en ég trúi því að margir af viðskiptavinum stöðvarinnar sakni þess að hitta hann ekki lengur og njóta góðrar þjónustu hans. Hann kynntist mörgum í gegnum þetta starf sitt; en ég ætla ekki að fjölyrða frekar um það né önnur störf hans. Hól, þótt verðskuldað væri, var honum síst að skapi. Skjótt skipast veður í lofti. Það eru ekki nema tveir mánuðir síðan Ari fór suður úr sinni árvissu sum- arferð norður í land sem tók yfir- leitt um tvo mánuði. Þá dvaldi hann á Akureyri, í Höfða og hjá Laufeyju foðursystur sinni á Bjarmalandi sem byggt er í Djúpalækjarlandi. Tengsl hans við heimabyggðina voru mjög sterk. Hann hefði getað tekið undir með Kristjáni fóður- bróður sínum í Ijóðinu „Til Strand- ar“ en hér fylgja íyrsta og síðasta erindi þess: Ég ann þér, bemskubyggðin mín, meé bæjaröð og yrkta jörð, með hálsa, drög og holtin þín og hvamm og sand og nes og fjörð. Að hnjúkatám sig teygir lyng og töðugrös um fjörugrjót. Þig mai'ka fjöll í hálfan hring, en haf á mót. Ég ann þér heitt, mín æskusveit. Hve oft við brjóst þitt sæll ég var. Og enn er best í bernsku reit og bjart um allt, sem man ég þar. Þótt ég eigi að una hér og yrkja jörð, sem kallast mín, ég sé þig hinst í huga mér og hverf til þín. (Kristján frá Djúpalæk) Ari heimsótti oft frændur og vini á Ströndinni og Beggu föðursystur sína og Hálfdán á Kirkjumel í Norðfirði. I þessum sumarferðum sínum dvaldi hann fyrstu sumrin á Akureyri hjá Aðalsteini bróður sín- um en mörg þau síðustu var hann hjá okkur Jónínu í Helga- magrastræti 36 og hjá Aðalheiði föðursystur sinni. Það var með Ara eins og farfuglana. Hann kom íyrir- varalaust. Þá var sumarið komið. Þegar hann fór á sama hátt var haustið í nánd. Það var okkur ljúft að hafa Ara á heimili okkar. Hann var einstaklega prúður og tillits- samur í allri umgengni, fróður um menn og málefni og minnugur um liðna tíma. Við þökkum honum fyrir samveruna og alla hjálpina sem hann veitti okkur við það sem við vorum að bjástra á þessum árum: endurbætur á húsi, lóð og fleira. Það hvarflaði ekki að okkur að koma hans í sumar yrði sú síðasta. Hann virtist við góða heilsu. Meðan á dvöl hans stóð vorum við ýmislegt að gera, meðal annars að mála bílskúrinn og húsþakið og ekki sást á Ara nema allt væri í lagi. Ari var heilsuhraustur alla tíð fram að því að hann fékk hjartaáfall fyrir um það bil tveimur og hálfu ári. Þá fór hann í fyrsta sinn á sjúkrahús. Hann náði góðum bata eftir það, en ARINBJÖRN ÞÓRARINSSON ÞORFINNUR EGILSSON + Þorfinnur Eg- ilsson fæddist á fsafirði 26. ágúst 1940. Hann and- aðist á Landspítal- anum 14. október síðastliðinn eftir skammvinn veik- indi. Þorfinnur var sonur hjónanna Ástrúnar Jónsdótt- ur frá Miðbæ í Norðfírði og Egils Þorfinnssonar skipasmíðameistara í Keflavík en hann var fæddur og upp- alinn á Spóastöðum í Biskups- tungum. Lifa þau bæði son sinn. Einnig eiga þau eina dóttur Steinunni fædda 1948. Skömmu eftir fæðingu fluttist Þorfinnur ásamt foreldrum sínum til Keflavíkur þar sem faðir hans tók við verkstjórastöðu í drátt- arbraut Keflavíkur. Þorfinnur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Margrét Thordersen og átti hann með henni tvö börn: Egil, f. 27.8. 1963, og Sigþrúði, f. 27.8. 1967. Einnig átti Þorfinnur eitt barnabarn sem er Stefán Barði, f. 23.7. 1986 og er hann sonur Egils og fyrrum sambýlis- konu hans Krist- jönu Barðadóttur. Þorfinnur og Margrét slitu sam- vistum 1973. Seinni eiginkona Þorfinns var Kristín Hjardar. Þau voru barnlaus og slitu samvistum 1988. Þorfinnur lauk landsprófi í Kefla- vík 1956. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 1960. Hann lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla íslands 1967 og rak upp frá því eigin lögfræðiskrifstofu til æviloka. Ennfremur var hann umsvifa- mikill fasteignasali og skipa- miðlari um langt árabil og hafði umboð fyrir ýmis erlend vöru- merki. Útför Þorfinns fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Jarðsett verður í Skálholtskirkjugarði. Ég ætla ekki að fara að rekja ævi föður míns nákvæmlega, heldur langar mig til þess að minnast hans með nokkrum orðum og hans jákvæðu hliða og þeirrar hjálpfýsi sem hann átti til þegar hans nánustu áttu í erfiðleikum. Hann var á marg- an hátt margbrotinn persónuleiki og kannski ekki allra en eftir því sem fólk kynntist honum betur kom í ljós að hann var bóngóður og veitti mörgum hjálp sem leituðu til hans í erfiðleikum og á ég, Egill sonur hans, honum margt að þakka hvort sem það snerist um peninga eða að mig vantaði andlegan stuðning ef eitthvað bjátaði á. Einnig reyndist hann syni mínum einstakur afí og eftir margar samverustundir sem þeir áttu í sumar held ég að Stefán sonur minn hafi verið búinn að eign- ast einn sinn besta vin. Mér og Dúu systur minni reyndist hann mjög hjálpsamur þegar við hófum búskap með mökum okkar og höfðum lítið í höndunum til að byrja með. Þá var hann boðinn og búinn til að hjálpa okkur á allan þann hátt sem hann gat til þess að við gætum eignast fal- leg heimili. Einn góðan kost hafði faðir minn, stundum kom fyrir að okkur sinnaðist, fórum í fýlu og töluðumst ekki við í nokkrar vikur en á endanum kom hann alltaf til mín eftir nokkrar vikur með sáttar- hönd, bauð mér í mat eða bíó og aldrei minntist hann á fyrri ágrein- ing okkar. Alltaf gátum við fyrirgef- ið hvor öðrum þótt við værum báðir þverhausar. Nú síðustu árin átti hann við erfið veikindi að stríða sem drógu úr starfsþreki hans sem var mjög leitt því að á sínum tíma rak hann stórt fyrirtæki og var stórtæk- ur í margskonar viðskiptum en því miður komu veikindi og önnur áföll í lífi hans í veg iyrir að hann gæti haldið áfram á brautinni upp á við. Síðustu árin, þegar margt hvíldi á þér, þá fórst þú oft austur að Spóastöðum þar sem foreldrar þínir eiga sumarbústað. Þar undir þú þér vel og virtist öðlast innri frið og góða hvíld sem þér svo sannarlega veitti ekki af. En nú er komið að leiðarlokum og þú búinn að fá þá hvíld sem þú eflaust varst farinn að þrá. En þinn persónuleiki, sérstæði húmor og stórhugur áttu fáa sína líka. Að öllum öðrum ólöstuðum vil ég færa Páli Ólafssyni og fjölskyldu sérstakar þakkir fyrir ómetanlega hjálpsemi og fórnfýsi í garð föður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.