Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 41
MINNINGAR
legt fyrir mig. Þú munt alltaf eiga
vísan stað í hjarta mínu.
Þinn dóttursonur,
Birkir Jóhannsson.
Elsku afí minn. Þú varst besti afi í
heimi en núna ertu farinn frá mér.
Ég man svo vel þegar ég hringdi til
þín á laugardagsmorgnum og bað þig
um að koma með mér í Kolaportið.
Þá varst þú alltaf tilbúinn að koma
hvemig sem stóð á hjá þér. Ég man
líka svo vel eftir sunnudagsmorgnum
þegar þú fórst með mér í bama-
messu. Það var alltaf gott að koma
til þín því þú tókst svo fagnandi á
móti mér og varst svo uppörvandi
við mig. Afi minn, ég mun sakna þín
mjög mikið en það er svo gott að
eiga minningar um besta afann í
heimi.
Þitt barnabam,
Harpa.
„... Og sumarsólin skein á sundin
blá, og út við unnarstein lék aldan
smá..." kvað Örn Araar. Þessi fagri
sígildi óður um Eyjarnar átti sannar-
lega við, er við minntumst þess á
undurfögrum júlídögum, að 25 ár
voru liðin frá lokum jarðeldanna
1973.
Meðal aufúsugesta sem fógnuðu
með okkur var kær vinur, Eyþór
Þórðarson frá Sléttabóli, sem við
kveðjum í dag.
Þótt Eyþór yrði fyrir þeirri stóru
sorg og lífsreynslu á unglingsaldri
ásamt móður sinni og systkinum að
sjá á bak föður sínum í hina votu
gröf, var hann tengdari átthögum
hér en almennt gerist hjá þeim sem
fluttust héðan fyrir áratugum.
Taugin slitnaði aldrei og síðustu
árin þegar fleiri tómstundir gáfust,
kom Eyþór ótal sinnum og ávallt er
haldið var upp á minnisverða at-
burði.
Eyþór hafði um áratugi safnað
öllu ritmáli, sem út var gefið um Eyj-
arnar, og er ekki kunnugt um annað
eins safn í einstaklingseigu.
Hann vann síðustu árin á Þjóð-
skjalasafninu, þar var réttur maður
á réttum stað. Þótt Eyþór hefði ekki
prófgráðu í fræðunum, var hann vin-
sæll starfsmaður, ekki síst hjá þeim
er til hans leituðu. Hann hafði ein-
staklega fágaða framkomu og lagði
sig fram af ljúfmennsku að leysa
málin.
Þeir Eyjamenn, sem fundu sér
skjól á Suðurnesjum í upphafi jarð-
eldanna 1973, minnast allir með
þökkum hve Eyþór og félagar hans
þar reyndust fjölskyldunum vel við
úrlausn húsnæðismála sem voru
mörgum hvað erfiðust áður en Við-
lagasjóðshúsin vom komin upp. Öll
sú fyrirhöfn og vinna sem sjálfboða-
liðar unnu verður aldrei fullþökkuð.
I framhaldinu var stofnað átthagafé-
lag á Suðurnesjum og starfar það
ennþá.
Eyþór var fræðasjór, lærdómsríkt
var að ræða við hann um menn og
málefni. Þekking hans á fólki og ætt-
um var einstök. Hann hafði undan-
farið unnið ötullega að ættartölu
Long-ættarinnar sem nýlega er
komin út, áhugavert og yftrgrips-
mikið rit.
Eyþór átti því stærsta láni að
fagna að eignast tryggan lífsfóm-
naut, Svanlaugu Jóhannsdóttur, sem
bjó honum og dætmm þeirra einkar
fagurt og glæsilegt heimili sem gott
hefur verið að vera velkominn á. Ég
minnist Eyþórs með söknuði, þakka
Guði gjöfula vináttu sem óx með ár-
unum.
Drottinn blessi Svanlaugu, dætur
og fjölskyldur þeirra um ókomin ár.
Jóhann Friðfinnsson.
Tómleikinn sækir á nú þegar
kvaddur er góður vinur til margra
ára. Eyþór vinur minn var fyrir-
mynd á flestum sviðum heiðai-legur,
vandaður, vinnusamur og orðvar.
Hann var fæddur í Vestmannaeyjum
á Sléttabóli við Skólaveg 4. nóvem-
ber 1925, sonur hjónanna Þórðar
Þórðarsonar skipstjóra og konu hans
Guðfinnu Stefánsdóttur. Eyþór
missti föður sinn 1942, en hann
drukknaði á vetrarvertíð í Vest-
mannaeyjum, þá var Eyþór aðeisn
16 ára. Eftir andlát fóðurins létti
hann mikið undir með heimilis-
rekstrinum á Sléttabóli og stóð þétt
við hlið móður sinnar. Ungur að ár-
um fór hann í sveit eða frá 6 ára
aldri, en þá dvaldi hann sumarlangt í
Hrútafellskoti undir Eyjafjöllum,
sumarlaunin vom jafnan í formi ein-
hverra landbúnaðarafurða og kom
Eyþór því færandi hendi að hausti
þótt ungur væri að ámm.
Fjórtán ára byrjaði hann til sjós
en þá réð hann sig sem háseta á sfld-
arbát við Norðurlandið, stundaði
hann þessar veiðar um þriggja ára
skeið. Afskiptum Eyþórs af sfldinni
vai' hvergi lokið þegar þessum veiði-
ferðum lauk því að um fimm ára
skeið vann hann við sfldarverksmiðj-
ur á Norðurlandi, bæði á Raufar-
höfn, stað sem hann hafði alveg sér-
stakar taugar til alla tíð og einnig
vai' hann um skeið á Siglufirði. Ég
held að enginn staður á jörðinni hafi
samt staðið hjarta hans nær en
æskustöðvamar Vestmannaeyjar,
harn talaði svo oft um Eyjamar,
mannlífið og gömlu minningarnar,
hann þekkti nánast alla í Eyjum
þrátt fyrir langa fjarveru og fylgdist
grannt með öllu sem fram fór þar
alla tíð. Hann sýndi það í orði og
verki að hann var sannur Vest-
mannaeyingur og var sannarlega
trúr þeirri köllun því að mikla vinnu
lagði hann í það að safna heimildum
um Eyjamar og koma þeim í varan-
legan frágang þannig að varðveitast
mætti um langa framtíð.
Eyþór var námfús og þrátt fyrir
að ekki gæfist á æskudögum kostur
á langri skólagöngu var hann alla tíð
að leita sér þekkingar þegar tími
gafst til. Þannig að strax 15 ára fór
hann á sjóvinnunámskeið heima í
Eyjum og svo 17 ára í vélvirkjanám í
Vélsmiðjunni Magna, þaðan lá leiðin
í Vélskóla Islands, lauk hann skólan-
um 1949 og síðan sérstöku prófi frá
rafmagnsdeild skólans árið eftir.
Þessi gmnnur átti eftir að nýtst hon-
um vel í ævistarfi hans sem var til
sjós og lands.
Hann var vélstjóri á togara og
einnig vann hann við uppsetningu
búnaðar í Irafossvirkjun. Lengst
vann Eyþór á Keflavíkurflugvelli en
þar vann hann fyrst sem verkstjóri
og við vélaeftirlit. Hann var sjálf-
stæður atvinnurekandi og verktaki á
vellinum um 27 ára skeið og annaðist
hann þá umsjón og eftirlit með öllum
frysti- og kælitækjum á Keflavíkur-
flugvelli. Þegar starfsvettvangi hans
lauk á vellinum flutti hann búferlum
ásamt konu sinni að Alftamýri 17 í
Reykjavík og bjó hann þar til ævi-
loka.
Eins og áður er getið í þessum
minningarbrotum var hann ætíð
námfús og vil ég geta nokkurra nám-
skeiða sem hann tók gegnum tíðina:
blaðamennskunámskeið, námskeið í
framsögutækni og íyrir nokkmm ár-
um fór hann á námskeið í vörslu
skjala en hann vann á Þjóðskjala-
safni íslands frá 1988-1995. Eyþór
var sæmdur riddarakrossi hinnai' ís-
lensku fálkaorðu 1. desember 1995
fyrir fræða- og félagsstörf. Snemma
á lífsleiðinni kom fram áhugi hans á
félagsmálum og vom honum falin
fjölmörg störf á því sviði um ævina
og er við hæfi að geta nokkurra
þeirra nú við leiðarlok: formaður
skólafélags Vestmannaeyja 1944
-1946, í stjórn skólafélags vélstjóra
1948, fulltrúi á þingum Farmanna-
og fiskimannasambands Islands
1951-1953, meðstofnandi Sparisjóðs
vélstjóra 1961, í stjórn Iðnaðar-
mannafélags Suðurnesja 1958-1973,
formaður í því félagi 1966-1973, full-
trúi á iðnþingum 1958-1980, formað-
ur rit- og útgáfunefndar Iðnaðar-
mannatals Suðurnesja 1970-1983,
heiðursfélagi Iðnaðarmannafélags
Suðurnesja frá 1984, formaður sér-
eignasjóðs félagins, styrktarsjóðs frá
1971 og lífeyrissjóðs frá stofnun
hans 1972, í stjórn landssambands
iðnaðarmanna 1973-1975 í milli-
þinganefnd til undirbúnings að
stofnun almenns lífeyrissjóðs iðnar-
manna 1962-1963, í stjórn þess sjóðs
frá stofnun 1964, formaður frá 1968,
í stjórn landsambands lífeyi'issjóða
1970- 1990, formaður fegrunarnefnd-
ar Njarðvíkurhrepps 1966-1974,
vai-amaður í hreppsnefnd 1970-1978,
formaður stjórnar verkamannabú-
staða í Njarðvík 1972-1974, í nátt-
úruvemdarnefnd Gullbringusýslu
1971- 1978, meðstofnandi og formað-
ur félags Vestmannaeyinga á Suður-
nesjum frá stofnun 1973-1978, heið-
ursfélagi þess 1983, formaður
Krabbameinsfélags Suðumesja 1979
-1984, í stjórn Krabbameinsfélags
íslands 1981-1983, endurskoðandi
félagsins 1983-1989, heiðursfélagi
1995, í stóm Húseigendafélagsins
1982-1988, í stjóm Félags sjálfstæð-
ismanna í Háaleitishverfi frá 1988.
Eftir Eyþór liggur mikið af rituðu
efni og hafa fjölmargar greinar verið
birtar í bókum, blöðum og tímarit-
um. Síðasta stórvirkið sem Eyþór
stóð fyrir var útgáfa bókar um ætt
hans en það em afkomendur Ric-
hards Long, hann var formaður út-
gáfunefndar og tókst honum að ljúka
við verkið eins og önnur verk sem
honum voru falin því að fyrir
skömmu komu út bækur um Lon-
gættina. Það var ánægjulegt að
fylgjast með af hve miklum áhuga
hann vann að þessu hugsjónaverki
sínu og var með hugann við það öll-
um stundum þar til því var lokið.
Ég hefi um árabil átt góðar stund-
ir á heimili Eyþórs og hans elsku-
legu eiginkonu Svanlaugar Jóhanns-
dóttur að Alftamýri 17 í Reykjavík.
Eyþór og Svanlaug giftu sig 1. janú-
ar 1952 en hún er ættuð frá Blöndu-
gerði í Hróarstungu, Norður-Múla-
sýslu. Það hefur verið um langt skeið
fastur punktur í tilvemnni að renna
við í Alftamýrinni og vonandi verður
það enn um skeið, ef Guð lofar.
Eyþór og Svanlaug eignuðsut
tvær dætur, sómakonur sem em í
dag vel giftar og eiga þær elskuleg
börn sem vora Eyþóri einkar kær.
Við leiðarlok sit ég nú lágvær og
finnst langsótt í orðanna sjóð það
sem við á nú þegar horft er á bak
góðum og traustum vini. Efst í huga
mínum er kveðjustund sem við átt-
um við sjúkrabeð og þakklæti fyrir
ljúfa samferð, góðar samverustundir
og vináttu sem aldrei féll skuggi á.
Bæn mín í dag er að algóður Guð
styrki Svönu, börn þeirra hjóna,
tengdasyni og barnabörn.
Guð blessi minningu vinar míns
Eyþórs Þórðarsonar._
Ólafur Granz.
Að leiðarlokum minnist ég Eyþórs
Þórðarsonar fáeinum orðum með
söknuði í huga en jafnframt þökk
fyrir ánægjuleg kynni og samstarf í
rúman áratug við sameiginlegt
áhugamál. Ég þykist mæla fyrir
hönd ótal margra samherja, vina og
frændfólks nær og fjær er ég læt í
ljós þakklæti fyrir framtak Eyþórs,
seiglu og einurð við samantekningu
á niðjatali Richards Long sem uppi
var á fyrri hluta 19. aldar.
Eyþór var fmmkvöðull að stofnun
Félags niðja Richards Long og sam-
antekt niðjatalsins sem kom nýlega
út í þremur þykkum bindum. Eyþór
var formaður félagsins, en útgáfan
var hátindur farsæls samstarfs hans
við Gunnlaug Haraldsson, ritstjóra
niðjatalsins og höfund merkilegi'a
æviþátta, og Pál Braga Kristjónsson,
framkvæmdastjóra bókaútgáfunnar
Þjóðsögu.
Eyþór Þórðarson var jöfnum
höndum maður formlegrar reglu-
semi sem felst í því að reka félag
eins og vera ber og maður sem hlífði
sjálfum sér minnst í almennu félags-
starfi og við verk sem vinna þarf.
Hann hélt stjóm félagsins og rit-
nefnd við efnið en taldi ekki eftir sér
að ná tali af ótal niðjum, einkum við
öflun mynda í ritið.
Samherjai- Eyþórs í Félagi niðja
Richards Long hai-ma fráfall eldhug-
ans er bar nokkuð brátt að. Þrátt
fyrir unnin afrek var það Eyþóri
ekki að skapi að draga af sér og láta
gott heita. Hefði mátt vænta fleiri
góðra verka frá hans hendi sem ekki
verða. Þeim mun mikilvægara er að
haldið verði á loft ósk hans um frek-
ari öflun fróðleiks um gengnar kyn-
slóðir og örlög einstaklinganna.
Eyþór kom víða að málum um
dagana og munu aðrir minnast þess,
en félagsmenn í Félagi Richards
Long kveðja með söknuði góðan
samherja og forystumann sem í senn
var maður háttvís og laginn að koma
verkum áleiðis. Svanlaugu Jóhanns-
dóttur og allri fjölskyldu Eyþórs er
vottuð samúð í söknuði þefrra.
Þór Jakobsson.
• Fleiri miimingargrciimr uni
Eyþrír Þrírðarson bíða biiiingar og
nmmi birtast i blaðinu næstu ríaga.
Vinningaskrá
23. útdráttur 22. oktúbcr 1998
íbúðarvinningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaidur)
65909
Ferðavinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvðfaldur)
11972
24270
26090
42116
Ferðavinningur
Kr. 50.000
4077 24363 27231 39554 58169 64166
22775 25530 38194 39858 63139 65925
Kr. 10.000
Húsbúnaðarvinningur
512 7591 17889 24492 35288 51595 62309 72790
849 7643 18797 25239 35647 52932 65121 73577
2369 7793 19281 25596 35836 53014 65222 74796
2806 8309 19660 27093 36429 53821 66548 76291
3231 9090 19938 27405 38357 56191 66889 76619
3240 9369 22163 27743 39223 56941 67001 77707
3551 10013 22561 27835 39269 58967 67540 78183
3586 10104 23155 29771 39763 59258 67658 79613
3845 11149 23774 31908 41030 59583 69327 79900
6341 13129 23775 32368 41670 60258 70544
6520 15287 23886 33285 43393 61002 70794
7438 16321 24285 34178 47615 61838 71171
7555 16749 24455 34669 49913 61915 71615
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.000
126 10553 20855 30473 39973 47519 58667 71324
1135 11818 22189 31647 39998 47802 58885 71862
1502 12210 22229 31951 40073 47919 59108 72052
1561 12427 22349 32028 40146 48036 59205 72150
1660 12849 22571 32473 40262 48802 59220 72945
2036 13333 22679 32956 40378 49013 59471 73160
2335 13499 23030 33133 40532 49085 60673 73285
2576 13987 23097 33738 41237 50438 60927 73353
2693 14007 23189 33752 41316 50575 61418 73546
3009 14861 23501 33759 41324 51453 62432 74141
3155 14864 23552 33991 41478 52796 62734 74315
3365 14998 23668 34112 41702 52957 62847 74396
3470 15390 23819 34282 42034 53288 63155 74703
3784 15419 23873 34310 42217 53534 63372 75413
3806 16082 23931 35372 42738 54429 63713 76426
4029 16204 23933 36153 43287 54564 64177 77114
4266 16320 24462 36159 43785 54986 64381 77284
5289 16510 24531 36196 43921 55903 65062 77437
5307 16685 25452 36358 44155 56254 65553 77894
5391 16923 26108 36873 44328 56403 66486 78018
6168 17015 26114 37317 44346 56408 66625 78363
6548 17042 26803 37766 44522 56861 66756 78422
6830 17103 27139 37991 44607 56986 66776 78491
8112 17407 27986 38238 45149 57217 67294 78832
8703 17566 28177 38421 45356 57413 67899 78905
8781 17642 29158 38426 45478 57519 67946 79993
8812 18108 29185 38716 45649 57537 69026
9361 18409 29310 39192 46092 57720 69264
9492 18471 29418 39211 46625 57734 69411
9558 19891 29700 39329 46638 57878 69952
10298 20018 29948 39578 47366 57936 70111
10444 20050 30000 39825 47436 58231 71159
4—
Næsti útdráttur fer fram 29. október 1998
Heimasíða á Intemetí: www.itn.is/das/
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
HALLDÓR GÍSLASON
frá Halldórsstöðum,
verður jarðsunginn frá Glaumbæjarkirkju á morgun, laugardaginn
24. október, kl. 14.00.
Ingibjörg Halldórsdóttir,
Sigrún Halidórsdóttir, Sverrir Svavarsson,
Björn Halldórsson, Hrefna Gunnsteinsdóttir,
Kristín Jóhannsdóttir,
Efemía Halldórsdóttir, Björn Jóhannsson,
Erla Halldórsdóttir, Jón Alexandersson,
Skúli Halldórsson, Erna Hauksdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KARÓLÍNA JÓHANNESDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, þriðju-
daginn 20. október.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mið-
vikudaginn 28. október kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
dvalarheimilið Hlíð.
Gunnar Brynjar Jóhannsson, Fríður Jóhannesdóttir,
Margrét Jóhannsdóttir, Helgi Sigurðsson,
María Jóhannsdóttir, Einar Örn Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.