Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 42
42 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
KRISTJAN
EINARSSON
+ Kristján Einars-
son fæddist á
Sauðhúsum 13. júlí
1910. Hann lést 14.
október síðastliðinn.
Kristján var sonur
hjónanna Einars
Pálssonar og Kristín-
ar Bjarnadóttur. Þau
bjuggu í Björk og
Litlu-Sandvík í Flóa.
Þau Kristín og Einar
eignuðust þijú börn;
Sigurbjama, sem dó
1903, þá tveggja ára
gamall, Guðrúnu
Sigríði, f. 7.11. 1904,
og dó nú í janúar í vetur og svo
Kristján, sem nú er minnst.
Kristján kvæntist Onnu Sigríði
Magnúsdóttur frá Hattar-
dalskoti. Hún var fædd 9.10.
1918, d. 30.11. 1995. Kristján og
Anna fóm að búa á
Lambastöðum í Lax-
árdal árið 1943 og
bjuggu þar til ársins
1968 en þá fluttu
þau að Höskulds-
stöðum í sömu sveit.
Árið 1984 fóru þau
svo á dvalarheimilið
Silfurtún í Búðardal
þar sem þau bjuggu
til æviloka. Þau
eignuðust fjögur
böm; Kristínu, Hlíf,
Einar og Magnús,
sem tók við búi for-
eldra sinna á
Höskuldsstöðum.
Utför Kristjáns fer fram frá
Hjarðarholtskirkju í Dölum í
dag og hefst athöfnin klukkan
11. Jarðsett verður í Gufunes-
kirkjugarði.
Mig langar að minnast elsku afa
míns með aðstoð mömmu. Hann afí
minn ólst ekki upp hjá foreldrum
sínum. Hann var kornungur þegar
hann fór til Gísla og Óh'nu í Pálssel,
Hóla og aftur í Pálssel. Með Ólínu
‘>og afa mynduðust mjög sterk
tengsl en hún dó þegar hann vai’
aðeins 7 ára gamall, en þeir Gísli
fylgdust að þar til Gísli dó. Fóstur-
systkini afa voru Jakobína Jakobs-
dóttir, Jóhannes Ásgeirsson og
Emma Guðjónsdóttir. Svo kom bú-
stýra til Gísla, Guðrún Jónasdóttir,
systir Jóhannesar úr Kötlum. Þau
eignuðust dóttur, Asu. Svo var
mikið í Pálsseli Óli Þorsteinsson og
þetta vora allt sem systkini.
Afí fór í Reykjaskóla og varð bú-
"'Afræðingur frá Hvanneyri. Hann
stundaði jarðvinnslu með hestum
og hestaplóg. Eg er hræddur um
að þegar Catarpillarjarðýtan kom
til sögunnar hafi honum fundist
hann vera í hálfgerðum sandkassa-
leik með hest og plóg.
Hann var fyrst og fremst fjár-
maður, mjög markaglöggur og
þreyttist aldrei á að tala um fé og
var það eitt það síðasta sem við
skildum eftir að hann veiktist
núna 29. september síðastliðinn.
Þegar hann var smástrákur í Páls-
seli sá hann þegar safnið var að
koma úr Kollárrétt ofan með
Hólmavatni og þá hugsaði hann
um hvað væri nú gaman að fá að
reka svona stórt safn. Hann grun-
aði víst ekki þá að hann ætti eftir
að reka féð að norðan 45-50 ár eða
fleiri. Á fyrstu búskaparárum
hans voru engar vélar, hann sló
allt með orfi og ljá, rifjaði og rak-
aði með hrífu, reiddi heim á hest-
um og batt í sátur og reiddi heim á
klakk. Hann risti líka ofan af tún-
inu svo það væri sléttara. Svo þeg-
ar vélarnar komu til sögunnar
stækkaði túnið ört.
En það vora líka þung áföll í bú-
skap afa og ömmu. Tvisvar var allt
féð skorið niður vegna mæðuveiki
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi
ODDUR ODDSSON,
Tangagötu 15a,
ísafirði,
verður jarðsunginn frá isafjarðarkirkju laugar-
daginn 24. október kl. 14.00.
Sigrún Árnadóttir
Árný H. Oddsdóttir, Kristján Friðbjörnsson,
Sigurður Oddsson, Hrefna H. Hagalín,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför hjartkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
LAUFEYJAR LOFTSDÓTTUR,
Efstalandi 16.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkra-
húss Reykjavíkur fyrir góða umönnun í veik-
indum hennar.
Edda Sigurðardóttir, Valdimar Ásmundsson,
Anna Sigurðardóttir, Sigurður Georgsson,
Gylfi Sigurðsson, Sigurbjörg Ármannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Lokað
Verslun okkar verður lokuð frá kl. 12-16 í dag vegna jarðarfarar
ARNBJARNAR ÓSKARSSONAR.
Axel Ó., Vestmannaeyjum.
og þá var dapurt í Dölum. En
flestir þraukuðu. Það var ekki í
tísku að flýja til Reykjavíkur í þá
daga. Svo kom riðuveiki á næsta
bæ, Hornstaði, en sem betur fór
sluppu aðrir bæir, nema nokkrar
kindur sem fóru á landið meðan
fjárlaust var.
Afí var mikill félagshyggjumað-
ur og gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum hjá ræktunarsambandi
Suðurdala, veiðifélaginu og Kaup-
félagi Hvammsfjarðar, svo eitt-
hvað sé nefnt. Eftir að Magnús fór
að búa með honum á Höskulds-
stöðum og afí búinn að farga kún-
um þá vann hann að heyskap og
alltaf var hann í húsunum þegar fé
var inni, gerði við girðingar og
dittaði að einu og öðra. Þá var ég
nú oft með og þá var hann að
segja manni hvernig var í gamla
daga.
Eitt fannst afa voðalega leiðin-
legt og það var að hann vissi nán-
ast ekkert um sína fóðurætt og það
opnaðist eiginlega ekkert fyrr en
Dóra, kona Einars, fór í ættfræð-
ing. En minnið var smáfarið að
dala og erfitt að muna öll þessi
nöfn sem hann bar ekki kennsl á en
ein var kona sem var að skjótast
upp á stjömuhimininn í Reykjavík
sem hann dáði mjög og var frænka
hans, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
og er mér nær að halda að hann
hafi verið klökkur þegar hægt var
að koma þvi fyrir að hann fékk að
hitta hana. En við stríddum honum
þá stundum með Kvennalistanum
en hann var alltaf ákveðinn fram-
sóknarmaður.
Okkur mömmu er eitt ferðalag
með afa sérlega minnisstætt. Hann
langaði svo upp á Kjalames að
skoða vatnsbranna sem hann var
við að hlaða á stríðsáranum. Þeir
era þónokkuð uppi í hlíð. Við
keyrðum eins langt og við
komumst, svo var haldið á bratt-
ann en afí var þá orðinn mjög
mæðinn til gangs en upp komst
hann og þá sagði hann að hér hefði
hann nú lært að svíkjast undan
vinnu. Trúleg saga það, þeir trúa
því líklega sem til þekkja. Þetta
vora allt viljugir strákar en málið
var það að þeir komust yfír hörku-
reifara sem þeir lásu þarna á bak
við holtið en vildu ekki að upp
kæmist svo það varð þá alltaf einn
að vera á vakt.
Að lokum viljum við þakka
starfsfólki Silfurtúns fyrir natni
við hann og elskulegheit í hans
garð. Og einnig lyfjadeild sjúkra-
húss Akranes, þar sem hægt var
að vera eins og á heimili síðustu
dagana í lífi hans. Og nú er komið
að kveðjustund, núna þegar sum-
arið er búið og vetur gengur í
garð. Það er svo margt sem þarf
að þakka, allt svo tómlegt í Dölun-
um. Það er ekki hægt að skreppa
til þín lengur, ekki þar. Eg ætla
samt að sjá um ljós hjá þér á jól-
unum og þegar koma erfíðar
stundir.
Ég læt þetta litla ljóð eftir
sveitunga þinn fljóta með vegna
þess að mér finnst það eiga svo vel
við þig.
Heyannir
Að vera bóndi - ó, gud minn góður!
í grænu fanginu á sinni móður
og finna ljós hennar leika um sig
og lyfta sálinni á hærra stig!
Og bónda hitnar í hjartans inni
við helgan ilminn frá töðu sinni,
og stráin skina í skeggi hans
sem skáldleg gleði hins fyrsta manns.
Og litlir englar með litla hrífu
við ljámýs eltast og hampa fífu,
en mamma hleypur á hólinn út
með hvíta svuntu og skýluklút.
Og sumardagamir faðma fjöllin
og fljúga niður á þerrivöllinn,
og stíga syngjandi sólskinsdans
við sveittan bóndann og konu hans.
(Jóhannes úr Kötlum)
Elsku afí minn. Guð geymi þig.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gísli.
Morgunblaðið/Ásdís
Dregið í
Heimabankaleik
DREGIÐ hefur verið í Heima-
bankaleik sem Morgunblaðið á
Netinu stóð að ásamt Islands-
banka, Síminn-Intemet og Elko.
Leikurinn gekk út á að fara í gegn-
um kynningarútgáfu af Heima-
banka Islandsbanka.
Vinningar í leiknum vora glæsi-
legir og hlutu fímmtíu manns árs
áskrift að Intemetinu frá Símanum-
Intemet og hefur verið haft sam-
band við þá. Tveir GSM-símar frá
Elko vora í vinning en þá hlutu Að-
alsteinn Jónsson og Páll Erlingsson.
Aðalvinninginn, tölvu frá Elko, hlaut
Páll Sigvaldason sem er hægra
megin á myndinni að taka við gjafa-
bréfi úr hendi Snorra Gunnars
Steinssonar, þjónustustjóra Elko.
Um leið og aðstandendur leiks-
ins óska vinningshöfum til ham-
ingju vilja þeir koma á framfæri
þakklæti til allra þeirra sem tóku
þátt í honum.
Ráðstefna um
áhrif virkjana
norðan
Vatnajökuls
NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK
íslands, ásamt Félagi um verndun
hálendis Austurlands, Fuglavernd-
unarfélagi Islands og Náttúra-
vemdarsamtökum Austurlands,
efna til opinnar ráðstefnu um áhrif
virkjana norðan Vatnajökuls. Ráð-
stefnan verður haldin hinn 31. októ-
ber nk. í hátíðarsal Háskóla Islands.
í fréttatilkynningu frá aðstand-
endum ráðstefnunnar segir að fjall-
að verði um umhverfisáhrif fyrir-
hugaðra virkjunarframkvæmda
norðan Vatnajökuls, auk þess sem
rætt verður um hlutverk mats á
umhverfisáhrifum. Á ráðstefnunni
verður einnig leitast við að svara
spurningunni um þjóðhagslega hag-
kvæmni stórvirkjana og stóriðju.
Samtökin sem standa að ráð-
stefnunni vilja með þessu móti
stuðla að því að almenningur eigi
aðgang að ítarlegum upplýsingum
um fyrirhugaðar virkjanir og áhrif
þeirra á náttúra og efnahag lands-
ins. Gert er ráð íyrir pallborðsum-
ræðum í lok framsöguerinda.
JÓHANNES Eggertsson og
Margrét Jónsdóttir.
Niðjamót
á Selfossi
AFKOMENDUR Margrétar Jóns-
dóttur og Guðmundar Gíslasonar og
Margrétar Jónsdóttur og Jóhannes-
ar Eggertssonar, síðast til heimilis í
Ásum, Gnúpverjahreppi, ætla að
koma saman á Hótel Selfossi sunnu-
daginn 25. október kl. 14 og eiga
saman góðan dag.
Námskeið fyrir foreldra
barna sem stama
JÓHANNA Einarsdóttir talmeina-
fræðingur mun halda námskeið
fyrir foreldra barna sem stama
dagana 29. október, 3. nóvember
og 5. nóvember frá kl. 20-22. Á
námskeiðinu verður farið yfir
helstu kenningar um orsakir
stams, hvaða meðferðir hafa gefist
best og hvernig foreldrar geta
stutt við bakið á bömum sínum
sem stama og leiðbeint þeim.
„Langárangursríkast er að með-
höndla stam fljótlega eftir að það
byrjar. Flestir byrja að stama á
aldrinum 2 til 3 ára. Það er að vísu
eðlilegt að hökta svolítið á þessum
aldri en sum börn hökta meira en
eðlilegt getur talist og stama. Þeg-
ar barn er byrjað að stama þróast
samskipti þess við umhvei’fið oft á
óeðlilegan hátt. Barnið skilur ekki
út af hverju það er svona erfitt að
tala og stamið hefur áhrif á sjálfs-
mynd þess og hegðun. Oft er hægt
að koma í veg fyrir óheillavænlega
þróun í tali bamsins og samskipt-
um með einföldum leiðbeiningum
til foreldra," segir í fréttatilkynn-
ingu.
Jóhanna Einarsdóttir er tal-
meinafræðingur og hefur sl. 3 ár
verið að sérhæfa sig í meðhöndlun
stams.
Málbjörg, félag um stam, mun
taka þátt í greiðslu á námskeiðs-
gjaldi.