Morgunblaðið - 23.10.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 43
Hátíðarfundur
UNIFEM á íslandi
Móðir María __
sýnd í bíósal MÍR
FÉLAG UNIFEM á íslandi held-
ur árlegan hátíðarfund laugardag-
inn 24. október kl. 10 f.h. í Víkinga-
sal Hótels Loftleiða á Reykjavíkur-
flugvelli.
UNIFEM er þróunarsjóður
Sameinuðu þjóðanna fyrir konur í
þróunarlöndum. Skapast hefur sú
hefð í starfi félagsins að árlega er
haldinn hátíðarfundur þennan dag.
A fundinn hafa komið saman marg-
ir góðir gestir sem fiutt hafa fróð-
leg og skemmtileg erindi. Starf-
semi UNIFEM víðs vegar um
heiminn hefur verið kynnt og mál-
efni þróunarlanda rædd.
Á fundinum flytur Gréta Gunn-
arsdóttir lögfræðingur ex-indi um
þátt kvenna í stríði og friði, Ásdís
Einarsdóttir kennari segir frá
minningu frá Malavi og Anima
strengjakvartettinn flytur tónlist.
Á boðstólum verður fjölbreytt
morgunverðai’hlaðborð sem kostar
1.800 kr. Öllum er heimill aðgang-
ur meðan húsrúm leyfíi’.
KVIKMYNDIN Móðir María verður
sýnd sunnudaginn 25. október kl. 15
í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10.
Mynd þessi er frá áttunda ára-
tugnum og segir frá rússenskri
konu sem fluttist ung til Frakk-
lands. Faðir hennar hafði verið for-
ingi í rússneska keisarahernum en í
borgarastyrjöldinni 1918-1920
barðist hann með andbyltingarsinn-
um í liði Wrangels. Þegar sýnt var
að byltingin yrði ekki brotin á bak
aftur fluttist fjölskyldan til Parísar.
Um miðjan fjórða áratuginn gekk
konan, söguhetjan, til liðs við líkn-
arreglu nunna og var upp frá því
alltaf nefnd Móðir María. Á her-
námsárunum í síðari heimsstyrjöld-
inni gekk hún til liðs við frönsku
andspyrnuhreyfínguna en Þjóðverj-
ar handtóku hana undir lok styrj-
aldarinnar og tóku af lífi. I mars
1945 gekk hún í dauðann til bjargar
lífí ungs sovésks fanga.
Leikstjóri er Sergei Kolosov og
aðalleikari Lúdmila Karatkina.
Skýringar á ensku. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Flytur erindi
um stofnerfða-
rannsóknir
Á FÖSTUDAGSFYRIRLESTRI
Líffræðistofnunar 23. október
mun Anna K. Daníelsdóttir, sér-
fræðingur á Hafrannsóknastofn-
un, flytja erindi um stofnerfða-
rannsóknir Hafrannsóknastofn-
unar.
Erindið verður haldið að Grens-
ásvegi 12, stofu G-6, og hefst
klukkan 12:20. Allir era velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
R A I
ATVIIMMU-
AUGLÝSINGAR
Utanríkisráðuneytið
Læknar
—hjúkrunarfræðingar
Auglýst er eftir tveimur læknum og tveimur
hjúkrunarfræðingum til starfa í heilsugæslu-
sveit innan SFOR í Bosníu-Hersegóvínu. Sveit-
in mun starfa undir verkstjórn breska hersins
skv. samningi milli íslenskra og breskra stjórn-
valda.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf um
miðjan mars 1999 og að ráðningartíminn verði
sex mánuðir. í febrúar mun heilsugæslusveitin
gangast undir þjálfun í Bretlandi.
Leitað er að duglegum, samviskusömum
einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt við
erfiðar aðstæður, eiga auðvelt með að um-
gangast aðra og taka leiðsögn. Nauðsynlegt
er að viðkomandi hafi gott vald á ensku og hafi
mikla aðlögunarhæfileika.
Upplýsingar um kaup og kjör fást á
alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun,
fyrri störf, tungumálakunnáttu og
meðmælendur, sendist utanríkisráðuneytinu,
alþjóðaskrifstofu, Rauðarárstíg 25, 150
Reykjavík.
Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum
eyðublöðum.
Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember
1998.
Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex
mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur, nema
annað sé sérstaklega tekið fram í umsókninni.
Fyrirliggjandi umsóknir skulu staðfestar.
Utanríkisráðuneytið
rr
Sjúkrahúsið Sólvangur
Fótaaðgerðar-
fræðingur
Starf fótaaðgerðarfræðings við Sólvang í Hafn-
arfirði er laust frá og með 1. nóvember nk.
Upplýsingar veitir yfirlæknir Sólvangs í síma
555 0281.
Síld og fiskur ehf.
Dalshrauni 9, Hafnarfirði
Óskum eftir að ráða starfsfólk. Ýmis störf í
boði. Meðal annars starf í eldhúsi.
Upplýsingar veitir Bryndís í síma 555 4711 eða
á staðnum.
AUGLVSINGAR
Héraðsdómari
Dómsmálaráðherra, samkvæmt tillögu dóm-
stólaráðs, auglýsir laust til setningar embætti
héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur,
frá 1. nóvember 1998 til 31. ágúst 1999, meðan
á leyfi skipaðs dómara stendur.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu, Arnarhváli, eigi síðar en 28. október 1998.
Umsóknir, þar sem umsækjandi óskar nafn-
leyndar, verða ekki teknar gildar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
22. október 1998.
TILBOÐ/ÚTBOÐ
L
Landsvirkjun
Útboð
Orkulíkan Landsvirkjunar — hugbúnaðui
til eftirlíkinga á virkjanagerð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
smíði hugbúnaðartil eftirlíkinga á raforkukerfi
í samræmi við útboðsgögn VKÁ-01.
Verkið felst m.a. í forritun, prófun og upp-
setningu.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68,103 Reykjavík, frá
og með föstudeginum 23. október 1998 gegn
óafturkræfu gjaldi að upphæð 1.500 krónur
m. vsk. fyrir hvert eintak.
Tekið verður á móti tilboðum á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík, til opn-
unar 24. nóvember 1998 kl. 14.00.
Fulltrúum bjóðenda er heimilt að vera við-
staddir opnunina.
NAUBUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
1, Isafirði, þriðjudaginn 27. október 1998 ki. 14.00 á eftirfar-
andi eignum:
Árvellir 6, ísafirði, þingl. eig. Rögnvaldur Bjarnason og Ólafía Kristín
Karlsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðarstræti 55,0202, ísafirði, þingl. eig. isafjarðarbær, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna.
Garðavegur 6, Isafirði, þingl. eig. Fríða Kristín Albertsdóttir, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Flafraholt 16, isafirði, þingl. eig. Pétur Hans R. Sigurðsson og Guðrún
Gunnarsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Heimabær II, úr landi Arnardals, ísafirði, þingl. eig. Jóhann Björgvin
Marvinsson og fleiri, gerðarbeiðendur Lifeyrissjóður starfsmanna
rikisins B-deild og Vátryggingafélag íslands hf.
Holtagata 27, Súðavík, þingl. eig. Guðrún Birna Eggertsdóttir, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Stórholt 15, 0102, ísafirði, þingl. eig. ísafjarðarbær, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna.
Stórholt 15, 0201, ísafirði, þingl. eig. ísafjarðarbær, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna.
Stórholt 23,0101, ísafirði, þingl. eig. isafjarðarbær, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna.
Sundstræti 30, 0001, isafirði, þingl. eig. Aðalbjörg Pálsdóttir, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður rikisins.
Sætún 6, 0101, Suðureyri, þingl. eig. Ágúst Pórðarson, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfadeild.
Sýslumaðurinn á (safirði,
22. október 1998.
UPPBOB
Uppboð
á lausafjármunum
Eftirtaldir lausafjármunir verða boðnir upp við
lögreglustöðina, Vesturgötu 17, Ólafsfirði,
föstudaginn 30. október n.k. kl. 14.00:
K 53
Vænta má að greiðsla verði áskilin við
hamarshögg.
Ólafsfirði, 22. október 1998.
Sýslumaðurinn í Ólafsfirði.
FUIVIDIR/ MANNFAGNABUR
Háskóli íslands
Fyrirlestur um erfðagreiningu
Laugardaginn 24. október flytur Paul Rabinow,
mannfræðiprófessor frá Berkeley, opinberan
fyrirlestur á vegum Mannfræðistofnunar Há-
skólans. Rabinow fjallar um erfðarannsóknir
og erfðatæki. Fyrirlesturinn verður í stofu 101
í Odda og hefst kl. 16.15.
Félagsfundur
MG-félag íslands heldur félagsfund 24. október
kl. 14.00 í kaffisal ÖBÍ að Hátúni 10, Reykjavík.
Finnbogi Jakobsson taugalæknir flytur erindi
um meðferð við Myasthenia gravis vöðva-
slensfári.
MG-félag íslands er félag sjúklinga með
Myasthenia gravis vöðvaslensfár.
Stjórnin.
FÉLAGSSTARF
VVinnumarkaðsnefnd
Sjálfstæðisflokksins,
Verkalýðsráð og
Málfundafélagið Óðinn
halda opinn fund um vinnumarkaðsmál mánudaginn 26. október
kl. 20.30 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Frummælendur:
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands islands
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri V.S.i.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar
Fyrirspurnir — Almennar umræður
Fundarstjóri: Kristján Guðmundsson, formaður Verkalýðsráðs
Sjálfstæðisflokksins.
Allir velkomnir.
Stjórnirnar.
SMAAUGLYSINGAR
FÉLAGSLÍF
Frá Guðspeki-
félaginu
l/igólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
í kvöld kl. 21.00 heldur Guð-
mundur Einarsson erindi, um
sálarrannsóknir, í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15.00—17.00 er
opið hús með fræðslu og um-
ræðum, kl. 15.30 í umsjón Erlu
Gunnarsdóttur.
Á sunnudögum kl. 17.00—18.00
er hugleiðingarstund með leið-
beiningum fyrir almenning.
Áfimmtudögum kl. 16.30—18.30
er bókaþjónustan opin. Mikið úr-
val andlegra bókmennta. Starf-
semi félagsins er öllum opin
endurgjaldslaust.
I.O.O.F.12 s 1791023872 e M.A*
I.O.O.F. 1 = 1791023872 - Sp.
TILSÖLU
Aukakílóin af — hringdu.
Klara, sími 898 1783.