Morgunblaðið - 23.10.1998, Síða 45

Morgunblaðið - 23.10.1998, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 45 ‘ Málþing- um heim- speki Brynjólfs Bjarnasonar FÉLAG áhugamanna um heimspeki, í samvinnu við Háskóla íslands, gengst fyrir málþingi um heimspeki Brynjólfs Bjamasonar laugardaginn 24. október. Málþingið fer fram í Hátíðasal Háskóla íslands og hefst kl. 13.30. Brynjólfur Bjarnason fæddist 25. maí 1898 og í ár eru því 100 ár liðin frá fæðingu hans. „Sem kunnugt er var Brynjólfur ekki aðeins mikilvirkur stjórn- málamaður, heldur ritaði hann einnig fjölmargar bækur um heim- speki og má með sanni teljast einn hejsti frumkvöðull heimspekiiðkunar á Islandi," segir í fréttatilkynningu. Dagskrá málþingsins hefst með ávarpi Páls Skúlasonar, rektors Háskóla íslands og prófessors í heimspeki, en síðan flytur Einar Ólafsson rithöfundur erindi undir heitinu: Hver var Brynjólfur Bjarna- son? Næst flytur Eyjólfur Kjalar Emilsson, prófessor í heimspeki við háskólann í Ósló, erindið: Brynjólfur Bjarnason um frelsi viljans og lýkur dagskránni með erindi Skúla Páls- sonar, heimspekings, Það sem Brynjólfur Bjarnason sá. Á eftir hverju erindi gefst tækifæri til fyrir- spurna og umræðna. Fundarstjóri verður Magnús Diðrik Baldursson, heimspekingur. Kaffiveitingar verða á boðstólum og er allt áhugafólk um heimspeki velkomið. Ráðstefnan um þá sem standa höllum fæti „Á JAÐRINUM" er yfirskrift ráð- stefnu sem haldin er föstudaginn 23. október á Hótel Sögu kl. 9-17. Markmið ráðstefnunnar er að hvetja til umræðu og umfjöllunar um aðstæður og kjör þeirra sem af ýmsum ástæðum geta ekki tekið þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Einnig að velta upp spurningum um hvað samfélagið, hið opinbera, félagasamtök og einstaklingar geta gert til úrbóta. Erindi flytja Karl Sigurðsson frá Félagsvísindadeild Háskóla Islands, prófessor Ian Gough frá Háskólan- um í Bath í Englandi, Rannveig Traustadóttir, dósent við Háskóla Islands, Kristján Sturluson, skrif- stofustjóri innanlandsdeildar Rauða kross Islands, Kirsten Rytter, frá Gæða- og atvinnumálaskrifstofu í Ósló, Sigríður Jónsdóttir frá Félagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar og Börje Mattson frá inn- flytjendaþjónustu í Karja í Finn- landi. Ráðstefnan er haldin á vegum Félagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar, _ Félagsvísindadeildar Háskóla íslands og Rauða kross ís- lands. Ráðstefnan er öllum opin. Opnar heimasíðu KRISTJÁN Pálsson alþingismaður hefur opnað heimasíðu, www.ki-ist- jan.is „Heimasíðan inniheldur forsíðu, lífshlaup, þingmál, tenglasafn um sjávarútveg, stefnumál og póst. Tenglasafnið er það stærsta sinnar tegundar hér á landi og þó víðar væri leitað og inniheldur 100 tengla allt frá fiskmörkuðum um allan heim, sjávarútvegsmál, sjávarút- vegsskóla, stefnu Sameinuðu þjóðanna í sjávarútvegsmálum, verðinu o.s.frv. Stefna þingmanns- ins fyrir næsta kjörtímabíl er undir stefnumál og kennir þar margra grasa eins og tvöföldun Reykjanes- brautar, hækkun fritekjumarka, námslána, jafnvægis við umhverfið í virkjunarmálum á hálendinu o.s.frv.,“ segir í fréttatilkynningu. Bygginga- fræðing-afélag fslands 30 ára í TILEFNI af þrjátíu ára afmæli Byggingafræðingafélags íslands á þessu ári mun félagið halda upp á þessi tímamót í sal félags Múrara- meistara í Skipholti 70 milli kl. 17-19 laugardaginn 24. október nk. ------------- Mjöll Hólm á Rauða ljóninu Á RAUÐA Ijóninu fóstudags- og laugardagskvöld skemmta þau Mjöll Hólm og Skúli. _ ■ Seljum um helgina nokkur sófasett og borðstofusett með miklum afslætti. |\j Bara um þessa helgi j Opið: laugardag kl. 10-16 sunnudag kl. 13-16 nwsai ____H Raðgreiðslur FRÉTTIR Fyrirlestur um erfðagreiningu Villibráð og vínsmökk- un í Iðnó BOÐIÐ verður upp á sérstakan sælkeramatseðil og vínsmökkun í veitingahúsinu Iðnó helgina 23.-25. október. Matseðillinn er sem hér segir: Villibráðarlifrarkæfa með gljáðum perlulauk og vinaigrette, humara- gout á koníaksrjómasósu, Létt- steikt dúfubrjóst með skógarsvepp- um og portvínssósu og ostafrauðs- fylltur súkkulaðidropi. Gestum er boðið að hefja leikinn á vínkynningu og -smökkun á eðal- vínum af léttvínsseðli hússins. Húsið verður opnað fyrir gesti kl. 18. PAUL Rabinow, prófessor í mann- fræði við Kalifomíuháskóla í Berkel- ey, flytur opinberan fyrirlestur á veg- um Mannfræðistofnunar Háskóla Is- lands laugardaginn 24. október kl. 16.15. I fyrirlestrinum, sem haldinn er í stofu 101 í Odda, mun Rabinow fjalla um erfðarannsóknir og erfðatækni frá sjónarhóli mannfræði. Sérstak- lega verður fjallað um erfða- rannsóknir í Frakklandi, en fyrirles- arinn hefur nýlokið við handrit bókar um þetta efni, French DNA, sem byggð er á vettvangsrannsókn hans í helsta fyrirtæki á sviði erfðagreining- ar í Frakklandi. Paul Rabinow er heimskunnur fyrir rannsóknir sínar og ritstörf. Ein af bókum hans, sem vakið hef- ur mikla athygli, er Making PCR: A Story of Biotechnology. Hún fjallar um tilurð kjamasýruraðgreinisins (PCR) sem valdið hefur straum- hvörfum í erfðagreiningu og er byggð á viðtölum við Kary Mullis, sem hlaut Nóbelsverðlaun íýrir að finna upp raðgreininn, og samstarfs- fólk hans við erfðagreiningarfyrir- tækið Cetus Corporation í Kali- forníu. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Öllum er heimill aðgangur. Heímilistækí kynna raunhæf GSM tilboð: Philips DIGA + GSM kort hjá Símanum GSM k Æ X a JLLuiÍ *' fS® mmm lilf» rWjfm., mtm § í® Stærð: 147x56x19 mm, 169 g. Rafhlaðan endist allt að 85 klst. í biðstöðu og allt að 120 mín. í notkun. Tilboðsverð lK,-11.900. " stqtQ Aðeins hjá Símanum GSM » Sekúndumæling • Samningar við 85 erlend GSM fyrirtæki • Dreifikerfi sem nær til yfir 90% landsmanna Listaverð Kr. "I 7.884,- Philips SPARK + GSM kort hjá Sfmanum GSM • Stærð: 139x56x18 mm, 169 g. • Rafhlaðan endist allt að 85 klst. í biðstöðu og allt að 120 mín. í notkun. • Stór grafískur skjár. Tiiboðsverð stgrQ Listaverö Kr 23.147,- ** PHILIPS i \Tn. ' ,2|>' . ; • A '. ♦ ■ (s: V 1 c v2«.; 3... c- ' 0 w*J '5£) (g**n: Vertu í frjálsu GSM-sambandi - án skuldbindinga f Verð Stofngjald Ársgjald HeildarverðN\ Dæmi um verð á símum frá Heimilístækjum og áskrift Itfá Símanum GSM: Diga 11.900 0 6.600 (almenn áskrift*) 18.500 ^jSpark 14.900 0 6.600 (almenn áskrift*) 21.500 j ( Dæmi um verð á símum og áskrift ti|á Tal. Motoroia d160 3.900 2.000 20.400 (Tímatal 60**) 26.300 Motorola Slim 5.900 2.000 20.400 (Tlmatal 60**) 28.300 ^Nokia 5110 13.900 2.000 20.400 (Tímatal 60**) 36.300 J <4S> Heimilistæki hf * Engar mínútur innifaldar, mínútan er frá kr. 6.50 SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 ** 60 frímínútur á mánuöi, ekki færanlegar á milli mánaða www.ht.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.