Morgunblaðið - 23.10.1998, Blaðsíða 46
, 46 PÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ljóska
Ferdinand
Finnst þér ég vera
fúllynd, Kalli?
Finnst mér að þú
sért hvað?
Fúllynd ... þú veist...
skapvond.
Nei, þú ert alls ekki
fúllynd...
Þarna
sérðu!
Hvað veist þú,
Kalli?!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Margur heldur
mig sig
Frá Ágústi Ólafssyni:
í MORGUNBLAÐINU hinn 7.
þessa mánaðar skrifar Valdimar
Kristinsson frétt um meinta eigna-
fölsun á stóðhestinum Glúmi frá
Reykjavík sem skráður var til
keppni á síðasta Landsmóti fyrir
hestamannafélagið Hornfirðing.
Tildrög málsins eru þau að nokkrir
taugaveiklaðir og öfundsveikir
knapar í Hornafirði óttuðust Glúm
þennan og kærðu þátttöku hans á
úrtökumóti Homfirðings til LH. I
umræddri frétt rekur Valdimar að-
draganda málsins, sem er allnokk-
ur ef marka má skrifín, og fær síð-
an álit eins þeirra knapa er að
kærunni stóðu, Hanní Heiler, en
hún er einnig syórnarmaður í
Homfirðingi. Utgangspunktur
fréttarinnar er sá að foreldrum
Guðbjargar Agústsdóttur, sem var
annar af skráðum eigendum hests-
ins í keppninni, er gert að sök að
þeir hafi séð svo um að málið var
ekki tekið fyrir í stjórn Homfirð-
ings og hestinum ekki vísað frá
keppni vegna þess að dóttir þeirra
og tengdasonur áttu í hlut. Það er
alrangt og ættu allir stjórnarmenn
að vita sem á annað borð skilja ís-
lensku. Er þessi fréttaflutningur
hinn hlálegasti og dæmi um að
jafnvel hinir ágætustu blaðamenn
geta runnið illilega á rassinn. Hef-
ur það annars ekki verið metnaðar-
mál góðra blaðamanna að forðast
grunna og lélega blaðamennsku,
t.d. fréttir þar sem aðeins er rætt
við einn málsaðila og þá sérílagi
þann sem er viðþolslaus af ein-
hverskonar kláða?
Fyrir það fyi’sta þá er það ekki í
valdi stjóma hestamannafélaga að
skera úr um hverjir eru eigendur
hrossa og hvernig eða hvenær
menn eignuðust þau. í öðra lagi þá
hafa stjómir hestamannafélaga
enga heimild til að meina hesti
þátttöku í keppni þótt hann hafi
verið skráður til leiks annars stað-
ar. I lögum og reglum LH stendur
að hestur megi aðeins keppa fyrir
eitt félag á hverju ári. Að hestur sé
skráður til leiks þýðir ekki að hann
sé búinn að keppa og ekkert stend-
ur í lögum LH að ekki megi draga
hest út úr keppni og skrá hann
annars staðar, t.d. ef hann skiptir
um eigendur. Umrædd kæra fór
rétta boðleið, fyrst til USÚ og það-
an til LH. I þriðja lagi, og það sem
er hlálegast, er að þeir sem stóðu
að kæranni hafa flestir hverjir
neytt ýmsra bragða til að koma sér
eða hrossum sínum á framfæri í
keppni og er hægt að rekja þau
dæmi. Til dæmis þá má sjá í
Landsmótsskrá frá 1994 að hryss-
an Röst frá Kálfafelli í Homafirði
er skráð til keppni í B-flokki fyrir
hestamannafélagið Geisla í Breið-
dal, knapi Hanní Heiler en eigand-
inn úr Breiðdal. Hanní var með
Röst í þjálfun og keppni hér í
Homafirði um árabil, m.a. í úr-
tökukeppni þetta sama ár, og eig-
andi hennar jafnan skráður góður
og gegn Hornfirðingur. Að því er
við vitum best þá er hann eigandi
hennar ennþá. Það er sama gamla
sagan: Margur heldur mig sig. Það
má vel fyrirgefa félögum og vinum
þótt þeir geri eitthvað í hita leiks-
ins sem þeir hefðu ekki gert ann-
ars. Það er hins vegar lakara ef
blaðamönnum leyfist að birta órök-
stutt níð um saklaust fólk án þess
að því sé gefið tækifæri á að bera
hönd fyrir höfuð sér.
ÁGÚST ÓLAFSSON,
fyrrverandi formaður Hornfirðings.
Aths.
ÞEGAR fjallað er um ágreinings-
efni í hestaþætti er viðhöfð sú
vinnuregla Morgunblaðsins að gefa
báðum málsaðilum kost á að tjá
sig. Reynt var að ná í Ágúst við
gerð fréttarinnar, en án árangurs.
Það vora hins vegar mistök að láta
fréttina ekki bíða þar næðist í hlut-
aðeigendur og era þeir beðnir vel-
virðingar á því.
Valdimar Kristinsson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.