Morgunblaðið - 23.10.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 49
BRIDS
llin.vjón liudniunilur
l’iíll Arnarsiin
SEX spaðar er einfalt spil
í góðri legu, en hvað er til
ráða ef trompið liggur
illa?
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
A G54
V D1076
♦ Á
* ÁKG103
Suður
* ÁK1062
VÁ93
♦ D108
4^ D5
Vestur Norður Austur Suður
- - — 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 2 grönd
Pass 3 spaðar Pass 4 hjörtu
Pass 6spaðar Allirpass
Útspil: Tígultvistur.
Hvernig myndi lesand-
inn spila?
Það virðist ekki fráleitt
að spila spaða á tíuna í
öðrum slag. Ef svíningin
heppnast, má trompa
tígul, taka ÁK í trompi og
vinna sjö ef spaðinn fellur.
Og ef vestur tekur spaða-
tíuna með drottningu, er
enn tími til að trompa
tígul, aftrompa vörnina og
taka fimm slagi á lauf.
Hins vegar lendir sagn-
hafi í vanda ef austur á
drottninguna fjórðu í
trompi:
Vestur
♦ 3
VK84
♦ G9652
*9762
Norður
* G54
V D1076
* Á
* ÁKG103
Austur
♦ D987
V G52
♦ K743
*84
Suður
* ÁK1062
VÁ93
* D108
D5
Efir tromp á tíuna er spil-
ið einfaldlega tapað í þess-
ari legu. Hins vegar er til
stílhrein vinningsleið, sem
tryggir 12 slagi þótt
trompið liggi 4-1 á hvorn
veginn sem er. Hún felst í
því að spila spaðagosa í
öðrum slag og dúkka,
jafnvel þótt austur leggi
á! Sagnhafi getur þá bæði
trompað tígul og tekið
fríslagina á lauf í friði
þegar hann er búinn að
aftrompa vörnina.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, bníðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kyimingum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritslj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
í DAG
Arnað heilla
fyrxÁRA afmæli. I dag,
I \/föstudaginn 23. októ-
ber, verður sjötugur Þórir
Rafn Guðnason, múrari,
Hraunbæ 190, Reykjavík.
Hann og eiginkona hans
Guðrún Bjarnadóttir eru að
heiman.
pf /\ÁRA afmæli. Næst-
OUkomandi sunnudag, 25.
október, verðm' fimmtug
Valgerður Marinósdóttir,
bankamaður, Malarási 5,
Reykjavík. Eiginmaður
hennai’ er Valdimar Þ.
Valdimarsson, verslunar-
maður. Af því tilefni taka þau
á móti vinum og vandamönn-
um á morgun, laugardaginn
24. október, í Þórshöll,
Brautarholti 20, ft'á kl. 17-19.
pffkÁRA afmæli. 1 dag,
ÍJUföstudaginn 23. októ-
ber, verður fimmtugur
Valdimar Sveinsson, inn-
heimtusljóri hjá Hitaveitu
Reykjavfkur. I tilefni dags-
ins taka hann og kona hans,
Svana M. Símonardóttir, á
móti ættingjum og vinum á
heimili þeh'ra í Laufengi 86,
milli kl. 18 og 21.
Ljósm.st. Sigríðar Bachmann.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. ágúst sl. í Dóm-
kirkjunni af sr. Irisi Krist-
jánsdóttur Bryndís Eva Jak-
obsdóttir og Unnar Valby
Gunnarsson. Heimili þeÚTa
er á Hringbraut 56, Reykja-
vík.
SILFURBRÚÐKAUP.
Silfurbrúðkaup eiga í
dag, föstudaginn 23.
október, hjónin Hörð-
ur Hilmisson og
Marentza Poulsen. I
tilefni þess skelltu
þau sér í síðbúna
brúðkaupsferð á
leyndan áfangastað.
Með morgunkaffinu
Áster...
9-18
...að hlusta á hann
æfa sigfyrirfyrsta
fyrirlesturinn.
TM Reg. U.S. Pat. Off. — all rights reserved
(c) 1998 Los Angeles Times Syndicate
ÉG stend kannski
ekki undir vænting-
um þínum, en hef-
urðu hugleitt að
kannski gerir þú of
miklar kröfur til míu?
HVERNIG gengur?
STJÖRÍVUSPA
eftir Frances llrake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Pú hefur einstaklega fjörugt
ímyndunarafl og þér ætti að
ganga vel á listabi-autinni.
Hrútur
(21. mars -19. apríl) '&E
Vertu ekki tortrygginn þvi
það torveldar öll samskipti.
Þú munt ná miklu betri ár-
angri í samningaviðræðum ef
þú slakar aðeins á.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Einhver mun koma þér til
bjargar á elleftu stundu.
Gerðu nú viðeigandi ráðstaf-
anir svo þú komist hjá þvi að
lenda í slíkum aðstæðum.
wr
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er gott að eiga sér
áhugamál ef það fer ekki út í
öfgar. Þú ættir að hafa lært
af reynslunni og skalt ekki
láta neitt ná svo sterkum tök-
um á þér
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vertu heiðarlegur við sjálfan
þig, því þú veist að ef þú
slærð hlutunum á frest verða
þeir aðeins erfiðari viðureign-
ar. Taktu þér tak.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert eins og suðupottur og
þarft að fá útrás fyrir reiði
þína. Eftir það er betra að
taka upp léttara hjal. Farðu
vel öll trúnaðarmál.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <DíL
Þú kemst ekki lengur hjá þvi
að taka tillit til annarra en
sjálfs þín þegar þú gerir ætl-
anir. Sættu þig við það sem
þú færð ekki breytt.
(23. sept. - 22. október) w
Láttu það ekki raska ró þinni
þótt ekki gangi allt samkvæmt
áætlun. Leggðu áherslu á að
þér liði sem best og þeim sem í
kringum þig eru.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það er stundurn erfitt að
greina kjarnann frá hisminu
en j)að er nauðsynlegt að þú
gerir það. Dæmdu ekkert að
vanhugsuðu máli.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) áá
Þótt þú sért ekki alltaf til
staðar í félagsstarfinu legg-
urðu þitt af mörkum og hefur
sannan félagsanda og það er
það sem máli skiptir.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) *Se
Eitthvað hvílir þungt á þér og
hindrar þig í að afreka mikið.
Vertu ekki of harður við sjálf-
an þig og mundu að þú getur
ekki borið einn byrðar heims-
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) CSn!
Þú vilt fylgja settum reglum
en skalt þó muna að stundum
er nauðsynlegt að gera und-
antekningar frá þeim, sér-
staklega ef mikið er i húfi.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) >%■»
Þungri byrði er af þér létt þá
er niðurstaða liggur fyrir í
ákveðnu máli. Næst er að
ákveða framhaldið en það
gæti falið í sér mikla ábyrgð.
Stjörnuspána á að Iesa sem
dægradvöI. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra stadreynda.
Ný sending af HEIZE-stellum
Glæsilegt úrval
20% afsláttur meðan á
Kringlukasti stendur
~fárir Lvo
Sími 5682221
CAMDEN DE LUXE HOTEL
84/87 Lr. Camden St., Dublin 2
STAÐSETT í GÖNGUFÆRI VIÐ
HELSTA VERSLUNARHVERFI DUBLIN
OG VINSÆLA SKOÐUNARSTAÐI
★ 34 herbergja hótel
★ Planet Murphy-veitingastaður og bar
★ Palace-næturklúbbur
★ SÉRSTÖK TILBOÐ FYRIR MIÐJA VIKUNA OG HELGAR ★
Hringið í síma 00353 1 4780808 og fáið nánari upplýsingar.
Úlpur
Kr. 7.990
Svartar — hvítar og
hermannagrænar
Dúnúlpur
Kr. 8.990
Svartar — hvítar
Anorakkar
Kr. 5.990. Bláir
Laugavegi 54, sími 552 5201
fatnaður
Opið laugardag kl. 10-14
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077