Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 52

Morgunblaðið - 23.10.1998, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM / / Urslit réðust í vikunni í handritasamkeppni Kvikmyndasjóðs Islands. Styrk til lokafrágangs á handritum -------------------------* *...—■——------------------------------------------------------------------------ fengu Sjón og Margrét Ornólfsdóttir fyrir Regínu og Pétur og hins vegar Huldar Breiðfjörð fyrir Villiljós. Pétur Blöndal talaði við þau um handritið, framhaldið og fleiri verkefni, tÆorgW1’ HULDAR Breiðfjörð gefur út ferðasögu fyrir jólin. ^aðið/Ásdís Nú er bara að koma handritinu á tj aldið „AUÐVITAÐ felst í því ákveðin viðurkenn- ing að hafa verið í þessum góða hópi og komist alla leið,“ segir Huldar Breiðfjörð að- spurður um þýðingu þess að hafa fengið lokastyrkveitingu úr handritasjóði Kvik- myndasjóðs. „Nú er bara að koma handrit- inu í framleiðslu og upp á tjaldið." „Handritið hét fyrst Þegar rafmagnið fór af, en þegar ég fékk framleiðendurna Skúla _____________________ Malmquist og Þórí „Svo gátu veðr- ið og vegirnir verið ansi blóð- hreinsandi." Snæ Sigurjónsson til samstarfs við mig gerðu þeir mér strax ljóst að sá titill gengi ekki upp,“ segir ...........—'■■■— Huldar og hlær. „Það er byggt á eigin smásögu og í því eru fímm Reykjavíkursögur sem skarast og koma svo saman í lokin. Þær gerast jafn- framt allar á sama tíma og allar eru sögurn- ar uppgjör persónu ýmist við sjálfa sig eða aðra og fjalla um sambönd í ýmsum mynd- um.“ Vegasjoppur hjarta bæjarins En Huldar er ekki maður einhamur. I næstu viku gefur Bjartur út nýja ferðasögu eftir hann sem nefnist Góðir Islendingar. „Sagan var skrifuð á ferðalagi um Island sem ég fór í janúar og febrúar á þessu ári. Eg keyrði hringinn á Volvo Lapplander og bjó í bílnum þennan tíma.“ Blaðamanni verður kalt við tilhugsunina eina um myrkrið og kuldann en leyfir Huld- ari samt að halda áfram: „Eg skrifaði dag- bækur á leiðinni. Þær eru að miklu leyti skrifaðar í vegasjoppum en þar slær hjarta hvers baejar úti á landi. Bæði Island og þorpin spila stóra rullu. Eg var að fara hringinn í fyrsta skipti og lagði áherslu á að heimsækja sem flest þorp og kaupstaði, sjá landið og hitta þjóð- ina. Eins og almennt á ferðalögum var för- inni heitið inn á við líka. Enda er það mun- urinn á ferðalögum og fríi. Þeir sem eru á ferðalagi skoða sjálfa sig í leiðinni en þeir sem eru í fríi vilja helst gleyma sjálfum sér.“ íslendingar óvenju gestrisnir Þetta er fyrsta bók Huldars. Hann hefur áð- ur fengist við blaðamennsku og lært bók- menntafræði í Háskóla Islands. Hvernig var ferðalagið íyrir bókamanninn? „Það var mik- il upplifun," svarar hann. „Það kom mér helst á óvart hvað það eru afskaplega fáir á ferli á þessum tíma. Svo gátu veðrið og veg- irnir verið ansi blóðhreinsandi." Hvernig voru viðtökurnar? „Mér var alls staðar vel tekið,“ svarar Huldar. „Eg sann- færðist enn frekar um að Islendingar eru óvenju gestrisin þjóð, sérstaklega á lands- byggðinni. Það var snarað upp hlaðborðum hvar sem ég kom og ég þurfti að slá mig ut- an undir til að minna mig á að ég værí bara maður.“ Maður á náttúr- lega að þjást „ÉG KOM hingað stundum þegar ég skutlaði dóttur minni í píanótíma og þurfti að bíða eft- ir henni í hálftíma," segir Margrét Örnólfs- dóttir þegar hún tyllir sér niður með kaffí- bolla á Gráa kettinum. „Svo dóttir þín spilar líka á píanó?“ segir blaðamaður forvitinn. „Já,“ svarar Margrét og brosir móðurlega. „Hún heitir Sunna og er níu ára. Ömólfur -------------------- sonur minn er þrem- „Eg hef ekki unnið venjulega vinnu í mörg, mörg ár - eigin- lega aldrei.“ ur arum yngri og er raunar líka í tónlist- arskólanum. Hann er að læra á selló.“ Sjálfsagt mætti búa til hljómsveit úr —þessum efniviði en stofnað var til samræðnanna vegna þess að Margrét ætlar að byrja á því að búa til kvik- mynd. Hún og Sigurjón B. Sigurðsson eða Sjón hafa unnið að handriti undanfarið ár sem ber heitið Regína og Pétur. „Það eru að- alsöguhetjurnar," segir Margrét. Syngur og hlutirnir gerast „Regína er 10 ára og Pétur er 8 ára,“ held- ur hún áfram. „Þetta er dans- og söngva- mynd sem gerist í byrjun sumars. Þá verður Regína fyrir algjöru áfalli vegna þess að „all- ir“ krakkarnir í götunni ætla í sumarbúðir - nema hún. Hún á sér engan draum heitari en að kom- ast með krökkunum og þegar hún hittir Pét- ur ákveða þau að vinna saman að þessu markmiði, þótt það verði að teljast óraun- hæft. Regína kemst brátt að því að hún býr yfir dýrmætum hæfileikum. Þegar hún syng- ur getur hún látið hluti gerast. Pétur er síðan orðsins maður, hjálpar henni að finna rétt rímorð og gerir það sönginn enn máttugri. Þetta er þeirra ævintýri.“ Margrét Ornólfsdóttir Sjón og Margi-ét fengu lokastyrkinn úr Kvikmyndasjóði Islands og er því fróðlegt að vita hvað tekur við. „Við þurfum að byrja á því að finna framleiðanda að myndinni til þess að geta sótt um framleiðslustyrk. Við erum byrjuð að vinna í því en það er ekki frá- gengið ennþá. Ég vona að það verði bíómynd úr þessu,“ svarar Margrét. Ekki vinslit ennþá Margi-ét spilaði á sínum tíma með Sykurmol- unum og Sjón var viðloðandi þann hóp. En hafa þau unnið áður saman? „Við höfum verið vinir lengi,“ svarar Mar- grét, „en við höfum aldrei unnið saman á þennan hátt. Ég bjóst nú við öllu og þetta var svolítil áhætta en það hafa ekki orðið vinslit ennþá. Þetta gekk án erfiðleika. Þeg- ar annað okkar var orðið svolítið stressað skiptumst við á að taka skorpu. Ég skamm- ast mín næstum fyrir að segja frá því hversu auðvelt þetta var. Maður á náttúrlega að þjást,“ segir hún og hlær. „En við þjáðumst svolítið líka.“ Margrét hefur áður unnið handrit að barnaþáttum fyrir Stöð 2 „en aldrei svona mikla sögu“. Hins vegar hefur hún komið víða við í tónlistarlífinu. Hún hefur samið tónlist við þrjú síðustu leikritin í Hafnar- fjarðarleikhúsinu, nú síðast Feðgana, og er að vinna að tónlist fyrir leikrit sem Árni Ib- sen er að skrifa og verður sett upp í febrúar á næsta ári. Einnig er hún að vinna tónlist fyr- ir heimildarmyndina Sement. Er þá listin hennar lifibrauð? „Það má segja það í seinni tíð,“ svarar hún. „Ég hef ekki unnið venjulega vinnu í mörg, rnörg ár - eiginlega aldrei," bætir hún við. „Ég hef bjargað mér á því að vera svo vitlaus að segja já - halda að ég geti allt. Ég hef aldrei viljað ráða mig í launavinnu. Það hefur oft gengið erfiðlega en síðustu tvö árin hef ég haft stanslaus verkefni." <r 9feturflalmn Smiðjuvegi 14, Kjppavofji, sími 587 6080 % Loksins — loksins — loksins Mættir aftur til leiks hinir einu sönnu Lúdó og Stefán Föstudags- og laugardagskvöld. Opið frá kl. 22-3. Borðapantanir í símum 557 9717 og 587 6080 Næturgalinn alltaf lifandi tónlist Tveir samliggjandi veitingastaðir. Fjaran: Villbráðar- og sérréttamatseðill Jón Möller spilar Rómantíska píanótónlist fyrir matargesti í Fjörunni og Víkingasveitin kemur í heimsókn. Fjörugarðurinn: Víkingasveitin leikur fyrir veislugesti Dansleikur: Víkingasveitin Fös og Lau. Fjaran - Fjörugarðurinn Strandgötu 55 - Hafnarfirði Sími 565 1213, fax 565 1891 vikings@istandia.is www.islandia.is/vikings MARGRET Örnólfsdóttir er með mörg járn í eldinum. Arna Þorsteinsdóttir og Stefán JÖkulsson halda uppi léttri °g góðri stemningu á Mímisbar. « i w | -þín saga!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.