Morgunblaðið - 05.11.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 49
AÐSENDAR GREINAR
Stjórnsýsla
í ógöngum
NÝLEGA samþykkti
stj órnkerfisnefnd
Reykjavíkurborgar til-
lögur um gjörbreytta
stjómsýslu í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Tillögum-
ar, sem verða til af-
greiðslu í borgarstjóm
fimmtudaginn 6. nóvem-
ber, vora samþykktar
með tveimur atkvæðum
borgarfulltrúa R-listans
gegn atkvæði undirrit-
aðs. Allt frá því að R-
listinn náði meirihluta í
borgarstjóm Reykjavík-
ur í júní 1994 hefur
stjórnsýslan í Ráðhús-
inu verið í uppnámi og
starfsmenn þar stundum vart haft
vinnufrið fyrir stöðugum úttektum,
rannsóknum og breytingum sem
hafa skilað minni árangri en þeim
skaða og ruglingi sem þær hafa
valdið í stjómsýslu borgarinnar.
Stöðugar úttektir
Frægt var þegar borgarstjóri
réð vin sinn Stefán Jón Hafstein til
að gera úttekt á stjórnun Reykja-
víkurborgar sumarið 1994. Niður-
staða þeirrar úttektar gaf til kynna
hvaða breytingar þyrfti að gera
Tillögurnar eru unnar
isnefnd til að hafa af-
skipti af málinu.
Misheppnaðar
breytingar 1995
Tillögumar gera ráð
fyrir því að embætti
borgarlögmanns og
skrifstofustjóra borgar-
stjórnar verði á nýjan
leik sett undir embætti
borgarstjóra en við
breytingamar 1995
vora þessi embætti
færð frá borgarstjóra
undir borgamitara. Pað
gagnrýndu borgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokks-
ins harðlega, enda á
skjön við alla eðlOega stjómsýslu í
Ráðhúsinu. Við breytingarnar 1995
gagnrýndu sjálfstæðismenn stofnun
sérstaks félags-, uppeldis- og menn-
ingarsviðs (FUM) og bentu á, að
það svið og embætti forstöðumanns
væri bæði óljóst og óskilgreint. Þær
breytingar sem gerðar era á þessu
sviði staðfesta að sjálfstæðismenn
höfðu rétt fyrir sér. Nú á að leggja
þetta svið niður og stofna nýtt, þ.e.
þróunar- og fjölskyldusvið, til að
takast á við ýmsa þætti sem lítt eða
ekki hefur verið sinnt áður, eins og
segir í greinargerð með tillögunni.
Upplausn í stjórnsýslunni
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
samkvæmt forskrift
borgarritara og borgar-
stjóra, segir Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson,
og því sýndarmennska
ein að kalla til ráðgjaf-
arfyrirtæki og
stj órnkerfisnefnd.
sem íyrst á stjórnsýslu borgarinn-
ar. í framhaldi af úttekt Stefáns
Jóns var ráðgjafarfyrirtækið Hag-
vangur ráðið til að vinna tillögur
um breytta stjórnsýslu borgarinn-
ar. Tillögur Hagvangs sem unnar
voru í samráði við borgarstjóra og
borgarritara voru samþykk’tar í
borgarráði í maí 1995. Borgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins gagn-
rýndu þessar tillögur harðlega.
Þær tillögur sem nú liggja fyrir
staðfesta einfaldlega að þær breyt-
ingar sem R-listinn gerði á stjóm-
sýslu Ráðhússins 1995 vora bæði
haldlausar og óskilvirkar. Þær hafa
hins vegar torveldað eðlilega
stjórnsýslu í öllu borgarkerfinu og
haft í fór með sér stóraukinn kostn-
að fyrir borgarsjóð, meðal annars
með fjölgun embættismanna.
Enn eitt ráðgjafarfyrirtækið,
Rekstur & ráðgjöf, var fengið til að
endurskoða tillögur Hagvangs. Til-
lögur Rekstrar & ráðgjafar, sem
stjórnkerfisnefnd samþykkti 13.
okt. sl., eru unnar í samræmi við
minnispunkta borgarritara, sem
hafðir vora að leiðarljósi við vinnslu
verksins, svo og minnisblað borgar-
stjóra frá 17. febr. 1998. Tillögurn-
ar eru því unnar samkvæmt for-
skrift borgarritara og borgarstjóra
og því sýndarmennska ein að kalla
til ráðgjafarfyrirtæki og stjórnkerf-
VitaMineral
18 vítamín og steineí'ni
Fæst í apótekum
Nýju tillögunum um breytingar á
stjórnsýslu Ráðhússins er ætlað að
bæta úr þeim skaða sem unninn var
á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar
1995 en margar þeirra munu ein-
ungis gera illt verra. Nánast ekkert
samráð var haft við starfsfólk Ráð-
hússins við undirbúning og gerð til-
lagnanna og starfsmönnum með
þessum hætti sýnd algjör óvirðing.
Ljóst er að tillögur um breytingar á
starfsmannaþjónustu eru flausturs-
lega unnar og ganga í raun þvert
gegn starfsmannastefnu Reykjavík-
urborgar, sem samþykkt var á síð-
asta ári. Allar líkur benda til þess að
verði tillögurnar samþykktar leiði
framkvæmd þeirra til upplausnar í
stjómun launamála borgarinnar og
muni auk þess torvelda nauðsynlega
yfirsýn og samræmingu á því sviði.
Tillögurnar gera einnig ráð fyrir
því að hagdeild verði lögð niður og
starfsemi hennar sundrað. Engin
fagleg rök era færð fyrir þessari ráð-
stöfun. Þvert á móti þjónar hún þeim
sjónarmiðum að aftengja skuh emb-
ættismenn sem ekki eru þóknanlegir
R-listanum. Gerðar hafa verið ótal-
margar skýi’slur og úttektir um
stjómkerfisbreytingai- og embættis-
mönnum hefur fjölgað, sem haft hef-
ur í fór með sér stóraukinn kostnað
fyrir borgarsjóð sem nemur tugum
milljóna króna. Þrátt fyrir það ríkir
nú upplausn í stjómsýslu Ráðhúss-
ins, sem dregur úr skilvh-kni og
markvissum vinnubrögðum í stjóm-
un og rekstri borgarinnar.
Höfundur er borgarfulltrúi.
Mán. - fös. 10:00 - 18:00
Fimmtud. 10:00 - 20:00
Laugard. 11:00 - 16:00
Sunnud. 13:00 - 16:00
TM - HÚSGÖGN
SlSomúla 30 - Slmi 568 6822
r
í órafjarlægðfrá næstu byggð ertu í öruggu sambandi...
• 341 grömm með rafhlöðunni
• Rafhlaða endist í allt að 83 Mst. í bið
• Skammvalsminni fyrir
99 númer og nöfn
• Einfalt valmyndakerfi
• Ýmis ankabúnaður fáanlegur
Langdrægni
- öryggi
24.980
stgr.
Armúla 27, sími 550 7800 • Kringlunm, simi 550 6690
Landssímahúsinu v/ Austurvöll, sími 800 7000
Afgreiðslustaöir íslandspósts um land allt
SÍMINN
n 2450 NMT
MMWIIM—I UI^IWHUMBM