Morgunblaðið - 15.11.1998, Page 8
8 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998
FRÉTTIR
JOHNSENINN létti þungu oki af þjóðinni með því að fá annan til að syngja fyrir sig í baráttunni um fyrsta sætið.
Morgunblaðið/Kristinn
FULLTRÚAR Háskóla íslands tóku við framlögum frá fyrirtækjunum Aco og Gagnalind í tilefni Tölvu-
átaks Háskóla íslands á föstudag. Frá vinstri eru Ragnhildur Hjaltadóttir, formaður Hollvinasamtaka Há-
skóla íslands, Þorsteinn Víglundsson frá Gagnalind, Pál! Skúlason, rektor HÍ, Ásdís Magnúsdóttir, formað-
ur SHÍ, Helen María Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri átaksins, Sigurður Hlöðversson, markaðssljóri Aco, og
Jón Krisfjánsson, þjónustustjóri Aco.
Stúdentar fá gefnar tölvur og forrit
TÖLVUFYRIRTÆKIÐ Aco afhenti Háskóla ís-
lands 10 Apple tölvur að gjöf á föstudag, en um
þessar mundir stendur yfír Tölvuátak Stúdenta-
ráðs Háskóla Islands. Fyrirtækið Gagnalind gaf
Háskólanum af sama tilefni sjúkraskrárkerfíð
Sögu, og verður það notað við kennslu í heilbrigðis-
vísindum.
Tölvuátak Stúdentaráðs Háskóia íslands hófst 30.
september sl. og hefur nú verið safnað hátt í 10
milljónum króna í tækjum, hugbúnaði og fjárfram-
lögum, að sögn Helenar Marfu Ólafsdóttur, fram-
kvæmdastjóra átaksins.
Af þeim 10 tölvum sem Aco gaf stúdentum eru 5
iMac vélar sem eru nýjustu tölvur Apple fyrirtækis-
ins. Við afhendingu gjafanna komu stúdentar sam-
an í Stúdentaheimilinu, hljómsveitin Bítlarnir spil-
aði og seldir voru tölvudiskar og hulstur til styrkt-
ar átakinu, sem Tæknival og S.H. Egilsson gáfu.
Unnið að málefnalegri
umræðu um hálendið
HAFIÐ er samstarfsverkefni um há-
lendi íslands á vegum Landvemdar,
en ætlunin er að halda opna ráð-
stefnu um hálendisverkefnið þann 23.
janúar næstkomandi í Ráðhúsi
Rykjavíkur. Tilgangur verkefnisins
er að koma á samstarfí áhuga- og
hagsmunaaðila um að afla og kynna
sem víðtækasta þekkingu um hálend-
ið og skapa þannig grundvöll fyrir
rökstudda og málefnalega umræðu
um vemd og nýtingu hálendisins.
Á kynningarfundi, sem haldinn
var á fostudag, gerðu formenn fjög-
urra starfshópa grein fyrir starfs-
sviði sínu, en hlutverk starfshópanna
er að taka saman upplýsingar um
hvern málaflokk, viðhorf og áform
um vernd og nýtingu hálendisins.
Málaflokkamir varða umhverfis- og
náttúmvemd, orkuvinnslu og orku-
nýtingu, ferðaþjónustu og útivist og
beitar- og hlunnindaafnot. Hópamir
hafa ennfremur með höndum að
undirbúa framsetningu efnisins á
ráðstefnunni 23. janúar. Á fundinum
á fostudag kom einnig fram Geir
Oddsson, forstöðumaður umhverfís-
stofnunar Háskóla íslands og gerði
grein fyrir verðmætamati náttúr-
unnar. Ámi Finnsson og Steinar
Friðgeirsson fjölluðu um orkunýt-
ingu norðan Vatnajökuls og Isólfur
Gylfi Pálmason, 4. þingmaður Suður-
landskjördæmis, reifaði nokkur sjón-
armið um málefnið.
MORGUNBLAÐIÐ
Dagur íslenskrar tungu á morgun
Unga fólkið
velur mælska
útvarpsmenn
Þorgeir Ólafsson
HALDIÐ verður
upp á Dag ís-
lenskrar tungu í
þriðja sinn á morgun,
mánudag. Af því tilefni
gengst menntamálaráðu-
neytið fyrir ýmiss konar
uppákomum í tengslum
við eflingu íslenskrar
tungu. Kjörorð dagsins
er „Móðurmálið mitt
góða“.
Þorgeir Olafsson,
deildarsérfræðingur
menntamálaráðuneytinu
og formaður fram-
kvæmdastjórnar Dags ís-
lenskrar tungu, rifjar upp
að Dag íslenskrar tungu
megi rekja til ákvörðunar
ríkisstjómarinnar síðla
ársins 1995. „Ríkisstjórn-
in samþykkti að tillögu
menntamálaráðherra að
gera 16. nóvember ár hvert, fæð-
ingardag Jónasar Hallgrímsson-
ar skálds, að Degi íslenskrar
tungu.
Við sama tækifæri var ákveðið
að veita verðlaun kennd við
Jónas, Verðlaun Jónasar Hall-
gifmssonar, fyrir framlag einnar
manneskju til íslenskrar tungu á
Degi íslenskrar tungu ár hvert.
Fyrsti verðlaunahafinn var Vil-
borg Dagbjartsdóttir, rithöfund-
ur og kennari, og annar verð-
launahafmn var Gísli Jónsson,
menntaskólakennari á Akureyri.
Verðlaunin verða veitt í þriðja
sinn við hátíðlega athöfn í Hafn-
arborg í Hafnarfirði kl. 16.30 á
morgun. Menningarsjóður Is-
landsbanka hefur lagt til verð-
launin. Annars vegar er um að
ræða peningaverðlaun upp á
500.000 kr. og hins vegar Ritsafn
Jónasar Hallgifmssonar í hátíð-
arbandi.
Eins og áður verður stofnun,
fyrirtæki eða félagi veitt sérstök
viðurkenning fyrir stuðning við
íslenska tungu. Áður hafa orða-
nefndir Verkfræðingafélags Is-
lands og Hið íslenska bók-
menntafélag hlotið verðlaunin."
- Hver velur verðlaunahaf-
ana?
„Menntamálaráðherra hefur
skipað sérstaka framkvæmda-
stjórn dagsins. Einn liður í starfí
nefndarinnar er að velja verð-
launahafana. Ég er formaður
nefndarinnar. Aðrir í nefndinni
eru Ólafur Oddsson, mennta-
skólakennari, Sigmundur Ernir
Rúnarsson, fréttamaður, Krist-
ján Árnason, málfræðingur, og
Vilborg Dagbjarts-
dóttir. Verkefnisstjóri
Dags íslenskrar tungu
er Jónmundur Guð-
marsson."
- Hvert verður
framlag ungu kynslóðarinnar til
dagsins?
„Við höfum sent skólayfirvöld-
um tillögur að verkefnum í
tengslum við Dag íslenskrar
tungu og hvatningu um að halda
sérstaklega upp á daginn. Dag-
urinn markar því til viðbótar
upphaf upplestrarkeppni grunn-
skólanna og stendur upplestrar-
keppnin yfir fram á næsta vor.
Framhaldsskólanemar láta
ekki sitt eftir liggja því að nem-
endur í fimm framhaldsskólum á
höfuðborgarsvæðinu hafa valið
þrjá bestu dagskrárgerðarmenn-
ina í útvarpi með tilliti til ís-
lenskrar tungu. Ég er alveg viss
um að viðburðurinn mun ekki að-
► Þorgeir Olafsson, formaður
framkvæmdasljórnar Dags ís-
lenskrar tungu, er fæddur 18.
febrúar árið 1956 í Reykjavík.
Þorgeir varð stúdent frá
Menntaskólanum í Kópavogi ár-
ið 1977 og lauk fíl. cand. prófi í
Iistfræði frá Stokkhólmsháskóla
árið 1984.
Hann var dagskrárgerðar-
maður í útvai-pinu á árunum
1986 til 1991 og deildarsljóri
hjá Listasafni Islands frá árinu
1991 til 1992. Þá tók hann við
starfi deildarsérfræðings hjá
menntamálaráðuneytinu.
Eiginkona Þorgeirs er Anna
Margrét Guðjónsdóttir, ferða-
málafulltrúi Reykjavíkur, og
eiga þau samtals fínim börn.
eins vekja athygli heldur einnig
undrun og jafnvel hneykslun.“
- Hefur verið haldið upp á
daginn með uppákomum fyrr í
vikunni?
„Framkvæmdastjómin hvetur
sérstaklega til umræðu um ís-
lenska tungu og fjölmiðla á Degi
íslenskrar tungu að þessu sinni.
I tengslum við þá áherslu geng-
ust Islensk málnefnd og útvarps-
réttarnefnd íyrir sérstöku mál-
þingi um hvort ljósvakamiðlarnir
efli íslenska tungu í gær.
Ég get nefnt að á málþinginu
hélt Ari Páll Kristinsson, mál-
farsráðunautur Ríldsútvarpsins,
erindi undir yfirskriftinni „Tján-
ingartæki og fyrirmynd". Nem-
endur í hagnýtri fjölmiðlun við
HI sögðu frá niðurstöðum at-
hugunar á notkun íslensks máls
á útvarpsstöðvunum og áfram
væri hægt að telja
upg áhugaverð erindi.
Ég get svo nefnt að
Orðabók Háskólans
hélt kynningarfund
um vefsíðu sína í
Þjóðarbókhlöðunni á fimmtudag-
inn.“
- Hefur almenningur sýnt
Degi íslenskrar tungu áhuga?
„Framkvæmdastjórnin hefur
frá fyrstu tíð reynt að fá sem
flesta til að halda upp á daginn.
Viðtökumar hafa verið feikilega
góðar bæði í fyrra og hittifyrra.
Fólk virðist hafa gaman af
þessu. Áhuginn fyrir tungumál-
inu er alveg ótrúlegur, bæði hjá
yngri og eldri kynslóðinni. Ung-
lingarnir eru kannski helst á
móti eins og gerist og gengur.
Annars er ef til vill ekki ástæða
til að hafa áhyggjur af því enda
ganga unglingsárin yfir á stutt-
um tíma eins og allir vita.“
Upphaf upp-
lestrarkeppni
grunnskólanna