Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 1
STOFNAÐ 1913
269. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þjóðverjar
taki af skarið
Róm. Reuters.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Ítalíu,
Lamberto Dini, þrýsti í gær á Þjóð-
verja að taka af skarið um hvort þeir
mundu óska eftir framsali Abdullas
Öcalans, leiðtoga Verkamannaflokks
Kúrda (PKK). Sagði hann að ítalar
hefðu einvörðungu handtekið Öcalan
vegna þess að Þjóðverjar hefðu gef-
ið út alþjóðlega handtökuskipun á
hendur honum.
Þýska stjómin sagði á föstudag að
hún hefði engin áform um að óska eftir
framsali Öealans, sem er eftirlýstur í
Þýskalandi fýrir að hvetja til mann-
drápa. Joschka
Fischer, utan-
rOdsráðherra
Þýskalands,
sagði að Þjóð-
veijar hefðu
ekki skipt um
skoðun, en að
ítalar hlytu að
skilja að Þjóð-
verjai' vildu koma
Tyrkja og Kúrda í
Abdulla
Öcalan
í veg fyrir átök milli
Þýskalandi.
I Yilmaz vilI/22
Þúsundir fylgdu Galínu Starovojtovu til grafar
Heita því að halda
baráttunni áfram
St. Pétursborg. Reuters.
ÞÚSUNDIR manna, þeirra á meðal þrír fyrrverandi forsætisráðherrar
Rússlands, kvöddu í gær þingkonuna Galínu Starovojtovu hinstu kveðju í
St. Pétursborg. Þingkonan var myrt við heimili sitt sl. föstudagskvöld.
Ávörpuðu þingmenn og ráðherrar mannfjöldann við útförina og hétu því að
dauði hennar myndi ekki draga úr baráttu þeirra fyrir lýðræðisumbótum.
Sjónvarpað var beint frá útfórinni og rússnesk dagblöð fjölluðu um fátt
annað. I gærkvöldi urðu margir við þeii'ri ósk stuðningsmanna Staro-
vojtovu að slökkva Ijós í íbúðum sínum til minningar um hana.
ÞÚSUNDIR manna vottuðu rússnesku þingkonunni
Mynduðust langar raðir við
Reuters
Galínu Starovojtovu virðingu sína við útför hennar í þjóðháttasafninu í St. Pétursborg í gær.
kistuna og dróst útförin um ríflega þrjá klukkutíma af þeim sökum.
Kista Starovojtovu stóð frammi í
þjóðháttasafninu í St. Pétursborg og
gengu um tíu þúsund manns fram
hjá henni til að votta hinni látnu
virðingu sína. Var röðin svo löng að
útförin dróst um þrjá klukkutíma.
Að því búnu var kista Starovojtovu
flutt í Alexander Nevskí klaustrið
þar sem hún var grafln. „Hún var
hetja fólksins," sagði eldri kona sem
vottaði Starovojtovu virðingu sína.
Við athöfnina í safninu flutti m.a.
Anatólí Tsjúbaís, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, ávarp þar sem hann
sagði að ekkert fengi stöðvað lýð-
ræðissinna. „Þeir drepa félaga okk-
ar, vini okkar. Hyggjast þeir stöðva
okkur? Vilja þeir hræða okkur?
Þeim mun ekki takast það. Engum
mun nokkru sinni takast það,“ sagði
Tsjúbaís og komst greinilega við. Þá
voru Viktor Tsjernomyrdín, Sergei
Kíríjenkó og Jegor Gajdar, fyrrver-
andi forsætisráðherrar, viðstaddir
útförina, auk fleiri lýðræðis- og um-
bótasinna.
„Fyrirgefðu okkur, sem erum við
völd,“ sagði fulltrúi stjórnvalda við
athöfnina, Valentína Matvíjenkó,
aðstoðarforsætisráðherra. „Fyrir-
gefðu okkur, félögum þínum, sem
gátum ekki gætt þín.“ Forseti
landsins, Borís Jeltsín, var hins veg-
ar fjarstaddur en hann liggur á
sjúkrahúsi með lungnabólgu. Sagði
talsmaður forsetans að morðið á
Starovojtovu hefði komið afar illa
við Jeltsín og að rekja mætti veik-
indi hans að nokkru leyti til þess.
Fleiri minntust Starovojtovu í
gær, þeirra á meðal Margaret
Thatcher, fyrrverandi forsætisráð-
herra Bretlands, og Mary Robin-
son, framkvæmdastjóri mannrétt-
indastofnunar Sameinuðu þjóðanna,
sem sagði morðið fyrirlitlegt.
■ Lýðræðisumbæturnar sagðar/19
Rannsókn á fjáröflun Gores varaforseta
Reno skipar
ekki saksóknara
Reuters
Skref í átt að sjálfstæði?
Washington. Reuters.
JANET Reno, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær
að hún myndi ekki skipa óháðan
saksóknara til að rannsaka fjáröfl-
un varaforsetans, Als Gores, í for-
setakosningunum 1996. Þá höfðu
starfsmenn dómsmálaráðuneytisins
rannsakað málið í þrjá mánuði. Er
þetta mikill léttir fyrir Gore, þar
sem rannsókn óháðs saksóknara
hefði getað dregist á langinn og
staðið í vegi fyrir framboði hans til
forseta árið 2000.
Veigalítil sönnunargögn
Reno segist telja að sönnunar-
gögn þess efnis að Gore hafi logið að
bandarísku alríkislögreglunni, FBI,
um fjáröflun til kosningabaráttunn-
ar hafi reynst svo „veigalítil að eng-
in ástæða er til frekari rannsóknar".
Rannsókn á fjáröflun fyrir for-
setakosningarnar 1996 hefur staðið
í nokkurn tíma og hafa pólitískir
andstæðingar forsetans fullyrt að
hvorki hann né varaforsetinn hafi
farið að lögum. Hefur gagnrýnin
einkum beinst að Gore en meðal
þess sem fullyrt er, er að Gore hafi
hringt úr síma Hvíta hússins til að
biðja fjársterka stuðningsmenn
flokksins um fjárframlög til endur-
kjörs síns og forsetans. Hann segist
hins vegar hafa talið að framlögin
hefðu átt að renna til Demókrata-
flokksins.
I haust fannst minnisblað sem
þótti benda ti) þess að Gore hefði
þarna talað gegn betri vitund en
Reno hefur nú úrskurðað að minn-
isblaðið sé ekki næg sönnun þess að
Gore hafi logið.
PALESTINUMENN opnuðu al-
þjóðaflugvöll á Gaza-svæðinu í
gær og fögnuðu honum sem stóru
skrefi í sjálfstæðisbaráttu sinni.
Þetta er fyrsti fiugvöllur Palest-
ínumanna á sjálfstjórnarsvæðum
sínum. Hann hefur verið tilbúinn í
tæp tvö ár en opnun hans tafðist
vegna þráteflisins í friðarviðræð-
unum við Israela.
Flugvöllurinn hefur mikla þýð-
ingu fyrir efnahag Palestínu-
manna og aðalsamningamaður
þeirra í friðarviðræðunum, Saeb
Erekat, sagði í gær að opnun hans
yki mjög líkurnar á því að draum-
ur þeirra um fullt sjálfstæði rætt-
ist.
■ Tákn Palestínuríkis/22
Lokatilraun
til að semja
um íjárlög
SKRIÐUR er nú kominn á viðræður
norsku stjórnarinnar, Hægriflokks-
ins og Framfaraflokksins og bendir
margt til þess að flokkarnir fallist á
að styðja fjárlagafrumvarp stjómar-
innar sem lagt verður fyrir þingið í
dag og á morgun. Hefur stjómin lát-
ið undan mörgum kröfum flokkanna
og í gærkvöldi hófst fundur fulltrúa
stjórnar og flokkanna tveggja, sem
gert var ráð fyrir að stæði fram á
nótt.
Jan Petersen og Carl I. Hagen,
leiðtogar Hægriflokksins og Fram-
faraflokksins, lýstu þvi yfir í gær að
breytingamar sem stjórnin hefði
gert á fjárlagafrumvarpinu gæfu til-
efni til að setjast að samningaborði.
í nýjasta uppkasti stjórnarinnar
fellur hún að mestu leyti frá fyrir-
ætlunum sínum um skattahækkanir.
Til að di'aga úr áhrifum þess leggur
stjórnin til niðurskurð útgjalda, m.a.
lækkun barnabóta.