Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 21

Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 21
MORGUNB L AÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 21 ERLENT Forsætisráðherra Ungverjalands væntir þess að landið fái aðild að ESB árið 2002 Vín. Reuters. VIKTOR Orban, forsætísráðherra Ungverjalands, sagði í blaðaviðtali sem birt var í gær að það væri „móðgandi" og „niðurlægjandi" að Evrópusambandið skuli ekM vera til- búið til að tilgreina neinn ákveðinn tímaramma fyrir inngöngu Mið- og Austiu’-Evrópuríkjanna í sambandið. „Astandið er óþægilegt," tjáði Orban austurríska tímaritinu Format. „Petta er að sumu leyti móðgandi fyrir sjálfsvirðingu þjóð- anna í Mið- og Austur-Evrópu. Ég get fullyrt þetta fyrir hönd Ung- verjalands. Þetta móðgar okkur vegna þess að Vestur-Evrópa setur nýjar og nýjar dagsetningar," sagði hann. Orban sagðist vænta þess að Ung- Telur tafír á inn- göngu „móðgandi“ frá því að vera eins vel búin undir aðild eins og Ungverjaland, Pólland og Tékkland eru núna,“ sagði Orban. Schussel segir umsóknarríkin ráða hve hratt er farið verjaland - sem ásamt Póllandi, Tékklandi, Slóv- eníu, Eistlandi og Kýpur hóf í ár að- ildarviðræður „fyrir alvöru" - gæti gengið í ESB árið 2002. „Við uppfyllum aðildarskilyrðin. Og ef við gerum það, er innganga það minnsta sem við höfum kröfu til,“ sagði for- sætisráðherr- ann. Hann sakar ESB um að beita mismunandi mælikvörðum á þau ríki sem nú bíða aðildar en þegar Suður- Evrópuríkjunum Grikklandi, Spáni og Portúgal var veitt innganga. „Þessi ríki voru sannarlega langt Wolfgang Schússel, utanríkisráð- herra Austurríkis, sem um þessar mundir fer með formennsku í ráð- herraráði ESB, tjáði fréttamönnum á ráðstefnu samstarfsráðs þjóðþinga ESB-landanna og Evrópuþingsins (COSAC) í Vín á mánudag, að um- sóknarríkin sjálf ákveði hve hratt þeim gangi að gerast aðilar að ESB. Fulltrúar frá þingum Mið- og Aust- ur-EvrópuiTkjunum, auk Kýpur, tóku einnig þátt í fundinum í Vín. i Alnæmis- smituðum fjölgar um 10% AÆTLAD er að alnæmissmit- uðum fjölgi um 10% á árinu og helmingur þeirra sem smituð- ust af HlV-veirunni í ár er yngri en 24 ára, að sögn UNAIDS, stofnunar sem Sa- meinuðu þjóðirnar komu á fót til að berjast gegn útbreiðslu alnæmis. Stofnunin áætlar að á hveri'i mínútu smitist 11 manns af veirunni sem veldur alnæmi. Alls hafa 33,4 milljónir manna smitast, þar af rúmlega 95% í þróunarlöndunum. Frakkar vilja fá Pinochet FRANSKUR rannsóknardóm- ari gaf i gær út beiðni um hand- töku Augustos Pinochets, íyrr- verandi einræðisheiTa í Chile, í þetta sinn vegna hvarfs fransks læknis Salvadors Allendes, fyrr- verandi forseta landsins, og annars Frakka. Dómarinn gaf út samskonar beiðni fyrir hálf- um mánuði vegna hvarfs þriggja annarra Frakka í Chile á valdatíma Pinochets. Lávarða- deild breska þingsins, æðsta dómstig Bretlands, kveður í dag upp úrskurð um hvort verða eigi við beiðni um að Pinochet verði framseldm- til Spánar. Kjarnorku- samningi rift? NORÐUR-Kóreumenn hótuðu í gær að rifta kjarnorkusamn- ingi við Bandaríkjastjórn vegna ásakana hennar um að þeir kynnu að hafa smíðað neðan- j arð arkj arn o rku ver á laun. Samkvæmt samningnum eiga Bandaríkjamenn að sjá Norð- ur-Kóreumönnum fyrir tveim- ur kjarnakljúfum, sem ekki er hægt að nota til að framleiða kjarnavopn, gegn því að þeir hætti við kjarnorkuáætlun sína. Kovac í for- setaframboð MICHAL Kovac, síðasti for- seti Slóvakíu, kvaðst í gær ætla að gefa kost á sér í forseta- kosningunum, sem ráðgerðar eru á næsta ári. Slóvakía hefur verið án þjóðhöfðingja frá 2. mars þegar kjörtímabili Kovac lauk vegna sundrungar á þing- inu á síðustu mánuðum valda- tíma Vladímírs Meciars, fyrr- verandi forsætisráðherra og erkifjanda Kovacs. Þú qetur komið miklu i lipran bil Allir kostir við íjármögnun eru fyrir hendi, þ.á.m. rekstrarleiga. Nýttu þér þjónustu sölumanna okkar við að finna rétta bílinn og útbúa hann eftir þínu höfði. Ford Fiesta Courier Verð 998.000 kr. án vsk. Brimborg-Þórshamar Tryggyabraut 5, Akureyri sími 462 2700 Bíley Betri bílasalan Bílasala Kefiavíkur Búðareyri 33, Reyðarfirði Hrísmýri 2a, Selfossi Hafnargötu 90, Keflavík sími 474 1453 sími 482 3100 sími 421 4444 Tvisturinn Faxastíg 36, Vestmannaeyjum sími 481 3141 BRIMBORG FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7010 Ford sendibílar af minni gerðinni sameina mikið flutningsrými og sérlega mikla burðargetu. Öryggi ökumanns, þægilegt vinnuumhverfi og hagkvæmni í rekstri sitja í fýrirrúmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.