Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 19

Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 19 Dauði Starovojtovu kann að marka þáttaskil Lýðræðisumbæt- urnar sagðar í hættu Hvalveiðiflotinn líklega heim Tókýó. Reuters. LIKLEGT þykir að japanski hval- veiðiflotinn verði kallaður heim úr Suðurhöfum eftir að kviknaði í einu skipanna. Sagði talsmaður eigenda að enn væri verið að skoða alla kosti í stöðunni en að allt benti til að ekki yrði um frek- ari hvalveiðar að ræða á þessu fískveiðiári. Astæða þess að allur flotinn, sem er fimm hvalveiðiskip, verður líklega kallaður heim er sú að skipið sem skemmdist í eldinum er hið eina sem útbúið er nauðsyn- legum tækjakosti svo hægt sé að gera að hvalkjötinu. Flotinn var á leið í Suðurhöf tólfta árið í röð þrátt fyrir að Al- þjóðahvalveiðiráðið, IWC, hafi ít- rekað farið fram á það við Japani að þeir hættu hvalveiðum sínum þar. Japanir hafa stundað hvalveið- ar í vísindatilgangi frá 1987 eftir að IWC setti bann við hvalveiðum í viðskiptatilgangi. Ratar hvalkjötið þá ekki upp á borð japanskra neyt- enda fyrr en eftir að vísindamenn hafa rannsakað skepnuna. Reuters Nýr forseti Líbanons NÝR forseti Libanons, Einile La- houd, tók við embætti í gær af Elias Hrawi sem gegnt hefur forsetaembættinu frá árinu 1990. Lahoud er fyrrverandi yf- irmaður herafla landsins og nýt- ur hann stuðnings Sýrlendinga sem fara með utanríkismál Líb- ana og hafa 35.000 manna her- afla í landinu. Lahoud var kjör- inn á líbanska þinginu og í inn- setningarræðu sinni í gær hét hann aukinni áherslu á lög og reglu í landinu. Hrawi, t.h., óskar hér eftir- manni si'num til hamingju. Moskvu. Reuters. MORÐIÐ á rássnesku þingkon- unni Galínu Starovojtovu hefur beint athyglinni enn einu sinni að þeirri óvissu sem ríkir í rússnesk- um stjómmálum og hve spillingin og ofbeldið hefur sett mark sitt á þau. Nú spyrja Rússar sjálfa sig hvert stefni, sjö ámm eftir hran Sovétríkjanna, og er víst að margir era uggandi um ástandið, ekki síst vegna veikinda Borísar Jeltsíns forseta, sem virðist ekki hafa þann styrk til að bera sem þarf til að takast á við aðsteðjandi vanda. „Enginn bjóst við því að leiðin til frelsins yrði svo illfær eða að svo mikið hugrekki þyrfti til að halda baráttunni áfram og til að veita hugsjónum okkar bakhjarl,“ sagði Vladimír Lúkín, þekktur frjáls- hyggjumaður, við útfor St- arovojovu í gær. Efnahagurinn er í rúst, gjáin á milli kommúnista og frjálshyggju- manna er dýpri en nokkru sinni, trúin á dómsmálayfirvöld er horfin og þrýstingurinn á Jeltsín að láta af embætti fyrir árið 2000 eykst Ráðgjafi Schröders segir getu Jeltsíns til að sinna emb- ættinu takmarkaða enn. Ekki bætir úr skák að ekki er um marga eða góða kosti að ræða þegar rætt er um eftirmann forset- ans og trúin á stjórnvöld minnkaði enn vegna nýlegrar deilu um kyn- þáttafordóma þingmanns eins en stjórnin lét undir höfuð leggjast að víta hann þrátt fyrir mikinn þrýst- ing. Marína Salje, dálkahöfundur í Nezavisimaja Gazeta talaði fyrir munn margra er hún lýsti myrkri framtíðarsýn. „Morðið á Galínu St- arovojtovu er ... upphafið á fjölda- árás á það sem eftir er af lýðræð- isumbótunum sem ekki hefur verið lokið við.“ Margir lýðræðissinnar og frjálshyggjumenn óttast að lýð- ræðisumbæturnar sem gerðar hafa verið frá árinu 1991 og fólkið sem KRAKKAR! MUNIÐ EFTIR OKKUR TANNIOGTÚPA Öll Lionsdagatöl eru merkt: Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa. Allur hagnaður rennur til líknarmála. staðið hefur að þeim, sé í hættu og að enginn muni koma þeim til varnar. I upphafi áratugarins vora mikl- ar vonir bundnar við Jeltsín en sjö ára seta hans á valdastóli hefur ekki fært Rússum þá hagsæld eða þann styrk sem þeir vonuðust eftir. Verðbólga er á hraðri uppleið, iðn- aðarframleiðsla hefur dregist sam- an, einkavæðingin virðist fyrst og fremst hafa nýst þeim sem áttu nóg fyrir og spilling er gríðarleg. Leigumorð eru daglegt brauð og sjaldnast tekst að hafa uppi á morðingjunum. Valdatóm og sljórnleysi Veikindi Jeltsíns, átök við þingið þar sem andstæðingar hans eru í meirihluta og umdeildar ákvarðan- ir, t.d. sú að ráðast til atlögu gegn uppreisnarmönnum í Tsjetsjníju, hafa dregið stórlega úr völdum hans og þess í stað hefur myndast valdatóm, þar sem stjómleysi ríkir. „Morðið á Galínu Starovojtovu er hörmulegt dæmi um skort á stjóm í þessu landi," sagði í Kommersant í gær. Völdin hafa að miklu leyti færst yfir á hendur forsætisráðherrans, Jevgenís Prímakovs en margir hafa Reuters FJOLDI fyrrverandi og núverandi frammánianna í rússneskum stjórnmálum var viðstaddur útför þingkonunnar Galínu Staro- vojtovu í gær. F.v.: Vladimír Lúkín, sem flutti ávarp við útförina, Sergei Tsiplíajev, fulltrúi forsetans, Anatólí Tsjúbajs, fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra, Jegor Gajdar, fyrrverandi forsætisráð- herra og Borís Nemtsov, fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra. lýst efasemdum um að hann muni styrkja lýðræðið í Rússlandi, þótt flestir telji hann geta komið á meiri stöðugleika en nú sé til staðar. Hins vegar er Jeltsín enn við völd að nafninu til og þrjóskast við að halda þeim. Gúnther Verheugen, einn helsti ráðgjafi Gerhards Schröders Þýska- landskanslara, sem hitti Jeltsín fyrir skömmu, sagðist í gær telja að geta Jeltsíns til að sinna emb- ættisskyldum sínum væri „afar takmörkuð" og að nær öll stjóm- málaumræða í Rússlandi snerist um spurninguna hvenær Jeltsín- skeiðinu lyki og hvað tæki við. Lýðræðissinnar sameinist En þrátt fyrir myi-ka framtíðar- sýn vonast frjálslyndh- og lýðræð- issinnaðir Rússar til þess að dauði Starovojtovu muni marka tímamót. Skorað hefur verið á umbótasinna, lýðræðissinna og frjálslynda stjómmálamenn að láta af deilum sínum og sameinast gegn kommún- istum og þjóðernissinnum. Sú virð- ist þegar hafa orðið raunin í heima- borg Starovojtovu, St. Pétursborg, þar sem þessir hópar hafa ákveðið að sameinast um einn frambjóð- anda. eru komin á alla útsölustaði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.