Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Davíð Oddsson forsætisráðherra á ráðstefnu Skýrr um deilur vegna gagnagrunnsfrumvarpsins
Öfgar í
vernd ekki
betri en öfg-
ar í nýtingu
I upplýsingasamfélagi framtíðarinnar
verða gerðar ríkari kröfur um skipuleg og
öguð vinnubrögð varðandi persónuvernd
en hingað til hefur þekkst. Slíkum kröfum
er auðveldara að fullnægja í miðlægum
gagnagrunni en dreifðum, að því er kom
fram á ráðstefnu Skýrr hf.
Andlát
GUÐJÓN
ÓLAFUR
HANSSON
GUÐJÓN Ólafur Hansson, öku-
kennari og leigubílstjóri og fyrrver-
andi formaður Ökukennarafélags
íslands, lést síðastliðinn mánudag,
23. nóvember. Hann var 77 ára að
aldri.
Guðjón fæddist 26. júlí 1921 í
Ólafsvík. Móðir hans var Kristín
Bjarnadóttir frá Barði í Ólafsvík.
Hann stundaði nám við Héraðsskól-
ann í Reykholti 1938-1941 en flutti
eftir það til Reykjavíkur.
Guðjón hóf leigubílaakstur hjá
Litlu-Bílastöðinni árið 1944 og
keyrði síðan um árabil hjá Hreyfli
frá 1950. Hann var ökukennari frá
1955 og kenndi á ferli sínum um
3700 nemendum.
Guðjón sat í varastjórn Hreyfíls í
nokkur ár og starfaði í fjölda nefnda
á vegum fyrirtækisins. Þá var hann
í stjórn Frama, félags leigubifreiða-
stjóra, í mörg ár. Hann sat einnig í
stjórn Ökukennarafélags íslands og
var formaður þess í tólf ár og síðar
heiðursfélagi.
Á yngi-i árum stundaði Guðjón
frjálsíþróttir hjá Glímufélaginu Ár-
manni. Hann sat í stjórn frjálsí-
þróttadeildar Armanns og síðar í
aðalstjórn félagsins. Hann var
sæmdur bæði gull- og silfurmerki
Ármanns fyrir vel unnin störf.
Guðjón starfaði mikið á vegum
Sjálfstæðisflokksins. Hann var í
stjórn málfundafélagsins Óðins í
mörg ár og var gjaldkeri þess.
Hann sat í verkalýðsráði flokksins
og fulltrúaráðinu í áratugi og einnig
sat hann fjölda landsfunda.
Guðjón kvæntist árið 1950 Guð-
rúnu Brynjólfsdóttur en þau slitu
samvistum. Þau eiga fjögur börn.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
ávarpaði ráðstefnugesti og sagðist
fagna umræðuþingi um örugga
vemdun persónuupplýsinga. Hann
vék orðum sínum að umræðunni um
hvemig Islendingar gætu beitt nýj-
ustu erfðavísindum og upplýsinga-
tækni til að bæta heilbrigðiskerfið
og um leið leitast við að gæða at-
vinnulífið stóraukinni fjölbreytni.
Hann sagði að því miður hefði líka
örlað á því að persónuverndin hefði
verið notuð sem yfirskin eða tylliá-
stæða í gagnrýni á frumvarp heil-
brigðisráðherra af hálfu aðila sem
mundu reyna að eyðileggja það,
hversu góðum breytingum sem það
kynni að taka. „Hefur verið ótrá-
lega langt seilst af ýmsum virðuleg-
um aðilum í þeirri viðleitni. Per-
sónuvernd er enginn greiði gerður
með slíkum málatilbúnaði, því hún
er þá aðeins yfirskin og notað í ann-
arlegum tilgangi til að ná fram
óskyldum markmiðum."
Davíð sagði að hafa yrði hugfast
að öfgar væru aldrei rétti vegvísir-
inn, hvorki í þessum málum né öðr-
um. Hann sagði að sú staðreynd
ætti jafnt við um náttúraauðlindir,
upplýsingar og önnur tækifæri í
okkar þjóðfélagi. „Öfgar í verndun
eru ekki betri en öfgar í nýtingu.
Sköpun nýrrar þekkingar og nýi-rar
tækni þarf ekki að vera í andstöðu
við friðhelgi einkalífs, ef við höldum
rétt á. Það er notkunin og beitingin
á nýju þekkingunni sem öllu máli
skiptir. Þetta hefur almenningur í
Iandinu skynjað og því verið fær um
að sjá í gegnum allt moldviðrið, sem
þyrlað hefur verið upp.“
Tölvulög til endurskoðunar
Lög um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga, svokölluð tölvu-
lög, eru til endurskoðunar í því
skyni að tryggja samræmi á milli
laga hér á landi og tilskipunar Evr-
ópusambandsins um vernd einstak-
linga við vinnslu persónuupplýsinga
og um frjálst flæði slíkra upplýs-
inga.
Oddný Mjöll Arnardóttir, lög-
fræðingur, sem fjallaði um verndun
persónuupplýsinga og lagaumhverf-
ið á ráðstefnu SkýiT, sagði að innan
tíðar yrði tilskipunin hluti af EES-
samningnum og að íslenska ríkið
yrði að hlíta reglum samningsins.
Hún sagði að ganga mætti út frá því
að ákvæði nýrra tölvulaga yrðu í að-
alatriðum í takt við tilskipun Evr-
ópusambandsins. „Geta má þess að
danskt frumvarp til nýrra laga um
meðferð persónuupplýsinga er til
dæmis nánast efnislega samhljóða
tilskipuninni hvað varðar almennar
reglur og ekki er sérstök ástæða til
að ætla að staðið verði að innleið-
ingu tilskipunar í landsrétt hér með
öðrum hætti en í nágrannalöndum.“
Verðmætar upplýsingar
Hrafnkell V. Gíslason, fram-
kvæmdastjóri þjónustudeildar
Skýtr, sagði að umræðan um mið-
lægan gagnagrunn hefði vakið upp
spurningar um verndun persónu-
upplýsinga, sem væri auðveldara að
tengja saman vegna meiri notkunar
kennitölu hér heldur en víða í Evr-
ópu. „Fyrirtæki geta notað upplýs-
ingar í markaðslegum tilgangi, í
sölutilgangi eða til að skoða hegðun
kaupendahópa. Slíkar upplýsingar
skipta fyrirtæki orðið miklu máli
enda er persónuleg þjónusta að
aukast og mun greina á milli feigs
og ófeigs á því sviði þegar fram líða
stundir.“
Hrafnkell sagði að flestar þær
upplýsingar sem fyrirtæki og stofn-
anir yrðu sér úti um litu í upphafi út
fyrh’ að vera saklausar, en þegar bú-
ið væri að setja upplýsingarnar í
samhengi, sem væri ekki heimilt
samkvæmt lögum, gætu þær orðið
viðkvæmar. Hann sagði að ríkið yrði
að giípa inn í og setja reglur um
hvernig persónuupplýsingar væru
meðhöndlaðar, hversu ómerkilegar
sem þær kynnu að vera.
Hrafnkell sagði að Skýn’ hefði
áratugareynslu í starfsemi gagna-
grunna, sem væri homsteinn
margra fyrirtækja. Hann sagði það
reynslu fyrii’tækisins að miðlægir
gagnagi’unnar væru mun hentugri í
notkun heldur en dreifðir gagna-
grunnar. I þeim væri auðveldara að
tryggja rekstrar- og aðgangsöryggi
og því persónuvernd.
„Miðlægir gagnagrunnar eru
auðveldari í notkun og ódýi’ari í
rekstri heldur en dreifðir gagna-
grunnar. I því lagaumhverfi sem
fyrirtæki á sviði upplýsingatækni
Morgunblaðið/Ásdís
munu í framtíðinni búa við er ljóst
að kostir miðlægs gagnagi’unns
verða augljósari en áður. Þar verða
gerðar ríkari kröfur um skipuleg
og öguð vinnubrögð varðandi per-
sónuvernd, en þær kröfur er
einmitt auðveldara að uppfylla í
miðlægum gagnagrunni en dreifð-
um.“
Hættur á Netinu
Stefán Hrafnkelsson fram-
kvæmdastjóri Margmiðlunar hf.
sagði að Netið væri orðið ómissandi
þáttur í starfsemi fyi’irtækja enda
væri það orðið ein öruggasta leiðin
til miðlunar upplýsinga. Hann benti
hins vegar á að margt væri að óttast
ef fyrirtæki væru ekki meðvituð um
þær ógnanir sem væru fyrir hendi á
Netinu. Stefán sagði að ný kynslóð
af hugbúnaði gerði tölvuþrjótum
kleift að brjótast inn í heimilistölvur
á einfaldan hátt og ná fullu valdi yf-
ir lyklaborði og lestri og ski-ift af
hörðum diski. Algengast er að
tölvuþrjóturinn komist inn með því
að smygla til notandans smituðu
forriti.
En það eru ekki aðeins verk utan-
aðkomandi notenda sem geta valdið
vandamálum innan fyrirtækja. Stef-
án tók dæmi af tölvupóstnotkun
starfsmanna fyrirtækja sem færi
vaxandi. Hann sagði að margir óvið-
komandi hefðu aðgang að tölvupósti
starfsmanna, svo sem kerfisstjórar
staðarneta og jafnvel kei’fisstjórar
netþjónustuaðila. Lausnin fælist í
að brengla póstsendinguna sem
kemur í veg fyrir að óviðkomandi
geti lesið póstinn.
Jón Sigurðsson um forystu Frjálslynda flokksins og áhrif á fiskveiðistjórn
Von um áhrif undir stjórn
Sverris Hermannssonar
„FYRIR mér horfir málið einfaldlega þannig að
von sé til þess að Frjálslyndi flokkurinn geti
komist til áhrifa með andóf sitt við stefnu stjórn-
valda í fiskveiðistjórn undir stjórn Sverris Her-
mannssonar en vonlaust að svo geti orðið undir
stjórn Bárðar Halldórssonar," segir Jón Sigurðs-
son, fyri-verandi framkvæmdastjóri, í samtali við
Morgunblaðið í gær aðspurður hvernig hann
meti möguleika nýs framboðs Frjálslynda flokks-
ins sem nú er unnið að en stofnfundur flokksins
er ráðgerður um næstu helgi.
Jón Sigurðsson segist á sínum tíma hafa skrif-
að undir áskorun um stofnun Samtaka um þjóð-
areign og horft álengdar á starf samtakanna.
Hann sagði samtökin hafa haft mikinn byr í upp-
hafi en síðan hafí þau misst flugið og kvað hann
þau lítið hafa gert í rúmt ár. „Ég er nú ekki hóg-
værari maður en það,“ segir Jón, „að mér finnst
allt eins víst að skrif mín í Morgunblaðinu hafi
haft fullt eins mikil áhrif á að halda lífinu í andóf-
inu gegn fískveiðistjórninni eins og þessi Samtök
um þjóðareign.“
Jón segir að um æði langa hríð hafí verið sótt
mjög hart að ýmsum forystumönnum samtak-
anna um að þau mættu ekki efna til nokkurs
samstarfs við Sverri Hermannsson. „Það voru
margir sendiboðar gerðir út til að koma því á
framfæri. Síðan gerist það fyrir frumkvæði Bárð-
ar Halldórssonar að stjórn samtakanna leitar eft-
ir þessu samstarfi við Sverri og í haust er haldinn
aðalfundur samtakanna, sem raunar hefði aldrei
orðið neitt ef hann hefði ekki verið mannaður frá
Sverri, og þar er að frumkvæði Bárðar skipt um
stjórn og að því er virðist ýtt út úr henni þeim
sem ærlega efndu til þessa samstarfs. Strax og
ný stjórn kom saman er uppi það sjónarmið inn-
an hennar að forysta Sverris í þessu sambandi sé
óæskileg."
Starfa ekki með Bárði
„Þessum ágreiningi er komið í blöð og ég verð
að segja sem áhorfandi að þessu að mér finnst
vera kvótalykt að þessu öllu saman og bera með
sér óskapleg óheilindi í samstarfinu við Sverri.
Mat mitt er það að ég lít svo á að það sé von til
þess að andófið geti komist til áhrifa í þessu efni
undir stjórn Sverris en að það sé öldungis von-
laust undir stjórn Bárðar," segir Jón.
Hann segist eftir skrif sín í Morgunblaðið hafa
orðið hugmyndafræðingur í sjávarútvegsmálum í
undirbúningi Sverris. „Og ég stend með honum í
því að þetta sé eina vonin til þess að ná einhverj-
um árangri. Þeir sem standa að núverandi fisk-
veiðistjórn sjá það sem hina bestu lausn að
SveiTÍr verði ekki í fyrirsvari. Þess vegna finnst
mér vera kvótalykt að þessu og þeir sem þarna
eiga í hlut hafa gert þessum málstað óskaplega
mikið ógagn. Hvað verður veit ég ekki enda
stend ég álengdar og hef ákveðið verkefni sem ég
fæst fyrst og fremst við en svo mikið er víst að ég
mun ekki treysta mér til og ekki nenna að leggja
fram neitt til þessa máls ef það á að vera í jafn
vonlausum höndum og Bárðar Haildórssonar.
Það er enginn vafi á því að Sverrir hefur á sínu
bandi mikinn meirihluta þess fólks sem að stofn-
fundinum myndi koma. En skaðinn, sem búið er
að gera og hægt væri að gera, undir ljósum fjöl-
miðlanna er ómældur," sagði Jón Sigurðsson að
lokum.