Morgunblaðið - 25.11.1998, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 25.11.1998, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Fyrrverandi viðskiptafélagi Bills Clintons Bandaríkjaforseta McDougal sýknuð af ákæru um þjófnað Santa Monica. Reuters. SUSAN McDougal, vinkona Bills Clintons, forseta Bandaríkjanna, og fyrrverandi félagi hans í Whitewat- er-fasteignaviðskiptunum, var sýkn- uð í fyrradag af ákæru um að hafa stolið um 3,6 millj. ísl. ki\ af hinum kunna hljómsveitarstjóra Zubin Mehta og Nancy, konu hans, og einnig af ákæru um skattsvik og skjalafals. McDougal var sýknuð af öllum ákærum í þessu máli en verjendur hennar héldu því fram, að til þess hefði verið stofnað vegna þrýstings frá Kenneth Starr, sem kannaði mál Clintons. Var hún upphaflega sökuð um að hafa stolið rúmíega 10 milljón- um kr. en dómarinn breytti því síðar í meintan þjófnað á 3,6 millj. kr. McDougal brast í grát er sýknudómurinn var kveðinn upp og sagði síð- ar við fréttamenn, að hún hefði verið farin að halda, að þessi stund myndi aldrei renna upp. Kvaðst hún ekki hafa um annað hugsað í næstum heilt ár í fangelsi. í fangelsi sat McDougal fyrir að neita að bera vitni í Whitewat- er-málinu en Mehta- málið var óskylt því. Hún sjálf og lögfræðing- Susan McDougai Lögfræðingur Willey yfirheyrður Demókratar segja repúblikana vera að leita að sakarefnum Washington. Reuters. DANIEL Gecker, lögfræðingur Kathleen Willey, konu, sem held- ur því fram, að Bill Clinton, for- seti Bandaríkjanna, hafi leitað á sig í Hvíta húsinu, var yfirheyrður í fyrradag af rannsóknarmönnum fulltrúadeildarinnar. Dómsmála- nefnd deildarinnar mun fjalla í næstu viku um afleiðingar hugs- anlegs meinsæris en stefnt er að því, að Clinton-málin verði full- könnuð fyrir miðjan desember. Willey, sem starfaði sem sjálf- boðaliði í Hvita húsinu, segist hafa gengið á fund Clintons í nóvember 1993 til að biðja um fast starf en þá hefði hann þuklað á sér og reynt að kyssa sig. Fyrir utan yfirheyrslurnar yfir Kenn- eth Starr í síðustu viku var þetta fyrsti vitnisburðurinn af fjórum, sem rannsóknarmenn deildarinn- ar ætla að hlýða á. Hinir þrír, sem kallaðir hafa verið fyrir, eru Nathan Landow, sem er sagður hafa reynt að fá Willey til að breyta framburði sínum; Robert Bennett, lögfræðingur Clintons, sem talaði máli hans í Paula Jo- nes-réttarhöldunum, og Bruce Lindsey, aðstoðarráðgjafi í Hvíta húsinu. Ekkert saknæmt í niálinu? Starr, sem sakar Clinton um meinsæri og misnotkun valds, sendi dómsmálanefndinni gögn um Willey-málið fyrr í þessum mánuði þótt hann haldi því ekki fram, að Clinton hafi gerst sekur um embættisglöp í því máli. Hafa demókratar í dómsmálanefndinni gagnrýnt það harðlega og halda því fram, að repúblikanar í nefndinni noti það aðeins í leit sinni að einhverju bitastæðara. Repúblikanar segjast hins veg- ar vonast til, að Willey-málið verði til að sýna hvernig fram- koma Clintons hafi verið gagn- vart konum og styrkja þannig ásakanir annarra kvenna á hann. ar hennar fullyrtu hins vegar, að Starr hefði fengið saksóknara í Los Angeles til að kæra hana i því máli. Tekið upp eftir fimni ár McDougal var að- stoðarmaður og bók- haldari Mehta-hjón- anna frá 1989 til 1992 þegar Nancy Mehta bar henni þjóftiað á brýn. Segir McDougal, að sú ákæra hafi aldrei stuðst við nokkum skapaðan hlut enda hafi kviðdóm- endur áttað sig á því. Nokkrir þeirra furðuðu sig raunar á því, að málið skyldi vakið upp fimm árum eftir að Nancy impraði íyrst á því og einn þeirra kvaðst viss um, að það tengdist Whitewater-málinu. McDougal var sökuð um að hafa stolið fénu frá Mehta-hjónunum með því að falsa tékka frá Nancy og með því að nota greiðslukortið hennar í heimildarleysi. Við réttarhöldin kvaðst Nancy hafa treyst McDougal algerlega þar til hún komst að þessu en er verjandi McDougals spurði hana betur, viðurkenndi hún, að sumar úttektir með greiðslukortinu, sem hún hafði áður kallað þjófnað, hefðu verið gerðar að hennar beiðni. Mark Geragos, verjandi McDougals, lýsti Nancy sem óá- nægðri konu, sem hefði sólundað peningum eiginmanns síns til að börnin hans, sem hann hefði átt áð- ur, kæmust ekki yfir þá. Hefði hún síðan reynt að koma sökinni yfir á McDougal. Onnur réttarhöld bíða McDougal var í fangelsi í hálft annað ár fyrir að neita að bera vitni í Whitewater-málinu en hún og eigin- maður hennar heitinn, James McDougal, voru viðskiptafélagar Clintons seint á áttunda áratugnum. Þá sat hún einnig inni í þrjá mánuði fyrir svik í sambandi við 22 milljón kr. lán. Á hún enn yfir höfði sér rétt- arhöld vegna ákæru um að hafa sýnt dómsvöldum lítilsvirðingu og hindr- að framgang réttvísinnar. Reuters ELISABET Bretadrottning kemur til þingsetningar í gær ásamt eig- inmanni sínum, Filippusi drottningarmanni. Breska stjórnin boðar uppstokkun á velferðarkerfínu London. Reuters, The Daily Telegraph. ELÍSABET Bretadrottning flutti í gær stefnuræðu bresku ríkisstjórn- arinnar þegar þingið í Westminster kom saman á nýjan leik. Er gert ráð fyrir að á þessu þingi muni þau áform ríkisstjórnar Verkamanna- flokksins að afnema ævafornan erfðarétt aðalsmanna til að sitja og greiða atkvæði í lávarðadeild breska þingsins valda mestum átökum. Sagði Bretadrottning í ræðunni að stjórn sín hygðist á þinginu hefja stjórnarskrárumbætur sem ætlað væri að gera lávarðadeild þingsins lýðræðislegri og háðari óskum og vilja umbjóðenda sinna. Fyrsta skrefið yrði að afnema erfðarétt 759 aðalsmanna til setu í lávarðadeild- inni, en í mörgum tilfellum hefur réttur þessi gengið í erfðir um aldfr í ákveðnum fjölskyldum. Létu þing- menn Verkamannaflokksins í ljósi ánægju sína með því að kalla „heyi’ heyr“ og lét Elísabet það ekkert á sig fá þótt venjan sé sú að þingmenn beggja deilda þingsins hlýði á ræðu drottningar í algerri þögn. En þótt líklegt sé að þetta mál veki harðastar deilur á þinginu hefur forsætisráðherrann, Tony Blair, lagt á það áherslu við stjórnarliða að þeir láti það ekki varpa skugga á 21 frumvarp sem Elísabet, skv. gamalli hefð, kynnti fyrir hönd stjórnarinnar Brezkir nautakjötsframleiðendur eiga á brattann að sækja Þjóðverjar hóta að snið- ganga allt nautakjöt London, Bonn. Reuters, Daily Telegraph. BREZKIR nautakjötsframleiðendur horfa nú fram á langa og stranga baráttu til að endur- heimta fyrri útflutningsmarkaði sína á meginlandi Evrópu og annars staðar í heiminum, eftir að traust neytenda á þessum svæðum á brezkum nautakjötsafurðum hrundi í kjölfar kúariðufársins og útílutningsbannsins, sem ESB setti í marz 1996, en hefur nú ákveðið að afnema að hluta. Samkvæmt skoðanakönnun sem sjónvarpsstöð- in RTL gerði meðal þýzki’a áhorfenda myndu 87% þeirra vilja sniðganga allt nautakjöt í mótmæla- skyni við að sala á brezku kjöti skyldi leyfð á ný á Evrópumarkaðnum, áður en öllum kúariðusmituð- um nautgripum hefur verið slátrað í Bretlandi. Um fjórum milljónum nautgripa hefur verið slátrað í Bretlandi frá því bannið var sett, en það var gert fimm dögum eftfr að brezka stjórnin við- urkenndi að tengsl væru milli kúariðu og smits á hinum banvæna heilahrörnunarsjúkdómi Creutz- feldt-Jacob, sem dregið hefur 30 manns til bana svo vitað sé. Kostnaður brezka ríkisins sem af þessu hefur hlotizt nálgast að sögn The Daily Tel- egraph 4,6 milljarða sterlingspunda, um 534 millj- arða króna. Nick Brown, landbúnaðarráðherra Bretlands, segir að það verði erfiðleikum bundið að endur- heimta þann sess sem brezkt nautakjöt naut á út- flutningsmörkuðum sínum áður en kúariðumálið kom upp. Árið 1995 munu tekjur brezkra naut- gripabænda af þessum útflutningi hafa numið yfir 650 milljónum punda, um 75 milljörðum króna. Að sögn Browns verða bændur og ríkisstjórn Bretlands að leggjast á eitt til að reyna að minnka „fordóma" gagnvart brezku kjöti meðal neytenda á erlendum mörkuðum. En hann segir Bretum nauðsynlegt að taka þennan slag: „Ef við hefjumst ekki handa við að reyna að vinna þessa markaði aftur gerum við það aldrei. (...) Boðskapur dagsins er að óhætt er að neyta okkar kjöts.“ Ströng skilyrði Þýzki landbúnaðarráðherrann var sá eini sem greiddi atkvæði á móti því að banninu skyldi aflétt, en fjórir sátu hjá. í kjölfar ákvörðunarinnar lýstu fulltrúar bæði þýzku bændasamtakanna og samtaka franskra kjötframleiðenda mikilli óá- nægju með hana. Ótímabært væri að aflétta bann- inu á brezkar nautakjötsafurðir; ákvörðunin gæti leitt til þess að neytendur yrðu aftur almennt tor- tryggnari og forðuðust að kaupa nautakjöt yfir- leitt. En brezkir nautakjötsframleiðendur þurfa að uppfylla tvö skilyrði áður en til þess kemur að framkvæmdastjórn ESB heimili aftur útflutning. Fyrst verður 4000 kálfum slátrað sem riðusýktar kýr báru eftir 1. ágúst 1996. Fram til þessa hefur 650 þessara kálfa verið slátrað að eigin frumkvæði eigendanna. Þá þurfa sérskipaðir fulltrúar ESB að samþykkja úrval brezkra nautgiipabænda, sem munu fá sérleyfi til að flytja út sína framleiðslu. Eftirlitsfulltrúana verður að fullvissa um að rétt- um aðferðum sé beitt við að úrbeina kjötið og að merkingar séu réttar þannig að hægt sé að rekja uppruna afurðanna. Þegar þeir hafa fengið vissu sína getur framkvæmdastjórnin aflétt útflutnings- banninu formlega án þess að fulltrúar aðildarríkj- anna greiði aftur um það atkvæði. Búizt er við að af þessu geti orðið í vor. Franz Fischler, sem fer með landbúnaðarmál í framkvæmdastjórn ESB, sagði í fyrradag að það væri nú undir Bretum komið að tilkynna hvenær hægt væri að hefja eftirlitið. Næsta stóra verkefni yrði að byggja aftur upp traust neytenda á brezku nautakjöti. Áður en bannið gekk í gildi var kjöt flutt út frá Bretlandi til yfir 12 landa. Stærstu viðskiptalöndin voru evrópsku meginlandsríkin og mest var jafnan selt til Frakklands. við setningu þings í gær. Óttast Bla- ir að það muni taka drjúgan tíma í þingstarfinu. Uppstokkun á velferðarkerfinu Mesta áherslu leggur stjórnin á frumvarp um uppstokkun á velferð- arkerfinu sem m.a. myndi hafa í för með sér nýtt fyrirkomulag á úthlut- un bóta. Mjög hefur verið beðið eftfr þessu frumvarpi, en töluvert hafði verið deilt um málið innan ríkis- stjómarinnar. Skar Blair á hnútinn í júlí síðastliðnum þegar hann skipti um ráðherra velferðarmála og gerði Alistair Darling að hæstráðanda í fé- lagsmálaráðuneytinu. Er markmið lagasetningarinnar að bæta aðstöðu ýmissa bótaþega, verður eignalausum konum m.a. gert kleift að njóta góðs af eftfrlaunum fyrrverandi eiginmanna sinna, ekkl- ar munu í fyrsta skipti njóta sam- bærilegra réttinda og ekkjur, og lögð verður áhersla á að gera öryrkj- um kleift að fara aftur út á vinnu- markaðinn, hafi þeir áhuga á því. Síðasttalda atriðið er reyndar talið geta vakið nokkrar deilur meðal stjórnarliða, því margir óttast að það skerði bætur sumra og neyði fólk til að leita sér að atvinnu. Þessu reynir stjómin hins vegar að spoma gegn með því að stofna til sérstaks ör- yrkjaráðs þangað sem öryrkjai’ munu geta skotið máli sínu. Loks munu bótaumsækjendur, sem ekki stunda fulla vinnu en eru á vinnu- aldri, þurfa að eiga tal við sérstakan ráðgjafa áður en þeim er úthlutað bótum. Hóta að tefja önnur s(j órnarfrumvörp Hins vegai- er alls óvíst um afdrif frumvarpa stjórnarinnar, láti lávarð- ar, en næstum helmingur þefrra er meðlimir í Ihaldsflokknum, verða af þeirri hótun sinni að berjast með kjafti og klóm gegn breytingum á erfðaréttinum. Vai'ð frumvarpið ekki að lögum á síðasta þingi, sem lauk í síðustu viku, vegna andstöðu lávarðadeildarinnar. Drottningin tilkynnti hins vegar í gær að frumvarpið ýrði lagt aftur fyrir á þessu þingi og sögðu ráðherr- ar ríkisstjórnarinnar að verði frum- varpið ekki samþykkt án tafar muni ekki verða hægt að beita því við Evr- ópukosningarnar, sem fram fara í júní á næsta ári. Fulltrúar lávarðadeildarinnar segjast reyndar ekki vera á móti breytingum á lávarðadeildinni en segja að með erfðarétti sumra lá- varða sé varðveitt sérensk hefð og að þessir fulltrúar séu jafnan alls óháðir sviptivindum dægurstjórnmála. Vilja íhaldsmenn aukinheldur að ríkis- stjórnin kynni nákvæmlega hug- myndir sínar um framtíðarskipun mála í efri deild breska þingsins áð- ur en þeir Ijá máls á breytingum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.