Morgunblaðið - 25.11.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.11.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 23 Sólrún Bragadóttir syngur 1 Hafnarborg 1 kvöld Af nógu að taka Morgunblaðið/Árni Sæberg SÓLRÚN Bragadóttir heldur tónleika í Hafnarborg kl. 20.30 í kvöld. ANYJU geislaplötunni eru lög eftir Sigvalda Kaldalóns, Þor- kel Sigurbjörnsson, Atla Heimi Sveinsson, Tryggva M. Bald- vinsson, Karl 0. Runólfsson, Jón Ás- geirsson og Sveinbjörn Sveinbjörns- son. A tónleikunum í kvöld mun Sól- rún einnig syngja fjögur lög eftir Brahms, The recipes eftir Bernstein, ítalskar óperuaríur og Exsultate Ju- bilate efth- Mozai’t. Bandaríski pí- anóleikarinn Margaret Singer leikur með Sólrúnu á tónleikunum og geislaplötunni, sem er sú fyrsta sem Sólrún sendir frá sér en hún hefur áður komið fram á geislaplötum sem Menningarmiðstöðin Gerðuberg hef- ur gefíð út. „Hugmyndin um að gefa út disk með íslenskum lögum hefur legið í maganum á mér í nokkur ár, en ein- hvern veginn hefur aldrei verið rétti tíminn fyrir það fyrr en einmitt nú. Eg hef margsinnis breytt lagavali og uppröðun og farið marga hringi. Það er mjög erfitt að að gera upp á mflli, það eru tfl svo mörg yndisleg lög og margir góðir höfundar, bæði núlif- andi og dánir. En ég er mjög sátt við það sem ég valdi saman á þennan disk. Svo er það skemmtileg tilviljun að þrjú af tónskáldunum eiga stóraf- mæli á þessu ári, þeir Þorkell, Jón og Atli Heimir,“ segir Sólrún. Hún segist hafa valið saman þekkt lög og lög sem lítið hafa heyrst áður. „Það er af nógu að taka og ég væri alveg til í að gera annan svona disk, þetta er bara byrjunin." Upptakan fór fram í hljóðveri Hrólfs Vagnssonar í Hannover í Þýskalandi og útgáfufyr- irtæki hans, CordAria, gefur plötuna út og dreifir henni á alþjóðlegan markað en Japis sér um dreifinguna á Islandi. Með Sólrúnu á plötunni og tónleikunum leikur banda- ríski píanóleikarinn Marg- aret Singer. „Hún býr í Kai’lsruhe og við höfum þekkst í ein sex eða sjö ár. Það er mjög gaman að vinna með henni. Hún gaf sér góðan tíma og var í marga daga með mér. Mér fannst líka svolítið sérstakt að fá er- lendan tónlistarmann inn í þetta, því hún horfir á lögin frá öðru sjónar- horni. Hún vildi auðvitað fá að vita allt um lögin og ljóðin og hefðina í túlkun þeiiTa. Mér fínnst hún hafa komið með ferskan vind inn í lögin,“ segh’ Sóh’ún. I liðinni viku söng Sólrún á tón- leikum í Bolungarvík og á Akureyri en tónleikar sem vera áttu í Stykkis- Sólrún Bragadóttir óp- erusöngkona fylgir þessa dagana úr hlaði sinni fyrstu geislaplötu, sem hefur að geyma ís- lenskar einsöngsperlur. Margrét Sveinbjörns- dóttir ræddi við Sól- rúnu í tilefni af ein- söngstónleikum hennar í Hafnarborg í kvöld og komst að því að söng- konan er á leiðinni til New York til þess að finna lyktina af borg- inni, eins og hún orðar það. Hún er síðan væntanleg hingað til lands aftur 1 byrjun næsta árs. hólmi á mánudagskvöld féllu niður vegna veðurs. Það þótti henni afar leitt, því hana langai’ tfl þess að styrkja tónlistarlífíð þar sem hún finnur að uppsveifla er í þvi, eins og raunin er í Stykkishólmi nú. Yfirleitt þykh' henni líka gaman að syngja á landsbyggðinni en hún getur þó ekki orða bundist yfír dræmri mætingu Akureyringa á tónleika. Þá er hún ekki einungis að tala um sína eigin tónleika um síðustu helgi, þar sem nítján manns létu sjá sig. Hún kveðst ekki alveg skilja hvað vaki fyrir Akui’eyringum, sem gefí sig út fyrir að vilja byggja upp öflugt tón- listarlíf í bænum en sýni svo ekki meiri áhuga en raun ber vitni þegar haldnir eru tónleikar, nema ef vera skyldi þegar Kiústján Jóhannsson kemur heim endrum og eins. En hvað skyldi Sólrún annars vera að fást við um þessar mundir? „Ég hef auðvitað eytt miklum tíma í geislaplötuna, ég hef verið að vinna í henni í allt haust. Svo hef ég komið fram á nokkrum galakvöldum og litlum ljóðakvöldum. Eg var líka að syngja í Brúðkaupi Fígarós í Diisseldorf og nú er ég að undh’búa ferð til New York, svona aðeins til að kanna grundvöllinn þar og finna lyktina af borginni. Maður verður að kynna sig, sýna sig og sjá aðra. Það er rosalega erfitt að ná tengslum við stóra staði eins og New York öðruvísi en að mæta bara sjálf á staðinn og athuga hvernig landið liggur,“ segir Sólrún, sem er auk þess að búa sig undir hlutverk Donnu Önnu í óperunni Don Giovanni, sem verður frumsýnd í byi’jun janúar í Liége í Belgíu. Þá er hún einnig að æfa dagskrá með ís- lenskri jólatónlist ásamt eiginmann- inum, Þórarni Stefánssyni píanóleik- ara, en hún verður flutt við norræna messu sem er árlegur viðburður í stórri kirkju í Hamborg. Reyndar segir hún það nokkrum erfíðleikum bundið að setja saman alíslenska jólatónlistardagskrá, þar sem erlend lög séu mjög áberandi í jólatónlistar- bókmenntunum hér á landi. „Og það er eiginlega varla hægt að syngja mikið af jólasveina- og grýlukvæðum í kirkju," segir hún. Eftir áramót liggur leið Sólrún- ar aftur til Islands, að þessu sinni til þess að syngja rneð Elsu Waage á dúettatónleikum í ís- lensku óperunni, við undirleik Ger- rits Schuil píanóleikara. í febrúar hefjast svo æfingar á nýju óperuleik- verki sem verður frumsýnt í Iðnó um páskana. „Þetta er mjög spennandi verkefni sem Karólína Eiríksdóttir er að semja við leikgerð Árna Ib- sen,“ segir Sólrún, en auk hennar taka þátt söngvararnir Sverrir Guð- jónsson og John Speight og fjórir hljóðfæraleikarar. Leikstjóri verður Auður Bjarnadóttir og Messíana Tómasdóttir hannar búninga. Sóh-ún hefur verið búsett í Þýska- landi síðastliðin ellefu ár og verið fastráðin við tvö óperuhús þar í landi, fyrst í Kaiserslautern og síðan í Hannover, auk fjölda annarra tfl- fallandi verkefna. Fyrir fjórum árum sagði hún starfi sínu við Hannoveróperuna lausu en hefur engu að síður í nógu að snúast. „Mér líkar það mun betur að vera á lausu, þó að það hafi líka sína ókosti. Kost- irnir eru þeir að maður ræður sér sjálfur, getur oft fengið spennandi verkefni, ferðast meira og kynnist skemmtilegum hlutum. Það getur svo líka verið fjárhagsleg áhætta, ég hef t.d. lent í því stundum að fá fullt af tilboðum á sama tíma og þess vegna orðið að hafna fjölda verk- efna,“ segir Sólrún og bætir við að hún leyfi sér líka oft að segja nei við tilboði og taka fjölskylduna fram yf- ir, en hún á fjögurra ára dóttur og 17 ára son. Annað sem hún segir já- kvætt við lausamennskuna er að nú hefur hún tækifæri til að koma meira hingað heim og hafa betri tengsl við íslenskt tónlistarlíf. Ekki er hægt að segja að starf óp- erusöngkonunnar sé alltaf dans á rósum. „Stundum koma tímar þar sem maður liggur og skælir og vill bara hætta öllu saman og henda þessu frá sér. Síðan koma líka tímar þar sem maður fær fólk til þess að gráta þegar maður syngui’ - og þá finnst manni það aftur vera þess virði. Ef ég get hreyft við tilfinning- um fólks til góðs þá er mínum til- gangi náð. Ef ég get læknað með söng mínum, grætt einhver sár, þá er ég hamingjusamasta manneskja í heimi,“ segir Sólrún Bragadóttir. Með augum hirðfíflsins LEIKHIJS Leikfélag Kðpavogs F é I a g s Ii e i m i I i K 6 p a v o g s BETRI ER ÞJÓFUR í HÚSI EN SNURÐA Á ÞRÆÐI Eftir Dario Fo. Leikstjóri Vala Þórs- dóttir. Aðstoðarmaður leikstjóra Jenný Ingudóttir. Þýðandi: Ulfur Hjörvar. Leikendur: Magnús Guð- mundsson, Helgi Róbert Þórisson, Birgitta Birgisdóttir, Ásta Sóley Sturludóttir, Kristjana Magnea Jón- asdóttir, Þórður Bjarnason. Frum- sýnt laugardaginn 21. nóvember. ÞEGAR sænska akademían gerði heyrinkunnugt að Dario Fo hefði hlotnast Nóbelinn var m.a. sagt að hann einn ætti tilkall til „sæmdarheitisins" hirðfífl. Svona getur merking orða nú snarsnúist með tímanum. Þegar hugsað er betur um þessa akademíuumsögn kemur í ljós að hún er anzi nærri lagi. Hirðfíflin ein gátu sagt hug sinn, bent konungi á fljótfærni eða hugsunarleysi sitt og hreinlega gert grín að honum, innan vissra marka að sjálfsögðu, án þess að eiga á hættu að vera borin örend úr höllu. Er það ekki einmitt þetta sem Dario Fo gerir í leikritum sín- um? Uppfærzlur verka hans eru hátt á fimmta tuginn hérlendis; sú fyrsta 1965, sú síðasta á laugar- daginn var, þegar Leikfélag Kópa- vogs frumsýndi Betri er þjófur í húsi en snurða á þræði. Þar segir af þjófí í húsi, konunni hans og hjónunum sem í húsinu búa, sem koma óvænt heim. Reyndar ekki saman heldur fylgir manninum ástkona hans og kon- unni ástmaður hennar. Ástkonan og ástmaðurinn eru líka hjón og úr verður þessi líka Fo-flækja, vegna þess að ekki þykir ráðlegt að hringja í lögregluna; því betri er þjófur í húsi en snurða á þræði mannorðs heiðvirðra hjóna. Það snilldarlega við flækjuna, að mínu mati, er að hún er ekki leyst í leik- ritinu; það hættir er hæst stendur. Leikendurnir sex náðu vel sam- an undir stjórn Völu Þórsdóttur leikstjóra. Allir voru þeir í Um- hverfís jörðina í apríl síðastliðnum og kunna því væntanlega vel hver inn á annan; samleikur bar vott um lengri „aðlögunartíma" en sem nemur æfíngum fyrir eitt verk. Ekki má svo gleyma að segja að miðasölulúgan í Fannborg er lokuð og verður lokuð meðan á sýningum stendur (28. nóv., 5. og 6. des.). Það er því engin ástæða tfl að „missa af“ Nóbelskáldsverki. Heimir Viðarsson #mSIEMENS Siemens ryksuga 62A00 Kraftmikil 1300 W l\ ryksuga, II létt og lipur, stiglaus 1 11 sogkraftsstilling, . m mjög hljóölát. Bosch hrærivél MUM 4555EU I Ein vinsælasta hrærivélin á íslandi í fjöldamörg ár. Og ekki að ástæðulausu. Allt í einum pakka: öflug grunnvél, rúmgóð hræriskál, tveir þeytispaðar og einn hnoðari, hakkavól, blandari, grænmetisskeri með þremur rifjárnum. Nauðsynleg við jólabaksturinn. Siemens og Bosch heimiiistækin eru hvarvetna rómuð fyrir gæði og styrk. Gríptu tækifærið og njóttu þessi Nýr þráðlaus sími frá Siemens GIGASET 2010 Nýr þráðlaus sími frá Siemens af allra bestu gerð. DECT/GAP-staðall. Ö ö Svalur. Stafrænn. Sterkur. jy-.v i Mikil hljómgæði. Siemens uppþvottavél Sannkölluð hjálparhella í eldhúsinu. Einstaklega hljóðlát og sparneytin. Fjögur þvottakerfi, tvö hitastig (nauðsynlegt fyrir viðkvæmt leirtau), fjórföld flæðivörn með Aqua-Stop. Þetta er uppþvottavél eins og þú vilt hafa hana. SMITH & NORLAND UMBOÐSMENN: Akranes: ||jM Sigirdirs - Igrgincs: Eliliii-Snælellsíær: KmmIi - Grundarfjirinr: Ciji Haljnnsson - Stykkishólmur: Sfri - Bóðardalur: kiíi ■ Isaljirln: Piliii Heammslanoi: Si|iii - Sauðárkrókur: Mji - Siglufjörður: Iiijii - ktiim Ijúsgjalinn - Húsavik: Öiyggi - Vapnafjöröur: Ralnagist h tl • Keskaupstaður: RgfiMi - Reyðartjöröur: Rafvélanikst. h E. - Egilsiiaðir: Snn Guiisnteia - Bseiðdalsvík: Sletáa I Sldiœu - Hðtn i Homafirli: bisu s j M - Vlk i Hýrdal: Rakkai-Vesinannaeyiar: lieveik - Hvolsvðllur: Itlniiisnisl kR - Hella: Gilsá - Silloss: Iniriin -1 nndaiík: Ralbng - Earður: Raltaikjai Sig Itgvatss. - tellavik: Ljishggiin - Halnarljörður: RaRiíi Sknla. Álfaskiiii. Nóatúni 4 105 Reykjavík Sími 520 3000 www.sminor.is Búhnykksverð: Búhnykksverð:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.