Morgunblaðið - 25.11.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 45^
KIRKJUSTARF
+ Guðmundur E.
Sigurðsson
fæddist í Reykjavík
2. nóvember 1938.
Hann lést í Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
20. september síð-
astliðinn og fór út-
för hans fram frá
Keflavíkurkirkju
26. september.
Elsku pabbi. Af
hverju? Af hverju þú
og hvers vegna svona
fljótt? Þú sem áttir eft-
ir að gera svo margt.
Slappa af í nýja húsinu ykkar
mömmu í Flórída og njóta lífsins og
horfa á bamabörnin vaxa úr grasi.
Eg býst við að þér hafi verið ætlað
mikilvægara hlutverk þama uppi
og kannski að öryggiskerfið á
himnum hafi verið í ólagi og að Guð
hafi engum treyst nema þér til að
kippa því í lag. Hver veit?
En ég vil að þú vitir að ég er
rosalega stoltur af þér. Ég tók því
sem sjálfsögðum hlut hér áður fyrr
að þú værir starfsmaður hjá Sam-
einuðu þjóðunum og ferðaðist á
þeirra vegum um allan heim, m.a.
til Afríku, Sviss, Miðausturlanda
o.fl. En í dag sé ég hvað þú varst í
raun mikils metinn og fær á þínu
sviði.
Ég þoldi illa að fara með þér út
að versla því þú talaðir við alla sem
þú hittir og það tók svo langan tíma
því þú hafðir frá svo mörgu að
segja. Núna á ég eftir að sakna
þess að geta ekki farið oftar með
þér út að versla.
Mikið var nú erfitt að koma til
íslands frá Flórída og sjá þig liggja
svona máttvana og undarlegan á
+ Berta Sigríður Stefánsdótt-
ir var fædd á Hóli í Stöðvar-
firði 13. nóvember 1931. Hún
lést á Sólheimum í Grímsnesi
13. nóvember síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá Háteigs-
kirkju 23. nóvember.
Þegar fregnin af andláti hennar
Bertu barst okkur komu upp í hug-
ann minningar frá fyrstu árum okk-
ar hjóna á Sólheimum. Þegar við
vorum umsjónarmenn í Brekkukoti
þar sem Berta bjó ásamt sjö öðrum
heimilismönnum. Það var oft glatt á
hjalla og hamagangur, enda stórt
heimili. Berta tók virkan þátt í öllu
heimilishaldi og lét hina oft heyra
það. „Hverskonar börn eru þetta
eiginleg hér á Sólheimum, getur
enginn gert neitt nema ég“ heyrðist
oft, en Berta kallaði hina heimilis-
mennina alltaf börn þó öll væru
löngu komin í fullorðinna manna
tölu og leit á sjálfa sig sem einskon-
ar stóru systur. Hún bar mikla um-
hyggju fyrir vini sínum honum
Tomma sem látinn er fyrir nokkr-
um árum, hjálpaði honum mikið og
hafði miklar áhyggjur af honum en
skammaði hann að sama skapi.
Berta var mjög barngóð og börn
hændust að henni. Hún átti heil
ósköp af dúkkum og dúkkulísum en
í sérstöku uppáhaldi hjá henni var
þó Shirley Temple sem hún átti síð-
an hún var stelpa. Oft sátum við
saman á kvöldin að sauma föt, ég á
barnabörnin en hún á börnin sín,
dúkkurnar. Þá hvarf hugur hennar
oft heim á Stöðvarfjörð, þangað sem
hún átti svo margar góðar minning-
ar frá því hún ólst upp og svo þegar
hún var að vinna í frystihúsinu.
Berta átti góða að og voru ætt-
ingjar hennar mjög duglegir að
heimsækja hana austur og hugsuðu
vel um hana. Henni var þó oft að
orði þegar hún sat í garðskálanum í
Brekkukoti og reykti: Þeir eru nú
ekki að renna hingað uppeftir þess-
litinn á sjúkrahúsinu.
Þú sem varst alltaf svo
stór og sterkur. Þú
áttir erfitt með að
hreyfa þig og að tala
við okkur, ég sá bara
hvernig krabbameinið
tók hægt og rólega yf-
irhöndina. En nú veit
ég að þú ert kominn í
góðar hendur og þér
er strax farið að líða
betur. Þín hafa beðið
læknar að handan og
linað þjáningarnar.
Elsku pabbi, takk fyrir
allt sem þú gerðir fyrir
mig, mömmu, Sólveigu, Helgu,
Sonju og Gumma.
Guð geymi þig og gefi þér frið.
Þinn sonur,
Asgeir Freyr.
Kæra frú Sigurðsson. Mér hafa
nýlega borist þær sorglegu fréttir
að Guðmundur E. Sigurðsson, eig-
inmaður yðar, sé látinn. Harmi
sleginn votta ég yður og fjölskyldu
yðar, einnig fyrir hönd konu minn-
ar, okkar dýpstu samúð.
Herra Guðmundur E. Sigurðsson
starfaði hjá mér sem lífvörður og
leysti það starf með miklum sóma.
Hann var mikilsmetinn starfsmað-
ur öryggisþjónustu Sameinuðu
þjóðanna. Hann var vel liðinn af
öllu samstarfsfólki ekki síst hjá
mér sjálfum og vandamönnum mín-
um. Meðal almennings var Guð-
mundur vel liðinn einstaklingur.
Vér vottum yður virðingu og
sendum innilegai’ samúðarkveðjur.
Kurt Waldheim, fyrrverandi að-
alritari Sameinuðu þjóðanna og
fyrrverandi forseti Austurríkis.
ir hanastertar (bræður hennar), en
flesta karlmenn kallaði hún hana-
sterta, enda mundi hún ekki orðið
nöfn á fólki og svo tók hún þá í
gegn og „úrbeinaði" þá, en það voru
oftast karlmenn sem lentu í þessari
úrbeiningu en stöku kvenmenn sem
voru þá í sérstöku uppáhaldi hjá
henni.
Elsku Berta, það er gott að hafa
fengið að kynnst þér, þessari litlu
hressu konu sem horfðir á lífið á
svo einfaldan og sannan hátt. Við
hjónin eigum margar góðar minn-
ingar um þig sem ylja okkur um
hjartaræturnar og kitla hláturtaug-
arnar.
Við vottum ættingjum þínum og
samferðafólki á Sólheimum samúð
okkar.
Guðný og Grétar.
Safnaðarstarf
Jólahald í
skugga sorgar
ÁRBÆJARKIRKJA hefur undan-
farið ár boðið upp á samveru syrgj-
enda síðasta fimmtudag hvers mán-
aðar. Þörfin er mikil og full ástæða
er að sinna þessum þætti safnaðar-
starfsins. Prestar safnaðarins hafa
umsjón með þessu starfi. Ymsar
birtingamyndh- sorgarinnar hafa
verið tekin fyrir og rædd. Hafa
þessar samverur mælst vel fyrir
hjá þeim sem hafa sótt þær að stað-
aldri.
Á morgun, fimmtudag 26. nóv-
ember, kl. 20.30, kemur sr. Bragi
Skúlason, sjúkrahúsprestur á
Landspítalanum og ræðir efnið
Jólahald í skugga sorgar“. Víst er
að margur kvíðir komandi jólahaldi
vegna þess að autt eða auð sæti eru
við jólaborðið. Þessar samverur ei-u
opnar safnaðarfólki sem lifir við
missi vegna fráfalls ættingja og eða
vegna skilnaðar. Sorg vegna missis
getur verið af ýmsum orsökum. Er
það von okkar er að þessum sam-
verum standa að allir þeir sem
finna að þeir eigi erindi nk. fimmtu-
dag komi og eigi stundarkorn með
þeim sem standa í sömu sporum
eða svipuðum. Fá styrk og þor til
að takast á við komandi tíma í
skugga sorgar.
Áskirkja. Starf fyrir 10-12 ára börn
kl. 17.
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldr-
aða kl. 13-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Grensáskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14. Biblíulestur, bæna-
stund, kaffiveitingar. TTT-starf 10-
12 ára kl. 16.30.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn
kl. 10-12. Kvöldbænir og fyrirbænir
kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 13. Allir velkomnir.
íhugunar- og fyrirbænastund kl.
18.
Laugarneskirkja. Fundur
„Kirkjuprakkara" (6-9 ára börn) kl.
14.30. Fundur TTT (10-12 ára) kl.
16. Fundur æskulýðsfélagsins (13-
15 ára) kl. 20.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-
12. Fræðsla: Afbiýðisemi. Ungar
mæður og feður velkomin. Opið hús
fyrir eldri borgara kl. 14-16.
Myndasýning. Umsjón Krístín
Bögeskov, djákni. Bænamessa kl.
18.05. Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að koma til presta safnað-
arins. TTT í Ártúnsskóla kl. 16-17.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í
Birtíng a fmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargi-einar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda gi-einarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið gi-ein-
ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk,
A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast
við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali
eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og
Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
GUÐMUNDUR E.
SIGURÐSSON
BERTA SIGRÍÐUR
STEFÁNSDÓTTIR
dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur málsverður í
safnaðarheimilinu á eftir.
„Kirkjuprakkarar", starf fyi-ir 7-9
ára börn kl. 16. TTT-starf fyrir 10-
12 ára kl. 17.15. Æskulýðsstarf á
vegum KFUM og K og kirkjunnar
kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30. Biblíulestur kl. 18.
Grafarvogskirkja. KFUK fyrir
stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
16.30.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf á
sama stað með 10-12 (TTT) ára
börnum kl. 17.45-18.45.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefn-
um í kirkjunni og í síma 567 0110.
Léttur kvöldverður að bænastund
lokinni.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Hafnar fj ar öarki rkj a. Kyrrðar-
stund í hádegi í kirkjunni kl. 12-
12.30. Æskulýðsstarf, eldri deild kl.
20-22 í minni Hásölum.
Keflavíkurkirkja. Alfanámskeið
hefst með borðhaldi í Kirkjulundi'
kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl.
22. Námskeiðið er fræðsla um
kristna trú fyrir hjón og einstak-
linga.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 10 foreldramorgunn. Samvera
foreldra með ungum bömum sín-
um. Kl. 12.05 bæna- og kyrrðar-
stund í hádeginu í Landakirkju.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Fjölskyldusamvera k. 18.30 sem
hefst með léttri máltíð á vægu
verði. Kl. 19.30 er kennsla og þá er
skipt niður í deildir. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Kristniboðssalurinn, Háaleitis-
braut 58. Almenn samkoma í dag,
miðvikudaginn 25. nóvember, kl.
20.30 á vegum fjáröflunarnefndar.
Sr. Frank M. Halldórsson flytur
hugleiðingu. Kanga-kvartettinn
syngur. Kórsöngur. Einnig verða
veitingar. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
+
Útför föður míns, tengdaföður og bróður,
ÞÓRÐAR GUÐJOHNSENS,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 26.
nóvember kl. 13.30.
Friðjón Guðjohnsen, Gislina Ólafsdóttir,
Dóra Jakobsdóttir Guðjohnsen,
Kristín Guðjohnsen,
Stefán Guðjohnsen.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FRIÐGEIR ÁGÚSTSSON,
áður til heimilis
á Álfhólsvegi 30,
Kópavogi,
sem lést fimmtudaginn 19. nóvember sl.,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu-
daginn 27. nóvember nk. kl. 10.30.
Jónas Friðgeirsson, Sigurveig Runólfsdóttir,
Sigurveig Friðgeirsdóttir, Jón Pétur Sveinsson,
Ágúst Friðgeirsson, Sigurbjörg Traustadóttir,
Ásgeir Friðgeirsson, Natasa Babic-Friðgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýnt hafa
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓHANNESAR L. STEFÁNSSONAR
á Kleifum
í Gilsfirði.
Unnur Guðjónsdóttir,
Guðjón Jóhannesson,
Stefán Jóhannesson, Brynja Bernharðsdóttir,
Hermann Jóhannesson, Kolbrún Ingólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Upplýsingar í símum
* 562 7575 & 5050 925
aaK
9
5
f HOTEL LOETI.EIÐIR
I t i i > ■ í < i > H Ö f ÍVÍ
Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
V