Morgunblaðið - 25.11.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 49
Fundur um verndun
náttúru miðhálendisins
AÐ tilhlutan náttúruvemdarsam-
taka, útivistarfélaga og fjölmargra
einstaklinga er boðað til almenns
fundar um verndun náttúru miðhá-
. lendisins í Háskólabíói, laugardag-
inn 28. nóvember nk. kl. 14.
Kjörorð fundarins eru: Með hálend-
| inu gegn náttúruspjöllum.
í fréttatilkynningu segir „Megin-
markmið með fundinum eru: Að efla
og sýna samstöðu náttúruunnenda
um það að ósnortin náttúra miðhá-
lendisins sé einhver dýrmætasta
auðlegð þjóðarinnar. Að efla vitund
almennings um að á miðhálendinu er
stærsta víðerni Evrópu, shkum
Isvæðum fari mjög fækkandi á jörð-
inni og það sé skylda okkar gagnvart
:,:i umheiminum að varðveita þetta
1 ósnortna land. Að gera landsmönn-
um ljóst að ef við eyðileggjum nátt-
úruperlur þessa landsvæðis með
mannvirkjagerð verði þær ekki end-
urheimtar, þær verði okkur og niðj-
um okkar að eilífu glataðar. Að sýna
fram á að verði Þjórsárver skert
frekar en orðið er og Eyjabökkum
sökkt undir miðlunaiión hafi náttúru
íslands verið unnið óbætanlegt og
óafsakanlegt tjón, enda hafi þessi
einstæðu gróðursvæði miðhálendis-
ins alþjóðlegt mikilvægi sem vai-p-
lönd og sumarheimkynni þúsunda
fugla. Að krefjast þess af stjóm-
málamönnum að þeir snúist gegn
fyrirhuguðum stómrkjunum á mið-
hálendinu og beiti sér fyrir því að
ósnortin náttúraauðlegð þess verði
vemduð í þágu vistvænnar landnotk-
unar. Að hvetja alla þá sem unna ís-
lenskri náttúru til þess að berjast
fyrir ofangreindum mai’kmiðum þar
til fullur sigur er unninn.“
Á dagskrá verða ávörp og
skemmtiatriði: Kórsöngur, tónlist,
leikatriði, myndverk, ljóðalestur og
fleira. Fundurinn stendur frá kl.
14-15.30 og er aðgangur ókeypis.
Allir þeir sem koma fram leggja
fram vinnu sína án endurgjalds.
Veggspjald til styrktar málefninu
verður til sölu á staðnum.
Fundur um
1 beinþynningu
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ og
samtökin Beinvernd standa að sam-
i'áðsfundi um beinþynningu, for-
varnir og meðferð föstudaginn 27.
nóvember nk. kl. 15-19 í Asgarði,
sal Félags eldri borgara í Glæsibæ,
Álfheimum 74, Reykjavík.
í fréttatilkynningu segir: ,Á síð-
Iustu árum hefur þekking á eðli og
orsökum beinþynningar aukist
verulega og miWar framfarir hafa
orðið í sambandi við greiningu, for-
varnir og meðferð. Landlæknisemb-
ættið og samtökin Beinvernd gang-
ast því fyrir fundi þar sem fjölmörg
atriði varðandi beinþynningu verða
kynnt og rædd ítarlega af sérfræð-
ingum á þessu sviði. I framhaldi af
fundinum er stefnt að því að semja
ráðleggingar til leikra og lærðra
i varðandi forvarnir og meðferð bein-
j þynningar."
Fundurinn er opinn öllu heil-
brigðisstarfsfólki.
Herrafatasýn-
ing í Leikhús-
kjallaranum
HIN árlega herrafatasýning Herra-
Ifataverslunar Kormáks og Skjaldar
verður haldin fimmtudagskvöldið
26. nóvember í Þjóðleikhúskjallar-
anum kl. 21.
„Herramenn á öllum aldri sýna
fallegan fatnað og landskunnir
skörungar fara með söng, gaman-
mál og karlmannlegan fróðleik.
Sýrupolkasveitin Hringir ásamt
gestum leikur séi-valið efni undir
sýningunni,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Keppni um Herrafataverslunar
ÍKormáks og Skjaldarbikarinn í ís-
lenskri glímu fer nú fram í þriðja
skipti. Orri Björnsson mun lýsa
glímunni. Sýningin er í umsjá kaup-
mannanna Skjaldar Sigurjónssonar
og Kormáks Geirharðssonar, Ragn-
ar Kjartansson verslunarstjóri lýsir
fatnaði. Aðgangur er ókeypis og
boðið verður upp á randalínur. Allir
velkomnir.
IFræðslufundur
um rauða úlfa
FRÆÐSLUFUNDUR á vegum
Gigtarfélags íslands um rauða
úlfa (lupus) verður haldinn
fimmtudaginn 26. nóvember kl.
20.30 í safnaðarheimili Neskirkju
við Hagatorg.
Frummælandi verður di'. Krist-
ján Steinsson og fjallar hann um
Ínýjar rannsóknarniðurstöður og
framtíðarverkefni um sjúkdóminn á
íslandi. Að loknu erindi verða al-
mennar umræðui' og fyrirspurnum
svarað.
Gengið út
að Gróttu
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrh' gönguferð frá Hafnar-
húsinu í kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20, vestur með ströndinni út á
Snoppu við Gróttu.
Þar verður val um að ganga til
baka eða fara með SVR. Á leiðinni
verður litið inn hjá Landhelgisgæsl-
unni og ýmislegt skoðað sem tengist
sögu hennar og starfsemi í dag. Allir
eru velkomnh'.
Vilja ekki áfeng-
isauglýsingar
FUNDUR foreldra siglfirski'a barna
skorar á fjölmiðla og aðra auglýs-
ingamiðla að bh'ta ekki áfengis- og
tóbaksauglýsingar.
Fundurinn skorar jafnframt á
stjórnvöld að þau taki af allan vafa
sem kann að vera á lögmæti banns
við slíkum auglýsingum. Fundurinn
hvetur alla foreldra í landinu og
aðra, sem láta sig forvarnir gegn
vímuefnum varða, að taka undir
þessa áskorun.
■ „ÞINGFLOKKUR óháðra harmai'
þá niðurstöðu sem varð á nýafstöðnu
flokksþingi Framsóknai'flokksins
þar sem hafnað var tillögum um lög-
fonnlegt mat á umhverfisáhrifum
Fljótsdalsvirkjunar og um undirrit-
un á Kyoto-bókuninni. Hér er um að
ræða afar mikilsverð umhverfismál
sem fjöldi fólks hefur látið sig varða
og hafa þýðingu fyrh’ stöðu Islands á
alþjóðavettvangi," segh' í fréttatil-
kynningu. „Fyi'ir Alþingi liggja nú
tillögur um bæði þessi efni og hefur
þeim verið vísað til umhverfisnefnd-
ar þar sem lagt er til grundvallar að
Island gerist fullgildur aðili að
Kyoto-bókuninni og ekki verði ráðist
í orkufrekan iðnað á meðan slík
stefna er í mótun. Tillaga þessi er
komin til iðnaðarnefndar. Þess verð-
ur að vænta að umræddar tillögur
komi til afgreiðslu fyrr en seinna á
Alþingi svo að skýr afstaða þingsins
til þessara mála komi í ljós.“
LEIÐRÉTT
Kátir karlar sungu
í FRÉTT Morgunblaðsins í gær af
afliendingu bjartsýnisverðlauna til
aldraðra á flokksþingi Framsóknar-
flokksins var rangt farið með nafn
kórsins sem söng við það tækifæri.
Kórinn heitir Karlakórinn káth- kai'I-
ai' og er hann hluti af kór félagsstarfs
aldraðra. Þetta leiðréttist hér með.
Einar sat hjá
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu í
gær um samþykkt bæjarstjórnar
Hveragerðis, vill Einar Hákonarson
bæjarfulltrúi taka fram að hann sat
hjá þegar greidd voru atkvæði um
tillögu um fjárstuðning til 10. bekly-
ar grunnskólans standi nemendur
sig vel í samræmdum prófum í vor.
í
FRÉTTIR
Myndasýning frá suðurpólnum
MYNDASÝNING frá skíðaleið-
angri á suðurpólinn verður í Há-
skólabíói fimmtudagskvöldið 26.
nóvember kl. 20. Leiðangurs-
mennirnir Olafur Orn Haralds-
son, Haraldur Örn Ólafsson og
Ingþór Bjarnason sýna þar lit-
skyggnur og kafla úr mynd-
bandi.
I fréttatilkynningu segir: „Nú
er eitt ár liðið frá því að leiðang-
urinn lagði upp í þessa 1.100 km
löngu göngu og náði án utanað-
komandi aðstoðar á suðurpólinn
á nýársdag á þessu ári. Göngu-
mennirnir þurftu að takast á við
margvíslega erfiðleika, bæði
andlega og líkamlega, en mestu
farartálmar ferðarinnar voru
fimbulkuldi, mótvindur og skafl-
ar á auðnum Suðurskautslands-
ins. Þegar nær dró suðurpólnum
var færi afar þungt og súrefnis-
skortur dró úr líkamskröftum.
Það var stór stund að ná lang-
þráðu takmarki og reisa íslenska
fánann á suðurpólnum. En suður-
póllinn sjálfur kom Ieiðangurs-
mönnum á óvart bæði frá sjónar-
miði náttúru og rannsókna sem
þar eru stundaðar. Heimferðin
reyndi líka á þolinmæði ferða-
langanna því að illviðri hamlaði
för þeirra heim til íslands.“
I anddyri Háskólabíós verður
sýndur hluti af búnaði leiðang-
ursmanna. Öllum er heimill að-
gangur á meðan húsrúm leyfír.
Aðgangseyrir er 600 kr.
Jóla-
kort
SKB
JÓLAKORT
Styrktarfélags
krabbameins-
sjúkra barna í ár
prýðir mynd eftir
Braga Einarsson
sem hefur sett
merki félagsins í
mjallarbúning.
Jólakortin eru
tvöföld, 105 mm
á hæð og 147 mm
á breidd. Þau
kosta 80 kr.
stykkið og eru fá-
anleg á skrifstofu
félagsins á Suð-
urlandsbraut 6 í
Reykjavík.
Fulltrúafundur Landssamtakanna Þroskahjálpar
Tryggja verður tekjustofna
við flutning til sveitarfélaga
FULLTRÚAFUNDUR Landssam-
taka Þroskahjálpar var haldinn á
Flúðum dagana 13.-15. nóvember sl.
Samhliða fulltrúafundinum var hald-
ið málþing sem bar yfirskriftina:
Þjónusta við fatlaða í upphafi nýrrar
aldar og var umfjöllunin í ljósi þess
að ákveðið hefur verið að flytja mál-
efni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Fjallað var um fyrirhugaðar
breytingar á lögum um félagsþjón-
ustu sveitai-félaga sem unnið er að á
vegum félagsmálaráðuneytisins og
réttindagæslu fatlaðra í því sam-
hengi. Þá var rætt um ráðgjafar- og
sérfræðiþjónustu á landsvísu frá
sjónarhorni sérfræðinga og neyt-
enda. í ljósi breyttra tíma voru til
umræðu nýjar áherslur í þjónustu
við fatlaða, hvar tækifærin séu til
framfara og hvað beri að varast.
Til að auðvelda fólki sem er
þroskaheft eða seinfært til þátttöku
á fundinn var fluttur útdráttur úr
öllum erindum á einföldu og auð-
skildu máli.
Fundurinn samþykkti ályktanh'
þar sem mótmælt er harðlega skerð-
ingu á lögbundnum tekjum Fram-
kvæmdasjóðs fatlaðra um meira en
helming. Fundurinn álítur að verði
fjárlagafrumvarpið óbreytt að lög-
um, stefni það í óefni yfirtöku sveit-
arfélaga á þjónustu við fatlaða.
Fundurinn leggur sérstaka áherslu á
að málefni fatlaðra verði ekki flutt til
sveitarfélaganna nema þeim verði
tryggðir tekjustofnai' til að sinna
þeim á viðhlítandi hátt. Fundui'inn
skorar á Alþingi að ákveða nýja dag-
setningu fyi'ir yfirfærsluna og jafn-
framt að félagsmálaráðherra leggi
fram framkvæmdaáætlun um nauð-
synlega uppbyggingu i málefnum
fatlaðra, segir í fréttatilkynningu.
Fundurinn Itrekar þá skoðun sam-
takanna að áður en af yfirtöku sveit-
arfélaga á þjónustu við fatlað fólk
geti orðið þurfi einnig að ti'yggja
réttindagæslu og ráðgjafar- og sér-
fræðiþjónustu þeim til handa.
Fulltrúafundurinn skorar á stjórn-
völd að ráðast í breytingar á örorku-
bótum. Fundurinn telur að þeh' sem
aðeins hafa örorkubætur til fram-
færslu séu í raun og veru dæmdir frá
fjölskyldulífi og eðlilegri þátttöku í
samfélaginu. Fundurinn bendir á þá
staðreynd að fjárframlög til velferð-
armála eru mun lægri á Islandi en á
öðram Norðui'löndum og álítur kjör
öryrkja smánarblett á þjóðfélaginu.
Fulltrúafundurinn vekur athygli á
sérstökum vanda seinfærra og
þroskaheftra foreldra og hvetur til
að þeim sé veittur réttur og nægileg-
ur stuðningur til að ala upp börn sín.
Til heilbrigðis- og félagsmálaráð-
herra er beint þeirri áskorun að
staðið verði við loforð um nýja og
betri búsetu fyrir íbúa Kópavogs-
hælis. Bent er á að mikið af húsnæði
stofnunarinnar sé fjármagnað með
sérstökum framlögum til málefna
fatlaðra og því sé eðlilegt að Ríkis-
spítalar kaupi húsnæðið þegar það
er tekið til annarra nota. Rekstrarfé
sé þegar til staðar og eðlilegt sé að
það fylgi einstaklingunum í nýja bú-
setu.
Að lokum lagði fundurinn til að
öllum fótluðum væri ti'yggt að
minnsta kosti fjögurra ára nám í
framhaldsskóla.