Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 64

Morgunblaðið - 25.11.1998, Síða 64
( ?flir Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Drögum næst 10. desember .WL. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS MORGUNBLAÐID, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Yfír sjö mánaða biðlisti hjá barna- og unglingageðdeild vegna ofvirkra barna stöðugt. Sextíu börn með hegðunar- vandamál eða sem greinst hafa of- virk eru nú á biðlista og eru þau yf- irleitt á aldrinum 5 til 6 ára og upp í um 12 ára. Deildin getur tekið í meðferð tvö ný börn á mánuði þannig að biðtíminn er nú lengri en sjö mánuðir. Betra aðgengi og meiri vitneskja Skýringuna á fjölgun segir Ólafur margháttaða, svo sem aukna sjúk- dómstíðni, betra aðgengi, umræðu og vitneskju fólks um það hvar að- stoð er að fínna. „Petta er líka vegna þess að kostur þeirra aðila sem fást við málin áður en þeim er vísað til okkar, svo sem sérfræðinga á stofum og skólasálfræðinga, hefur þrengst. Fólk hefur nú orðið minni möguleika á að leita til þessara aðila og þeir geta ekki tekið við jafn- mörgum og áður. Skólasálfræðingar eru fáliðaðir og þyrftu að vera fleiri en hlutverk þeirra er einkum grein- ing en síður meðferð. Sérfræðingar á eigin stofum anna heldur ekki þessu aukna álagi,“ segir Ólafur meðal annars og segir almennt aukna ásókn í þjónustu barna- og unglingageðdeildarinnar. Hann sagði deildina eiga að sinna erfið- ustu tilfellunum sem sérhæfðasta stofnunin á þessu sviði en aðrir aðil- ar ættu að geta sinnt ákveðnum hluta þessa vanda, t.d. heilsugæsl- an. Þá segir Ólafur að ríkisvaldið gæti látið almannatryggingar taka á sig hluta af kostnaði við viðtöl og meðferð hjá sálfræðingum á eigin stofum en þær taka engan þátt í slíkum kostnaði í dag. Ólafur Ó. Guðmundsson sagði að í nýlegri skýrslu til heilbrigðisráð- herra um stefnu í geðheilbrigðis- málefnum væri m.a. nefnt sem for- gangsatriði að sinna þyrfti' betur geðheilbrigðisþjónustu við ung- menni. Þar er einnig bent á þá leið að koma á meiri geðheilbrigðis- þjónustu á heilsugæslustöðvum. Forseti ræðir hlutverk forsetaembættis og stækkun NATO í sænsku blaðaviðtali Utanríkisráðherra ósam- þykkur túlkun forseta HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segist ekki kannast við að sjónarmið Islendinga varðandi stækkun Atlantshafsbandalagsins (NATO) séu óvinsæl meðal stjórn- (j^y^ilda í Þýskalandi og Bandaríkjun- um. I viðtali, sem birtist í Svenska Dagbladet í gær, segir Ólafur Ragn- ar Grímssonj forseti Islands, að sú áhersla sem Islendingar leggi á aðild Eystrasaltsríkjanna að NATO eigi ekki alls staðar upp á pallborðið. „Það liggur ljóst fyrir að skoðanir Is- lendinga eru ekki sérlega vinsælar í Washington og Bonn, en þar vilja menn bíða og sjá,“ segir Ólafur Ragnar m.a. í viðtalinu. Forseti segist ávallt hafa lagt áherslu á nauðsyn þess að gefa Eystrasaltsríkjunum tækifæri á að- ild er hann hafi átt fundi með erlend- um stjórnmálamönnum. Annað væri einungis viðurkenning á því að Sov- étríkin væru enn við lýði. Halldór Asgrímsson segir í sam- tali við Morgunblaðið, að hann kann- ist ekki við þessa afstöðu þýskra og bandarískra stjórnvalda. „íslenska stjómin hefur átt mjög náið og gott samstarf um stækkun NATO við Bandaríkjastjórn, sem hefur verið ánægð og þakklát fyrir framlag ís- lendinga í þeim efnum.“ Hefur lýðræðislegt; umboð í viðtalinu við Svenska Dagbladet er Ólafur Ragnar einnig spurður hvort þátttaka hans í pólitískri um- ræðu sé ekki á skjön við stjórnar- skrá íslands. Hann svarar því til að hann sé kjörinn beinni kosningu af þjóðinni og hafi því lýðræðislegt um- boð. Síðan segir Ólafur Ragnar: „Það er ekki til nein ein uppskrift að starfssviði mínu. En ef forseti tekur ekki þátt í þeim umræðum, sem snerta fólk, gæti það spurt: Hvaða tilgangi þjónar hann?“ Á blaðamannafundi í gær var Ólaf- ur Ragnar spurður frekar út í þessi ummæli í viðtalinu. I máli forseta þar kom fram að hann liti ekki svo á að síðustu forsetakosningar hefðu verið pólitískar. Hann hefði heldur ekki verið að leggja til endurskoðun forsetaembættisins heldur benda á að eðlilegt væri að stöðugt færui fram umræður milli forseta og þjóð- arinnar um inntak embættisins. Hlutverk forseta nægilega skýrt Halldór Ásgrímsson segist telja að hlutverk forseta Islands sé nægilega skýrt í stjórnarskránni og ekki þörf á endurskoðun þess. ísland sé þing- ræðisríki og það feli í sér ákveðna verkaskiptingu. Ljóst sé að ríkis- stjórnin og utanríkisráðherra fyrir hennar hönd beri ábyrgð á utanríkis- málum. Hann segist þó ekki telja óeðlilegt að forseti tjái sig um utan- ríkismál í opinberum heimsóknum. ,A-ðalatriðið er að það sé samræmi í þeim sjónarmiðum sem forsetinn setur fram og sjónarmiðum ríkis- stjórnarinnar,“ segir utanríkisráð- herra. ■ Bandarfkin/33 MIKIL fjölgun hefur orðið á nýjum málum sem vísað er til bama- og unglingageðdeildar Landspítalans frá síðasta ári eða úr 350 í fyrra í 500 í ár. Stór hluti þeirra snýst um böm sem eiga í hegðunarerfiðleik- um og hafa jafnvel verið greind of- virk. Um 60 börn með slík einkenni era nú á biðlista og er útlit fyiir að þau þurfi að bíða eftir meðferð í allt að sjö mánuði. Ólafur Ó. Guðmundsson, yfir- læknir barna- og unglingageðdeild- ar Landspítalans, segir að þrátt fyr- ir að tekist hafi að auka mjög afköst á deildinni varðandi greiningu og meðferðarúrræði hafi deildin ekki undan þegar tilfellum fjölgar FLT-PICA Heiðursvörður kannaður KARL Gústaf Svíakonungur og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, kanna heiðursvörð líf- varðasveitar konungs í Stokkhólmi í gær, á fyrsta degi opinberrar heimsóknar forsetans til Svíþjóðar. Ólafur Ragnar hitti meðal annars Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, að máli og bauð íslend- ingum til móttöku á Nordiska museet. Dagurinn í dag verður helgaður sænsku og íslensku viðskipta- lífi og forsetinn heldur sænsku konungshjónunum veislu. ■ íslenskir hestar/32 Hægt að taka inn tvö ný börn á mánuði Rekstur Flugleiða fyrstu níu mánuði ársins Afkoman batnaði um 222 milljonir frá síðasta ári Morgunblaðið/RAX Líflegar heyrúllur HAGNAÐUR af reglulegri starf- semi Flugleiða og dótturfélaga eft- ir skatta nam 349 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins en var á sama tíma í fyrra 127 milljónir ( króna. Afkoman af reglulegri rítarfsemi Flugleiða og dótturfé- laga eftir skatta batnar því um 222 milljónir króna, eða 274% fyrstu níu mánuði ársins frá því á sama tíma í fyrra. Hagnaður af heildarstarfsem- inni fyrstu níu mánuði ársins minnkaði um 35% frá sama tíma- - bili í fyira, er 339 milljónir króna en var á sama tíma í fyrra 519 milljónir króna. Á samanburðar- tímabilinu í fyrra féll til um 392 milljóna króna söluhagnaður, fyrst og fremst vegna flugvélasölu. Ekki er sambærilegur söluhagnaður í níu mánaða reikningsskilum fyrir þetta ár. Fyrstu sex mánuði ársins nam tap Flugleiða 1.578 milljónum króna. Talsverð viðskipti voru með bréf Flugleiða á Verðbréfaþingi Islands í gær, eða fyrir 62 milljónir króna. Síðustu viðskipti voru á genginu 3,26 sem er 0,6% lækkun frá síð- asta viðskiptadegi. Gengið fór hæst í 3,43 og lægst í 3,15 í við- skiptum með bréf félagsins á Verð- bréfaþingi í gær. Stjórn Flugleiða samþykkti í gær samning sem gerður hefur verið um sölu Boeing 737-400 flugvélar til bandarískra aðila sem afhent verður nýjum eiganda í desember. Áætlaður 350 milljóna króna sölu- hagnaður vegna hennar kemur til tekna á fjórða ársfjórðungi. Gert er ráð íyrir að hagnaður verði af heildarstarfsemi Flugleiða á árinu vegna söluhagnaðar af flug- vélinni. ■ Afkoma Flugleiða/18 HEYRÚLLURNAR eru ólíkt líf- legri þegar andlit hafa verið mál- uð á þær en án þeirra. Ekki mun óalgengt að vegfarendur geri hlé á för sinni um Fáskrúðsfjörð, þar sem myndin var tekin, til að virða þær fyrir sér. Krökkunum finnst líka gaman að hnoðast í rúilunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.